Tíminn - 01.11.1974, Page 13

Tíminn - 01.11.1974, Page 13
Föstudagur 1. nóvember 1974. TÍMINN 13 Sveinn Benediktsson: Þvættingi um sölu á loðnumjöli svarað Verðþróun á loðnumjölsmörkuðum Verð á islenzkum sjávar- afurðum hefur jafnan verið óstöðugt, og er verð á fiskmjöli þar engin undantekning, siður en svo. Verðsveiflur á loðnumjöli og loðnulýsi urðu með eindæmum miklar á árunum 1972 og 1973. Á árinu 1974 fór verðið lækkandi á loðnumjöli allt frá ársbyrjun. Margir vildu halda dauðahaldi i verðið eins og það hafði verið hæst á árinu 1973. Sá misskilningur varð rikjandi, að islenzkir framleiðendur og yfir- völd hér á landi gætu selt mjölið á kostnaðarverði, eða þvi verði, sem þeir ákvæðu sjálfir, án tillits til markaðsverðs erlendis. A erlendum mörkuðum er, að sjálfsögðu við, að etja samkeppni frá mörgum aðilum, sem bjóða fram hliðstæða vöru á markaðs- verði. Verðið á fiskmjöli hafði náð hámarki um 10.20 dollara fyrir proteineiningu i tonni tvisvar á árinu 1973, i um það bil einn og hálfan mánuð i hvort sinn. t seinna skiptið stafaði hækkun- in af oliukreppunni og algeru veiðibanni i Perú fram i marz 1974. Þess hafði verið vænzt, að Pól- verjar yrðu aðalkaupendur loðnumjöls frá íslandi, sem framleitt myndi verða á loðnu vertiðinni 1974, eins og þeir höfðu verið á árinu 1973, Þetta fór þó á annan veg. Pólverjar skáru niður áætlun um innflutning til landsins á fisk- mjöli á árinu 1974 úr 300 þúsund tonnum niður i 160 þúsund tonn. Talið var, að þessi niðurskurður væri gerður vegna gjaldeyris- skorts og ástandsins innanlands i Póllandi. Þrátt fyrir minnkandi kaup á fiskmjöli, buðust Pólverjar til þess að kaupa allt það loðnumjöl, sem tslendingar vildu selja þeim af framleiðslu ársins 1974. Minna varð úr kaupunum en efni stóðu til. Leiddi það til stórtjóns fyrir islenzka fram- leiðendur loðnumjöls og landið i heild. Astæðurnar fyrir þvi, aðsvo illa tókst til, eru raktar siðar i þessari grein. Kemur Hörður Guðmundsson Albertssonar þar mjög viö sögu, svo sem siðar mun sagt verða, og tilgreind hans eigin orð þvi til sönnunar. 1 siðari hluta nóvember 1973 virtust Pólverjar vilja greiða fyrir proteineininguna i loðnu- mjölstonni 10.20 dollara. Var komu þeirra vænzt til tslands i lok nóvember eða byrjun desember. En pólska sendinefndin kom ekki til íslands fyrr en i byrjun janúar 1974. Var þá komið annað hljóð i strokkinn, þvi að þá vildu þeir ekki greiða hærra verð en 6,50- 7,50 dollara fyrir protein- eininguna i tonni, mismunandi eftir afhendingartima. AAisróðin verðlagning Við ákvörðun yfirnefndar Verð- lagsráðs sjávarútvegsins hinn 20. jan. 1974 áætlaði nefndin hins vegar að fyrir loðnumjölið myndu fást 9,50 dollarar fyrir protein- einingu i tonni og sala á 25.000 tonnum loðnumjöls myndi takast til Póllands á þvi verði, Var verðið á loðnu til bræðslu fram til 20. febrúar 1974 miðað við þetta háa verð á mjölinu. Þótt komið væri i ljós, að Pólverjar höfðu reynst ófáanlegir til að greiða meira fyrir mjölið en 6,50-7,50 dollara, eins og áður er getið. Það fer ekki milli mála, að yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins urðu á alvarleg mistök, þegar hún ákvað, hinn 20. jan. 1974, að loðnuverð til bræðslu skyldi allt fram til 20. febrúar 1974 miðað við, að 9,50 dollara fengjust fyrir proteineininguna i tonni. Á þeim grundvelli var loðnuverðið til skipta ákveðið kr. 3,75 fyrir kg, allt fram til 20. febrúar, þótt eðlilegra hefði verið að ákveða verðið i byrjun til janúarloka. Þessi ákvörðun, og siðari verð- ákvarðanir nefndarinnar á loðnu- verðinu á vertiðinni. virtust gerðar meira af óskhyggju