Tíminn - 17.07.1974, Blaðsíða 12
12
Tr.MTNN
Miðvikudagur 17. júlí 1974.
r rrr
r Frank Usher: w
A
TÆPU VAÐI
____________________________________________J
síðdegis, eins og að hún hefði einhverjar ráðagerðir?
Samsæri? Svo var það bifreiðin. Bíllinn ruglaði hann í
ríminu.
Hún og Stanislov voru áreiðanlega saman um þetta allt
saman, og það var skylda hans að komast að því, sem á
bakvið lá.
Undir flestum kringumstæðum hefði hann gefið ein-
hverjum undirmanna sinna skipur; um að framkvæma
rannsókn. Og hvort það yrði nú gert eða ekki var það
samt sem áður skýlaus skylda Gabelsbergers að vita
hvað f ram fór í hans eigin riki. Jaf nvel Sovjet-embættis-
menn voru undir smásjánni.
Gabelsberger hafði aðeins blundað sem snjjggvast
undir morgunsárið. Hann var alltaf að hugsa um þetta
sama mál. Að hans skoðun snérist það um hina ensku
stúlku. Stanislov var nú í Varsjá og kominn út úr spilinu.
Hugsanir Gabelsbergers snérust því eingöngu um hina
ensku stúlku. Málið var óljóst nokkuð, en snerti raunar
ekki öryggismálin.
Þegar hann kom á skrifstofuna, kallaði hann Brody
fyrir sig. Hann var maður sem hann taldi sig geta treyst
i viðkvæmum málum.
— Hvað hefurðu verið ao gera fyrripartinn, Brody?
— Ég var aö hugsa um að fara á K.G.B.-skrifstof una.
Þeir eru að yfirheyra þar þjón, sem var handtekinn á
Groedemange-veitingastof unni í gær.
— Er það áhugavert mál?
— Það held ég ekki. Maðurinn talar ekki, og sam-
kvæmt viðkynningu minni af K.G.B. eru miklar líkur til
að þeir séu ekki með rétta manninn.
Gabelsberger hló.
— Það væri þá ekki í f yrsta sinn. Þar að auki eru þeir
talsvert gef nir fyrir það að halda því leyndu fyrir okkur
sem þeir hafast að.
— Já, ég er yður sammála, félagi Gabelsberger. Var
eitthvað sérstakt,sem þú ætlaðir að biðja mig um að
gera?
— Þekkirðu ensku stúlkuna sem söng í Lorenz? Hún
heitir Amanda Curson.
— Ég hef séð hana. Hún er hér í fylgd með Englend-
ingi. Þau eru á leiðinni til Vestur-Þýzkalands í dag.
— Já, þau fara þjóðveginn. Ég vil að þú fylgist með
þeim. Athugaðu hvað þau hafast að og hvert þau aka.
Hafðu samband við mig. Þetta er aðeins okkar á milli.
Ég geri svo sjálfur skýrslu um málið seinna.
Gabelsberger þurfti ekki að bíða þess lengi að Brody
léti til sín heyra.
— Ég hringi frá járnbrautarstöðinni. Enska parið var
rétt í þessu að kaupa farmiða til Eastvold.
— Eastvold? Gabelsberger greip áætlunarkort járn-
brautarinnar. Er lestin farin?
— Hún fer eftir tíu mínútur.
— Farðu með henni. Athugaðu hvað þau hafast að í
Eastvold. Ég hitti þig þar. Ég verð þar um svipað leyti og
þú.
— Hvar get ég haft samband við þig, félagi?
— Þetta er lítill staður. Þú getur ekki komizt hjá því að
sjá bílinn minn. Fari svo að þú f innir mig ekki, hittumst
við á lögreglustöðinni, en það er neyðarúrræði. Ég vil
helzt ekki hafa nokkurt samband við hina almennu lög-
reglu. Ég treysti á þagmælsku þína félagi Brody.
Hann átti þess ekki von að Brody mundi bregðast hon-
um . Hann mundi vel þagmælsku Brodys í sambandi við
konu ítalsks verzlunarmanns, sem var tekin fyrir gjald-
eyris smygl. Hún var mjög fögur kona og hafði tekið út
hegningu sína í dívaninum i einkaherbergi Gabels-
bergers við hliðina á skrifstofunni. Hefði hún ekki verið
útlendingur, hefði hún lent í fangelsi.
Gabelsberger setti upp hatt, smeygði sér í frakka, og
fór út. Hann var að brjóta heilann um það hvort ekki
væri eitthvað líkt með Amöndu Curson og konu
verzlunarmannsins.
4. kapítuli.
