Tíminn - 15.06.1974, Page 13
Laugardagur 15. júni 1974
ct
13
EKKI ORÐIÐ VART VIÐ
VARANLEGT HEILSUTJÓN
— en varúðarráðstafanir auknar til muna
—hs—Rvik. „Eins og alþjóð mun
kunnugt, tók Kisiliðjan h.f. i Mý-
vatnssveit til starfa fyrir alvöru i
april 1968. Við undirbúning máls-
ins liöföu ábyrgir aðilar að sjálf-
sögðu gert sér grein fyrir þvi, að
af þessum rekstri kynni að stafa
nokkur hætta fyrir verka-
mennina, og var þá fyrst og
fremst haft i huga kísilrykið, sem
menn vissu að gæti valdið kisil-
veiki i mönnum, sem þó tæki
nokkuö langan tima að koma
fram, þ.e. 10-12 ár, ef ekki væru
gerðar sérstakar varúðarráð-
stafanir.”
Svo segir i greinargerð Baldurs
Johnsen, yfirlæknis Heilbrigðis-
eftirlits rikisins, sem unnin mun
vera upp úr mikilli skýrslu um
þessi mál. Enn hafa ekki, svo vit-
að sé komið i ljós nein einkenni
kisilveiki meðal starfsmannanna,
en þeir hafa verið rannsakaðir
reglulega með lungnarannsókn-
um og röntgenmyndatökum.
Skömmu eftir að verksmiðju-
reksturinn hófst, varð aftur á
móti vart annars sjúkdóms i
verkamönnum, en það var augn-
bólga, sem gat verið mjög slæm
og jafnvel valdið blindu um
stundarsakir, en öll þessi ein-
kenni hurfu samt við meðferð
augnlæknis og skildu ekki eftir
varanlegt mein, — segir enn-
fremur i greinargerðinni.
Eftir að reglugerð um varnir
gegn mengun af völ umeiturefna
og hættulegra efna var sett árið
1972 hefur Heilbrigðiseftirlitið
haft með höndum ýmiss konar
rannsóknir á verksmiðjurekstrin-
um, i þvi skyni að gera sér grein
fyrir þeim skilyrðum sem verk-
smiðjan þyrfti að uppfylla til þess
að hún fengi áframhaldandi
starfsleyfi samkvæmt fyrr-
greindri reglugerð.
Samkvæmt lokaniðurstöðum
þessarar rannsóknar á að herða
mjög allt eftirlit og varnarað-
gerðir, bæði hvað varðar ytra
umhverfi verksmiðjunnar og
innra umhverfi hennar, þ.e. sem
lýtur að starfsmönnum hennar.
Ætlazt er til að þessar auknu
rannsóknir verði gerðar i lækna-
miðslöðinni á Húsavik, en verk-
srhiðjan leggi til nauðsynleg
rannsóknatæki, á sama grund-
velli og tiðkast við svipaðan
rekstur annars staðar i heimin-
um. Þegar hafa rykhreinsunar-
tæki verið sett á einn af fjórum
reykháfum verksmiðjunnar en
ætlazt er til að slik tæki verði
komin á alla reykháfana innan
árs.
Að endingu,segir svo i greinar-
gerðinni:
„Að lokum skal það tekið fram,
að eftir þvi sem bezt verður vitað,
hefur enginn starfsmaður i Kisil-
iðjunni orðið fyrir varanlegu
heilsutjóni af völdum eiturefna
eða ryks i verksmiðjunni, en eins
og fyrr er fram tekið, þarf oft
langan tima til þess að einkenni
komi fram, og þess vegna eru nú
allar þessar varúðarráðstafanir
gerðar, til þess að geta fljótlega
gripið i taumana, ef merki um
byrjandi sjúkdóm koma i ljós,
einkum frá lungum.”
GREINARGERÐ
frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
um veitingu héraðslæknisembættis á Eyrarbakka
HINN 18. april sl. var Eyrar-
bakkalæknishérað auglýst laust
til umsóknar. Umsóknarfrestur
var til 15. mai og embættið veitt
frá 1. júni 1974.
Tveir læknar sóttu um embætt-
ið, Konráð Sigurðsson, héraðs-
læknir i Laugaráslæknishéraði,
og Magnús Sigurðsson, heimilis-
læknir i Reykjavik.