en raunsæi og höfðu mikil áhrif til hækkunar kaupgjalds og verðlags i landinu. Svo fór, að loðnuveiðin varð mest á þessu fyrsta verðtimabili, öfugt við það sem búizt hafði verið við eftir reynslu fyrri ára. Þegar lóks tókst sala til Pól- lands á elleftu stundu, greiddu þeir 6,50 dollara fyrir protein- einingu i tonni, cost and freight. Siðar lækkaði verðið á fiskmjöli allt niður i 3,80, dollara, en fyrri hluta ársins 1972 hafði það verið enn lægra, eða aðeins 1,00 til 1,10 sterlingspund, Þ.e. 2,33 til 2,50 dollarar proteineiningin i tonni. Á þessu ári hefur loðnumjöl frá íslandi þó ekki verið selt á lægra verði en 4,30 dollara protein- einingin c.i.f. Afleiðingarnar urðu þær, að á met-loðnuvertið urðu verksmiðj- urnar i heild fyrir mörg hundruð milljón króna tapi, og sumar þeirra berjast við gjaldþrot. Meðal vanskilaskulda hjá sumum verksmiðjanna eru um 60 milljónir króna, sem ógreiddar eru fyrir loðnu til útgerðarmanna og útgerðarfélags, en þeir hafa sumir hverjir ekki getað greitt skipverjum að fullu aflahlut af þessum sökum. Harðarþáttur Guðmundssonar Albertssonar Þegar fiskmjölsverðið var farið að lækka á erlendum mörkuðum, eins og áþreifanlega kom i ljós i ársbyrjun 1974, voru skiptar skoðanir um það, hvort framleið- endur fiskmjöls ættu að sætta sig við hið ört lækkandi verð eða biða átekta. Hörður var allra manna bjart- sýnastur um það, að verð á loðnu- mjöli myndi hækka en ekki lækka. Lét hann þessa skoðun sina iljós imörgum dreifibréfum, og eigi siður i viðtölum. 1 dreifibrefi frá 1. marz 1974 segir hænn m.a.: i,Orð hefur verið haft á, um markaðsbréf okkar, að ánægju- legt væri að finna þá miklu „bjartsýni”, sem þar kæmi fram um mjölmarkaði okkar nú i nánustu framtið. Þá kom og fram i einu blaði Reykjavikur, vægt sagt hvassyrt ásökunargrein um meðferð sölu á mjöli og lýsi. Undirritaður viil gjöra þá at- hugasemd við hið fyrra, að fremur en orðiö „bjartsýni”, eigi hér við orðið „raunsæi”. Eða til- raun til að finna raunsæi úr öllum þeim meginatriðum, sem hljóta að byggja upp áhrifavald i markaðss veiflum. Svo og að greina timamörk þeirra. —”. ....„Hin timabundna veiði og framleiðsla aðalm jölmagns okkar, úr loðnunni, svo og „tekknisk” óvissuatriði vegna framleiðslu, sem hafa þarf sem fyrirvara i fyrirframsölum, gjörir okkar söluaðstöðu verri en flestra annarra mjölseljenda, og hættir til að „slita keðjuna” i sölum okkar á timabilinu ca. ágúst/janúar ár hvert. Sérstak- lega er þetta þó áþreifanlegt þegar verðsveiflur eru miklar. Þvi að þvi meiri, sem sveiflurnar eru, þvi meiri er yfirleitt til- hneiging kaupenda til að spyrna við fótum, og þá verða atriði eins og veiðifyrirvari að stóratriði, þó það i eðlilegum og rólegum markað teljist tiltölulega eðlilegt smáatriði. — Af þessum ástæðum, aðallega, er okkur svo mikil nauðsyn á timum eins og rikt hafa á mjöl- mörkuðum okkar siðan i ca. ágúst s.l., að gjöra okkur grein fyrir áhrifavaldi og siðan grundvelli markaðssveiflanna, þ.e. hverjar séu likur fyrir framgangi tilbú- innar sveiflu, eins og t.d. lækkun „markaðsverðs mjöls”, sem verið hefur rikjandi siðan ca. 25. janúar s.l. Ahrifavald lækkunar er búið að sýna sig nú i rúman mánuð. En nú er hinn sanni grundvöllur að ná aftur yfirhönd- inni, þ.e. mjöl er nú ört hækkandi vegna þess, að hið tilbúna áhrifa- vald lækkunar fær ekki staðizt. Ilinar raunhæfu kringumstæður fyrirsjáanlegrar raunverulegrar vöntunar á Fisk proteini eru nú að vcrða ráðandi. Spurningin er nú aðeins, hversu langt upp markaðurinn fer”. 