Tíminn - 17.07.1974, Blaðsíða 6
6
TIMINN
Miðvikudagur 17. jdlí 1974.
Vekja þarf skilning íslendinga á þróunarhjálp
Aðstoð við hungrað fólk á þurrkasvæðunum i Eþiópiu sl. vetur var eitt
af verkefnum Hjálparstofnunar kirkjunnar 1973.
SJ-Reykjavík. Timanum barst
fyrir nokkru skýrsla Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar fyrir
starfsárið 1973. Þar er greint frá
starfsemi stofnunarinnar og fjár-
hag. Stærsta verkefni hennar árið
1973 var aðstoð við Vestmanna-
eyinga. Þá var veitt fé til hjálpar i
Eþfópíu og Managua, og írskum
börnum var boðið hingað til
stuttrar sumardvalar. Þá var
einn stærsti útgjaldaliðurinn til
hjálpar vegna sjóslysa.
Formaður stjórnar hjálpar-
stofnunarinnar er Jón Kjartans-
son forstjóri, en varaformaður
dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
og ritari Hermann Þorsteinsson
fulltrúi. Framkvæmdanefnd
skipa séra Jónas Gíslason, Ottó
A. Michelsen forstjóri og Pétur
Sveinbjarnarson framkvæmda-
stjóri. Ingi Karl Jóhannesson hef-’
ur tekið við störfum fram-
kvæmdastjóra af Páli Braga
Kristjónssyni.
Um starfsvettvang stofnunar-
innar segir i skýrslunni:
„Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur starfað i 4 1/2 ár og haft
ærin verkefni, sérstaklega s.l. 1
1/2 ár.
Ekki er vafi á því, að starf-
semin hefur fyllilega sannaö rétt-
mæti sitt og uppfyllt, a.m.k. að
nokkru, þær vonir, sem við hana
voru bundnar. Þýðingarmest að
svo komnu máli er að fólk sýnir
stofnuninni traust og felur henni
til ráðstöfunar fé, sem gefið er af
frjalsum vilja, glöðu hjarta og
kristilegum kærleik.
Hitt er svo jafn víst, aö mikið
starf er framundan við skipulag á
starfsháttum stofnunarinnar.
Setja þarf starfinu fastara form
og skorður. Stærstu verkefni
stofnunarinnar fram til þessa
eiga flest rætur sinar að rekja til
skyndilegs og mikils neyðar-
ástands vegna hamfara náttúr-
unnar eða stríðsástands.
Samkvæmt reglugerð ber
stofnuninni að sinna málum jafnt
innanlands sem utan.
Að Vestmannaeyjamálinu frá-
töldu, má ger.a ráð fyrir, a.m.k.
að öllu eðlilegu, að stærstu verk-
efnin skapist á erlendum vett-
vandi eins og raunin er hjá sam-
bærilegum stofnunum meðal
vinaþjóða okkar.
Reynslan sýnir ótvfrætt, að Is-
lendingar bregða vel og skjótt
við, er skyndilegt neyðarástand
skapast, ástand, sem um tíma er
fréttnæmt og vekur samúö, hvort
sem er innanlands eða utan.
Þetta er gott og þakkarvert svo
langtsem það nær. En ljóst er, að
í fæstum tilvikunum, á er-
lendum vettvangi, nægir þaö eitt
að hlaupa undir bagga með
þolendum rétt á meðan ósköpin
standa yfir. Það er venjulegast
aðeins fyrsta skrefið I langri
framkvæmd hjálpar til sjálfs
bjargar.
Vekja þarf skilning Islendinga
á nauðsyn raunverulegrar
þróunarhjálpar á erlendum vett-
vangi. Þróunarhjálp er aðal-
viðfangsefni alþjóðlegra kirkju-
deilda, sem við hjálparstarfsemi
fást. Þróunarhjálp og nauðsyn
hennar lætur ekki hátt i fjölmiöl-
um frá degi til dags. Hún miðar
aö því, að gera fólk, þjóöflokka,
heilar þjóðir sjálfbjarga, sem við
erfiðar og frumstæðar aðstæður
búa. Þróunarhjálp stuðlar að
almennri lágmarksmenntun,
þekkingu á heilsugæzlu og verk-
legri kunnáttu.
