Tíminn - 15.06.1974, Síða 2

Tíminn - 15.06.1974, Síða 2
2 TÍMINN Laugardagur 15. júni 1974 Laugardagur 15. júní 1974 Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.) Meðan þú gætir að heilsufarinu og styrkir likamann, er allt i lagi i dag. Ennfremur: Þu ræður málum þinum sjálfur og tekur þinar ákvarðanir sjálfur — og lætur ekki neinn hafa áhrif á þig i dag. Fiskarnir: (19. febr-20. marz) Þú brennur af áhuga og framkvæmdalöngun. Þetta er fyrirtak. Þú skalt beita forystuhæfi- leikum þinum og skipulagsgáfunni, og sannaðu til: þetta verður ánægjulegur dagur i alla staði Hrúturinn. (21. marz-19. apríl) Það litur bara út fyrir, að þú verðir i sviðs- ljósinu i dag. Þú skalt gripa tækifærið, ef þér finnst þú fá það, sem þú átt skilið, en þú skalt slaka á með kvöldinu. Það er ekki allt fengið með útstáelsinu. Nautið: (20. april-20. mai) Hvað er nú — ástamálin efst á baugi hjá Nautunum! Og meira að segja heppilegur dagur til slikra hluta. En eitt er þó, sem Nautin ættu að varast i dag: Þau ættu að fara varlega i að gefa nokkur bindandi heit. Tviburamerkið: (21. mai-20. júni) Þú ættir ekki að lofa neinu upp i ermina á þér i dag. Reyndu hins vegar að setja þig inn i að- stæður vina þinna og reyna eftir fremsta megni að hjálpa þeim. Kvöldið verður hagstætt og jafnvel skemmtilegt. Krabbinn: (21. júni-22. júli) Þetta er enginn umsvifadagur. Langbezt að halda kyrru fyrir heima i dag. Fjölskyldumeð- limir ættu a.m.k. að sinna yngstu fjölskyldu- meðlimunum I dag, en yngra fólkið sinnir til- finningamálum, enda undir heppilegu merki til sliks. Ljónið: (23. júlí-23. ágúst) Þetta er smáskrýtinn dagur. Nýjungagirnin virðist vera afskaplega ofarlega i þér — i til- finningamálunum jafnvel. Það litur út fyrir, að þú lendir i einhverju. Smáævintýri er hugsan- legt, og ætti ekki aö koma að sök. Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept) Þú ættir að huga meira að menningarlegu hliðinni i eðli þinu og rækta með þér þá hugsun, að þú hafir eitthvað með slikt að gera. í dag skalt þú hlýða rödd samvizku þinnar og ekki láta aðra hafa nein áhrif á þig. Vogin: (23. sept-22. okt) Þú skalt fara varlega i dag, svo að þú gerir ekki nein kjánaleg mistök i peningamálunum. Skelltu skollaeyrum við ráðagerðum um auðfenginn skyldigróða, og reyndu yfirleitt að koma þér hjá þvi að ræða peningamál. Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.) Þú skalt leggja heilann i bleyti i dag. Þér finnst nefnilega i mjög viðkvæmu máli, að þú eigir um tvo kosti að velja, en þegar þú hefur hugsað málið gaumgæfilega, þá er kosturinn ekki nema einn, og hann er augljós . Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.) Þetta verður að öllum likindum mesti sóma- dagur mað hraðri atburðarás, spennandi augnablikum og skemmtilegum samræðum við skemmtilegt fólk. Þú kannt að komast að raun um það, að þú átt vini viðar en þig grunaði. Steingeitin: (22. des.-19. jan). Þú skalt einbeita þér að heimilinu i' dag, parftu ekki að breyta til eða reyna nýjar aðferðir i matreiðslunni. Einhver tilbreyting er nauðsyn- leg á slikum dögum — láttu ekki vafasaman félagsskap freista þin i kvöld AUSTUR- FERÐIR Um Grimsnes — Laugarvatn — Geysi — Gullfoss Um Selfoss — Skeiðaveg — Hreppa — Gullfoss. Um Selfoss — Skálhoit — Gullfoss — Geysi. Daglega frá BSl — Simi 2-23-00 — Ólafur Ketilsson. hátfðahaldanna er rakin og þjóð- hátfðarnefndin ávarpar Kópa- vogsbúa. 1 ávarpi þjóðhátiðarnefndar segir: — Við sem stöndum að fram- kvæmdum hátiðahaldanna höfum lagt áherzlu á, að sem flestir geti af einlægni tekið þátt i þeim, og notið þeirra. Þjóðhátiðarnefnd vil hvetja alla Kópavogsbúa til þátt- töku i þessum fjölþætta fagnaði. ...