Tíminn - 15.06.1974, Qupperneq 9

Tíminn - 15.06.1974, Qupperneq 9
Laugardagur 15. júni 1974 TÍMINN 9 Útgefandi Kramsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, símar 18300-18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — af- grciðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Blaðaprent h.f. Sjálfstæðismenn og Haag-dómurinn Innan skamms er væntanlegur úrskurður alþjóðadómstólsins i HAAG i málum þeim, sem Bretland og Vestur-Þýzkaland hafa höfðað gegn íslandi vegna utfærslu fiskveiði- lögsögunnar i 50 milur. Mál þessi hafa Bretar og Vestur-Þjóðverjar höfðað á grundvelli land- helgissamninganna frá 1961, sem veittu þess- um þjóðum málskotsrétt til alþjóðadóm- stólsins, ef íslendingar færðu út fiskveiðilög- söguna. Núverandi rikisstjórn hefur lýst yfir þvi, að hún telji þessa samninga úr gildi fallna, þar sem Alþingi hafi sagt þeim upp með lög- mætum fyrirvara, og þvi eigi alþjóðadóm- stóllinn ekki lengur lögsögu i málinu. Dómstóllinn hefur ekki viljað fallast á þetta, þar sem þannig sé frá umræddum samningum gengið, að þar sé ekki að finna nein uppsagnarákvæði. Hann mun þvi fella úrskurð i tilefni af kærum Breta og Vestur-Þjóðverja. Af hálfu rikisstjórnarinnar hefur verið tekið skýrt fram hver viðbrögð hennar verða, ef úr- skurður dómstólsins gengur gegn íslandi: Hún mun neita að hlýða dómnum, þar sem hún heldur þvi fram, að uppsögnin hafi verið lög- mæt. Bretar og Vestur-Þjóðverjar eiga þá ekki annan kost en að æskja þess, að öryggisráðið framfylgi úrskurðinum. Engin hætta er á að öryggisráðið snúist á móti Islandi i þessu máli. Þannig er afstaða rikisstjornarinnar og stjórnarflokkanna ljós, ef úrskurður Alþjóða- dómstólsins gengur gegn íslandi. Hins vegar hefur afstaða Sjálfstæðisflokksins helzt virzt sú, að ísland ætti að hlita úrskurðinum, hvernig sem hann verður. Þegar Alþingi samþykkti uppsögn samninganna i febrúar 1972, hafði Sjálfstæðisflokkurinn þann fyrir- vara, að hann væri mótfallinn uppsögn samninganna á þvi stigi. Af hálfu forustu- manna Sjálfstæðisflokksins hefur aldrei verið mótmælt þeim úrskurði dómstólsins, að hann ætti lögsögu i umræddum málum, þar sem samningarnir væru enn i gildi. Af ræðum þeirra hefur lika helzt verið ráðið, að íslandi bæri að hlita efnisúrskurði dómstólsins, þegar þar að kæmi. Þannig lét Gunnar Thoroddsen svo ummælt á Alþingi 6. febrúar 1973, að dómstóllinn einn skæri úr um það, hvort hann hefði lögsögu i máli, og um efnislegan úrskurð dómsins, fórust honum þannig orð: ,,Nú er það þannig, að dómur Alþjóðadóm- stólsins er bindandi úrslitadómur, og honum verður ekki áfrýjað”. Fyrir kjósendur er það þvi óhjákvæmilegt, að fá um það fulla vitneskju, hver viðbrögð þingmanna Sjálfstæðisflokksins verða,ef úr- skurður Haagdómstólsins gengurámóti okkur. Ætla þeir þá að hlita úrskurði dómstólsins og ógilda t.d. útfærsluna i 50 milur, ef úrskurður- inn fellur á þann veg? Og hver verður afstaða þeirra til 200 milna fiskveiðilögsögu, ef alþjóðadómstóllinn vill ekki einu sinni fallast á, að 50 milurnar séu löglegar? Þess verður skýlaust að krefjast, að foringjar Sjálfstæðisflokksins svari þessum spurningum afdráttarlaust, en dragi ekki svörin fram yfir kosningar. Slik þögn væri reyndar lika svar, sem auðvelt væri að skilja. -Þ.