Tíminn - 17.07.1974, Síða 1
w
Auglýsmgadeild
TÍAAANS
Aðalstrætl 7
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
íslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
-
Reykjavíkur-
borg dregur
starfsmenn
ó um
sömdum
launa-
greiðslum
FB-Reykjavík.
Nokkur tími er nú lið-
inn, frá því gengið var
frá kjarasamningum
milli Reykjavíkur-
borgar og starfsmanna
hennar, en þó hafa
starfsmenn ekki enn
fengið í hendur þau
laun, sem umsamin
eru. Var starfsmönn-
um heitið því, er geng-
ið var frá samningun-
um, að umsamið kaup
yrði fyrst greitt út 1.
júlí sl. Það var þó ekki
gert, og hefur ekkert
bólað á því enn.
Þá var einnig ákveðið, að i
júli skyldi gengið frá þeim
greiðslum, sem borgar-
starfsmönnum ber að fá i
samræmi við kjarasamninga
allt frá siðustu áramótum.
Hafa borgarstarfsmenn ekki
heldur fengið þessar greiðsl-
ur, og eru margir orðnir
nokkuð langeygðir eftir
þeim. Segja þeir, að það
samræmist ekki starfshátt-
um borgarinnar, sem gengur
fast eftir þvi, að henni séu
greidd öll gjöld, er á borgar-
ana eru lögð, skilvislega, en
nú standi hún sjálf ekki við
gerða samninga og dragi
fólk á réttum launagreiðsl-
um.
Þegar starfsmenn hafa
innt eftir þvi, hvenáer búast
megi við þessum greiðslum,
er þvi borið við, að þær hafi
tafizt, þar sem skýrsluvélar
borgarinnar hafi ekki enn
skilað þeim plöggum og töl-
um, sem nauðsynleg eru til
þess að greiðslur geti farið
fram.
Botnsmál
Mývatns
þingfest
að nýju
SJ-Reykjavfk. — Botnsmál
Mývatns var þingfest að
nýju á föstudag i Skjól-
brekku i Mývatnssveit.
Reglulegur dómari, þ.e.
sýslumaður Þingeyjarsýslu,
hefur ákveðið að vikja úr
dómarasæti samkvæmt áð-
uruppkveðnum dómi Hæsta-
réttar i fyrra botnsmálinu.
Dómsmálaráðuneytið mun
væntanlega bráðlega skipa
setudómara i máli þessu.
'
Það vill oft gleymast, að náttúran hefur aliö manninn af sér, en ekki öfugt. Maöurinn hefur misvirt Uf-
gjafa sinn og á stundum ofboöiö honum, en þrátt fyrir allt, eru likur til þess, aö náttúran lifi afkvæmi
sitt. Þessi mynd Gunnars gæti minnt okkur á þaö.
íslenzk
stúlka í
græn-
lenzkan
skóla
FB- Reykjavik. Næsta vet-
ur hyggst islenzk stúlka
ganga I gagnfræðaskóla á
Grænlandi, og munu senni-
lega ekki margir fslendingar
hafa gert til þessa. Sú, sem
hér um ræðir, er Hulda 01-
afsdóttir dóttir Ólafs Þóröar
sonar og Kolbrúnar Valdi-
marsdóttur I Vik i Mýrdal.
Við hringdum i Huldu og
spurðum hana frétta af
skóladvölinni fyrirhuguðu á
Grænlandi. Hún sagði, að
Jenný Samúelsdóttir, islenzk
kona, se^m búsett er i
Julianeháb á Grænlandi
hefði boðið sér aö koma til
Grænlands og dveljast hjá
sér næsta vetur og ganga þar
i skóla. — Mér fannst sem
þetta gæti orðið skemmtileg
tilbreyting, sagði Hulda, —
og þess vegna ákvað ég að
fara.
Hulda hefur gengiö i skóla
i Vik i Mýrdal, enda er hún
fædd þar og uppalin. Hún
ætti að fara i þriðja bekk
gagnfræðaskólans. 1
Julianeháb verður hún i
dönskum skóla, en konan,
sem býður henni til Græn-
landsdvalarinnar, er gift
dönskum lögreglumanni,
sem starfar i Julianeháb. Til
Grænlands fer Hulda 25. ág-
úst næstkomandi.
ER ISLENZKI LOPINN
BLANDAÐUR GERVI-
EFNUM OG LITAÐUR?
—hs—Rvik — Er lopi, sem seldur
er sem 100% islenzk ull blandaöur
erlendri ull og jafnvel gervi-
efnum, og er band og lopi litaö i
„sauöalitunum”? Nokkur grunur
hefur leikiö á þvi aö Islenzki
lopinn væri ekki eins ekta og hann
er gefinn fyrir aö vera, og kemur
þetta fram m.a. fram i skýrslu
Sigrföar Halldórsdóttur, ráöu-
nauts, hjá Himilisiönaöarfélagi
ísiands, til félagsins. Húsmæöur
hafa og kvartaö yfir þvi, aö lopa-
peysur og aðrar lopaflfkur lituöu
frá sér i þvotti, auk þess sem þær
þófnuöu ekki, heldur gisnuöu og
tognuöu eins og flikur úr
gerviefnum sem er andstætt eöli
ullarinnar.
Hér fer á eftir skýrsla Sigrlðar
Halldórsdóttur, en þess má geta,
að niðurstaöa rannsókna Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins
liggur tilbúin I landbúnaöarráðu-
neytinu, en ekki tókst að fá upp-
lýsingar um innihald hennar að
svo stöddu. Skýrsla Sigriöar
hljóðar svo:
,,1 jan. sl. var samið bréf f.h.
H.í. til ullarverksmiðjanna
þriggja, þar sem farið var fram
á, að verksmiðjurnar merktu
vöru sina, þvi grunur léki á að
Frh. á bls. 15
Hún heitir Matthilda Gustavsson litla stúlkan, sem hér liggur viö háan stafla af lopaplötum. Gétur
veriö, aö eitthvaöaf þessum lopa sé litaö.eöa jafnvel blandaö gerfiefnum. (Tlmamynd Róbert)