Tíminn - 11.08.1974, Page 12

Tíminn - 11.08.1974, Page 12
12 TÍMINN Sunnudagur 11. ágúst 1974 Menn og málefni Alþingi ber að mynda meirihlutastjórn Stjórnarmyndun má ekki dragast Nú eru liðnar sex vikur siðan kosningar fóru fram til Alþingis. A þeim tima hefur verið unnið að stjórnarmyndun, án þess að það hafi enn borið árangur. Fyrst reyndi Geir Hallgrimsson, og stóð tilraun hans i þrjár vikur. Þá gafst hann upp- Rúmar tvær vikur eru nú liðnar siðan forsetinn fól ólafi Jóhannessyni að reyna stjórnarmyndun, en sá timi reyndist ódrjúgur dyrstu dagana vegna þjóðhátiðarinnar á Þing- völlum. Af hálfu ólafs Jóhannes- sonar er markvíst stefnt að þvi, að það skýrist um þessa helgi hver niðurstaðan verður en eins og kunnugt er, hefur hann unnið að þvi, aö núverandi stjórnar- flokkar mynduðu stjórn, ásamt Alþýðuflokknum. Það hefur oft áður tekið lengri tima en sex vikur að mynda rikis- stjórn. Aðstæður eru hins vegar óvenjulegar að þessu sinni. Fyrir lok þessa mánaðar verður að gera viðtækar efnahagsráð- stafnanir.ef ekki á að risa ný stór- felld verðbólgualda, sem myndi fljótlega stööva flestan atvinnu- rekstur. Núverandi stjórnarand- stöðuflokkar notuðu stöðvunar- vald sitt á siðasta Alþingi til aö hindra nauðsynlegar efnahagsað- gerðir. Rikisstjórnin átti þvi ekki annars kost en að setja bráða- birgðalög, sem ekki þótti rétt að giltu lengur en i tvo mánuði eftir kosningar, svo að nýkjörið þing fengi hæfilegan tima til stjórnar- myndunar. Sá timi er nú brátt á enda runninn. Ef ekkert er að gert, falla bráðabirgðalögin úr gildi um mánaðamótin, með þeim afleiðingum, sem áður er greint. Af þessum ástæðum má það ekki dragast úr þessu, að starf- hæfur meirihluti myndist á Alþingi og takist á við þann vanda, sem biður framundan. •• | Skylda Alþingis Frá hinni glæsilegu þjóðhátfð á Þingvöllum Þær raddir heyrast nokkuð, að ef til vill sé það helzt til ráöa, að Alþingi gefist hreinlega upp og efni annaðhvort tii nýrra kosn- inga i haust eða láti embættis- mannastjórn eftir forustuna. Hvort tveggja væri stórfelldur ósigur fyrir þingræðið og myndi ekki heldur leysa neinn vanda. Nýjar þingkosningar myndu litlu breyta i þá átt, aö gera þingið starfhæfara en áður, en vandinn, sem þyrfti að fást við eftir þær væri orðinn miklu meiri en nú. Embættismannastjórn myndi engu fá áorkað þar sem hún styddist ekki við neinn meirihluta á Alþingi, heldur myndi vera tor- tryggð af þingmönnum, sem telja embættismannavaldið vera orðið nógu öflugt, þótt þvi væri ekki falin stjórnarforustan til viðbót- ar. Af þessum ástæðum má það vera ljóst, að hér er ekkert annað til ráða, ef mæta á erfiðleikunum á ábyrgan hátt, en myndun meiri- hlutastjórnar, sem hefur komið sér saman um ákveðin raunhæf úrræði. Þaö er skylda Alþingis að bregöast við á þann hátt. Allt annað væri uppgjöf og svik viö þjóðina og þingræðið. Framsóknarflokkurinn getur stært sig af þvi, að hann hefur aldrei skorazt undan ábyrgð á erfiðleikatimum. Þaö mun hann ekki gera frekar nú. Sjálfstæðis- flokkurinn veigraði sér við aö bera fram ákveönar tillögur um lausn vandans meðan Geir Hall- grimsson vann að stjórnar- myndun og átti það