Þ. Theo Sommer, Die Zeit: Helmut og Giscard þekkja vandann vel Sú þekking á að koma þeim að góðu haldi Gistard og Ilelmut ALLT i einu virðist vera að birta til i Vestur-Evrópu. Drunganum, sem yfir öllu lá fyrir mánuði, virðist vera að lótta og eftirvæntingin er tek- in að aukast að nýju. Svo er að sjá, sem Evrópumenn eygi nýja von þrátt fyrir allt, og hún kann að eiga rætur að rekja til nýrrar velvildar milli Frakka og Vestur-Þjóðverja. Helmut Schmidt fjármála- ráðherra Vestur-Þýzkalands og Michel Jobert, utanrikis- ráðherra Frakklands, deildu grimmilega á orkumálaráð- stefnunni i Washington i febrúar i vetur, og þeim, sem á hlýddu, hefðu þótt þetta ærið ótrúlegar horfur. Valery Giscard d'Estaing vék Jobert umsvifalaust úr rikisstjórn- inni og skipaði fyrrverandi sendiherra i Bonn sem utanrikisráðherra i hans stað. t Rinarbökkum gerðust svo þau tiðindi, að Schmidt flutti i Schaumburg-höll og tók við af Willy Brandt sem kanslari Vestur-Þýzkalands. Schmidt og Giscard hittust undir eins i byrjun þessa mánaðar. Þeir hefðu getað beðið eftir fundi forustumanna Vestur-Þjóð- verja og Frakka, sem haldinn er annað hvert ár og nú átti að halda um miðjan þennan mánuð, en þeim hefir sýnilega legið á að reyna að hefjast handa um að forða Efnahags- bandalagi Evrópu frá strandi. t þvi efni sýnist sannarlega naumur tími.til stefnu. EN eru þá likur á að þeim takist að bjarga Efnahags- bandalaginu, franska aðals- manninum og þýzka kennara- syninum? Hugsanlegt er það. Svo mikið er að minnsta kosti vist, að þeir þekkjast vel og kunna að meta hvor annan og virða. Þrjár innrammaðar myndir standa á litlu borði til hiiðar við palisander-skrifborð Schmidts. Ein er af Gustav Heinemann forseta Vestur- Þýzkalands, önnur af Willy Brandt, og hin þriðja af þeim Giscard og Schmidt saman. Eftir að Schmidt var orðinn kanslari ræddust þeir hvað eftir annað lengi við i sima hann og Giscard, meira að segja áður en hinn siðarnefndi tók við embætti. Þeir ræddust raunar við á ensku, þó að skritið sé, og það ágætri ensku, en hún var með all- sterkum ameriskum hreim hjá Helmut Schmidt. GISCARD og Schmidt láta sér báðir mjög annt um Efna- hagsbandalag Evrópu og báð- ir geta hafið sig yfir skamm- sýna þjóðernisstefnu. „Við keppum að sameinaðri Evrópu i félagi við Bandarik- in”, sagði Schmidt i ræðunni, sem hann flutti þegar hann tók við kanslaraembættinu. ,,Við verðum að varðveita banda- lagið, sérstaklega þó hinn sameiginlega markað. Við verðum i sámráði við félaga okkar að athuga betur, hvern- ig takast megi að koma á ein- ingu i efnahags- og peninga- málum á þeim tima, sem fyr- irhugað var.” Þetta er i samræmi við heit- ið, sem Giscard gaf i Stras- bourg: „Evrópa hefir að minu áliti tvimælalausan íorgang. Mér virðist alveg nauðsyniegt, að hinn nýi forseti h'rakklands og rikisstjórn hans leggi fyrir félaga okkar tillögur um ákveðinn frest til frágangs mála.” AUK þess. sem getið er hér að framan. gera þeir Giscard og Schmidt sér báðir jafn ljóst, að önnur Evrópuriki verða að lokum að feta i fót- spor Frakklands og Vestur- Þýzkalands. Hvorugur þeirra vill útiloka Stóra-Bretland. En meðan Bretar útiloka sjálfa sig með hávaðasemi, ef ekki ákveðinni ósk um úrsögn úr bandalaginu, er til litils að treysta þeim og jalnvel ekki ástæða til að hlusta á þá. Aðrar aðildarþjóðir eru einnig óáreiðanlegar eins og sakir standa. Varla getur heit- ið, að á ítaliu sé við völd stjórn, sem beri það nafn með rentu. Rikisstjórnir Hollands, Belgiu og Danmerkur eiga lif sitt undir ákaflega völtum þingmeirihluta. Sýnilegt er þvi, að vonin um samstöðu Efnahagsbandalagsrikjanna er bundin við samvinnu Frakka og Vestur-Þjóöverja. „Forn vinátta okkar og Frakka kemur