Tíminn - 09.06.1974, Side 13

Tíminn - 09.06.1974, Side 13
Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN 13 Alþýðlegt merkisrit um þjóðmenningu Arbók hins islenzka forn- leifafélags árið 1973 er komin út fyrir nokkru, svo sem vera ber. Ýmsir munu vera nokkuð fáfróðir um fornleifafélagið og er það vorkunn, þar sem það lætur litið yfir sér. En aftan á kápu árbókarinnar kynnir það sig með þessum orðum: „Hið islenzka fornleifafélag gefur út Arbók, sem er fræðilegt rit um menningarsöguleg efni, einkum fornleifafræði, listsögu, listiðnaðarsögu, þjóðháttafræði o.fl. Ritið kemur út einu sinni á ári, yfirleitt ekki minna að vöxtum en 10 arkir. Félagar i Fornleifafélaginu fá ritið fyrir árgjaldið, sem nú er kr. 500.00. Arbók fornleifafélagsins kom fyrst út 1880 og er nú torgætt rit frá upphafi”. t þessari siðustu árbók er i fyrsta lagi grein eftir Ólaf Halldórsson um likneskjusmið. Er þar greint frá tilsögn i litun og skreytingu likneskja, svo sem hana er að finna i gömlu skinnhandriti frá þvi um eða fyrir 1400. Sú grein er að sjálf- sögðu þýdd eða endursögð. Gildi hennar fyrir nútimalesendur er ekki sizt málsögulegt. Ýmsir munu hafa gaman af orðafari þessarar ritgerðar en þar eru m.a. á ferð tökuorð, sem fyrir löngu eru fallin úr notkun og hafa ef til vill aldrei náð að fe&ta rætur. Þá er ritgerð eftir Kristján Eldjárn, sem er ritstjóri ár- bókarinnar, um Þorláksskrin i Skálholti. Kallar hann það samtining um glataðan íorngrip og er það orð að sönnu. En þarna er sögð merkileg saga um þennan fornhelga skrautgrip, sem iúterskir biskupar settu til hliðar* þar til Brynjólfur Sveinsson lét endursmiða skrfnið en árið 1802 er það selt á uppboði, sem ónýtur eða óþarfur kirkjugripur og hverfur það þar með úr sögunni. Margt er i óvissu um Þorláks- skrin en þarna er dregið saman það sem um það er vitað og verður úr þessu fróðleg ritgerð og skemmtileg aflestrar. Þórður Tómasson skrifar þarna ftarlega ritgerð um meltekju á Herjólfsstöðum i Alftaveri. Sú grein er skrifúð eftir Hannesi Iljartarsyni á Herjólfsstöðum. Þó að greinin sé byggð á samtölum, sem eiga sér stað fullum fimmtiu árum eftir að melurinn var siðast nýttur að fornum hætti er þetta giögg og nákvæm frásögn, enda fylgja henni ágætar skýringar- myndir. Trúlega þykir ýmsum grein Nönnu ólafsdóttur um baðstofu og böð til forna mestum tiðindum sæta i þessari árbók. Hugmyndir manna um baðstofur á Norðurlöndum hafa nokkuð verið að breytast að undanförnu. Nanna vitnar m.a. i bók eftir Ilmar Talve, en hann heldur þvi fram að mjög sé vafasamt að raunverulegar gufubaðstofur hafi tiðkazt til forna. Er þar skemmst frá að segja, að Nanna reynir að færa rök að þvi, að svo nnuni ekki heldur hafa verið á íslandi. 1 fyrsta lagi minnir þessi grein á það. hvað það er i rauninni takmarkað, sem við vitum um fornöldina. Nanna getur um alla þá staði i Sturlungu þar sem getið er um bað eða baðstofur. Það er tvi- mælalaust óhætt að fullyrða að þar er fátt, sem á við gufubað. En baðstofunafnið er staðreynd og það finnst mönnum eðlilega öfugmæli þegar um er að ræða svefnherbergi eða dagstofu Nanna telur, að bað geti hafa merkt þvott — e.t.v. einkum eða eingöngu úr volgu eða heitu vatni. Slikur þvottur hafi verið eins konar helgiathöfn, farið fram i virðulegasta hluta ibúðarinnar, sem hafi svo dregið nafn sitt af þvi helgasta og hátiðlegasta, sem þar var gert. Óneitanlega er þetta skemmtileg skýring og fram- bærileg. Vist er þaö. að þvotturinn var snemma mikils metinn. Nafn laugardagsins eitt sér er þar ærin heimild. Nanna minnist á frásögn Eyrbyggju af berserkjum Viga- Styrs og baðstofunni. Það er aukaatriði i þessari grein að hún segir: „sögnin um hráblautu húðina (en útgefendur Eyrbyggju benda á að hún er gömul sögn og gæti verið tilbúningur án nokkurs skyld- leika við islenzkan raunveru- leik)” Auðvitað er siikt hugsan- legt, en það tiltæki að breiða blauta húð á veg manna til að verða þeim til falls, er svo eðli- legt. að ekkert væri liklegra en að fleiri en einn hefðu notað sér það. Það er engin sönnun um skyldleika sagna þó að slikt og þvllikt komi fyrir i þeim íiöðum”. Vilji árbókin