Tíminn - 09.06.1974, Page 24

Tíminn - 09.06.1974, Page 24
24 TÍMINN Sunnudagur 9. júnl 1974. yf ir Eiríki, en hann var ekki aö hugsa um þaö. Hann tók ekki eftir neinu fyrr en hann kom niður í f jöru, þar sem Jónas stóö, og hafgolan lék um andlit hans. Jónas haföi hreinsað húsið af teppum, vistum, olíu- eldavél og öllu öðru, sem honum datt í hug, að gæti komið að notum, og allt var þetta komið út í bátinn. Eiríkur steig út í bátinn og stikaði fram í stefni. Jónas reisti sigiuna og settist við stýrið. i dásamlegri birtunni, sem hvíldi yfir heiminum, var f jörðurinn blár undir fölbláum himni, hafgolan straukst eftir haff letinum og gáraði hann á stöku stað, en mistur var hvergi sjáanlegt. Ekkert hljóð barst að eyrum þeirra, að undanskildu gljáfri öldunnar í sandinum. Þegar þeir nálguðust Fulmar, var kletturinn f jólublár, og ský af fuglum allt umhverfis, en hafið lagði löður- krans að fótum þess, meðan sjórinn snörlaði og andvarp- aði inni í litlum hellunum. Þegar báturinn kom nær, vöknuðu mávarnir, böðuðu vængjunum og lögðu þá síðan aftur niður með hliðunum. Jónas stýrði að litlu strandleng junni á suðurströndinni. Lipurlega renndi hann bátnum úpp í sandinn, og Eiríkur dró hann lengra upp. Ströndin þarna, sem ekki var nema nokkrir metrar á breidd, lá upp að eina hellinum, sem sjórinn náði aldrei til. Neðan af ströndinni lá stígur frá náttúrunnar hendi upp að flöt, sem var þakin iðagrænu grasi. Gólfið í hellinum var sandklöpp, eitilhörð. Þeir báru allt upp í hellinn. Jónas hafði ekki gleymt neinu. Þarna voru eldspýtur, olía, kex til heils mánaðar, niðursuðuvörur, færi, já, og meira að segja vatnsbrúsi, enda þótt uppi á klettinum væri ákjósanlegasta vatnsból frá náttúrunnar hendi, þar sem alltaf var að hafa rigningarvatn nema i allra verstu þurrkum. Þegar búið var að bera allt upp í hellinn, stóu þeir um stund niðri á ströndinni. — Á morgun kemur Ingólfur til Skarðsstöðvar, sagði Eirikur. Þú ferð með honum til Reykjavíkur, því að ég vil láta Helga Stefánsson ganga frá öllum mínum mál- um. Ég á enga f jölskyldu, enga ættingja, svo að þú átt að fá allt saman. Ég veit ekki, hvernig þessu verður bezt komið í kring, en þar sem þú ert félagi minn, þá hafa engir neitt um þetta að segja. Helgi Stefánsson þekkir þetta manna bezt. — Ég kæri mig ekki um neitt, sagði Jónas. Það eitt skiptir míg máli, hvað um þig verður. — Allt, sem fyrir einn mann getur komið, hef ur komið f yrir mig, svo að þú skalt ekki vera að brjóta heilann um þetta. Magnús þagði góða stund. — Ef ég nú fer til Reykjavikur, eins og þú óskar eftir, hitti ég þig þá hérna, þegar ég kem aftur? spurði hann loks. — Þú hittir mig hérna aftur, annars myndi ég kveðja þig núna. Og, Jónas... — Já? — Þú verður að segja henni frá þessu. Jónas gekk að bátnum, lamdi hnefanum i borðstokk- inn, en kom svo aftur til hans. — Nei, ég segi þér það alveg eins og er. Það get ég ekki. Ég get ekki farið til hennar og sagt henni það. Það er svo miklu meira en stendur í nokkurs manns valdi. — Þú hefur verið mér góður vinur, þú getur gert þetta. Ef ekki, fer hún að halda, að ég sé farinn í burtu og hafi yf irgefið hana. Þaðer það, sem kvelur mig núna. Hún færi að halda, að ég hefði svikið hana. Þegar hún hefur heyrt sannleikann, horfir málið öðruvísi við. Það er hennar vegna, sem ég vil, að þú segir henni það. Ann- ars myndi ég heldur kjósa að deyja þúsund sinnum en láta hana vita það. — Hvers vegna? — Vegna þess, að það kann að vera, að hún haf i samúð með mér, en í sál hennar er eitthvað, sem myndi snúa sér i burtu f rá mér. Ef ég væri dáinn á heiðvirðan hátt, væri það líka annað, en eins og ég er núna, fær hún bara við- bjóð á mér. Þessvegna er það. Það er betra, að hún komi til með að líta þannig á mig heldur en að hjarta hennar bresti. Það veit Guð, að þetta er það bezta. — Ég vildi heldur missa hægri hönd mína en þurfa að segja henni þetta, sagði Jónas. Þú veizt, að ég hugsa ekki lengur um hana eins og maður hugsar um konu. Hún stendur svo langt ofar mér og er svo gjörsamlega f