Tíminn - 17.07.1974, Síða 11
Miðvikudagur 17. júll 1974.
TÍMINN
11
Flytjendur dagskrár Ferðaleikhússins: t.f.v. Slmon ívarsson, Kristln Magnús Guðbjartsdúttir og
Kjartan Eggertsson.
FERÐALEIKHÚSIÐ
fimmta árið í röð
Gsal-Reykjavlk. — Ferðaleik-
húsið hóf starfsemi slna I gær-
kvöldi. Sýningar verða á mánu-
dagsv-, þriðjudags- og moðviku-
dagskvöldum að Hótel Loftleið-
um, og hefjast þær klukkan 21.
Áætlað er aö sýningar verði fram
til fyrsta september.
Þetta er fimmta árið I röð, sem
Ferðaleikhúsið býður erlendum
ferðamönnum upp á Islenzka,
þjóölega skemmtun á enskri
tungu.
Kristln Magnús Guðbjartsdótt-
ir er stofnandi Summer Theatre,
eins og þaö heitir á enskunni, og
veitir hún leikhúsinu forstöðu.
Kristin Magnús, Kjartan Egg-
ertsson, Simon ívarsson og Ing-
þór Sigurbjörnsson flytja I sumar
það efni, sem Ferðaleikhúsið hef-
ur á boðstólum. Efnið er mjög
fjölþætt, og má þar nefna upplest-
ur og leik úr fornbókmenntunum,
þjóðsögum og draugasögum.
Mikið er sungið og leikið undir á
gltar, farið er með ljóð og rimur
eru kveðnar.
Þá kynna þau langspilið lltil-
lega fyrir gestum sinum.
Dagskrána kalla þau „Light
nights”, og verða miðar á
skemmtunina til sölu hjá Feröa-
skrifstofu rlkisins, Ferðaskrif-
stofu Zoega, Hótel Loftleiðum og
við innganginn.
íslandsmeistaramótið í svifflugi:
Margar gerðir mæla
i bifreiðir, báta
og vinnuvélar
CAV
Olíu- og
loftsíur
i flestar
tegundir
bifreiða
og vinnu-
véla
IILOSSK
Skipholti 35 - Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 veriistæði • 8-13-52 skrifstofa
33IiOSS£
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
Ingþór Sigurbjörnsson kveður rlmur á skemmtuninni „iight nights”,
en hann er einn af stofnendum kvæðamannafélagsins Iðunn.
Mikil spenna
á mótinu
— góður keppnisdagur í gær
Gsal—Reykjavík. — íslands-
meistaramótið I svifflugi er hald-
ið á Hellu þessa dagana. Mótið
var formlega sett á laugardaginn
af Birni Jónssyni, formanni Flug-
málafélags islands. tslands-
meistaramótið er haldið annað
hvert ár og að þessu sinni eru
keppendur fjórir, þrlr frá Svif-
flugfélagi islands i Reykjavik og
einn frá Svifflugfél. Akureryar.
Tlminn ræddi I gær við Þórhall
Filippusson, mótsstjóra, og sagði
hann, að mótið heföi gengið
allsæmilega fyrir sig til þessa.
— i dag er bezti dagur mótsins,
agði Þórhallur, og flogið 63 km
leiö, frá Hellu að Breiðabólstað,
þaðan að Haga og siðan aftur að
Hellu. Tveir keppendur hafa nú
þegar lokið keppni og kom
Sigmundur Andrésson, i mark
eftir eina klukkustund og tólf
minútur og Leifur Magnússon
kom tæpri klukkustund síðar, eða
I mark eftir tvær klukkustundir
og eina minútu.
Sagði Þórhallur að hinir
keppendurnir tveir væru ekki
komnir.
Fyrsta daginn var flogið að
Stóra-Núpi, þaðan að Haga i
Holtum og siðan að Hellu. Enginn
keppenda komst brautina að
leiðarenda, en Sigmundur
Lofum 1
þetmaðlifal
Andrésson komst lengst og hlaut
hann fyrir flug sitt 1000 stig. Hin-
ir keppendurnir náðu ekki tilskil-
inni lágmarksvegalengd og hlutu
þvl engin stig. Leiðin, sem var
þrihyrningur var um hundrað
kllómetrar.
Annan daginn var flogið frá
Hellu að Búrfelii, þaðan að Hruna
og aftur að Hellu. Leiðin var 106
km. löng og komst einn keppenda
á leiöarneda og hlaut fyrir það
1000 stig. Það var Leifur Magnús-
son, en hann er núverandi ís-
landsmeistari I svifflugi. Sig-
mundur Andrésson lenti I Hruna
og fékk fyrir flugið 469 stig.
Eftir annan dag keppninnar var
þvl komin mikil spenna I mótið,
þvl Sigmundur Andrésson var
kominn með 1469 stig, og Islands-
meistarinn Leifur Magnússon
með 1000 stig.
Eins og áður er sagt komust
þeir báöir alla vegalengdina i
gær, en Sigmundur var um
klukkutlma á undan Leifi og
eykur þvi forskot sitt.
Að sögn Þórhalls Filippusson-
ar, mótsstjóra, er mótið þegar
orðið gilt, en til þess að svona
svifflugmót veröi gild þurfa að
minnsta kosti að vera tveir góðir
keppnisdagar.
— Það háir okkur nokkuð hvað
hafgolan kemur sterk hingað
sagði Þórhallur.
Um 25 tjöld eru á mótsvæði og
mikiö um gestakomur, að sögn
Þórhalls, enda er veður gott, sól
og hiti.
Hin nýja mótorsviffluga Svif-
flugfélags Islands hefur heldur en
ekki verið vinsæl á mótinu og ver-
ið I sifelldri notkun, enda er gest-
um gefinn kostur á að fljúga með
henni.
$ SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32
Símar: 8-20-33 — 8-21-80
8-65-50 — 8-22-42
! Ilíiííl!!!!!!í!í!i!li!li
AUGLYSINGADEILD TIMANS
-irrjjrr
MOTATIMBUR
Steypustyrktarstál
SAUMUR
Vatnsrör
SVÖRT OG GALVANISERUÐ
Sambandið • Byggingavörur * Ármúla 29