Tíminn - 11.08.1974, Síða 8
8
TÍMINN
Sunnudagur 11. ágúst 1974
Stórfellt starf Landgræðslunnar á þjóðhátíðaróri
1000 milljónirnar eru verðtryggðar
Samþykkt alþingis á Þingvöll-
umum 1000 millj. króna til land-
græðslu er þegar komin til
framkvæmda, segir land-
búnaðarráðherra, sem fór sjálf-
ur i siðasta landgræðsluflugið
með TF-NPK á árinu 1974
Landbúnaöarráðherra fylgist með starfinu á flugvellinum I Gunnars-
holti. Hraðvirkar vélar eru notaðar til að ferma gróðursetningarflug-
vélarnar.
Síðastliðinn föstudag/ 2.
ágúst, var farið i síðustu
sáningarferðina á land-
græðsluf lugvélinni PALI
SVEINSSYNI, því sumarið
er að verða búið, eða alla-
vega er liðið svo á, að ekki
tekur því lengur að varpa
grasfræi og áburði yfir
auðnir og uppblástur, og
þetta gerist í þann mund,
er fyrstu fræin, sem sáð
var i vor, eru orðin að
grasi, sem klæðir sárin í
landinu.
La ndg ræðs I uf I ug vé I i n
hef ur verið í önnum í sum-
ar og farið 400 ferðir með
áburð og fræ. Alls hefur
verið sáð í um 4000 hektara
í sumar, og til þess fóru
1600 tonn af áburði og fræi.
Auk þess var eins hreyf ils-
flugvél landgræðslunnar
TF—TÚN í brúki í allt
sumar. Hún hef ur farið um
1560ferðir og hefur varpað
út nær 800 lestum af áburði
og fræi.
La ndg ræðs I uf I ug vé I i n
fór í síðustu ferðina í ár
frá flugvellinum í Gunn-
arsholti á Rangárvöllum,
en þar hefur verið gerð
1800 metra löng flugbraut
ásamt 1200 metra langri
þverbraut, en það er all-
stór völlur fyrir Dakota-
vélina, sem þarf fulllestuð
aðeins um 1200 metra til
flugtaks í logni.
Atvinnuflugmenn
fljúga i sjálf-
boðavinnu
Bak við þetta nytsama flug
landgræðslunnar liggur mikil og
merkileg saga, næstum þvi
óvenjuleg, þvf á timum kröfu-
gerðar og eigin hagsmuna hafa
ótal hendur verið á lofti, hendur
sem vildu gefa fjármuni, vinnu og
tómstundir, og jafnvel sjálf land-
græðsluflugvélin er gjöf frá Flug-
félagi Islands, sem gerði eina af
Douglösunum upp, þegar Fokker
Friendship skrúfuþoturnar höfðu
leyst þær fyrrnefndu af hólmi og
þeirra var ekki lengur þörf.
Svona vélar kosta milljónir
króna, a.m.k. i þvi endursmiðaða
ástandi, sem Flugfélag Islands
afhenti flugvélina i til Land-
græðslunnar.
En það voru fleiri, sem vildu
gefa- Félag islenzkra atvinnu-
flugmanna tilkynnti, að flugmenn
i félaginu, flugmenn sem fljúga
langleiðaþotum hjá Flugleiðum
(Loftleiðum og Flugfélagi ts-
lands) og flugmenn i innanlands-
flugi, ætluðu að fljúga land-
græðsluflugvélinni ókeypis i land-
græðsluflugi, og er sú fórn
milljóna virði. 1 fyrsta lagi liggja
milljón milna flugstjórar ekki á
lausu, svona yfirleitt og land-
græðsluflugið fer fram á háanna-
timanum i fluginu. A þessu sumri
hafa 18 flugmenn frá Flugleiðum
flogið landgræðsluvélinni, og þar
við bætast timafrek ferðalög til
þeirra staða, þar sem vélin er að
starfi. Aukþess hafa margir aðrir
flugmenn óbeinlinis komið við
sögu, þvi þeir hafa af skipulags-
ástæðum tekið að sér auka flug-
ferðir fyrir félaga sina, sem voru
að fljúga landgræðsluvélinni.
Atvinnufl ugmenn hafa á stund-
um notið litillar samúðar al-
mennings, þegar þeir hafa staðið
ikaupdeilum, og þvi kemur þetta
göfuglyndi stéttarinnar skemmti-
lega á óvart. Ef til vill gætu fleiri
stéttir lagt hönd á plóginn — tekið
flugliðana sér til fyrirmyndar.
