Tíminn - 15.06.1974, Side 3
Laugardagur 15. júni 1974
TÍMINN
30. júní n.k. kýst þú um
FRAMSÓKN
— eða afturhvarf til íhaldsstefnu
BH-Rvik. — t þrettán ár sátu
„viðreisnarherrar” ihalds og
krata i rikisstjórn tslands. Þau ár
munu seint úr minni líða þeim,
sem fengu að kenna á „viðreisn-
arúrræðunum” — en þau leiddu
til -atvinnuleysis og landfiótta
þúsunda tslendinga. t þýðingar-
mestu málum þjóðarinnar gerðist
ekkert — iandhelgismálin komust
ckki að fyrir allri „viðreisninni”
— uppbygging atvinnuveganna
hvarf i skuggann af potmennsku
stéttaforingjanna.
í þrjú ár hefur tekizt að halda
„viðreisnarherrunum” frá valda-
stólunum, enda er þeim farið að
liða illa. En óneitanlega fer þeim
illa trúðsgervið, sem þeir hafa
tekið á sig i skripaleik sinum við
að reyna að sanna þjóðinni það
núna, að þeim einum sé treyst-
andi til að fara með æðstu mál
hennar — þeim og engum öðrum.
Þeir þykjast svo vissir um, að
menn séu búnir að gleyma.
„Viðreisnarloddararnir” þykj-
ast núna ætla að færa landhelgina
út i 200 milur fyrir áramót.
Þeirhalda, að þjóðin sé búin að
gleyma þvi, að „viðreisnarherr-
arnir” sváfu á landhelgismálinu,
meðan þeir voru i rikisstjórn — I
þrettán ár —- og tóku ekki við sér,
fyrr en rikisstjórn ólafs Jóhann-
essonar hafði látið svo til skarar
skriða, að eftirtekt vakti um heim
allan og samstaða myndaðist
meðal fjölmargra þjóða heims
um það mál, sem „viðreisnar-
loddararnir” eru nú að reyna að
gera að sinu!
Þeir eru lika að reyna að eigna
sér þá uppbyggingu atvinnuveg-
anna, sem gerzt hefur um land
allt af völdum skuttogaranna i tið
núverandi rikisstjórnar.
„Viðreisnarloddararnir halda,
að þjóðin sé búin að gleyma þvi,
að undir „viðreisn” er „hæfilegt
atvinnuleysi” eitt af snjallráðum
atvinnurekendavaldsins, og að
það var eitt fyrsta viðfangsefni
rikisstjórnar ólafs Jóhannesson-
ar að reisa undirstöðuatvinnu-
vegina við og eyða atvinnuleys-
inu.
„Viðreisnarloddararnir” vildu
lika sjálfsagt gjarnkn geta
gleymt þeirri staðreynd, að i
stjórnartið þeirra komst fjöldi at-
vinnuleysingja á landinu upp i
5500.
Nú eru rúmlega niutiu karl-
menn atvinnulausir á öllu land-
inu. Það er staðreynd, sem við
þurfum að muna og bera saman
við „viðreisnartimana”.
Og að hugsuðu máli hljótum við
öll að geta sagt af heilum huga:
ALDREI FRAMAR „VIÐ-
REISNARSTJÓRN”!
í valdatið stjórnar ólafs Jóhannessonar hefur atvinna I landinu staðið með bióma, næg atvinna handa
öllum, uppbygging atvinnuveganna á heilbrigðan hátt gefur góðar vonir til þess, að islendingar lifi góöu
lifi I landi sínu — svo framarlega sem „viðreisnarherrarnir” ná stjórninni EKKI framar I sinar hendur.
Hér er hin dauða hönd „viðreisnarherranna” að verki. Þannig var umhorfs fyrir fimm árum. Dag eftir
dag stóðu atvinnutækin aðgerðarlaus — þúsundir islendinga voru atvinnulausir — og þúsundir höfðu
flúið land I atvinnuieit.
Skemmtiferðaskipakomum fækkar
ÓVENJUF’Á erlend skemmti-
fcrðaskip munu væntanleg hingað
til lands i sumar, eða aðeins um
niu til tiu skip. Hins vegar komu
hingað rúmlega tuttugu skip á
-hs-Rvik. i dag, 15. júni, kemur
120 manna hópur frá fyrirtækinu
Nationai Fanasonic til Reykja-
vikur og mun liann halda hér ráð-
stefnu og söiufund yfir hclgina.
Hópurinn kemur með áætlunar-
flugvél Flugfélags islands frá
Frankfurt og dvelur hér á Hótel
Loftleiðum. Ráðstefnan fer fram i
fundarsal hótelsins.
siðastliðnu sumri.
