Tíminn - 11.08.1974, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.08.1974, Blaðsíða 2
Sunnudagur 11. ágúst 1974 Æ N atnsberinn: (20. jaa-18. febr.) Þú þarft að afla þér stundarhlés til þess að ganga frú ýmsu þvi, er varðar þig persónulega, og þá sérstaklega vandamálin, svo að þú ættir að reyna að taka þér fri i dag, ef þess er nokkur kostur. Fiskarnir: (19. febr-20. marz) Þú hefur kastað teningunum, svo að ekki verður aftur snúið, en þú ert i það erfiðri aðstöðu, að þú þarft á öllu þinu að halda, ef þú átt að koma upp- réttur úr þessum leik. Aðstaðan er erfið. Hrúturinn. (21. marz-19. april) Það er alls ekki að vita, nema þetta verði erfiður dagur fyrir þig, af þvi að það hefur eitthvað gerzt, sem gerir aðstöðu þina erfiða. Þú skalt gæta þin á einhverjum, sem reynir að gera þér lifið leitt. Nautiö: (20. april-20. mai) Það er einhver vinur þinn, sem þarf sannarlega á þér að halda, og enda þótt þér finnist þú eiga erfitt með að hjálpa honum, skaltu ekkert til spara, þvi að þetta er mál, sem kann siðar að snerta þig sjálfan. Tviburainerkið: (21. mai-20. júni) Þér ætti að geta orðið vel ágengt i dag, en til þess þarftu að beita skipulagsgáfunum. Þú verður að gera þér.ljósa grein fyrir eðli málanna, áður en þú framkvæmir nokkuð, og þú skalt nota kvöldið til að kryfja þau til mergjar. Krabbinn: (21. júni-22. júli) Það er eins og skapið i þér sé eitthvað skrýtið i dag, og að likindum er það farið að valda á- hyggjum hjá þinum nánustu. En það er mikils um vert, að þú kippir þessu i lag. Farðu varlega i umferðinni i dag. Ljónið: (23. júli-23. ágúst) Það er rétt eins og þessi dagur virðist ósköp ró- legur, en það er bara á yfirborðinu. Það eru i vændum mikil átök, sem þú skalt búa þig undir. Þú gerir þér ljóst eðli málsins, og þú einn getur ráðið þvi farsællega til lykta. Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept) Mundu, að það eru tvær hliðar á hverju máli. Þetta er mikilvægt i dag. Taktu ekki ákvörðun fyrr en þú hefur kynnt þér eðli málsins niður i kjölinn, og forðaztu að láta ögrun ákveðinnar persónu fara i taugarnar á þér. Vogin: (23. sept-22. oktj 1 dag skaltu hafa það hugfast, að i ákveðnu máli er varasamt að gera nokkuð, nema hafa samráð við þina nánustu. Þú átt i einhverjum erfiðleik- um við persónu af gagnstæða kyninu, en með til- litssemi er hægt að laga það. Sporðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.) Þú hefur átt erfitt með aö gera þér grein fyrir þvi að undanförnu hvað það er, sem þú viit, en þetta er nokkuð, sem þú verður að gcra upp við þig. Þú verður að finna leið og fara eftir henni, Bogmaöurinn: (22. nóv-21. des.) Þú skalt vera gagnrýninn á sjálfan þig i dag, svo að þú getir kinnroðalaust kannazt við það, sem þú hefur gert. Þaö er rétt eins og sumt megi kvrrt liggja af þvi, sem þú hefur fullan hug á að koma á framfæri. Steingeitin: (22. des-19. janJ. Það er rétt eins og fyrri hluti dagsins verði þér þungur i skauti Þú skalt ekki hal'a mikið um- leikis i dag, og ekki taka neinar afgerandi á- kvarðanir. Hitt er annað mál. að kvöldið getur orðið sérlega ánægjulegt. l.'in (irimsnes — l.augarvatn — (íeysi - (iullfoss i'in Selfoss — Skeiðaveg —• Hreppa — (iullfoss. Um Selioss — Skálholt — Gullfoss (ievsi. Daglega Irá BSi — Siini ^--t.;-(i(> — ól.úui Ketilsson. TIMINN pj r ; r j'» .» L' t rj* ' t Sunnudagur 11.' ágiist 1974 Heyrzt hefur, aö hótelrekstri verfti haldið áfram I Valhöll I vetur. Hvernig mun mönnum ganga aö kom ast þangað, vilji þeir njóta þar veitinga? Hvernig kemstu á Þingvelli, ef þú ert bíllaus? HP.-Reykjavik. — Bifreiðaeign landsmanna hefur sem kunnugt er stóraukizt siðustu árin, og sá telst varla maður með mönnum lengur, sem ekki ekur um i eigin bn. Hins vegar er oft yfir þvi kvartaö, að litið sé fyrir þá gert, sem ekki eiga bila, og vilja kannski ekki eiga bila, sem einnig má taka með i reikninginn. Kvartað hefur verið yfir illa skipulögðu og seinvirku strætis- vagnakerfi hér i Reykjavik, sem beinlinisýti undir fjölgun bifreiða á allt of þröngum götum borgar- innar. En hvernig er þessum mál- um þá háttað, þegar út fyrir borg- ina er komið? Ekki er um að ræða neinar skipulagðar áætlunar- ferðir innanbæjar, nema i Reykjavik, Kópavogi, Hafnar- firði og Akureyri, svo að fólk um land allt verður að eiga bil, hvað sem tautar og raular, ef það ætlar að komast leiðar sinnar innan þorps eða utan. En hvernig er þá hægt að bregða sér bæjarleið, ef enginn bili er a bænum. Segjum sem svo, að fjölskylda héðan úr Reykjavik ætli sér að skoða Þing- velli, nú á þessu ári hátiðahalda og stóratburða. Eini möguleikinn, sem fjölskyldan hefur, er ferð sérleyfishafans þangað. Til Þing- valla er ekið einu sinni á dag, frá Reykjavik kl. 2og til Reykjavikur kl. 5. Þar með gefst fjölskyldunni einn og hálfur timi til þess að hlaupa um Þingvelli og úða i sig kóka kóla i sjoppunni, — og verður það að teljast stutt heimsókn og ómerkileg, en hvað á fólkið að gera? Við höfðum samband við sér- leyfishafann, og þar varð fyrir svörum Guðlaug Þórarinsdóttir: — Ferðirnar eru einfaldlega svona fáar og strjálar vegna þess, að það er ekkert að flytja. Eitt- hvaö var þetta nú hér fyrr á ár- 6 í bíl Chevrolet Nova er 6 manna bíll og fer vel um alla. Nova hefur aflmikla 6 strokka vél. Hann hefur verið framleiddur í 6 ár samíleytt án verulegra brejdinga, enda hefur sérlega vel tekist til um útlit og gæöi. Og hér eru 6 ástæður enn, sem mæla með Nova: (1) Góð og ódýr sjálfskipting, (2) vökvastýri, (3) aflhemlar, (4) stuð- arar, sem fjaðra við högg, (5) góöur í endursölu og (6, en ekki síst) Nová er söluhæstur allra Chevrolet bíla. Chevrolet SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA urv.iunnu lJLLIlí.l\rtH OHMVinríUrCUHUH $ Véladeild EINKAUMBOÐ FVRIR GENERAL MOTORS Á ÍSLANDI ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.