Umsóknir voru sendar til
nefndar þeirrar er um getur i 33.
gr. laga um heilbrigðisþjónustu,
en þar segir svo: „Ráðherra skip-
ar 3lækna i nefnd, er metur hæfni
umsækjenda um stöðu landlækn-
is, stöður yfirlækna, sérfræðinga,
héraðslækna og lækna heilsu-
gæzlustöðva”.
1 þessari nefnd sitja aðilar til-
nefndir af Læknafélagi íslands,
læknadeild Háskóla íslands og
landlæknir, sem er formaður
nefndarinnar.
1 afgreiðslu þessa máls tóku
þátt þeir Guðmundur Jóhannsson
læknir, Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson læknir og Benedikt
Tómasson, settur landlæknir.
1 álitsgerð þeirra um
umsækjendur, er þeir sendu
ráðuneytinu og dagsett er 21. mai,
segir svo, er þeir hafa rakið
starfsferil umsækjenda: „Sam-
kvæmt framansögðu hefur
Konráð unnið 2 1/2 ár samtals á
sjúkrahúsum, en um 8 1/2 ár sem
héraðslæknir. Magnús hefur unn-
ið hátt á áttunda ár á sjúkrahús-
um, aðeins 3 mánuði i héraði, en
um 6 ár að heimilislækningum.
Nefndin ersamamála um að báð-
ir umsækjendur séu hæfir til að
gegna héraðslæknisembættinu i
Eyrarbakkahéraði. En þegar litið
er yfir heildarstarfsferil þeirra
telur hún Konráð Sigurðsson hæf-
ari til að gegna héraðslæknis-
störfum”.
Það er túlkun ráðuneytisins á
orðalagi 33. greinar laga um
heilbrigðisþjónustu, sem til er
vitnað hér að framan, að það sé
ekki hlutverk nefndar þeirrar, er
þar um ræðir, að raða
umsækjendum, heldur einungis
að meta hvort þeir eru hæfir eða
ekki til að gegna tilteknu starfi,
enda segir svo i 4. málsgr. sömu
lagagreinar: „Ráða má eða skipa
hvern þann lækni til starfs sam-
kvæmt þessari grein, sem hæfur
hefur verið talinn”.
Um það leyti er umsóknarfresti
um stöðu héraðslæknis i Eyrar-
bakkalæknishéraði lauk, bárust
ráðuneytinu tvö bréf, hið fyrra
frá sveitarstjórn Eyrarbakka-
hrepps undirritað af Þór Hagalin
sveitarstjóra, hið siðara frá
hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps
undirritað af Steingrimi Jóns-
syni, sveitarstjóra i Stokkseyrar-
hreppi. Þessi bréf eru svohljóð-
andi:
„Heilbrigðismálaráðherra,
Laugavegi 172, Reykjavik 16. mai
1974”.
„Við veitingu héraðslæknisem-
bættis i Eyrarbakkalæknishéraði,
sem samkvæmt auglýsingu er
væntanleg næstu daga, óskum við
eftir þvi að koma á framfæri við
yður óskum frá ibúum á Eyrar-
bakka, sem margitrekað hefur
verið farið á leit við okkur, að
Magnúsi Sigurðssyni veröi veitt
embættið.
Málaleitun okkar byggist á
kynnum ibúanna af Magnúsi og
reynslu þeirra af störfum hans
frá þeim tima, er hann hljóp i
skarðið fyrir héraðslæknirinn
hér, og aflaði sér almenns trausts
og vinsælda.
Auk þess sem að okkar mati er
ekki siðra atriði, hefur Magnús
áður sótt um embætti þetta, án
þess að fá veitingu, og hefur sýnt
mikinn áhuga á þvi að setjast hér
að. Að Magnús skuli um svo langt
árabil hafa leitað eftir þvi að setj-
ast að hér þykir okkur auka
likurnar á þvi að fá að njóta
starfskrafta hans lengur en ella.
/Virðingarfyllst, Sveitarstjórn
Eyrarbakkahrepps, -Þór Haga-
lin.”
„Hr. landlæknir Ólafur Ólafs-
son, Arnarhvoli, Reykjavik, 17.
mai 1974.
A fundi hreppsnefndar Stokks-
eyrarhrepps sem haldinn var
fimmtudaginn 16. mai 1974, kom
fram eftirfarandi:
...að ein umsókn hefur borizt um
héraðslæknisembættið á Eyrar-
bakka, sem laust hefur verið til
umsóknar, eftir andlát Einars Th.
Guðmundssonar héraðslæknis.
