Tíminn - 09.06.1974, Side 23
NETSÖLULte
i nýjum útsclnlnjum Wafs Caadts
•> kU#A. ^ ^ , ■xXií/trwi- >-^ ' >•'' ' V
BRIAAKLÓ
HEFUR ORÐIÐ:
Eins og kom fram i siðasta þætti
af Með á nótunum, er Hannes Jón
ekki lengur liðsmaður Brimklóar,
hljómsveitin hefur verið stokkuð
upp og tveir nýir menn ráðnir, en
það eru þeir Pétur Pétursson og
Jónas R. Jónsson.
Tiðindamaður þáttarins kom að
máli við þá félaga kvöld eitt i vik-
unni og ræddi við þá um breyting-
arnar og ýmsilegt fleira.
— Hver er ástæðan fyrir þvi að
þessar breytingar á skipan
Brimklóar áttu sér stað? þetta
Brimkló eins og hljómsveitin litur út idag. Hljómsveitin mun koma fram i fyrsta sinn eftir breytingarn ar i Festi i Grindavík á annan I hvitasunnu
VIÐ VÍLJUAA HAFA ÁNÆGJU AF
ÞVÍ AÐ SKEMMTA FÓLKI.... ÆSÍiSk
hlýtur að hafa átt sér einhvern
aðdraganda.
SIGURJÓN: Eftir að Björgvin
fór, lenti mikill hluti söngsins á
Hannesi, en staðreyndin er sú, að
hann stóð ekki undir þvi, sem á
hann var lagt.
ARNAR: Það verða eingöngu að
vera duglegir menn í þessu bandi
af þvi að þetta byggist allt á
áhugamennskunni.
— i einu dagblaðanna
var þvi haldið fram, að
það væri mál manna að hljóm-
sveitin væri á leiðinni i gröfina.
Þá var þess getið i siðasta þætti af
Með á nótunum að þvi hefði verið
haldið fram að Brimkló hefði
hnignað ali mikið að undanförnu.
Hvað viljið þið segja um þetta?
ARNAR: Við höfum leikið fyrir
dansi á mörgum góðum böllum
siðan Björgvin hætti.
SIGURJÓN: Brimkló var ekki
einu sinni komin i kirkjugarðinn,
hvað þá að hún væri á leiðinni i
gröfina. Auðvitað tekur það sinn
tlma að ná sér upp eftir að fækkað
hefurum einn.mann i hljómsveit-
inni.
RAGNAR: Dansleikjapró-
grammið hjá okkur var orðið
mjög breytt.
SIGURJÓN: Við vorum rétt að
byrja að spila okkur saman fyrir
um það bil mánuði siðan, þegar
við neyddumst til að gera
breytingar á ný.
— Var það ekki töluverð blóð-
taka fyrir hljómsveitina að missa
Björgvin.
SIGURJÓN: Þetta er nú dálitið
erfið spurning. Reyndar misstum
við Björgvin aldrei.
ARNAR: Sannleikurinn er sá, að
hann var látinn fara, einfaldlega
vegna þess að við áttum engan
veginn samleið.
— Þegar það var orðið ljóst að
þið kæmust ekki hjá þvi að breyta
til skipan hljómsveitarinnar,
komu þair Pétur og Jónas fljót-
lega til greina.
ARNAR: Við fengum fljótlega
augastað á Jónasi, en satt að
segja héldum við að Pétur vildi
ekki fara út i þennan bransa aft-
ur, en sem betur fer höfum við
náð i þá báða.
JÓNAS: Ég gaf ekki ákveðið svar
fyrr en ljóst var, að Pétur var
ákveðinn i að skella sér i þetta
lika.
PÉTUR: Það var ekki ætlun min
að spila neitt meira eftir að ég
hætti i Tilveru, en þegar maður
fær svona gott tækifæri til að spila
með duglegum áhugamönnum,
þá kemst maður ekki hjá þvi að
gripa það. Löngunin hefur alltaf
verið fyrir hendi.