En til þess að vekja megi
skilning landsmanna á þróunar-
hjálp og nauðsyn hennar, er þörf
umfangsmikillar fræðslu- og
upplýsingastarfsemi um
ástandið, bág kjör meðbræðra
okkar vfða um heim. Slík starf-
semi hlýtur þvi að verða eitt
meginverkefni Hjálparstofnunar
kirkjunnar ánæstunnitil að renna
stoðum undir framtlðarskipulag
og starf. Til þess að slik
upplýsingastarfsemi beri góðan
ávöxt er Hjálparstofnun
kirkjunnar nauðsynlegt að ná
sem nánustu tengslum við það
fólk,sem gefur til starfseminnar.
Gera þarf spjaldskrá yfir gefend-
ur svo unnt sé að senda þeim
upplýsinga- og fræðsluefni. Jafn-
framt er mikilvægt að láta vel-
unnara starfsins fylgjast ná-
kvæmlega með, hvaö er á
döfinni, hvernig gjafafé er varið,
og hvern árangur það ber. Að
sjálfsögðu ereinnig'nauösynlegtað
nota fjölmiölana eins og unnt er.
Ef vel tekst til með slika
upplýsingastarfsemi, augu fólks
opnast fyrir þessu mikilsverða
hlutverki, varanlegri hja'lp við
bræður I neyð, þá er mótaöur
grundvöllur fyri skipulögðu starfi
og markvissri þátttöku ts-
lendinga I alþjóðlegu hjálpar-
starfi. Þá mundi Hjálparstofnun
kirkjunnar unnt, I lok hvers árs,
að velja sér ákveðin verkefni til
að sinna næsta ár á erlendum
vettvangi. Þessi verkefni yrðu
slðan kynnt sérstaklega fyrir vel-
unnurum stofnunarinnar og
landsmönnum öllum I byrjun
starfsársins. Siðan yrði reglulega
látið fylgjast meö, hvernig fjár-
mögnun hvers verkefnis liöi og
ekki síður, hvernig því sjálfu
miðaði. Þegar þetta verður komið
I framkvæmd veröur Hjálpar-
stofun kirkjunnar fyrst, og þá
fyrst, fullgildur aðili I starfi
kirkjulegra alþjóðastofnana.
Aö sjálfsögðu verður ekki I
framtiðinni frekar en nú séö fyrir
um neyðarástand af völdum
hamfara. Það veröur ótvírætt
áfram þáttur I starfi Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, að
bregðast vel við, er slikt ber að
höndum.
Hvað hlutverki og starfi
Hjálparstofnunarinnar á innlend-
um vettvangi liöur, er nauðsyn-
legt að vekja skilning og traust
fólks á þvi, aö efla I vörzlu
stofnunarinnar eins konar
neyðarsjóð, sem unnt verður að
grlpa til á stundinni, þegar beiðni
kemur frá sóknarprestum um að-
stoð I einstaka tilvikum. Efla þarf
traust fólks á þvl, að ómerktum
gjöfum I slikan sjóð sé vel farið af
stjórnendum stofnunarinnar I
samráði við sóknarpresta
landsins.
I reglugerð Hjálparstofnunar-
innar kveður svo á, að hún skuli
hafa yfirumsjón með öllu liknar
starfi Islenzku kirkjunnar. Fyrr i
þessari skýrslu eru nefnd dæmi
um frumkvæöi, a.m.k. tveggja
sóknarpresta, að samvinnu við
Hjálparstofnunina I sambandi við
staðbundnar safnanir meðal
sóknarbarna þeirra, safnanir,
sem áttu rót tina að rekja tU
neyöartilvika þar. Mjög æskilegt
væri, aö sllk samvinna yrði ávallt
viðhöfö, slik aðild Hjálparstofn
unarinnar að safnaðarstarfi
mundi á margvislegan hátt stuðla
að samræmingu og eflingu þessa
þáttar I starfi kirkjunnar.”
