Tíminn - 17.07.1974, Blaðsíða 5
TÍIVÍI'NN
5
Miðvikudagur 17. júli 1974.
Aflabrögðin:
716 þúsund lestir
fyrstu 6 mánuðina
— hs—Rvik. Fyrstu sex mún-
uði ársins var heildarafli lands-
manna 716.228 lestir, en heildar-
aflinn I fyrra var á sama tlma um
30 þúsund lestum minni, eða
686.268 lestir. Heildarþorskaflinn
var mjög svipaður, rúmar 236
lestir á móti 237.500 lestum I
fyrra. Er þó um nokkra minnkun
að ræða, þrátt fyrir rúmlega 30
þúsund lesta aukningu þorskafla
hjá togaraflotanum.
Þorskafli togaranna varð 69.993
lestir, en var á sama tíma i fyrra
38.135 lestir. Þorskaflinn hjá
bátaflotanum minnkaði úr 199.415
lestum í 166.117 lestir þetta árið.
Virðist þróunin þvi heldur ugg-
vænleg.
Onnur aflabrögð voru sem hér
segir, þar sem tölurnar frá I fyrra
eru innan sviga: Sildarafli 8.293
lestir (5.431), loðnuafli 463.251 lest
(436.841), rækjuafli 3.320 lestir
(3.601),hörpudisksafli 1.107 lestir
(1.485), humarafli 929 lestir
(1.360), spærlingur, makrlll og
annar afli 3.218 lestir.
Allt eru þetta bráðabirðatölur,
en samkvæmt þeim fer allur afli
minnkandi við landið, nema loðn-
an og sildin. Mun fleiri loðnuskip
voru á þessari vertið en i fyrra, og
hafa þá væntanlega verið færri
bátar á bolfiskveiðum fyrir vikið.
Rækju-, hörpudisks- og þó sér-
staklega humarafli hefur verið
minni það sem af er þessu ári.
Aðalfundur Sambands
íslenzkra rafveitna
Dagana 4. og 5. júlí s.l. hélt
Samband islenzkra rafveitna 32.
aðalfund sinn að Hótel Sögu I
Reykjavlk. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa voru á fundinum
flutt þrjú erindi.
Fyrri fundardaginn flutti Sig-
urður Þórðarson, verkfræðingur,
erindi um nýtingu innlendra
orkugjafa I stað oliu, sem lögð var
fram á Alþingi s.l. vetur. Þótti
fundarmönnum skýrslan Itarleg
og fróðleg.
Fyrir hádegi seinni fundardag-
inn hélt Jón A. Bjarnason, raf-
magnseftirlitsstjóri, erindi um
norrænt samstarf um raffanga-
prófun. Fram kom m.a., að unnið
er að þvl að draga úr tvlverkaði
við skoðun raffanga með því að
taka upp aukið norrænt samstarf.
Eftir hádegi seinni fundardag-
inn hélt Olav S. Johansen, verk-
fræðingur, erindi um Rannsókn-
arstofnun norska raforkuiðnaðar-
ins, EFI, I Þrándheimi, en hann
er forstöðumaður stofnunarinnar.
Erindið var hið fróðlegasta og
vakti mikla athygli. Tilefni þessa
erindis eru umræður, sem fram
hafa farið um hugsanlega stofnun
rannsóknastofnunar Islenzka raf-
orkuiðnaðarins, en þær umræður
eru á algeru frumstigi.
Núverandi stjórn Sambands Is-
lenzkra rafveitna skipa Aðal-
steinn Guðjohnsen, rafnmagns-
stjóri, formaður Eirikur Briem,
framkvæmdastjóri, varaformað-
ur og rafveitustjórarnir Aage
Steinsson, Adolf Björnsson, Einar
Ingvarsson, Garðar Sigurjónsson
og Magnús Oddsson. Fram-
kvæmdastjóri SIR er GIsli Jóns-
son, verkfræðingur.
Aðalfélagar SIR, sem eru raf-
veitur landsins og orkuöflunar-
fyrirtæki, eru samtals 25. Auk
þess eru I sambandinu 17 aukafé-
lagar og 3 heiðursfélagar.
Óhapp í
Saljut 3.
Moskva NTB — Sovézki geim-
farinn Juri Artjukhin, hentist út i
vegg i geimfarinu Saljut 3, þegar
óhapp varð I geimfarinu á laugar-
dag. Artjúkhin, mun þó ekki hafa
slasazt. Bilun þessi I geimfarinu
gerði það að verkum að mikill
þrýstingur myndaðist inni þar
sem Artjukhin var I þyngdar-
lausu rúmi.
Vonazt er til að þetta sé siðasta
óhappið I röð nokkurra minni ó-
happa,sem komið hafa fyrir siðan
geimfarið lagði upp i ferð sina.
Þrátt fyrir óhappið, segir frétta-
stofan Tass, að geimfararnir Art-
jukhin og Pavel Popovitsj hafi
það gott um borð I Saljut 3. Á
sunnudag gerðu þeir ýmsar at-
huganir á yfirborði jarðar. Geim-
feröin hefur nú staðið i 12 daga, en
eftir þvi sem Tass hefur sagt,
mun hún vera i að minnsta kosti
tvær vikur.
Shelltox
FLUGIMA
FÆLAIM
Hafið þér ónæði
af flugum?
Við kunnum ráð
við því
Á afgreiðslustöðum
okkar seljum við
SHELL flugnafæluspjaldið.
Spjaldið er sett upp og
engar flugur í því herbergi
næstu 3 mánuðina.
Spjaldið er lyktarlaust,
og fæst í tveim stærðum.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell
Auglýsið í Tímanum
Nýkomið! — Hollensku
HLAÐRÚMIN
ERU KOMIN
aftur í mörgum gerðum — Létt og
meðfærileg, en umfram allt þægileg _
Hentug í barnaherbergið og
sumarbústaðinn
Verzlið, þar sem úrvalið
er mest og kjörin bezt