okkur að liði i þessu efni”, sagði Schmidt og Giscard bætti við: „Endur- reisn Evrópu byggist á ná- kvæmu og traustu samkomu- lagi við Vestur-Þjóðverja”. Erfiðasti vandinn er raunar i þvi fólginn að túlka slikt samkomulag með fram- kvæmanlegri stefnu. Fleira þarf að koma til en persónuleg vinátta, samstæð rökleiðsla og sömu lokamarkmið. Hags- munir eru þungvægir á meta- skálunum og hagsmunir ljúga ekki, sagði John Bunyan á seytjándu öld. HAGSMUNIR Þjóðverja eru i þvi fólgnir að hemja verðbólguna, leggja ekki áherzlu á aukningu hagvast- arins og sporna við útflutn,- aukningu, skrifaði Schmidt áð ur en hann varð kanslari. „Við megum ekki fórna stöðugleika okkar”, skrifaði hann, „vel- ferð þegna okkar né trausti þeirra i framtiðinni á altari Efnahagsbandalags, sem einskis er megnugt. Við meg- um ekki afhenda öðrum gjald- eyrisforða okkar né byggja efnahagsstefnu okkar á bág- indum ílreta og ítala. „Við erum háðir þýzkum kjósendum okkar,” sagði Schmidt ennlremur. „Við get- um þvi aðeins lagt fram veru- legan skerf á kostnað þýzkra kjósenda, að á móti komi þær pólitiskar framfarir i Efna- hagsbandalaginu, sem þýzkur almenningur telur réttlæta fórnina". Schmidt vill i fáum orðum sagt samþjóðlega sam- vinnu um efnahagsstefnu sem endurgjald fyrir til- hliðranir. HANN var ius til slikra við- skipta i janúar i vetur. þegar hann bauð Giscard þrjá milljarða dollara á fundi i'jár- málaráðherra i Róm. Giscard þá þetta boð, en fáum dögum siðar varð hann að fljúga til Bonn og flvtja þær fregnir. að Pompidou hefði hafnað viðskiptunum umsvifalaust. Schmidt gæti nú endurtekið þetta boð samkvæmt yfirlýst- um skoðunum. ef Frakkar fengjust til að hverla frá stefnumiðum, sem gætu sundrað Efnahagsbandalag- inu eða féliust á ráðstafanir til að nálgast i raun aukna og bætta einingu Evrópu. Hann gæti það jafnvel þó að Frakk- ar gengju ekki lengra en að fallast á áætlun um nánari samvinnu Þjóðverja og Frakka — ekki aðeins Paris — Bonn öxulinn. sem sumir fréttaskýrendur hafa verið að klifa á, heldur samvinnu, sem aðrar þjóðir ættu einnig kost á aðild að. SPURNINGIN er aðeins, hvort slik áætlun getur orðið girnileg i augum Giscards. Hann hefur heitið Frökkum kostnaðarsömum umbótum. Hann mun hallast að aukningu hagvaxtar til þess að geta staðið straum af endurbótun- um, hvað sem verðbólguhætt- unni liður. Virkar verðbólgu- varnir hindruðu umbótaá- formin, og stjórnmálastaða hans I h'rakklandi yrði veikari cf svo færi. Sennilegra er. að hann taki áhættu án breytinga fram yfir áhættulausar breyt- ingar. Torvelt er að sjá, hvernig unnt er að samræma þessi óliku sjónarmið. Schmidt og Giscard stefna að sama framtiðarmarki. En hvor um sig leggur of mikla áherzlu á timabundna ógnun gegn vel- ferð þjóðar sinnar og valdaað- stöðu til þess að geta íallizt á sameiginlega stefnu nema þá af stakri hægð og varfærni. R E Y N DIR rýnendur alþjóðamála munu hafa þetta rikt i huga. Grunnstaðreyndir stjórnmálanna taka naumast svo hröðum og ívrirhafnarlitl- um breytingum. aðsaman lari „sérstök vináttutengsl" Vest- ur-Þjóðverja og Bandarikja- manna i febúar og Paris — Bonn öxull i júni. Þeir Schmidt og Giscard hafa ekki á öðru að byggja, auk vináttu sinnar. en mun fyllri kunnugleika en fyrir- rcnnarar þeirra á vandanum. sem viðerað et ja. Enn er ekki úr þvi skorið. hvort aukinn skilningur og kunnugleiki valdi endilega hættri stefnu. En þarna er eigi að siður um að ræða nýjan möguleika.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.