Tíminn - 11.08.1974, Page 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 11. ágdst 1974
Kynorkan jókst
að mun
Þrltugur Frakki, Michel
Ricoud, var sekur fundinn um
svindl, og dæmdur i samræmi
vib það, eftir að hann hafði selt
um nokkurn tima súkkulaði-
mola, sem áttu að auka kynorku
gamals fólks, sem farið var að
finna á sér ellimörk á þvi sviði.
Súkkulaðimolana seldi hann
fyrir rúmar 400 krónur tylftina,
en keypti þá hins vegar i venju-
legri kjörbúð fyrir aðeins 80
krónur kilóið. Það merkilega
var, að flestir þeirra, sem
súkkulaðið átu, fundu greinileg-
an mun á sér og einn viðskipta
vinanna pantaði sér annan
skammt, eftir að hann hafði lok-
ið við þann fyrsta. Er sölu-
maðurinn var spurður að þvi,
hvort hann hefði ekki verið að
selja fólki vörur undir fölsku
yfirskini, neitaði hann þvi og
benti á, að hann hefði raunveru-
lega fengið töluverðu áorkað,
þvl fólk hefði fundið mun á sér.
Hann hefði breytt sálarlegri af-
stöðu hinna öldnu, og það hefði
nægt I þessu tilviki. Rétturinn
tók ekki mark á þessari rök-
semdafærslu og dæmdi Ricoud
til þess að greiða um 50.000
krónur I sekt.
Varnaðarorð til
umhyggjusamra
kvenna
,,Ef þér þykir raunverulega
vænt um manninn þinn, þá
skaltu alls ekki hringja til hans I
vinnuna, nema brýna nauðsyn
beri til”, segir Gerhardt
Preuscher, vestur-þýzkur
visindamaður og prófessor.
Hann hefur nefnilega nýlega
gert rannsókn, sem sýnir, að
púls manns, sem fær upphring-
ingu að heiman, meðan hann er
i vinnunni, þýtur úr 50-80 upp I
hundrað. Skýring prófessorsins
á þessu er sú, að maðurinn verði
þegar I stað skelfingu lostinr. og
telji vist,að eitthvað voðalegt
hafi komið fyrir á heimilinu. Og
hann bætir þvi að sjálfsögðu við,
að þetta geti verið stórhættulegt
fyrir heilsuna. Þetta hljómar
auðvitað ákaflega skynsam-
lega, og hvaða eiginkona vill
ekki gjarna stuðla að góðu
heilsufari ástkærrar fyrirvinnu
sinnar? Spuringin er bara: Á
þetta eingöngu við um karl-
menn?
Dæmdur fyrlr
að breyta hvítvíni
í rauðvín
Stolið úr kirkju
Mikið hefur borið á þvi að und-
anförnu, að stolið hafi verið
verðmætum listaverkum úr
kirkjum i Frakklandi. Hefur þvi
verið ákveðið að fjarlægja lista-
verk úr kirkjum, sem litið eftir-
lit er haft með, og verða verkin
annað hvort sett á söfn eða i
aðrar kirkjur, þar sem eftirlitið
er betra. Aðallega reyna þjóf-
arnir að ná sér i dýrmæt mál-
verk, höggmyndir, útskornar
myndir, hluti úr gulli og dýrum
málmum. Sagt er að alls hafi
verið stolið 67 hlutum úr frönsk-
um kirkjum á siðasta ári. Hefur
þjófnaður færzt mjög i aukana
undanfarin ár, þvi árið 1965 var
ekki vitað um nema 18 stykki,
sem stolið hafði verið.
Menntamálaráðuneyti Frakk-
lands hefur umsjón með kirkj-
um og munum i þeim, og hefur
nú verið send út skipun um, að
ráðamenn kirkna leggi sig betur
fram um að gæta þeirra, og haft
verði meira samstarf við lög-
reglulið þeirra staða, þar sem
kirkjurnar eru, svo hægt verði
að stemma stigu við þessum
stuldum. Á lista, sem ráðuneyt-
iðhefur i fórum sinum, eru talin
upp að minnsta kosti 80 þúsund
verk, sem talið er fullvist, að
þjófar hafi mikinn áhuga á að
komast yfir.