Skipulag og
fjáröflun:
„Til þess að skipuleggja megi
starfsemina I þá átt, sem vikið er
að hér á undan, er nauðsynlegt að
gera sér einnig nánari grein fyrir
innviðum starfsins. Forsenda
allrar starfseminnar er að sjálf-
sögðu fjáröflunin.Fram til þessa
hefur Hjálparstofnunin aðeins
haft einn fastan tekjuliö, þ.e.a.s
1% — framlag sóknarpresta.
Fórnarvikan hefur verið haldin
ár hvert, tekjur af henni eru
óvissar. Annað fjármagn hefur að
lang mestu leyti borizt vegna
tiltekinna atburða.
Skapa þarf ákveðnari og vissari
tekjuöflunarleiðir. Ekki er ólik-
legt, að talsverður hópur fólks
mundi gerast „fastir gefendur”,
ef unnt yrði að efna til útgáfu
fréttabréfs, eins og fyrr er drepiö
á. Sllkir gefendur mundu annað
hvort gefa til ákveðinna verkefna
eöa ómerkt, innanlands eða utan,
ákveðna upphæð, árlega,
hálfsárslega eða mánaðarlega
o.s.frv. Hugsanlega er unnt að
heimfæra 1% — framlag sóknar-
presta á fleiri stéttir eða hópa I
þjóöfélaginu.
Fórnarvikuna þarf að halda á
föstunni ár hvert. Söfunarfé I
Fórnarviku á helzt að vera
óbundið ákveðnum verkefnum,
nema þegar aðstæður bjóða
annað sérstaklega. Fórnarvikan
er almenn fjársöfnun til starf-
seminnar, þá gefst kostur á að
vekja fólk til umhugsunar og
skilnings á kjörum annarra, hlut-
verki og starfi stofnunarinnar.
Efna þyrfti ár hvert til sérstakrar
fjáröflunar til styrktar hinum
innlenda neyðarsjóði. Athuga
þarf gaumgæfilega ýmsar fjár-
öflunarleiöir, s.s. útgáfu gjafa-
korta, sem unnt yrði að nota við
ýmis tækifæri, afmæli, fermingar
á jólum o.s.frv. Huga þarf að
heppilegum árstima til al-
mennrar fjársöfnunar utan
föstunnar, desembermánuður
viröist einkar vel til fallinn.
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur I raun verið til um langan ald-
ur. Hún hefur lifað I óbrotgjörnu
starfi sóknarpresta um aldir. Nú
er aðeins leitazt við að færa út
kvlarnar og samhæfa kraftana til
aukinna átaka.
Hjálparstofnunin er þjónustu-
aðili viö þá, sem eru hjálpar þurfi
og einnig við þá, sem miðla vilja
og deila kjörum af frjálsum vilja
með þeim, sem minna mega sin.
Árangur Hjálparstofnunar-
innar er og verður verulega undir
starfi sóknarpresta kominn.
Þeir eru umboðsmenn
stofnunarinnar, þeir eru I tengsl-
um viö fólkið I landinu, þeir út-
breiöa oröið, þeir taka viö fjár-
munum, þeir vita um innlend
neyðartilvik, sem sinna þarf. Á
sama hátt er starf sóknarprest-
anna verulega háð þátttöku og
áhuga sóknarbarna þeirra.
Hvað starfsemi Hjálparstofn-
unarinnar varðar, er mjög til
ihugunar að kalla fleiri til liðs,
beinnar þátttöku, leikmenn I
söfnuðum. T.d. gæti hver sóknar-
prestur tilnefnt einn áhugaáaman
aðila, eða fleiri, úr hverri sókn
sér til liðs I málefnum Hjálpar-
stofnunarinnar sérstaklega.