sinn þátt i þvi, að tilraun hans rann út i sandinn. Framsóknarflokkurinn, mun undir forustu Ólafs Jóhannes- sonar, bera fram ákveðnar til- lögur um, hvernig snúizt skuli við vandanum. Þaö er von hans, að hægt veröi á þeim grundvelli að mynda stjórn þeirra flokka, sem nú ræðast við. Það má ekki gerast, að þingið bregðist skyldu sinni. Þá væri sannarlega illa minnzt 1100 ára afmælis íslands- byggðar. Kosninga- loforðin Við umræður þær um stjórnar- myndun, sem nú fara fram undir forustu Ólafs Jóhannessonar, for- sætisráðherra, mun Fram- sóknarflokkurinn að sjálfsögöu leggja til grundvallar kosninga- ávarp framkvæmdastjórnar flokksins, sem birt var skömmu fyrir kosningar. Þar er að finna þau kosningafyrirheit, sem flokkurinn lagði mesta áherzlu á, og mun að sjálfsögðu einnig gera eftir kosningar. 1 þeim hluta ávarpsins, þar sem vikið er að framtiðarstefnunni, segir fyrst, að flokkurinn muni leggja alltkapp á, að haldið verði áfram þeirri framfarastefnu, sem fylgt hafi verið i stjórnartiö Ólafs Jóhannessonar. Sókninni i landhelgismálinu verði haldið áfram og stefnt hiklaust að þvi marki, að tsland fái viðurkennda undanþágulausa 200 milna efna- hagslögsögu. Þá er lögð megin áherzla á það i ávarpinu, að byggðastefnan verði treyst i sessi og henni fylgt markvisst fram. Þá verði kappkostað að tryggja sem bezt lifskjör almennings, og einkum verði þó unnið að bættum kjörum þeirra, sem lakast eru settir. Stærsta verkefnið Siöan segir i ávarpinu á þessa leið: „Það er frumskilyröi þess, að allt þetta megi takast, aö öruggri skipan verði komið á efnahags- mál þjóðarinnar. Það hefur nú- verandi stjórn ekki tekizt frekar en fyrri stjórnum, enda erfiðara veriðum vik en oftast áðun m.a. sökum óvenjulega mikilla verð- hækkana á erlendum vörum, Siðan lýðveldið var endurreist 1944, hefur engri rikisstjórn tekizt að hafa hemil á veröbólgunni, og er þetta þvi varhugaverðara, sem lengra er haldið áfram á þessari braut. Að þvi leyti ætti að vera. auðveldara nú en oft áður að ná tökum á þessum málum, þar sem afkoma manna er yfirleitt góð. Það sem á stendur er nægileg samstaða flokka og stétta til að kippa þvi i lag, sem miður fer, eins og hinu sjálfvirka kerfi vixl- hækkana verðlags og kaupgjalds. Framsóknarflokkurinn telur, að það eigi að vera höfuðverkefni rikisstjórnarinnar, og Alþingis á næsta kjörtimabili að vinna að lausn efnahagsmálanna með við- tæku samstarfi innan þings og utan”. 1 samræmi við þetta fyrirheit kosningaávarpsins mun Fram- sóknarflokkurinn nú eftir kosn- ingar skipa efnahagsmálum ofar öörum málum og leggja megin- áherzlu á lausn þeirra. Varnarmálin Varnarmálin hljóta svo, auk framangreindra mála, að verða ofarlega á baugi hjá næstu rikis- stjórn. 