Tíminn - 09.06.1974, Síða 12

Tíminn - 09.06.1974, Síða 12
HÚN RANN- SAKAR STREITU AAEÐAL FÍLA í KENÝU Bandariskur sálfræöingur, Phyliis Strickland, dvaldist fyrir fjóruni árum I Kenýu og hreifst þá svo af lífi vilitra dýra I Afríku, aö hún sagöi upp stööu sinni i há- skólanum i Buffaio og tók aö kanna hætti fila, fjölskyldullf þeirra og þá streitu, sem fram kemur nieðal þeirra i þrengsium þjóögarða. Sálfræöilegar rann- sóknir hennar af þessu tagi hafa leitt til margra nýrra uppgötvana á þessu sviöi. Phyllis Strickland haföi i sjö ár verið ráðgjafi stúdenta, og meðal annars leitazt við að kenna þeim, hvernig þeir ættu að gera sér lifið ánægjulegra. Loks fannst henni timi til þess kominn, að hún reyndi sjálf að gera sér lifið ánægjulegra. Þá tók hún allt sparifé sitt og hélt til Austur-Af- riku. ,,Ég veit ekkert unaðslegra en sveima fram og aftur um sléttuna”, segir hún við gesti sina, þegar hún ber á borð fyrir þá kjúklinga og trönuberjasósu i bjarma frá suðandi gasluktum á myrkum kvöldum i Afriku. Utan við smáhýsi hennar i þjóðgarðin- um Tsavó i Kenýu væla hýenur, sem farið hafa á kreik, þegar dimmdi, og þegar liður á nótt get- ur jafnvel ljón heyrzt öskra i fjarska. Þrjátiu þúsund fiiar Phyllis Strickland ver öllum stundum til þess að rannsaka háttalag einnar filafjölskyldu. Hvergi i heiminum eru fleiri filar saman komnir en i þjóðgarðinum i Tsavó. Þar er talið, að þrjátiu þúsund filar séu á tuttugu þúsund ferkilómetra svæði, sem mest- megnis er þurrlend og ófrjó slétta með runna á stangli. Phyllis Strickland er fjörutiu og sex ára gömul, og alla daga verður hún að vera á ferli úti á sléttunni, svo að hún missi ekki af filunum sinum. Hún leggur af stað að heiman klukkan 7 á morgnana i gömlum jeppa, og hefur meðferðis minnis- bækur sinar, mælitæki, ljós- myndavél, myndir af eyrum fila og töflu, er hún notar til þess að ákvarða aldur fila eftir stærð þeirra. Starf hennar er þáttur Tsavó-áætlunar Kenýustjórnar, og hlutverk hennar er fyrst og fremst að rannsaka streituna, sem gætir i þjóðgarðinum með vaxandi fjölda dýra á afmörkuðu Aðalfundur SAFF AÐALFUNDUR Félags Sam- bandsfiskframleiðenda — SAFF — var haldinn i Reykjavik 20. mai. A fundinum uröu mikiar umræður um starfsemi frystihús- anna, sjávarafurðadeildar Sam handsins og stööu frysti- iönaöarins i landinu, og aö lokum samþykkti hann svofellda ályktun: „Aðalfundur Félags Sambandsfiskframleiðenda, haldinn I Reykjavik mánudaginn 20. mai 1974, bendir á, að hin mikla þensla, sem rikt hefur i þjóðfélaginu að undanförnu ógnar nú atvinnuöryggi lands- manna, þar sem rekstrargrund- völlur undirstöðuatvinnuveganna er brostinn. Það er þvi krafa fundarins, aö stjórnvöld geri nú þegar ráðstafanir til að fisk- iðnaðinum i landinu verði skapaður viðhlitandi rekstrar- grundvöllur”. Þá var kosið i stjórn félagsins til eins árs, og hlutu eftirtaldir menn kosningu: Rikharð Jónsson Þorlákshöfn, Arni Benediktsson Reykjavik, Marteinn Friðriksson Sauðárkróki, Benedikt Jónsson Keflavik og Páll Andreasson Þingeyri. Varamenn voru kosnir þeir Jón Karlsson Innri-Njarðvik, Asgrimur Halldórsson Höfn i Hornafirði og Tryggvi Finnsson Húsavik. VOLVO eigendur athugið Verkstæði okkar verða lokuð vegna sumarleyfa — sem hér segir: Verkstæðið Suðurlandsbraut 16 frá 15. júli til 13. ágúst. Eléttingaverkstæðið Hyrjarhöfða frá 8. júli til 6. ágúst. Umboðsverkstaeði okkar — Kambur h.f. i Kópavogi — verður opið. VELTIE HF Suðuriandsbraut 16 • Revkjavik • Simnefni: Volver • Simi 35200 TÍMINN Sunnudagur 9. júni 1974. þjást fílarnir af streitu? svæði, hvaða áhrif þurrkarnir miklu hafa á sambúð dýranna, samheldni fjölskyldna og hópa dýra, og loks hvernig hátterni fila breytist eftir árstíðum. Phyllis Strickland telur, að rannsóknir hennar muni taka eitt ár til viðbótar, og sennilega mun hún leggja fram um eina milljón króna af eigin fé til þessara rann- sókna. Aður en hún kom til Afriku hafði hún svo til ekkert kynnt sér dýrafræði eða dýrasálfræði, og upphaflega var það ekki heldur ætlun hennar að efna til umfangs- mikilla rannsókna. Hún reyndi fyrst að fá ólaunað hjálparstarf hjá dýrafræðingum, sem stunduðu rannsóknir i Austur-Af- riku. Það er aðeins fátt fólk, sem á völ á sliku, og það er sjaldgæft, að fólk sé ráðið fyrirvaralitið. Um skeið var hún orðin úrkula vonar um, að draumur hennar rættist. Þá greip hún til þess ráðs, að hún skrifaði hinum fræga dýrasálfræðingi og Nóbelsverð - launamanni, Konráö Lorenz, og bar undir hann, hvort hugmynd hennar væri kannski fjarstæða. Konrad Lorenz svaraði henni. Hann hvatti har.a til þess að gefast ekki upp. Þegar dr. Philip Glover, sem stjórnar rannsóknunum i Tsavó- þjóögarðinum, stakk loks upp á þvi, að hún hæfi filarannsóknir upp á eigin spýtur, greip hún tækifærið fegins hendi. — En ég hefði orðið jafnhimin- lifandi, þótt Glover hefði stungið upp á þvi, að ég rannsakaði gazcllur eða kúdúa, segir hún. Það varð feiknalegt uppistand, þegar Phyllis Strickland kom i þjóðgarðinn. Einn þjóðgarðs- varðanna, sem hafði beyg af gömlum, villtum filum, sagði við starfsbræður sina: — Fyrstu þrjá mánuði húkir hún i kofa sinum og reynir að fylgjast með filunum. Og svo gefst hún upp. Þetta gekk ekki eftir. En stjórnendum þjóðgarðsins fannst samt vissara að láta henni i té afriskan leiðsögumann. Hann heitir Antony Gakónó Gúthúa, og hann hefur jafnan fylgt henni á ferðum hennar um sléttuna. Phyllis Strickland telur, að sál fræðinám hennar og reynsla við sálfræðileg störf hafi komið henni að miklu gegni i Afriku. Þess vegna hafði hún verið skyggnari á ýmis tilbrigði i hátterni og við- brögðum dýranna. Hún er til dæmis glöggari en ella á það, hvort dýr er hrætt, reitt eða bara forvitið. Aldrei hefur það borið við, að villt dýr hafi ráðizt á hana. Samt hafa gerzt atvik, sem henni eru býsna minnisstæð. Eitt þeirra gerðist, er hún var fyrir skömmu komin i þjóðgarðinn. Hún var að nálgast dálitinn hóp fila, sem ekkert virtust annað en friðsemd- in sjálf. Allt I einu tók einn fillinn viðbragð, kjagaði i átt til hennar, staðnæmdist skammt frá henni og blés reiðilega. — Ég varð alveg dauðhrædd, segir Phylis Strickland. Ég þorði ekki einu sinni að setja jeppann i gang.Ég flýtti mér bara að loka öllum gluggum. Og þarna sat hún agndofa og starði á filinn, sem loks sneri frá og skokkaði til hópsins. Þorri fila fer að óróast, þegar jeppinn nálgast, en hin útvalda filafjölskylda hennar hefur þó fyrir löngu sætt sig við hnýsni hennar. Hún kippir sér ekki lengur upp við það, þótt Phyllis Strickland og Anthony Gakónó Gúthúa komi á jeppanum á hverj- um morgni. Sölun SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA, JEPPA- OG VORUBÍLA MEÐ DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM. Ábyrgð tekin d sólningunni. Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hiólbarða. önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. ARMULA7*30501 Ö84844

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.