Þetta fólk mundi vera nokkurs
konar trúnaðarmenn starfsins og
gætu veitt sóknarprestum og
Hjálparstofnuninni ómetanlega
aðstoð, t.d. þegar um fjársafnanir
er að ræða o.þ.h.”
Grafarar I Suðurgötu komu I gær niður á leifar af korni og súrufræjum.
Er taliö llklegt, að þau séu frá 14.-15. öld, þvl að sögn Þorleifs Einars-
sonar lagðist kornrækt að mestu niður eftir þann tima. Kornið fannst I
námunda við stóra þró, sem grafarar vita enn ekki til hvers mun hafa
verið notuð og er þar töluvert mikið af kolum allt um kring. Gárungar
hafaþvlgert þvl skóna, að hér sé um brugghús að ræða, nú séu öll
nauösynleg éfni fundin og ekkert vanti nema uppskriftina til þess að
brugga megi nothæfan mjöð. — Timamynd Róbert.
Má bjóða þér blíðu
mína?
Gsal-Rvik. — Maður nokkur hér
I Reykjavik hefur stundað þá iðju
upp á siðkastið, að banka upp hjá
ókunnugu fólki og athuga hvort
hann hitti ekki fyrir kvenmann ,
sem vildi ganga með honum til
kynmaka. Ekki hefur manninum
oröið ágengt i þessu áhugamáli
sínu, og þvi hefur hann haft annað
til að bæta sér upp kvenmanns-
leysið, en það er stuldur, — og
hefur honum gengið mun betur
við það.
Maðurinn hefur nú verið til
yfirheyrslu hjá Rannsóknar-
lögreglunni þrjá morgna I röð og
hefur hann alltaf verið látinn laus
eftir 24 tima varðhald, og
játningar á yfirsjónum sínum, —
en jafnharðan og honum hefur
verið sleppt koma kvartanir um
mann, sem er að bjóöa konum
bllðu sina og/eða mann, sem hef-
ur stolið einhverju og þegar lög-
reglan kemur á staðinn, er um
sama'manninn að ræða. Þannig
hefur þetta gengið um helgina.
Mjög mikið hefur verið kvartað
undan þessum manni og þjófnaðir
hans orönir svo margir, að vart er
hægt að slá á þá tölu.
Maöur þessi var fyrir nokkrum
árum þekktur fyrir gægjur á
glugga og var þá margoft til yfir-
Gsal—Rvik. — Þjóðhátiðarnefnd
hefur að undanförnu auglýst eftir
lOOnýstúdentum tii starfa á Þing-
völlum á þjóðhátlðinni 28. júii.
Þar sem ekki hefur komið fram I
téðri auglýsingu, hvaða verkefni
nýstúdentar ciga að leysa, innt-
um við starfsmenn Þjóðhátiðar-
nefndar 1974 eftir upplýsingum.
— Þeir, sem eiga að selja
barmmerki og dagskrá þjóð-
hátföarhaldanna, fyrir 10% sölu-
laun og til þess er ætlazt að þeir
heyrslu hjá lögreglunni.
Rétt er aö Itreka það við fólk, að
skilja aldrei eftir opnar hurðir I
hfbýlum slnum. Ennfremur aö
vara fólk við mönnum sem þess-
um og hleypa þeim fyrir enga
muni inn I íbúðina.
beri hvltu húfurnar, sagði starfs-
maöur nefndarinnar:
Og af hverju stúdentar? Við
þeirri spurningu var okkur sagt,
að hér væri um það mikil verð-
mæti að ræða, að fela þyrfti
fullorðnu fólki sölu þeirra og þá
hefði komið fram sú hugmynd, að
leita til nýstúdenta.
Að sögn starfsmanns nefndar-
innar.hefur þetta gefið góða raun
og margir nýstúdentar hringt og
spurzt fyrir um starfið.
Nýstúdentar með
hvítar húfur í vinnu
hjá Þjóðhátíðarnefnd