Tíminn - 15.06.1974, Side 5
Laugardagur 15. júni 1974
TÍMINN
5
RADDIR UNGRA MANNA
Kristján B. Þórarinsson:
HÖFRUNGAHLAUP
ÍHALDSINS
A þessu ári munum við minn-
ast ellefu alda byggðar lands-
ins. Þegar um svo merk tíma-
mót er að ræða, er varla hægt að
komast hjá þvi að lita ögn til
baka, þótt ekki sé nema nokkur
ár aftur i timann.
Stjórnmál eru einn virkasti
þáttur i þróun þjóöanna. Menn
eru kosnir af alþjóð til að fara
með þau mál, sem kunna að
vera henni til farsældar og
sóma, og eru þess vegna kallað-
ir landsfeður. t þessu tilliti sem
áður er föðurnafnið túlkað
þannig, að það eigi að sýna um-
hýggju og forsjá fyrir þvi
heimili (þjóð), sem umræddir
feður taka að sér.
Áriö 1971 var kjörið nýtt þing
og þar með ný stjórn þjóðinni til
handa, undir forystu Ólafs Jó-
hannessonar forsætisráðherra.
Stjórn Ólafs Jóhannessonar
fékk, þegar hún tók við, mjög
mikið af óleystum málum, sem
viðreisnarstjórnin sáluga hafði
skotið á frest fram yfir kosning-
ar, sem þá stóðu fyrir dyrum,
svo sem verðstöðvunum o.fl., en
eins og kunnugt er var við-
reisnarstjórnin stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks. 1
þau 12 ár, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn gegndi forystuhlut-
verki i „viðreisnarstjórn” svo
kallaðri, var engu likara en
drukknir menn héldu um
stjórnartaumana. Þvi til sönn-
unar langar mig til að minna á
nokkur dæmi.
Arið 1961 álpaðist ,,við-
reisnarstjórnin” til að gera
nauðungarsamninga við Breta,
en þeir samningar hefðu verið
landráðasamningar i fornsög-
um okkar, t.d. eins og þegar Is-
lendingar skutu deilumáli fyrir
Noregskonung til úrlausnar.
Samningar þessir hafa gert
rikisstjórn ólafs Jóhannessonar
mjög erfitt fyrir, en sem kunn-
ugt er tókst forsætisráðhet-ra
með einurð og festu að leysa
landhelgisdeiluna við Breta
með bráðabirgðasamkomulagi.
Lausn i deildunum við Þjóð-
verja er svo að vænta innan tið-
ar.
Á viðreisnarárunum var svo
mikil gróska i síldveiðum, að
með ólikindum var. En i miðri
þessari grósku velmegunar
sjávarútvegsins gleymdi ihald-
ið, að til voru togarar, sem
þurftu endurnýjunar við, skip
sem flest höfðu verið keypt til
landsins á árunum 1946-’47.
Flest öll þessara skipa voru
strax i kringum 1970 farin að
týna tölunni, en svo gerðist það i
kringum 1967, að sildin brást og
ekkert var til af nýlegum skip-
um nema sérhönnuð sildveiði-
skip, og ekki einn einasti nýr
skuttogari, ef frá er talinn Sigl-
firðingur, litill skuttogari. Það
kostaði marga tugi milljóna að
breyta þessum sérhönnuðu sild-
veiðiskipum til annarra veiða,
en samt var ekki ráðizt i að
endurnýja togaraflotann, sem
var þá sem nú algjört lifsnauð-
synjamál fyrir þjóðina. .
Einmitt á þessum sömu árum
var landflóttinn svo mikill úr
sveitum landsins og úr landinu
sjálfu, að ekki er til nema eitt
dæmi um slikt, en það var á 19.
öld, þegar íslendingar þyrptust
til Ameriku. Ljótt er þetta, en
satt er það.
Siðan stjórn Ólafs Jóhannes-
sonar tók við, hafa orðið algjör
straumhvörf. Fólk flyzt nú unn-
vörpum út á landsbyggðina, og
er nú svo komið, að landsmenn
hafa ekki undan að byggja sér
ný hús, þar sem ný stóðu ónotuð
áður.
Togarafloti landsmanna hefur
verið endurnýjaður samhliða
öðrum fiskiskipum. Þjóðin hef-
ur bætt við sig fleiri farskipum.
Alls staðar er verið aö fram-
kvæma. Sú bjartsýni, sem nú
rikir jafnt til sjávar og sveita, er
ekki fengin fyrir atbeina þing-
manna Sjálfstæðisflokksins,
sem staðið hal'a af kjánalegri
kergju gegn hverju þvi þjóð-
þrifamáli, sem stjórn Ólafs Jó-
hannessonar hefur barizt fyrir.
Ekki var hægt að hrópa húrra
fyrir Sverri Hermannssyni,
þegar hann hélt maraþonræðu
sina i lok siðasta þings. Af svona
skringilegheitum hefur þjóðin
ekkert nema ógagn. Alþingi á
ekki að vera skripaleikhús. Þau
höfum við annars staðar.
