Tíminn - 15.06.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 15.06.1974, Qupperneq 4
4 TÍMINN Laugardagur 15. júnl 1974 lilllll 1 ilMiilHl m Hún varð fræg á einni nóttu V Hún verður okkar önnur Birgit Nilsson, segja óperuunnendur i Sviþjóð um söngkonuna Ilelenu Döse, sem hefur vakið mikla at- hygli fyrir söng sinn i hlutverki Mimi i Boheme. Sjálf segir Helena, aðröddin verði að þjálf- ast enn töluvert, áður en hún geti farið að taka að sér Wagnerhlutverk. Hún ætlar enn einu sinni að syngja hlutverk á itölsku og eftir Mozart. Það var sem staðgengill Birgit Nilsson, sem Helena varð fræg, og það á einni nóttu, eins og sagt er. Hún söng þá hlutverkið Aida i sam- nefndri óperu i Scandinavium i Gautaborg. t haust mun Helena syngja hlutverk Mimi i Covent Garden óperunni i London. Gömul ferja fær sér frí Til skamms tima var hengi- ferjan, sem lá yfir östeána fyrir norðvestan Hamborg sú eina sinnar tegundar i heiminum. Nú er hún orðin 65 ára gömul og hefur fengið fri frá störfum vegna elli. t hennar stað er komin hengibrú úr stáli. Fólk varð að greiða gjald fyrir að fara yfir gömlu brúna, en þó fengu börn yngri en sex ára að fara um hana ókeypis. Nú fær gamla brúin sem sagt fri, eftir að hafa þjónað hestum, hest- vögnum og bilum, en þó munu ferðamenn fá að njóta góðs af tilveru hennar enn um sinn. ★ Stúlkur og stærðfræði Hvað skyldi það vera, sem veld- ur þvi, að stúlkum fellur yfir- leitt illa að læra stærðfræði og eðlisfræði? Getur það verið, að þjóðfélagsleg staða kvenna fyrr á timum hafi hér einhver áhrif, þannig að stúlkur hafi fengið fyrirfram (og kannski i eins konar arf frá formæðrum sin- um) það álit á þessum greinum, að þær væru ókvenlegar og leiðinlegar? ★ Ást en ekki hjónaband Þegar Liza Minelli lenti i ástar- ævintýrinu með Peter Sellers var hún trúloíuð Desi Arnaz, syni Lucy Ball. — Við Liza elsk- um hvort annað ennþá, segir hann, en störf okkar koma i veg fyrir, að við getum verið saman, stundum svo vikum skiptir. Þess vegna höfum við komizt að samkomulagi um, að við meg- um skemmta okkur með hverj- um sem er, þegar við erum ekki nálægt hvort öðru, svo lengi sem hjartað fylgir ekki með i þeim samskiptum. Auðvitað getum við þó ekki giftokkurþvi hjóna- bandinu fylgir tryggð. Hér eru Liza og Desi saman á mynd. — Hún er liklega skrifstofu- dama og situr mikið i vinnunni. v DENNI DÆMALAUSI Þegar þú varst litil, varst þú eins og Itölsk dúkka. Hvað er að mér núna?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.