Umsækjandi er Magnús Sigurðs-
son, læknir i Reykjavik, sem
mönnum er hér að góðu kunnur,
þar sem hann var hér fyrr á árum
aðstoðarlæknir á Eyrarbakka, i
embættistið Braga Ólafssonar,
læknis. Það er sameiginlegt álit
hreppsnefndarmanna að mjög
væri æskilegt að nefndum
Magnúsi Sigurðssyni sé veitt
héraðslæknisembættið á Eyrar-
bakka, sem veitast á 1. júni n.k.
/Virðingarfyllst, f.h. hrepps-
nefndar Stokkseyrarhrepps.
Sveitarstjórinn I Stokkseyrar-
hreppi, Steingr. Jónsson.
Afrit sent heilbrigðismálaráð-
herra.”
Að þeim upplýsingum og gögn-
um fengnum, sem hér er til vitn-
að, var það mat ráðherra, að rétt
væri að veita Magnúsi Sigurðs-
synilækni héraðslæknisembættið,
og var við veitinguna tekin
full hliðsjón af yfirlýstum vilja
héraðsbúa i málinu.
t þessari veitingu felst að
sjálfsögðu ekkert vanmat á störf-
um Konráðs Sigurðssonar,
héraðslæknis i Laugaráshéraði,
þvi að hann hefur reynzt traustur
læknir og er virtur embættismað-
ur.
t heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu.
12. júni 1974.
F.h.r.
Páll Sigurðsson.
Skrifstofu-
STARF
Lögreglustjóraembættið óskar að ráða mann
til skrifstofustarfa i sumar vegna sumarleyfa
starfsmanna
Starfið er við bifreiðaskráningar o.fl. Um-
sóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist fyrir 23 þ.m.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
14. júni 1974.
Til sölu:
Vörubill ’67 vöruflutningabíil með
nýrri dælu i góðu standi, má einnig
nota setn pallbil. Sendiferðabill
Ford D 300 með vönduðu húsi,
útbúið til hestaflutninga.
Opið miili 2 og 7
LANDBÚNAÐARÞJÓNUSTAN
Skúlagötu 63 — Sími 2-76-76
Vegna sumarleyfa
verður engin afgreiðsla á lausu sementi
frá Sementsverksmiðju rikisins i Ártúns-
höfða, Reykjavik frá miðvikudagskvöldi
26. júni n.k. til miðvikudagsmorguns 3.
júli n.k.
Sementsverksmiðja rikisins
Steypustöðvarnar
i Reykjavik, Selfossi og Njarðvikum verða
lokaðar 27. og 28. júni og einnig 1. og2. júli
Steypustöð B.M. Vallá h.f.
Steypustöðin h.f.
Breiðholt h.f.
Steypustöð Suðurnesja h.f.
Steypustöð Suðurlands h.f.
Árshátíð Nemendasambands
AAenntaskólans
að Laugarvatni
verðurhaldin i Skiphóli, Hafnarfirði, sunnudaginn 16. júni
1974.
Dagskrá:
1. Aðalfundur kl: 19,30. 2. Boröhald kl. 20,00. 3. Ðans.
Ferðir til Reykjavikur að hátið lokinni.
Borðapantanir fyrir matargesti laugardag 15. júni kl.
14,00-19,00 i sima 5-25-02.
Stjórnin.
Húsbyggjendur
Ef ykkur vantar .résmið út á land,
hringið þá i sima 35167.
Þjóðhótíð Vestur-
Skaftafellssýslu
17. júní að Kirkjubæjarklaustri
Hátiðin hefst kl. 10,30: Biskup Islands
vigir minningarkapellu Jóns Steingrims-
sonar
Kl. 14 hefst útisamkoma að Kleifum,
nálægt Kirkjubæjarklaustri
Helstu dagskráratriði eru þessi:
Helgistund: Biskup Islands- Hátlðarræða: Björn
Magnússon, prófessor: — Leikþáttur: Fall Una danska.
Saminn af Gunnari M. Magnúss i tilefni hátiðarinnar,
Aðalleikendur: Rúrik Haraldsson, Briet Héðinsdóttir,
Guðmunur Magnússon, Hákon Waage— Þjóödansa-
sýning, iþróttir, reiptog o.fl. Milli atriða syngur 140
manna kór Skaftfellinga. Söngstjóri: Jón Isleifsson
DANSAD A PAI.LI til kl. 21. Hljómsveitin Kjarnar. t til-
efni hátiðarinnar hefur veriö opnuð málverkasýning á
Kjarval, sem öll eru I eigu Skaftfellinga.
Þjóðhátiðaruefnd.