1 dreifibréfi hans frá 8. marz 1974 segir m.a.: „Verð á mjöli hefur haldið áfram að styrkjast, og er ekki ástæða til að ætla annað, en svo fari fram, sem nefnt var i siðasta bréfi”. 1 bréfi Harðar frá 28. marz 1974 segir m.a.: „Af gefnu tilefni vill undir- ritaður geta þess, að i þau skipti, sem hér hafa undanfarið verið ræddar verðbreytingar, til þess ætlað að nálgast hugsanlega kaupendur, þá höfum við EKKI verið þvi mótfallnir. Rétt er hins vegar, að við höfum eindregið verið á móti þvi að sinna þvi furðulega og óraunhæfilega lága verði, sem nokkrir aðilar hafa látiðhafa sig I að hlusta á og cyða tima annarra í að ræða. Astæður okkar fyrir þeirri afstöðu eru: 1. Ef inenn nenna að leita stað- reynda og beita siðan einhverri liugsun, ætti hverjum öðrum en þeim, sem kvarnir hafa i höfðinu, að vera ljóst, að ALDREI síðast- liðna tvo mánuði hefur verið raunhæfur grundvöllur að meta fiskmjöl að verðgildi undir U.S.$. 7,50 á einingu. Og enn ekki sjáan- leg raunveruleg ástæða til að sclja undir U.S.$ 8.00 per einingu. 2. Hráefnisverð fyrir fyrsta verðtimabil var sett svo óeðlilega hátt, og verksmiðjurnar látnar hafa alla áhættuna af verðbreyt- ingum. Þetta er hér sagt með það i huga, að menn áætluðu að fram- leiða 70-80 þúsund tonn af mjöli, en verðið sett á grunni þess verðs, sem selzt höfðu aðeins tæp 20 þúsund tonn. Þegar við bætist öll sú hækkun i framleiðslu og flutningskostnaði, sem varð 1. marz, hlýtur hverjum ábyrgum manni að vera ljóst, að stutt sé i þá staðreynd, að verksmiðjurnar horfist i augu, við hugsanlegt gjaldþrot. Það er ekki á færi annarra en kannske þeirra, sem riki geta talizt i rikinu, að selja framleidda voru ódýrara en hún er keypt, og eða framleidd, og geta vænzt þess að halda áfram eins og ekkert hafi i skorizt. — Framleiðendur hafa verið settir i núverandi aðstöðu, og þeir eiga um tvennt að velja, annað hvort að selja á þvi afsláttarverði, sem einhverjir þeirra hafa sýnt hug á að sinna, og væntanlega siðan að pakka saman, flestir. Eða taka ábyrga, réttlætanlega og eðlilega afstöðu (áhættu?) til ástandsins og þeirra möguleika, sem ætla má að markaðir skapi þeim, til að sjá fótum sinum forráð. Það hefur ennþá ENGINN TAPAÐ NEINU, sbr. núverandi verð, sbr. linurit. Vextir koma enn ekki inn i dæmið, þvi hartnær ómögulegt hefur verið að fá skip til flutnings, jafnvel fyrir áður selt mjöl. Endurtekið skal hér, að I bréfum okkar er og hefur verið leitazt við að benda á staðreyndir. Rétt cr, að lögð hefur verið meiri áherzla á að benda á atriði þau, sem til þess gætu verið fallin að styðja hag framleiðanda. Ljóst má þó öllum vera, að IIVERGI (sic) hefur verið dregin fjöður yfir möguleika hinna veikjandi áhrifa. Enda vart ástæða til. þegar þau einmitt á sama tima eru ríkjandi. Þeir hinir sömu, sem hér reyna að „blammera” „bjartsýni” okkar, fletta með framkomu sinni ofan af eigin ábyrgðarleysi, skort á raunsýni, og áberandi tilhneyg- ingu til, að velta allri ábyrgð af eigin herðum yfir á aðra, væntan- lega af þvi þeir hvorki kunna né geta betur”. „1 ljósi þess er að ofan greinir, er erfitt að gjöra sér grein fyrir ástæðum til að hefja sölur nú undir U.S. $: 8.00-8.10,einkanlega þar sem nú fer i hönd sá timi (april/júni), sem kjúklingar og smá grisir eru að koma i fóðrun i helztu markaðslöndum okkar hér I Norðurálfu. Áður hefur verið tæpt á þvi, að hvergi séu raunverulega til óseldar birgðir fiskmjöls nema hér á Islandi. Það mætti i fullri alvöru hreyfa þvi, að eins og er, virki Island eins og birgða- skemma fyrir þurfandi, ódekkaða neytendur fiskmjöls i Norður- evrópu. Neytendur vita af magn- inu óseldu, og álita réttlætanlega áhættu að biða. Þegar sölur fara