Nú japlar Morgunblaðið sýknt
og heilagt á 200 milum, sem
framkvæma eigi strax i haust,
ef þeir nái stjórnvelinum. Árið
1971 sagði stjórnin, að það væri
siðleysi að færa út landhelgina
fyrir hafréttarráðstefnuna i
Caracas 1974, en nú á að gera
mikið og láta 200 mílurnar duga
sem töfraorð til þjóðarinnar.
Ég hygg, að allir hugsandi
menn, og þaö er öli islenzka
þjóðin, muni, að það er búið að
byggja og bæta islenzkt þjóðlif
meira á siðustu þremur árum
en á 12 árum „viðreisnar".
Það má teija upp miklu fleiri
af dáindisverkum viðreisnar-
stjórnarinnar. sem stjórnaðist
af landflótta og blindu sjálf-
stæðismanna i garð þjóðarinn-
ar. Verk vinstri stjórnar Óiafs
Jóhannessonar tala sjálf, hvar
sem farið er um landið.
Ef við Islendingar viljum
kalla yfir okkur eymd og volæði
villuráfandi og stefnulausra
manna, þá kjósum við Sjálf-
stæðisflokkinn, en ef við viljum
heldur standa með beint bak og
hafa næga atvinnu og góð lifs-
kjör, þá þurfum við ekki að
skoða hug okkar um aö standa
einbeitt að baki Framsóknar-
flokksins i kosningunum 30. júni
n.k.
Framsóknarflokkurinn hefur
i forystusveit sinni djarfhuga
menn, sem hika ekki við að axla
byrðar þjóðarinnar hvenær sem
er. Stöndum þvi saman, öll is-
lenzka þjóðin, og sýnum sókn
Framsóknarflokksins i öllum
kjördæmum landsins, og látum
þvi flokk án allra isma stýra
nýju þingi á Þingvöllum 29. júli
á þjóðhátiðarári okkar. Leggj-
umst þvi á eitt um að vinna að
sigri Framsóknarflokksins i
þingkosningunum 30. júni n.k.
Laus staða
Starf lögreglukonu er laust til umsóknar.
Góð ensku- og vélritunarkunnátta er
nauðsynleg.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknareyðublöð eru til staðar i skrif-
stofu minni, svo og hjá öðrum lögreglu-
stjórum.
Umsóknum sé skilað til undirritaðs fyrir
8. júli n.k.
12. júni 1974.
Lögreglustjórinn á Keflavikurflugvelli.
Verktakaþjónusta
Gefum föst
verðtilboð í
efni og vinnu
EINANGRUN
frysti-og kæliklefa
ÞAKPAPPAIDGN
í heittasfalt
ÁRMÚLI
H
Yinum f
Vestmannaeyjum • Simi 290 • Reykjavík • Sími 8-54-66
Forðizt
voðann
— varizt
„viðreisn"
SNOGH0J
Nordisk folkehojskole
(v/dert gl. Lillebælts-
broen)
6 mdrs. kurs f ra 1/11
send bud eftir skoleplan
DK 7000 Fredericia,
Danmark
tlf.: 05-95 22 19
Ótrúlega Jóqf verð
slier
jbtr • **■
goeöi
OLL
MET
EINKAUMBOÐ: TEKKNESKA BIFREIDAUMBOÐIO Á ÍSLANDI
SoLUST ADI R:
BARUM
BREGST EKK/
Hjólbarðaverkstæóiö Nýbaröi, Garóahreppi, sími 50606.
Skodabúóin, Kópavogi, simi 42606.
Skodaverkstæöiö á Akureyri h.f. sími 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstööum,
simi 1158.
Lausar kennarastöður
Sérkennari i bóklegum greinum og handa-
vinnukennari pilta óskast að Dag-
heimilinu Bjarkarási, Reykjavik.
Umsóknir sendist skrifstofu Styrktar-
félags vangefinna, Laugaveg 11, Reykja-
vik fyrir 15. júli n.k.
Frekari upplýsingar veittar á sama stað.
Heimilisstjórnin.
Fró Bændaskólanum
á Hvanneyri
Umsóknir um skólavist i Bændadeild
skulu berast fyrir 1. ágúst og Framhalds-
deild fyrir 10. júli næstkomandi.
Frá og með haustinu 1974 verða þeir, sem
hyggja á nám i Framhaldsdeild Bænda-
skólans á Hvanneyri og hafa ekki lokið
stúdentsprófi, að ljúka undirbúningsnámi,
sem svarar til náms i Undirbúnings- og
Raungreinadeildum Tækniskóla íslands.
Umsóknir um inngöngu i Undirbúnings-
deild skulu berast Bændaskólanum á
Hvanneyri fyrir 1. júli næstkomandi.
Skólastjóri.
WWWW'WWW'WWWWWWWWWWW
heybindivélar
2
Löng og góð reynsla við
ÍSLENZKAR AÐSTÆÐUR
Örugg binding — Auðveld sfilling
Eigendahandbók á íslenzku
ÞOR HF
REYKJAVIK SKOLAVORÐU5TÍG 25
T&kýutB
^wwwwwwwwwwwwwwww^