Það er einlæg von okkar og á- setningur að hátiðahöldin hér i Kópavogi verði fjölsótt, og fari að öllu leyti þannig fram, að Kópa- vogi sé sæmd af. Nú skulum við skemmta okkur. Gleðilega hátið. Dagskráin hefst kl. 10.30 um morguninn á þvi að Skólahljóm- sveitin leikur við Kópavogshælið.. Kl. 11 hefst viðavangshlaup við Kópavogshælið, sem U.B.K. sér um. Skrúðganga dagsins fer frá Vighólaskóla og hefst kl. 14. Há- tiðarsamkoman hefst kl. 14.30 á Rútstúni. Björgin Sæmundsson bæjarstjóri flytur ávarp og frú Jóhanna Axelsdóttir flytur ávarp fjallkonunnar. Ketill Larsen mætir tii að kitla hláturstaugar samkomugesta, og þegar hann er búinn að gera alla máttlausa af hlátri, koma Halli og Laddi til að gera það sama. Þá flytja tveir stúdentar ávarp. Sigfús Halldórs- son og Guðmundur Guðjónsson syngja og nemendur frá Dans- skóla Heiðars Ástvaldssonar sýna dansa. Hátiðinni á Rútstúni lýkur með leik Skólahljómsveitarinnar. Strax að hátiðarsamkomunni lokinni munu bæjarstjórn og stjórn Breiðabliks keppa i knatt- spyrnu á Vallargerðisvellinum. Siðan verður kvennaknattspyrna og knattspyrnuleikur milli Old Boys úr Breiðabliki og Bragða- refa úr Ffam. Sitthvað fleira verður til skemmtunar þarna á vellinum. Þá ætla skátar að sýna tjald- búðalif og slá þeir útilegutjald- búðum upp á Rútstúni til að sýna ýmislegt, sem skátar hafa fyrir stafni 1 útilegum og á skátamót- um. Við vesturvör verða félagar úr Siglingaklúbbnum Kópanesi með bátaleigu og siglingasýningu, strax eftir hátiðarhöldin á Rúts- túni. Yngstu bæjarbúar fá tækifæri til að bregða sér á hestbak, þvi þeir félagar úr hestamannafélag- inu Gusti ætla að teyma undir börnum við Vogatungu. Fyrir börn verða einnig dýr i girðingu á Rútstúni. Hljómsveitin Pelikan slær sið- an botninn i þessa hátiðadagskrá með hressilegu balli i Kópavogs- skóla og hefst dansleikurinn kl. 21. Hátiðahöldin i Isafjarðarkaupstað á sjómannadaginn hófust klukkan hálf-tiu með guðsþjónustu I kapellunni i Hnifsdal, þar sem séra Sigurður Kristjánsson predikaði og karlakór undir stjórn Guðrúnar Eyþórsdóttur söng. Var siðan gengin skrúðganga inn I kirkjugarð Hnifsdælinga á Vallarodda og þar afhjúpaður minnisvarði sjómanna, gerður af Sigurlinna Péturssyni. Viö þá athöfn söng karlakórinn enn undir stjórn Guðrúnar, og Guðmundur G. Ingólfsson bæjarfulltrúi flutti ræðu. Likneskið er úr steinsteypu — gamall sjómaður með snærishönk og krókstjaka i höndum. Á ísafirði voru heiðraðir þrir aldraðir sjómenn — Annas Kristmundsson stýrimaður, Guðmundur Guðjónsson vélstjóri og EUert Eiriksson matsveinn. Þá fór fram kapp- róður skipshafna, og sigraöi áhöfnin á vélskipinu Guðnýju. —Ljósmynd: G.S. Þjóðhdtíð í Kópavogi 17. júní: „NÚ SKULUM VIÐ SKEMMTA OKKUR — segir í óvarpi þjóðhótíðarnefndar Kópavogskaupsstaðar Gsal-Reykjavik — tbúar Kópa- tiðarnefnd Kópavogskaupstaðar vogs minnast ellefu alda byggðar gefið út vandaðan bækling af á islandi 17. júni. Hefur Þjóðhá- þessu tilefni, þar sem dagskrá Stykkishólmur: AAikil ölvun við akstur Gsal—Rvik. — Mikil brögð eru að ölvun við akstur i lögsagnarum- dæmi lögreglunnar i Stykkis- hólmi. Á siðasta ári voru 46 öku- menn tcknir ölvaðir við akstur og þykir mönnum það óvenju há tala i byggðarlaginu. Frá áramótum hafa 25-30 ökumenn verið teknir fyrir sams konar brot, þar af nitján i Stykkishólmi. Aðfaranótt 12. mai s.l. komu þrir menn til Stykkishólms i „rúgbrauði” og sást til þeirra niður við bryggju, þar sem flóa- báturinn Baldur lá. Höfðu þeir meðferðis frá bryggjunni tvær bláar töskur. Kom siðar i ljós, að þeir höfðu stolið gúmmi- björgunarbát úr Baldri, en gúmmibjörgunarbáturinn er af Mercury gerð, að verðmæti um 150 þúsund. Vill lögreglan i Stykkishólmi góðfúslega biðja hvern þann, sem hefur orðið björgunarbátsins var að láta vita. Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærSir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. Starf sveitarstjóra Selfosshrepps er hér með auglýst laust til umsóknar Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist skrif- stofu Selfosshrepps fyrir 10. júli n.k. Hreppsnefnd Selfosshrepps. 5 Engan í útlegð: til Ástralíu GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.