Það væri stór stund fyrir Island.
Nú og svo i þriðja og siðasta
lagi, þá samþykkti alþingi að
verja einum milljarði króna til
landgræðslu, og einstaklingar og
sveitarfélög hafa látið af hendi
fjármuni til kaupa á fræi og
áburði.
Ráðherra i
landgræðsluf lugi
Blaðamaður Timans lagði leið
sina austur i Gunnarsholt, en eins
og áður var sagt fór siðasta flugið
fram þar I ár á sólbjörtum degi,
þvi það haustar nú senn. Halldór
E. Sigurðsson landbúnaðarráð-
herra var þar fyrir er við komum,
og fór með flugvélinni þessa sein-
ustu ferð á árinu. Þegar vélin var
lent, notuðum við tækifærið til
þess að spjalla við ráðherrann um
landgræðsluna, og þá auðvitað
fyrst og fremst um fjármál land-
græðslunnar, en sem fjármála-
ráðherra hefur það reynt mest á
hann að útvega fjármuni til upp-
græðslustarfa og flugrekstursins,
þvi auðvitað kostar það mikið fé,
þótt flugvélin sé fengin að gjöf og
henni sé flogið af kauplausum
mönnum.
Fyrst spurðum við ráðherrann
eftirfarandi spurningar:
— í hvaða tilefni kemur land-
búnaðarráðherra i heimsókn á
flugvöll landgræðslunnar að
þessu sinni?
— Tilefnið er það, að land-
græðslustjóri bauð mér að koma
hingað i dag, en til stóð að fljúga
siðasta áburðarflugið þennan
dag. Ennfremur mun ég nota
tækifærið og skreppa austur á
Skeiðarársand og skoða hinar
stórfelldu framkvæmdir þar.
Undraveröur
árangur af
sáningunni
Ég er Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra mjög þakklátur
fyrir að hafa veitt mér tækifæri til
þess að sjá þessa starfsemi, svo
og flugmönnunum, sem flugu
þessa ferð, þeim Jóni Péturssyni
og Gisla Þorsteinssyni.
Það er i raun og veru erfitt að
lýsa þessari ferð með orðum. Við
flugum til staðar skammt frá
Gunnarsholti, þar sem fræi og
áburði var dreift, og siðan inn á
Þórsmörk, sem var svolitill við-
burður fyrir mig, þar eð ég hafði
aldrei orðið svo frægur að koma
þangað inneftir.
Auðvitað var mér eins og
öðrum það ljóst, að unnt er að
græða tsland upp með fræi og
áburði, sem dreift er úr lofti, en
þó var mjög uppörfandi að sjá, að
gras var byrjað að skjóta upp
kollinum i auðninni, þar sem sáð
var úr lofti fyrr i sumar. Viða
voru grænir blettir, sem sýndu
hvað koma skal.
— Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að biðja þig að koma á fram-
færi þakklæti minu til almennings
fyrirþann þjóðaráhuga, sem orð-
inn er á landgræðslu hér á landi.
Ennfremur vil ég endurtaka
þakkir minar til Flugfélags Is-
lands og til þeirra flugmanna,
sem starfað hafa að landgræðslu-
störfum sem sjálfboðaliðar, og
hafa notað til þess fristundir sinar
og sumarleyfi.
Þáttaskil i
landgræðslu og
gróðurvernd
Eins og öllum er kunnugt hafa
orðið þáttaskil i landgræðslunni á
þessu ári. Tilkoma flugvélakosts-
ins og flugrekstrar með stórri
flugvél skiptir sköpum, og
aldrei hefur eins miklu fé verið
varið til þessarar starfsemi og
nú. Alþjóð er kunnugt um land-
græðslufrumvarpið, sem sam-
þykkt var á Þingvöllum. Vil ég þó
geta þess nú, að rétt þótti að gefa
landgræðslunni forskot á sæluna,
með þvi að rikissjóður lagði fram
25 milljónir króna til landgræðsl-
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri og Stefán H. Sigfússon fulltrúi,
sem er flugrekstrarstjóri Landgræöslunnar. Stefán hefur „flugturn” I
jeppanum hjá sér, annast afgreiðslu vélarinnar og flugreksturinn hefur
gengið mjög vel i sumar.
Landgræösluflugvélin PALL SVEINSSON var skýrð I höfuðiö á Páli heitnum Sveinssyni, landgræðslu-
stjóra. Vélin var áður i eigu Flugfélags tslands eins og frem kemur I viötölum I blaöinu.