1 kosningaávarpinu segir um þau á þessa leið: „Framsóknarflokkurinn áréttar þá stefnu i varnarmálum, sem upphaflega var samkomulag um milli þeirra ■ þriggja flokka, sem stóðu að inngöngu Islands i Atlantshafsbandalagiö, þ.e. að Island tryggi öryggi sitt með þátttöku i Atlantshafsbanda laginu, án hersetu á friðar- tímum. Framsóknarflokkurinn vill vinna að þvi að koma þessari stefnu i framkvæmd, þegar friðarhorfur fara nú batnandi, með þvi að bandalagið fái hér aðstöðu til eftirlits og til viðhalds á mannvirkjum án hersetu á friðartimum. Flokkurinn vill ná um þetta samkomulagi eins og stefnt er að með tillögum þeim, sem utanrikisráðherra hefur lagt fram i viðræðum við Bandarikin. Af hálfu Islands er þar um að ræða drög að viðræðugrundvelli, en ekki úrslitakosti”. Gæfuverk Það er nú ljóst orðið, að það var mikið gæfuverk, að Alþingi skyldi ákveða að segja upp landhelgis- samningunum við Breta og Vestur-Þjóöverja frá 1961. Það er einnig ljóst orðið, að það var mikið gæfuverk, að rikisstjórnin skyldi ekki láta halda uppi mál- flutningi fyrir Alþjóðadóm- stólnum, þegar hann fjallaði um kærur Breta og Vestur-Þjóðverja á hendur okkur fyrir útfærsluna i 50 milur. Hefði samningunum ekki verið sagt upp og hefði mál- flutningi verið haldið uppi, væri Island nú skuldbundið til að fara eftir úrskuröum dómstólsins. Nú getur Island haldið þvi fram með góðum rétti, að þessir úr- skurðir séu ekki bindandi fyrir þá. Það sést bezt á þessu, hversu röng var sú afstaöa Sjálfstæðis- flokksins að vilja halda uppi mál- flutningi i Haag, þvi að það hefði bundið okkur siðferðilega til að fara eftir úrskurðunum. Það skyggir að visu nokkuð á þetta, að Alþjóðadómstóllinn hefur ekki viljað viöurkenna lög- mæti uppsagnarinnar. Einkum getur þetta blekkt þá útlendinga, sem ekki þekkja nægilega til málavaxta.Þessa afstöðu sina byggir rétturinn á þvi aö ekkert uppsagnarákvæði sé að finna i landhelgissamningunum frá 1961. Þegar samningurinn við Breta var til umræðu á Alþingi 1961, bentu Framsóknarmenn á þetta og töldu þetta annan höfuðgalla samningsins, ásamt málskots- rétti Breta til Alþjóðadómstóls- ins. Talsmenn viðreisnar- stjórnarinnar vildu ekki á þetta hlusta, enda voru þeir búnir að láta Breta beygja sig til að fallast á þetta nauðungarákvæði. Nú sýnir reynslan glöggt, hversu skaðlegt þetta ákvæði var. Hún hefur fullkomlega staðfest rök- semdir Framsóknarmanna. Víti til varnaðar Úrskurðir Alþjóðadómstólsins staðfesta einnig til fulls þær rök- semdir, sem framsóknarmenn héldu fram i umræðunum 1961, að Alþjóðadómstóllinn myndi verða á eftir réttarþróuninni, ef hann ætti að fjalla um mál eins og þetta, þar sem engin skýr laga- ákvæði eða samningsákvæði væru fyrir hendi. Dómstóllinn myndi þá fara meira eftir gömlum venjum en nýjum venjum eða lögum, sem væru að skapast. I forsendum dómstólsins fyrir áðurnefndum úrskurðum tekur hann beinlinis fram, að hann hafi fylgt þessum vinnu- brögðum, er hann tók afstöðu sina. Þetta er i samræmi við þá venjulegu starfshætti dómstóla að vera fremur ihaldssamir en hitt, þegar likt stendur á og i þessu máli. Þetta sögðu Fram- sóknarmenn lika fyrirfram. Landhelgissamningarnir frá 1961 eru glöggt dæmi um það, hvernig ekki á að gera milliríkja- samninga. 1 slikum samningum þurfa að vera ótviræö uppsagnar- ákvæði og I þeim má ekki felast að dómsvald i innanlandsmálum sé lagt á hendur erlendra aðila. Segja má, að þessir samningar hafi ekki verið til einskis gerðir, ef þeir geta þannig orðið þjóðinni stöðugt viti til varnaðar. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.