— Jónas.nú sagðir þú einu sinni
AFMÆLISPLATA
HAUKS MORTHENS..
Haukur Morthens
LP. STEREO.
Útg. SG-hljómplötur.
ÞAÐ ERU um það bil fjögur eða
fimm ár siðan Haukur Morthens
söng siðast inn á hljómplötu, en
hinum stóra og trygga aðdáenda-
hópi hans til mikillar ánægju hef-
ur hann nú kvatt sér hljóðs að
nýju á þessum vettvangi, og
syngur nú i fyrsta sinn inn á
SG-hljómplötu.
Tilefni útgáfu þessarar hljóm-
plötu er ekki svo litið, þvi um
þessar mundir á Haukur 30 ára
söngafmæli, og jafnframt eru um
tuttugu ár siðan hann söng inn á
sina fyrstu hljómplötu. Ekki er
ástæða til að ræða hér nánar um
söngferil Hauks Morthens, enda
verður það gert siðar i þættinum.
Það er vissulega vandasamt
verk að velja úr þeim rúmlega
eitt hundrað lögum, sem Haukur
hefur sungið inn á hljómplötur,
þannig að sem flestir verði
ánægðir, enþetta hefur tekizt með
afbrigðum vel að minu mati. Far-
in var sú leið að setja lögin saman
i syrpur, og er það góð hugmynd,
þar sem um endurútgefin lög er
að ræða.
Það eru samtals átta syrpur á
plötunni, og i hverri syrpu eru
þrjú lög, eða samtals 24 lög. Ólaf-
ur Gaukur hefur fært lögin I
nýtizkulegri búning með útsetn-
ingum sinum og kemst mjög vel
frá þvi verkefni. Ekki er hægt að
segja að hann gjörbreytti lögun-
um með útsetningum sinum, enda
ekki ástæða til þess. Eitt laganna
hefur þó tekið allmiklum
breytingum, en það er „Kvöldið
er fagurt”.
Það er enginn vafi á þvi, að
þessi hljómplata á eftir að rifja
upp gamlar minningar hjá mörg-
um hlustandanum, og þar að auki
er þetta kjörin plata til að spila i
góðra vina hópi, þar sem
viðstaddir taka lagið með Hauki.
Eins og áður hefur komið fram,
er undirritaður ánægður með
lagavalið. Þar gefur m.a. að
heyra lögin Lóa litla á Brú, Suður
um höfin, Amorella, Vinarkveðja,
Bjössi kvennagull, Sextán tonn, I
landhelginni og Blátt litið blóm
eitt er, svo eitthvað sé nefnt.
Af þessum 24 lögum er liðlega
helmingurinn eftir isl. höfunda.
Þarámeðal eru: Arni Isleifs, Jón
Jónsson frá Hvanná, Oddgeir
Kristjánsson og Svavar Bene-
diktsson. Textarnir eru hafnir yf-
ir alla gagnrýni, enda texta-
höfundarnir flestir þjóðkunnir,
og er hér smá sýnishorn: Loftur
Guðmundsson, Númi Þorbergs-
son, Davið Stefánsson, Kristinn
Reyr, Vilhjálmur frá Skáholti og
Asi i Bæ.
Það er ekki eitt einasta lag,
sem ekki á heima á þessari
hljómplötu, en samt sem áður
sakna ég margra laga, eins og t.d.
Simbi sjómaður, Hulda. Aður oft
ég hef arkað þennan veg og
Stefnumót. En þetta undirstrikar
aðeins þá hugmynd, sem ég ætla
hér með að koma á framfæri, að
full ástæða sé til að gefa út aðra
slika syrpu-plötu með Hauki eftir
hæfilega langan tima. Af nógu er
að taka.
Upptakan fór fram i stúdiói
Albrechtsens i Kaupmannahöfn i
febrúar sl. og er all þokkalega
unnin.
