Tíminn - 09.06.1974, Síða 33

Tíminn - 09.06.1974, Síða 33
Sunnudagur 9. júni 1974. TÍMINN 33 ur. Sari reynir af veik- um mætti að kveikja eld, en fóturinn bólgnar meir og meir, og útlitið er ekki gott. Liklega verður ekki leitað strax að honum og kofinn er svo langt inni I ó- byggðum, að heita má, að engar likur séu til, að þangað rekist nokkur maður. Nú liða dagarnir. Sari er illa haldinn, nestinu er lokið og eldurinn löngu slokknaður. Hann er dofinn og stirður af kulda og fóturinn uppblásinn. Sár sultur og þorsti kvelja hann einnig. Vaskur er lika hungraður og ráðþrota. Hann þrýstir loðna, hlýja skrokknum sinum, svo fast sem hann getur, að Sari, eins og hann vilji verma hann og vernda. Sari hefur ekki hugmynd um, hve lengi hann hefur legið svona. Hann finnur það og skil- ur, að dauðinn nálgast. Varð hann nú að deyja svona ungur, en ástin á lifinu er sterk, og vonin er lifseig hjá æsku- manni, sem vill ekki deyja. Þess vegna hug- kvæmist honum að slátra Vaskogéta kjötið af honum. Hvað eftir annað ætlar hann að framkvæma fyrirætlun sina, en hverfur aftur frá því, er hann horfir i augu hundsins. — En svo kemur stundin. Vaskur steinsefur og liggur fast hjá Sari. Þá bregður hann hnifnum og miðar á brjóst hundsins, frá- vita af hungri og ör- væntingu, en i sama bili og Sari ætlar að reka hnifinn i hjarta Vasks berst ómur af manna- máli að eyrum hans. Er þetta misheyrn? — Nei, það eru tvær rjúpna- skyttur, sem fundið hafa dauða hreindýra- kösina og rakið siðan blóðslóð Saris að kofan- um. Fræðslu- og fé- lagsmál mikilvæg A AÐALFUNDI Kaupfélags Eyfirðinga, sem haldinn var siðustu daganu i mai, var gerð svolátandi ályktun: ,,Aðalfundur KEA 30.-31. mai 1974 telur, að samvinnu- hreyfingin á Islandi bæði heildarsamtökin og einstök samvinnufélög þurfi að leggja rika áherzlu á fræðslu- og félagsmál sin og sé jöfnum höndum stefnt að þvi, að tryggja að i starfi samvinnu- félaganna séu ávallt vel menntir og hæfir starfsmenn og að félagsmenn og almenn- ingur öðlist skilning á starfi og starfsháttum samvinnu- hreyfingarinnar. t þvi sambandi mælir fundurinn eindregið með þvi að Sambandið hafi i þjónustu sinni sérstakan mann, — er- indreka — sem sinni fræðslu- málum einvörðungu, m.a. með þvi að ferðast milli aðildarfélaganna og aðstoða þau á annan hátt við skipu- lagningu eigin fræðslu- og félagsmála. Fundurinn lýsir skilningi á nauðsyn þess, að Sambandið endurskipulegði útgáfustarf- semi sina, enda þótt vissulega sé eftirsjá að þvi myndarlega timariti um almenn menn- ingarmál sem Samvinnan i núverandi mynd er. Fundurinn fagnar þeirri efl- ingu skólastarfsemi sam- vinnuhreyfingarinnar, sem gerzt hefur með stofnun fram- haldsdeildar Samvinnuskól- ans og ennfremur þeim tengslmn við erlendar sam- vinnustofnanir, skóla og fyrir- tæki, sem Sambandið hefur komið á og gerir isl. sam- vinnufélögum kleift að senda starfsmenn sina til fram- haldsnáms eriendis. Ennfremur lýsir fundurinn fyllsta áhuga á eflingu bréfa- skóla StS og ASt, sem fyrir- huguð er og væntir sér mikils af henni, m.a. til að styðja við bakið á leshringastarfsemi á vegum einstakra samvinnu- félaga og annarra. Er i þvi sambandi meðal annars haft i huga námskeið i leshringa- formi um almenn félagsmála- störf og tjáningarþjálfun. t annan stað telur aðal- fundurinn sjálfsagt að KEA haldi sjálft uppi öflugu fræðslu- og félagsmálastarfi, bæði út á við meðal félags- fólksins og inn á við meðal starfsfólksins, sem vinna við hinar ýmsu deildir og fyrir- tæki félagsins. Til þess að slik starfsemi megi verða stöðug og þrótt- mikil er nauðsynlegt, að félag- ið hafi i fullu starfi fræðslu- fulltrúa, eins og verið hefur nú undanfarið, svo að áframhald megi verða á þeirri kynning- arstarfsemi og upplýsinga- miðlun, sem þegar er hafin og hann hefur með höndum bæði með fundahaldi, með les- hringa- eða námskeiðahaldi og með útgáfustarfsem i. (KEA-fregnir). Að lokum, leggur fundurinn áherzlu á, að allar færar leiðir séu reyndar til að útbreiða skilning manna á starfi og starfsaðferðum samvinnu- hreyfingarinnar almennt séð, og sérstaklega á gildi hennar fyrir byggðir Eyjafjarðar." I.O.G.T.: Stórstúkuþing og unglingaregluþing — meðlimir reglunnar eru um 12000 hér d landi —hs—Rvík. Stórstúkuþing Góð- templarareglunnar verður haldið i Reykjavik dagana 6.