Útgerð skemmtiferðaskipanna
hefur mjög dregizt saman undan-
farin ár, og er mest mjög háum
útgerðarkostnaði um að kenna,
Tilefni ferðarinnar er, að Nati-
onal Panasonic, sem er japanskt
fyrirtæki með útibú viða um
heim, efndi til samkeppni meðal
sölumanna sinna i Þýzkalandi, og
voru verðlaunin ferð til tslands
eða Sviss, að eigin vali. Af þeim
150, sem verðlaun fengu, kusu 120
að ferðast til tsiands. Hópurinn
mun fara aftur til Frankfurt
næstkomandi þriðjudag.
meðal annars hefur oliuverð
hækkað mjög. Eigendur hinna
stóru farþegaskipa hafa þvi ekki
treyst sér til að halda útgerð
þeirra áfram. Þetta mun vera al-
menn þróun' i þessari útgerð um
alian heim. Skipunum hefur verið
lagt, þau seld eða það sem ennþá
verra er, þau hafa verið rifin.
A vegum ferðaskrifstofu Zoega
koma sex til sjö skip, og eru þau
frönsk, þýzk, eitt enskt og eitt
sænskt. Þýzka skipið „Regina
Maris” kemur hingað á vegum
Ferðaskrifstofu rikisins og
„Sagaford” á vegum ferðaskrif-
stofunnar úrvals. Mörg koma
skipin oftar en einu sinni, t.d.
„Regina Maris”, sem kemur
þrisvar sinnum.
Tóku ísland fram yfir Sviss
Ömurleg tilhugsun
Þvi er stundum haldið fram, að íslendingar séu manna fljótastir
til að gleyma. Þó að ekki séu liðin nema 5-6 ár frá landflóttanum
mikla á viðreisnarárunum, þegar heilu fjölskyldurnar tóku sig upp
og fluttu búferlum til Sviþjóðar og Astraliu i atvinnuleit, finnst sum-
um sem þessir atburðir heyri til iiðinni tið og séu algerlega óvið-
komandi nútíð og næstu framtið. En málið er ekki svo einfalt. Fari
svo, að Sjálfstæðisflokkurinn vinni sigur I kosningunum 30. júnl og
verði falin stjórnarmyndun, er ekkert liklegra en þessir atburðir
cndurtaki sig. Tilhugsunin um sllkt er ömurleg. Bezta ráðið til að
fyrirbyggja slikt er að efla Framsóknarflokkinn. Undir hans stjórn
hefur orðið svo glfurleg atvinnuuppbygging um land allt, að at-
vinnuleysisvofunni hefur verið bægt frá, og nú þarf eriginn að
kvarta undan atvinnuleysi lengur. Meira að segja er talsverður
skortur á vinnuafli I sumum greinum atvinnullfsins.
Þung spor margra
Það er sér i lagi unga fóikið, sem þarf að gera sér grein fyrir þess-
um mismun. Námsfólkið á viðreisnartlmunum er öruggíega ekki
búið að gleyma þvi, hversu erfitt var um útvegun sumarvinnu. Við
suma skólana gripu nemendur til þess ráðs að opna vinnumiðlunar-
skrifstofur. En þrátt fyrir það tókst ekki að útvega nándar nærri öll-
um atvinnu, og margt námsfóik gekk atvinnulaust um götur yfir
sumarmánuðina, og kom það sér illa fyrir marga, þvi að þennan
tima notar námsfólkið yfirleitt til að afla tekna fyrir næsta skóiaár á
cftir.
En alvarlegast var þó, þegar atvinnuleysið bitnaði á stórum fjöl-
skyldum. Og vissulega voru það þung skref fyrir margan fjöl-
skyiduföðurinn að þurfa að standa I biðröð eftir atvinnuleysisstyrk.
Vlst er um það, að stolt margra var sært á þessum tlmum, og sllkt
má aldrei endurtaka sig. Þess vegna er sérstök ástæða til að vara
við þvi að efla völd Sjálfstæöisflokksins.
Geir féll á prófinu
1 kosningum er ekki aðeins valið um stefn-
ur. Þá er einnig kosið um menn. í kosningun-
um 30. júní verður kosið um það, hvort Ólafur
Jóhannesson, formaður Framsóknarflokks-
ins, muni áfram verða við stjórnvölinn, eða
hvort Geir Hallgrímssyni verði veitt vald til
stjórnarmyndunar.
Um forystuhæfileika Ólafs Jóhannessonar
þarf ckki að deila. Hins vegar er mönnum
Ijóst, að Geir Hallgrimsson hefur reynzt linur
sem foringi Sjálfstæðismanna á alþingi. Geir
reyndist að mörgu ieyti ágætur borgarstjóri.