rábrugðin stúikunni, sem ég þekkti, þegar ég var síðast heima. En hún er fyrst og fremst Svala og ólik öllum öðrum konum — og að þurfa að seg ja henni það — þurfa að segja henni þetta... Ég, sem var farinn að sætta mig við þetta allt. Ég var ekki af brýðisamur lengur, því að ég gerði mér grein f yrir því, að þið voruð sköpuð og ákveðin hvort fyrir annað. Þegar þú sagðir mér fyrst frá þessu, þá sagði ég við sjálfan mig: ,,Heldur fer ég frá Skarðs- stöð en verða hér áfram og sjá hann kvænast henni." Þetta leið allt saman hjá. Já, það fór svo, að ég var hæst- ánægður. Ég sagði við sjálfan mig: ,,Ég ætla að sjá þau búa saman, og ég ætla að sjá börn þeirra vaxa upp. Við ætlum að búa hérna í Skarðsstöð, þangað til við verðum gömul, og barnabörnin hans toga í skeggið á mér, þegar ég verð gamall." Ég gerði mér líka í hugarlund, að börn- in okkar myndu alast upp saman í hamingju og f riði. Og svoer allt komið eins og það er! Og ég á að verða til þess að segja henni það. Hann kastaði sér á hné við bátinn og hvíldi ennið við byrðinginn eins og hann væri að biðja. Eiríkur stóð ná- fölur og horfði á hann. HVELL G illiiilill SUNNUDAGUR 9. júni 8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn, 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. Hljóm- sveit austurriska útvarpsins leikur. Stjórnendur: Erich Kleinschuster og Ernst Kugler. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr f orustugreinum dag- blaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Sálmfor- leikur nr. 2 eftir César Franck. Feika Asma leikur á orgel. b. Requiem op. 48 eftir Gabriel Fauré. Suzanne Danco, Gerald Souzay, Peilz kórinn og Suisse Romande hljóm- sveitin flytja: Ernest Ansermet stj. c. Tilbrigði við stef eftir Paganini op. 35 og Pianólög op. 76, hvort- tveggja eflir Johannes Brahms. John Lill leikur á pianó. 11.00 Sjómannaniessa i Dóm- kirkjunni. Biskup íslands herra Sigurbjörn Einarsson minnist drukknaðra sjó- manna. Dómkórinn syngur: einsöngvari er Sigriður E. Magnúsdóttir. Organleik- ari: Ragnar Björnsson dómorganisti. 12.15 Dagskráin.. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.25 Mér datt það i hug. Óskar Aðalsteinn spjallar við hlustendur. 13.45 islenzk einsöngslög. Þuriður Pálsdóttir syngur sex sönglög eftir Pál tsólfs- son við texta úr Ljóðaljóð- um: Jórunn Viðar leikur á pianó. 14.00 Frá útisamkomu sjó- mannadagsins i Nauthóls- vik.a) Avörp flytja Lúðvik Jósepsson sjávarútvegsráð- herra. Sverrir Hermanns- son viðskiptafræðingur og Guðmundur Kærnested for- seti Farmanna- og fiski- mannasambands tslands. b) Pétur Sigurðsson for- maður sjómannadagsráðs heiðrar aldraða sjómenn og afhendir afreksbjörgunar- verðlaun sjómannadagsins. 15.00 Miðdegistónleikar. a. „Fjórar sjávarmyndir” eft- ir Benjamin Britten. Sinfóniuhljómsveit Lunduna leikur: höfundur stj. b. „Hafnarborgir við Miðjarðarhaf”eftir Ibert og „Hafið” eftir Debussy. Sinfóniuhljómsveitin i Boston leikur: Charles Munch stj. 16.00 Tiu á toppnum. örn Petersen sér um dæg- urlagaþátt. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Barnatimi.Stjórnendur: Kristin Unnsteinsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir. a. Um Stefán Jónsson rithöf- und og verk lians 1: Gunnar Guðmundsson skólastjóri ræðir við börn. 2: Þorleifur Hauksson les kafla úr „Óla frá Skuld”. 3: Leikinn fyrsti þáttur úr leikriti Stefáns „Júliusi sterka”. b. Sögur af Munda: — áttundi þáttur Bryndis Viglundsdóttir seg- ir.frá erjum við smygl og lýsir þvi þegar ullin var þvegin og farið með hana i kaupstaðinn. 18.00 Stundarkorn með selló- leikaranum Mstislav Rostropovitsj. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Eftir fréttir. Jökull Jakobsson við hljóðnemann i þrjátiu minútur. 19.55 Það gefur á bátinn. Svavar Gests kynnir islenzk sjómannalög og ræðir við nokkra höfunda þeirra. 21.00 Frá listahátíð: Daniel Barenboim leikur á pianó. Fyrri hluti tónleikanna út- varpað beint frá Háskóla- biói. Á efnisskránni er ein-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.