vera alþýðlegt rit, ætti hún að fara sparlega i það að birta skýringargreinar á latinu og raunar ekki heldur á ensku og þýzku. Séu slikar tilvitnanir birtar, sem oft er sjálfsagt, ætti að þýða þær. Enn er i árbókinni grein um brjóstlikan Thorvaldsens af Jóni Eirikssyni eftir Else Kai Sass. Ritstjórinn hefur þýtt og segir um hana: „Greinin er fyrsti kafli i verki hennar i þremur bindum, Thorvaldsens Portrætbuster I-III. Þar gerir hún itarlega grein fyrir öllum brjóstlikneskjum Thorvaldsens, sem henni telst til að muni vera um 178. Elzt af þeim ölium hefur verið brjóstlikanið af Jóni Eirikssyni konferenzráði, þótt ekkert hafi varðveitzt af þvi nema andlitið, sem er i Þjóð- minjasafni tslands”. Else Kai Sass er prófessor i listsögu við Hafnarháskóla. En brjóst- mynd þessa sendi Grimur Thorkelin Bjarna amtmanni Thorsteinsson að gjöf, en hún brotnaði i fiutningum. Punktar um Hraunþúfu- klaustur er ritgerð eftir Kristján Eldjárn. Þar er saman dregið það helzta, sem ritað hefur verið um Hraunþúfu- klaustur i Vesturdal i Skaga- firði. Þeirri grein lýkur svo: „Um það leyti sem ég var að ganga lrá þessum punktum handa Árbók, kannaði Þór Magnússon þjóðminjavörður rústirnar i Hraunþúfuklaustri nokkuð. llann gróf meðal annars niður i stærstu tóftina og kom þar niður á gott eldstæði á miðju gólfi, mjög af sömu gerð og langeldar eru i fornbæjarústum. Þetta kynni helzt að styðja það, að þarna hafi verið litið býli i fornöld. En eld þarf einnig i seljum og jafnvel gæti verið goll fyrir gangnamenn að vlja upp hjá sér. Úr þessu mun sennilega betur greiðast þegar Hraun- þúfuklaustur verður grafið upp til hlitar. Það verður sennilega áður en mjög langt liður. Sú rannsókn verður efalaust próf- steinn á sumt i þessum punktum. Það gerir ekkert til þótt eitthvað saxist á þá. En ég legg þá fram i þeirri trú, að þeir spilli i engu fyrir þeim sem uppgröftinn gera”. Vera má, að fornleifa- rannsóknir eigi eftir að styðja hugmyndir Hákonar Bjarna- sonar skógræktarst jóra að menn hafi sótzt eftir þvi aö búa sem næst öræfunum á fyrstu öldum byggðarinnar. svo að þeir gætu haldið fé sinu fyrir ofan skóga til þess að betur nýttist dýrmætustu afurðir þcss, ullin. Þá var það ullin og kýrin, sem réðu genginu, og enn er það lilandi mál á tungu þjóðarinnar að komast i álnir, en það er raunverulega aö eiga sér ullarvoð. En þetta er nú bara eitt dæmi þess, hvert hugurinn leitar, þegar lesin er árbók fornleifafélagsins. Enn eru i þessari árbók nokkrar smágreinar, aliar læsi- legar vel og fróðlegar. Þar á meðal eru minningarorð ritstjórans um tvo visindamenn, sem unnu að uppgreftrinum að Stöng i Þjórsárdal. Dananan Aage Roussell og Sviann Marten Stenbergér. Þá er enn ótalin skýrsla um þjóðminja- safnið 1972 og frásögn af aðalfundi fornleifafélagsins. Þessi orð eru skrifuð i þeirri trú, að með þvi sé greiöi geröur einhverjum þeim, sem yndi hafa af umhugsunarefnum eins og þeim, sem árbókin er helguð, en hafa ekki gert sér ljóst hvilikt merkisrit við eigum, þar sem hún er. II. Kr. Ólafur Þ. Jónsson kemur heim og syngur í Þrymskviðu HINN kunni óperusöngvari Ólaf- ur Þorsteinn Jónsson er nýkom- inn til landsins frá Þýzkalandi til þess að syngja eitt af aðalhlut- verkunum i óperunni „Þryms- kviðu” eftir Jón Ásgeirsson, sem sett er upp sem liður i Listahátið- inni og er fyrsta islenzka óperan, sem sýnd er á fjölum Þjóðleik- hússins. Ólafur hefur starfað sem fast- ráðinn óperusöngvari i Þýzka- landi um tiu ára skeið. Siðustu þrjú árin hefur hann dvalizt i Mainz. Auk þess hefur hann sungið fjölda gestaleikja i ýmsum borg- um Þýzkalands og i Sviss, Austurriki og Luxemburg. Þetta er i annað sinn sem ólaf- ur syngur hlutverk i Þjóðleikhús- inu eftir að hann hóf störf er- lendis. Hið fyrra var aðalhlut- verkið i „Brosandi landi” eftir Franz Lehar fyrir nokkrum ár- um, en þar hlaut hann ágæta dóma. Ólafur dvelur hér heima fram i ágústbyrjun en heldur þá aftur til Þýzkalands. Frumsýning á „Þrymskviðu” er hinn 14. júni. Ólafur sem Sigaunabarónninn i samnefndri óperu eftir Johan Strauss. Ólafur Þ. Jónsson óperusöngvari.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.