Allur er varinn
góður
Rudolf Hess, sem situr nú aleinn
i Spandaufangelsinu vegna
striðsglæpa, varð áttræður á
dögunum, og mörgum fannst
þaö tilvalinn dagur til þess að
veita honum frelsi. Af þvi varð
nú ekki, og I mótmælaskyni
skipulögðu nokkrir nasistahóp-
ar mótmælagöngur og útifundi.
Þar á meðal var hópur ungnas-
ista I San Franciscó. 200 hræður
komu þar saman til þess að
krefjast þess, að Hess yrði lát-
inn laus, og báru flestir þeirra
öryggishjálma. Þeir komu lika
fljótlega i góðar þarfir, þvi að
varla var fundurinn fyrr hafinn
en hópur Gyðinga kom á vett-
vang, vopnaður eggjum, sem
óspart voru látin dynja á nasist-
unum. Eftir mikinn eggjaslag
leystist fundurinn upp og hver
fór til sins heima.
Maður nokkur, sem hefur það
að atvinnu sinni að smakka á
vini, og lestarvörður einn i
Frakklandi hafa verið dæmdir
fyrir að hjálpa til við að fram-
leiða falskt rauðvin. Járnbraut-
arvörðurinn, sem heitir Ben-
adra, smyglaði yfir 1000
kálógr gf efni, sem á erlendu
máli nefnist oenocianine, frá
ttaliu til Frakklands. Smakkar-
inn, Francis Desalbres, lagði á
ráðin með smyglið. Þegar þessu
efni, sem er löglegt á ttaliu en
bannað i Frakklandi, er blandað
út I hvltvin, verður það að rauð-
vlni. Þarf ekki nema fimmtlu
grömm til þess að breyta 100
litrum af hvitvlni I rauðvin, en
hvítvinið er mun verðminna
heldur en rauðvinið, og þess
vegna er þetta gert. Desalbres
seldi 16 vinframleiðendum efnið
fyrir hátt verð, en aðeins einn
þeirra viðurkenndi að hafa
notað það. Einhver fór svo á
stúfana og sagði franska vin-
eftirlitinu frá starfsemi Desal-
bres, og náðist hann þá og var
dæmdur, og sömuleiðis vinur
hans Benadra.
Fóstursonur á
fertugsaldri
John Lennon, Bitillinn sem allir
kannast við, á I striði við banda-
risk yfirvöld. Nokkur undanfar-
in ár hefur Lennon búið og starf-
að I USA án atvinnuleyfis, og nú
hefur lögreglan þar i landi hótað
að senda hann nauðugan viljug-
an heim til Englands. En
Lennon er nú aldeilis ekki á þvi.
Hann á tveggja kosta völ. Til
þess að fá framlengt dvalarleyfi
i landinu, verður hann annað
hvort að gifta sig, sem hann
segir ekki koma til nokkurra
mála, eða láta ættleiða sig.
Hann hefur sem sagt valið slð-
ari kostinn og auglýst eftir
„auðugum, skilningsrikum
manneskjum”, sem vildu verða
þess heiðurs aðnjótandi að fá að
ættleiða hann. Allmargar
auðugar, skilningsrikar,
miðaldra konur hafa þegar lýst
sig reiðubúnar að miskunna sig
yfir munaðarleysingjann.
tí
Það eru engin takmörk
fyrir þvl, hvar hann fær
sér miödagsblundinn.
Ég heföi átt aö taka mark á
mömmu, þegar hún sagöi, aö þú
værir óþroskaöur. -
&T-ri
Hann myndi trúlofast litasjón-
varpinu I staöinn fyrir dóttur okk-
ar, ef hann fengi aö velja.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég skal ábyrgjast aö hann
flautar ekki á eftir neinum með
tönnina svona næstu daga.