Tíminn - 11.08.1974, Side 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 11. ágúst 1974
íslenzk stúlka aft spinna
A Seyftisfirfti 27. ágúst 1950.
Stúlkan vift rokkinn er oröin
sjaldgæf sjón á íslandi. Konur
rauluðu oft við rokkinn sinn og
sætt þótti börnum aö sofna við
spunahljóðið. Myndina af
spunakonunni hefur Helgi Arna-
son gefið út á korti. Hver er
konan? Hún sómir sér sannar-
lega við rokkinn. Viö getum
hugsað okkur i gamni, að meðan
konan spinnur, bregður bóndinn
sér skeiðriðandi til Reykjavikur
og stefnir á stjórnarráðið.
Raunverulega mun myndin
fyrst birt i bókinni „Hestar og
reiðmenn á Islandi” fyrir meira
en hálfri öld. Höfundurinn
Schröder var merkismaður,
sem vildi kenna Islendingum
reiðmennsku. Hann lét byggja
húsið „Carolina Rest” á Akur-
eyri, þar sem uppi var gististað-
ur ferðamanna, en niöri gátu
þeirgeymthesta sina. Var þetta
þarfur og vinsæll staður. Þessa
skopmynd gaf Jóh. Ragúelsson
út á korti. A mitt eintak var rit-
uð kveðja árið 1916. „Svona er
lifið i Reykjavík” hefur einhver
ritað á það i gamni. „Einn af
beztu reiömönnum i heimi, hann
patar og ber , fótastokkinn”
stendur, held ég, undir mynd-
inni i bókinni.
Bregðum okkur nú til Seyðis-
fjarðar sem á sildarárunum var
höfuðstaður Austurlands. Skipin
hafa leitað inn á lygnan fjörðinn
undan óveðri úti fyrir 24. ágúst
1955. Mökkinn úr sildarverk-
smiðjunni lagöi oft i hliðar
Bjólfs og kváðu menn grænka
þar betur en annars staðar.
Bilda stendur fyrir sinu með
lömbin sin tvö, árdegis á Seyðis-
firði 27. ágúst 1950. Hana lang-
aði i garðana en var fljótlega
hrakin á burt. Ekki kann ég skil
á húsinu, sem hún snýr vinstra
horni i.
Dalatangi er jafnan nefndur i
veðurfréttum. Myndin gefur
hugmynd um staöinn, eins og
hann var 25. júli 1958. E.t.v.
hafa byggingar eitthvað breytzt
siðan?
Margir kannast við lagið
„Með visnasöng ég vögguna
þlna hræri” og raula lagið og
ljóðið. Eydalir hafa hljóm I sög
unni. Þar var prestur höfundur
ljóðsins „Einar i Eydölum” á
dögum Guöbrands biskups.
„Eydalaklerkur” einnig var
öndvegishöldur kynsældar og
eiga furðu margir þ.á.m. ýmis
skáld til hans ættir að rekja.
Myndin sýnir Eydalakirkju og
gamla prestssetrið 13. ágúst
1952. Húsið var þá orðið mjög
gisið og hrörlegt enda veriö að
byggja nýtt prestssetur úr
steini. En stórt var gamla húsið
og myndarlegt á sinum tlma.
Einn af „beztu, reiftmönnum i heimi”.
Eydaiir I Breiftdal 1952.
A Seyftisfirfti 24. ágúst 1955.
..r<.<>tí"?m <í
Einn af *Bezíu reiðmönnum í heimi!«
,,
wam-
*
One of “The best riders in the world! ”