Þar naut hann langrar reynslu sem borgarfulltrúi, áður en hann tók
við borgarstjóraembættinu. En á Alþingi hafa kostir Geirs ekki not-
iðsin.Sjálfsagtspila þar inn I foringjadeilurnar i Sjáifstæöisflokkn-
um. Vitað er, að hluti þingiiðs Sjálfstæðisflokksins treystir Gunnari
Thoroddsen betur en Geir. Þetta hcfur valdið þvl, að Geir hefur ekki
verið eins öruggur með sig og i borgarstjórninni, og gert hvert axar-
skaftiðá fætur öðru. Sérstaklega var tekið til þess, hversu linur
Geir reyndist, þegar fjallað var um efnahagsvandann skömmu fyrir
þingrofið. Þá hafði Geir engar tillögur fram að færa, frekar en
aðrir þingmenn Sjálfstæðisfiokksins. En þá tók Ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra af skarið og rauf þing til þess að þjóðinni gæf-
ist kostur á að dæma um þær ráöstafanir, er hann hafði lagt til að
gerðar yrðu. Þarna fétl Geir á próf, þvi miður ekki I fyrsta sinn, og
sennilega ekki i siðasta sinn.
Sjónvarpsleikrit S|ólfstæðisflokksins
Flokkakynning Sjálfstæðismanna i sjón-
varpinu fyrr I þessari viku var hin bezta
skemmtun. Tveir fyrrum sjónvarpsmenn,
Markús örn Antonsson og Hinrik Bjarnason,
kynntu grínleikrit I nokkrum þáttum, en aðal-
stjörnurnar i leikritinu voru frú Ragnhildur
Helgadóttir og Ingólfur á Hellu, auk nokkurra
aðstoöarleikara.
Ragnhildur staðfesti það, sem áður hefur
verið bent á, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
enga stefnu I varnarmálunum aðra en þá, að
núskipan varnarmálanna haldist óbreytt. 1
þeim efnum má engu breyta. Stefna Framsóknarfiokksins er hins
vegar sú, að varnarmálin séu þess eðiis, að þau þurfi að vera i stöð-
ugri endurskoðun. Það hefur t.d. verið þyrnir I augum allra íslend-
inga, sem ferðazt hafa um Keflavíkurflugvöll, að þurfa leyfi er-
lendra varnarliðsmanna til að ferðast um vallarhliðið. Einar
Ágústsson utanríkisráðherra hefur breytt þessu fyrirkomulagi. Nú
geta íslendingar ferðazt til og frá landinu, án þess að fá leyfi er-
lendra rikisborgara. En ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ráðiö, væri sú
regla enn I gildi.
í þessum sama sjónvarpsþætti var Ingólfur frá Heilu heldur dauf-
ur I dálkinn, en hins vegar trúði Pálmi Jónsson frá Akri sjónvarps-
áhorfendum fyrir þvi, aö Sjálfstæðisflokkurinn hefði alla tíð veriö
sérstakur málsvari byggðastefnunnar!! Ekki er nú vlst, að kjós-
endur i kjördæmi hans, t.d. á Siglufirði eða Skagaströnd, trúi hon-
um, frekar en Gunnari Thoroddsen, þegar hann taiar um 200 míl-
urnar.
Hvernig haga þeir sér ó bak við tjöldin?
Ekki er vist, að allir hafi áttað sig á þvi, að
mennirnir, sem kynntu frambjóðendur Sjálf-
stæöisflokksins I sjónvarpsþættinum, voru for-
maður æskulýðsráðs Reykjavikur og fram-
kvæmdastjóri ráðsins.
Út af fyrir sig er ekkert athugavert viö það,
að Markús örn Antonsson kynni sjónvarpsefni
fyrir Sjálfstæðisfiokkinn. En það veröur aö
teljast meira en litil smekkleysa, að Hinrik
Bjarnason, embættismaður Reykjavikurborg-
ar, skuli taka þátt I sliku. En það styður þá
kenningu, að hinir flokksbundnu embættis-
menn Reykjavlkurborgar geri oft á tiðum engan grcinarmun á
störfum sinum fyrir borgina og Sjálfstæðisflokkinn. Hvernig halda
menn, að embættismenn eins og Hinrik Bjarnason beiti áhrifum
sinum að tjaldabaki, þegar þeir skirrast ekki við að auglýsa það
opinberiega, hvar þeir standa I pólitik? Auðvitað mega embættis-
menn hafa hvaða skoðun á stjórnmálum sem þeir óska, en það eru
siðferðiieg takmörk fyrir þvl, hversu langt sllkir menn geta gengiö I
þeim efnum.