-9. júni. Hefst þingið með setningu ki. 10, i Templarahöllinni við Eiriksgötu, en siðan verða iagðir fram reikningar, tillögur og umræður um þær. Kiukkan 4 siðdegis hefst þingstúkufundur, en á honum verður vigður nýr fundarsalur og samkomusalur. Sunnudagsmorg- uninn 9. júni verður hástúkufund- ur, en siðan taka þinggestir þátt I guðsþjónustu þar sem séra Jakob Jónsson messar. Góðtemplarareglan á Islandi varð 90 ára 10. janúar s.l., en fyrsta stúkan var ísafold nr. 1 á Akureyri. Var afmælisins minnzt þar mjög myndarlega um það leyti. A blaðamannafundi, sem hald- inn var I gær i tilefni þingsins og afmælisins, kom það fram, að aðalstarf Reglunnar beinist að þvi að koma i veg fyrir að menn gerist áfengisneytendur, en hún reynir einnig að styrkja menn til að hætta að drekka. Stúkurnar halda uppi margvislegu félags- starfi innan sinna vébanda og er t.d. félagsstarfsemi barnastúkn- anna alkunnug. Ungtemplarar, en sú hreyfing er i nánum tengsl- um við Regluna, halda uppi fjöl- breyttri félagsstarfsemi ungu fólki til þroska. Reglan hefur i mörg ár staðið fyrir vinlausum skemmtisam- komum um verzlunarmanna- helgina, ýmistein eða með öðrum og skal þar helzt til nefna mótin i Galtalækjarskógi, sem ung- templarastúkan á Suðvesturlandi og ungtemplarar standa að. Á Akureyri starfrækir Reglan gistihús og kvikmyndahús og auk þess veitingaþjónustu á flugvell- inum. í Reykjavik hefur Reglan lengi haldið uppi, og gerir enn, áfengislausum skemmtunum i húsi sinu. 1 Hafnarfirði hefur hún staðið fyrir almennri bókmennta- kynningu mörg undanfarin ár. I Reykjavík hefur reglan komið upp fjölbreyttu bindindisbóka- safni. Eru þar bæði innlend og er- lend rit , mörg fágæt, og auk þess fjöldi blaöagreina. Um 75 ára skeið hefur Góð- templarareglan gefið út barna- blaðið Æskuna, sem taka mun flestum eða öllum barnablöðum fram um efni og útlit, þótt viða sé leitað I löndum. Æskan hefur einnig gefið út margar bækur handa börnum og unglingum og rekur bókabúð á Laugavegi 56 i Reykjavik. Ennfremur hefur unglingareglan i 11 ár gefið út ársritið Vorblómið. íslenzkir góðtemplarar eru að- ilar að sambandi templara á Norðurlöndum, Norræna góð- templararáðinu. Einnig er Regl- an aðili að alþjóðasamtökum templara I.O.G.T., en þau halda alþjóðaþing i Helsinki i Finnlandi siðari hluta júlimánaðar, og er gert ráð fyrir að það mót sæki 63 menn frá íslandi, margt ung- templara og einnig félagsmenn úr stúkunum. Innan vébanda Góðtemplara- reglunnar eru nú um 12.000 manns, ungir og aldnir á Islandi. Stúkur landsins munu vera um 30, en þar að auki eru um 50 barna- stúkur. Þess má geta að lokum, að mörg félagasamtök voru i upp- hafi grundvölluð á Góðtemplara- reglunni og má þar nefna Leikfélag Reykjavikur, Glimu- félagið Ármann, Dýraverndunar- félagið og svo elliheimilið Grund. Mikiö var um aö vera viö I hinum nýja fundarsal f Templarahöllinni , þegar veriö var aö undirbúa hann fyrir stórþingiö og vigsluna. A myndinni sjást m.a. Kjartan ólafsson, stórritari, Gunnar Þoriáks- son, stórfræöslustjóri og jafnframt formaöur Islenzkra ungtemplara og ólafur Þ. Kristjánsson, stór- templar. Góötemplarar hyggjast á mikla bindindisherferð meö haustinu. (Timamynd GE) Þegar Sari vaknar næst liggur hann i sjúkrahúsi. Hann skilur ekki hvernig hann er þangað kominn, þvi að hann var meðvitundar- laus, þegar mennirnir óku honum á skiða- sleðanum langa leið til byggða Lappanna. Hann vissi ekki af þvi heldur, að hann var fluttur i sjúkraflugvél yfir fjöll og dali niður til sjávar, þar sem sjúkrahúsið er. Fyrsta spurning hans var þó hvorki um það, hvernig hann komst i sjúkrahúsið, né hvernig á þvi stendur, að fótur- inn hefur verið tekinn af honum. Hann spyr fyrst og fremst um Vask. Og þegar hann hefur frétt, að Vaskur er heill á húfi heima i Lappabyggð- inni, þá teygir hann ánægður úr sér milli hreinu, hvitu rekkjuvoð- anna. Úr þvi Vaskur er heill og hann sjálfur lifði þetta af, þá var það fyrir mestu . B. St.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.