Tíminn - 17.07.1974, Side 13
Miðvikudagur 17. júlf 1974.
TÍMINN
13
Hver sigrar
hver fellur?
Spennan i íslands-
mótinu i knattspyrnu,
þ.e.a.s. 1. deildar
keppninni, er i
algleymingi, ekki
aðeins hvað varðar
efsta sætið, heldur
einnig um neðsta
sætið. Ljóst er, að
Skagamenn og Kefl-
vikingar munu
berjast um efsta
sætið, nema eitthvað
mjög óvænt gerist. En
erfiðara er að spá um
það, hvaða lið falli
niður i 2. deild. Eins
og sakir standa eru 6
af 8 liðum 1. deildar i
fallhættu.
.
Sigrún Guðmundsdóttir
skrifstofustúlka: Ég býst við
þvi, að Keflvikingar sigri að
þessu sinni, þrátt fyrir slaka
byrjun. En það verður örugg-
lega ekki Valur, sem fellur
niður i 2. deild að þessu sinni.
Helzt býst ég við þvi, aö það
verði Akureyri.
Jóhann Þórir Jónsson rit-
stjóri: Mér þykir llklegast, aö
Keflvikingar verði íslands-
meistarar. Fram hefur verið
Hklegasti „fallkandidatinn”,
en nú er Elmar Geirsson
kominn heim, svo að staða
Fram getur breytzt til hins
betra.
t.
Björn Aðalsteinsson
verzlunarmaður: Kefl-
vlkingar hafa sótt i sig veörið
að undanförnu, og mér virðist
flest benda til þess, að þeir
veröi Islandsmeistarar i ár.
Hins vegar sýnist mér á öllu,
að það verði Akureyringar,
sem falli niður I 2. deild.
!«
Einvarður Jósefsson banka-
gjaldkeri: Ég spái þvl, að
Akurnesingar verði Islands-
meistarar I ár, en þó veröa
þeir að halda mjög vel á
spöðunum I slðustu leikjunum
til að ná þvl marki Ég er
smeykur um, að Framarar
falli I ár.
vV
V-:,
Iþróttaslðan spurði nokkra
vegfarendur I gær, hverju þeir
vildu spá um efsta og neðsta
sæti 1. deildar, og fara svör
þeirra hér á eftir.
: U(!A v
*
f
Helga Bolladóttir: Akurnes-
ingarverða Islandsmeistarar.
Ég spái þvl, að það verði
Fram, sem fellur niður i 2.
deild.
Halldóra Guðmundsdóttir
sjúkraliði: Skagamenn veröa
Islandsmeistarar, en það
verður ekki Fram, sem fellur i
2. deild. Til þess er liðið allt of
gott.
Sigurjón Sigurðsson banka-.
maður: Ég veit ekki, hvort
það er fræðilegur möguleiki á
þvl að KR sigri. En það þýðir
vlst ekkert að láta ósk-
hyggjuna ráða. Ég hygg, að
Keflvlkingar muni hafa það af
að sigra á endanum. En um
stööuna á botninum vil ég
engu spá.
Kristinn Jörundsson
leikmaður i Fram: Keflvlk-
ingar verða Islandsmeistarar
I ár. Skagamenn hafa verið
heppnir I fyrstu leikjum
mótsins. Ég trúi þvi varla, að
sú heppni endist út heilt mót.
Ég þori engu aö spá um neðsta
sætið.
Stefán Eggertssson:
Keflvlkingar hafa þaö á
endanum, en ómögulegt er að
segja fyrir um það, hvaða lið
dettur niður. Mér finnst
knattspyrnan I sumar heldur
lakari en á undanförnum
árum.
Rafsuðu Yn3d
T ir I/1 handhæg
I AClvl og ódýr
fyrir
SUÐUVÍR 2,5 og 3,25 mm
RAFSUÐUKAPALL nýkominn z
16, 25, 35, 50 sq-mm^)y j
k A
ARMULA 7 - SIMI 84450
Sigurjón Þórarinsson
rafvélavirki: Heæzt er ég á
þvi, að Keflvlkingar vinni
mótið. Að öllum llkindum
verður þaö Reykjavikurfélag,
sem fellur niður I 2. deild, og
finnst mér sennilegast, að það
verði Vlkingur.
Sigurður Friðriksson
viðskiptafræðingur: Mér
þykir einsýnt, að Kefl-
vlkingum takist aö verja
Islandsmeistaratitilinn. Þeir
hafa verið að slga á jafnt og
þétt. Ég vil engu spá um það,
hvaða lið fellur að þessu sinni.
í
Jónas Jónasson útvarps-
maður: Það þýöir nú lltiö að
spyrja mig, ég rata varla
lengur á völlinn. En eftir þvi,
sem ég hef fylgzt með svona
utan við, þá sýnist mér Kefl-
vlkingar vera að spjara sig.
Ætli þeir sigri ekki i ár, enda
þótt Skagamenn séu alltaf
harðir I horn að taka. —
Neösta sætið? Drottinn minn
dýri, ég veit enn minna um
það. En ef það er satt, að
Valur sé I fallhættu, þá hlýtur
það að stafa af þvi, hve langt
er siðan ég var I skemmti-
nefnd hjá félaginu!
ÚTBOÐ
Tilboð (fskast i að leggja dreifikerfi I Breiðholti II, 5.
áfanga fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, gegn 3.000.-
króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 25. júli
1974, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
| AugtýsicT
iTimamun!