Haukur Morthens er kunnur
fyrir sina góðu lagameðferð, og
hann bregzt ekki hér frekar en
endranær. Hljóðfæraleikararnir
eru allir danskættaðir, og er ekki
nema gott eitt um þeirra framlag
að segja, en að minum dómi hefðu
blásararnir mátt vera fleiri, þar
sem þeir koma við sögu, til að
gefa viðkomandi lögum aukinn
kraft, eins og t.d. í Lóu litlu á Brú.
Hugmyndin að útlitateikningu
plötuumslagsins er stórsniðug, en
þar var Ólafur Gaukur að verki.
Það er enginn vafi á þvi, að þessi
hljómplata Hauks Morthens á eft-
ir að ná miklum vinsældum. Hafi
Haukur Morthens og SG-hljóm-
plötur þökk fyrir.
— B.V.
i viðtali, er undirritaður tók, að
nú værir þú endanlega hættur að
syngja með hljómsveit.
JÓNAS: Það er alveg rétt hjá þér,
og ég hef dregið þann lærdóm af
þvi, að maður á aldrei, að segja
aldrei, og allra sizt i blaðaviðtali.
Tilfellið er, að ég hef gengið með
þetta i maganum eiginlega alveg
siðan ég hætti með Náttúru. Já,
það er rétt, að ég fékk vissa útrás,
þegar við Einar Vilberg sungum
saman um tima.
Ég hefði aldrei farið að spila
aftur ef ég hefði ekki fengið þetta
tilboð frá strákunum. Við erum
allir góðir kunningjar, og höfum
flestir unnið saman áður i hljóm-
sveit. -Við eigum lika allir það
sameiginlegt, að við erum allir
orðnir fjölskyldumenn, þannig að
sjónarmiðin eru mjög svipuð, og
auðvitað hefur það mikið að
segja.
— Verður einhver stefnubreyt-
ing varðandi lagavalið hjá
Brimkló?
RAGNAR: Við erum búnir að
byggja upp virkilega gott dans-
leikjaprógramm, og lögin voru
fyrst og fremst valin með það i
huga, að fólk skemmti sér sem
allra bezt, og auðvitað vonum við
að þetta hafi tekizt hjá okkur.
SIGURJÓN: Það er ekki þar með
sagt að við byggjum prógrammið
upp á vinsælum lögum. Lög geta
verið góð þó þau hafi ekki þotið
upp vinsældalista. Hins vegar
gerum við okkur ósköp vel grein
fyrir þvi að við erum ráðnir til að
skemmta fólkinu, en auðvitað
viljum við einnig hafa ánægju af
þvi sem við erum að gera, þetta
tvennt þarf að fara saman.
JÓNAS: Auðvitað höfum við
vinsæl lög með, en það er vitað
mál, að þessi lög eru ákaflega
ódrjúg, þvi það er ákaflega tak-
markaður timi, sem hægt er að
hafa not af viðkomandi lagi.
Þannig að það er ekki hægt að
byggja prógrammið eingöngu
upp á þeim.
RAGNAR: Þegar Brimkló fór
fyrst af stað var bókstaflega ekki
eitt einasta lag á prógramminu
hjá okkur, sem var af vinsælda -
listum. Þetta voru lög sitt úr
hverri áttinni, ný og gömul, en
eftir 2-3 mánuði voru þessi lög
orðin mjög vinsæl hjá þeim sem
sóttu dansleikina okkar.
SIGURJÓN: Okkur hefur lengi
langað til að spila dálitið öðruvisi
músik en við höfum gert, en þar
sem píanóleikari hefur ekki verið
fyrir hendi höfum við ekkert get-
að gert i málunum, en nú er
stundin runnin upp.
RAGNAR: Uppistaðan verður
létt rokk músik...
— Þá er meiningin að beina til
ykkar hinni sigildu spurningu,
sem er i öllum góðum blaðavið-
tölum. Er eitthvað, sem þið viljið
segja að lokum.
BRIMKLÓ: Við stuðlum að auk-
inni fótamennt almennings.
B.V.