— Mér finnst öll þessi ráðagerð bandbrjáluð, sagði
Óskar þegar þau gengu út úr járnbrautarstöðinni í East-
vold. Hann var með sína handtöskuna í hvorri hendi.
Amanda hafði aðeins meðferðis lítinn poka með rennilás
og svo handtösku sína. Tvær töskur með fötunum hennar
skildu þau eftir á stöðinni.
— Þessi staður sýnist mér sérlega leiðinlegur, sagði
Amanda. — En við getum ekki hætt við alltsaman núna.
— Ef hann mætir okkur með bílinn, getum við sótt
töskurnar á stöðina seinna.
— Hann kemur ekki nálægt stöðinni. Hann segir að þeir
séu svo forvitnir þar.
— Ég hef á tilf inningunni að við séum að blanda okkur
í eitthvað óhreint, sagði hann fýldur.
— Ef þú ert hræddur, Óskar, geturðu tekið lestina aft-
ur til Kaltenburg, og svo kvöldf luguna þaðan til Frank-
furt. Ég kemst ágætlega af ein míns liðs.
Það rumdiíhonum. — Allt er þetta tóm vitleysa. Égskil
þig ekki lengur, Amanda.
— Ég gaf honum loforð. Svo einfalt er það. Ég svík
ekki loforð. Það ættir þú bezt að vita, Óskar. Ég hef
aldrei svikið þig hafi ég lofað þér einhverju, eða hef ég
gert það?
Sórshöfny--'' -^Egilsstaðir""
/ Akureyri.W-,.----"Grímsey Farðu bara
- Ég er\
rútubilstjórj
Únn. Hvert
viljið þið
fara?
.n 7-25
Miðvikudagur
17. júli.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7,00 8.15, og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forystugreinar dagbl.) 9.00,
10.00. Morgunbæn 7.55.
Morgunstund barnanna kl
8.45: Steinunn Jóhanns-
dóttir byrjar að lesa
„Söguna af Jóni Oddi og
Jóni Bjarna” eftir Guðrúnu
Helgadóttur Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli liða.
Kirkjutónlist kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
RIAS-sinfóniuhljómsveitin i
Berlin leikur forleik að
óperunni „Þjófótta skjón-
um” eftir Rossini/Ein-
söngvarar, kór og hljóm-
sveit St. Cecilia tónlistar-
skólans i Róm flytja atriði
úr óperunni „Madam
Butterfly eftir Puccini.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Með sinu lagi Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siðdegissagan Endur-
minningar Mannerheims
Þýðandinn, Sveinn Asgeirs-
son les (19).
15.00 Miðdegistónleikar
Arthur Grumiaux og
Lamoureux-hljómsveitin
leika Fiðlukonsert i h-moll
op. 61' eftir Saint-Saens:
Manuel Rosenthal stj. FIl-
harmóniusveitin I Los
Angeles leikur „Hátið i
Rómaborg” (Roman festi-
val) eftir Respighi: Zubin
Metha stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 veðurfregnir)
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.40 Litli barnatlminn Gyða
Ragnarsdóttir sér um þátt-
inn.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar
19.35 Landslag og leiðir Dr.
Haraldur Matthlasson talar
um Þjórsárdal.
20.00 Einsöngur: Kristinn
Hallsson syngur lög eftir
Markús Kristjánsson,
Þórarin Jónsson, Sigfús
Einarsson Pál Isólfsson og
Jón Leifs: Arni Kristjáns-
son leikur á píanó.
20.20 a. Hans Wium og
Sunnefumálin Gunnar
Stefánsson flytur þriðja
hluta frás. Agnars Hall-
grlmssonar cand. mag. b.
Ólabragur Sveinbjörn
Beinteinsson kveður rlmu
eftir Einar Beinteinsson og
Halldóru B. Björnsson. c.
Lífskeðja náttúrunnar
Hugleiðing eftir Jón Arn-
finnsson garðyrkjumann,
Jóhannes Arason flytur. d.
Seyðisfjörður um aldamótin
Vilborg Dagbjartsdóttir
flytur lok greinar eftir
Þorstein Erlingsson. e. Kór-
söngur Alþýðukórinn
syngur undir stjórn dr.
Hallgrims Helgasonar.
21.30 tJtvarpssagan: „Ar-
minningar” eftir Sven
DelblancHeimir Pálsson is-
lenzkaði. Sverrir Hólmars-
son og Þorleifur Hauksson
lesa (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir Dagamun-
urEinar örn Stefánsson sér
um þáttinn.
22.35 Nútimatónlist Halldór
Haraldsson kynnir
23.20 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.