að verulegu marki i gang, er ekki ómögulegt, að 'kaupendur komi fram með sllkum hætti, að hækk- unar mætti vænta að verulegu leyti. Það hefur fyrr sýnt sig, að ekkert virðist ómögulegt i þessum efnum”. Dreifibréfum Harðar fækkaði eftir þvi sem markaðurinn féll meira, Siðast kom eitt bréf I byrjun maímánaðar. Siðan þagði kempan þunnu hljóði, þegar með öllu hafði tekið fyrir sölur á loðnumjölinu frá þvi I lok aprilmánaðar fram i september 1974. Þeir framleiðendur, sem tekið höfðu ráðleggingum hins sjálf- umglaða manns og ekki selt nema hluta af loðnumjölsframleiðslu sinni meðan þess var kostur að ná viðhlýtandi verði, nöguðu sig i handarbökin yfir að hafa hlýtt ráðum um að selja ekki mjöl- framleiðslu sina i tæka tið á hinum ört lækkandi markaði. Er markaðshorfur á mjölinu skánuðu, og unnt reyndist að fá kaupendur að liðlega helmingi loðnumjölsbirgðanna, sem þá voru eftir, fyrir 4,30 til 5,10 dollara, taldi Hörður, eftir 5 mánaða þögn, að spor hans frá þvi i vor væru nægilega sandorpin til þess að vera gleymd og grafin. Hóf hann sina fyrri iðju i dreifi- bréfi dags. 12. okt. 1974. Bréf þetta fékk hann birt i dagblaðinu Visi hinn 19. okt. s.l. Er ritsmið þessi rituð i sama anda og kóngar gáfu til kynna visdóm sinn forðum daga, meðan þeir voru og hétu: „Vér einir vitum”. Tilgangurinn með þessari Harðar-ritsmið virðist vart geta verið annar en sá að klóra yfir og liylja hinar hrapalegu ráðlegg- ingar sínar á s.l. vori til framleið- enda loðnumjöls og annars fisk- mjöls. Hörður fullyrðir, að tölur þær um áætlaða framleiðslu Perú i október, desember 1974 3-4 milljónir tonna og 650/860 þúsund tonn fiskmjöls” séu algjör heima- tilbúningur minn. 1 vor höfðu Perúmenn ákveðið að veiða fram i maímánuð aðeins 1000-1.500 þúsund tonn af ansjóvetu, sem þeir siðan hækkuðu upp i 2.380 þúsund tonn. Úr þessum afla framleiddu þeir 547 þúsund tonn af mjöli. Sjávarútvegsráðherra Perú hefur á fundi Alþjóðasambands fiskmjölsframleiðenda, sem nú er haldinn i Lima, sagt, að veiði- kvótinn fyrir timabilið okt.-des. 1974 hafi verið ákveðinn allt að 2.500 þúsund tonna. Um þessa yfirlýsingu ráðherrans farast „Oil World” svo orð hinn 18. okt. 1974: „Hin raunverulega spurning er sú, hvort og að hve miklu leyti inuni verða farið fram úr þessum kvóta”. Að fengnum þessum upp- lýsingum er það siður en svo f jar- stæða að segja, að rætist vonir Perúmanna um veiði til mjöl- og lýsisframleiðslu, þá kunni veiðin i haust að fara upp I 3-4 milljónir tonna. Engin veiði til bræðslu var á þessum tima i fyrra hjá Perú- mönnum. Mjölframleiðslan á árinu 1973 nam aðeins 423.000 tonnum eða um 1/5 hluta þess, sem hún hafði verið áður, en ofveiðin á ansjóvetunni kom fram I ört minnkandi veiði árin 1972 og 1973. Linurit um söluverð Perú- manna á fiskmjöli cif Hamborg sanna litið um raunverulegt verð, sökum þess að þeir hafa marg- sinnis selt mjölið langt undir skráðu verði til þess að reyna að ná sölu á sem mestu magni. Hversu hátt hið raunverulega verð er, eða hverjir séu sér- skilmálar, kemur þá stundum ekki fram fyrr en löngu siðar. Það er illa farið með timann að cltast við firrur Harðar. T.d. telur hann það mjög vítavert af mér að skýra frá birgðum af fiskmjöli i landinu. Veit hann ekki, að öllum helztu erlendum innflytjendum á fiskmjöli i Evrópu og einnig i Ameriku er kunnugt um þessar birgðir? Mun Hörður sjálfur hafa lagt sig mjög fram um að kynna hugsanlegum kaupendum birgðir loðnumjöls og annars fiskmjöls. Er það sjálfsagt mál i sambandi við sölur. Hörður rengir, að Haraldur Haraldsson hjá Andra h/f fari rétt með, að Perúmenn hafi um miðjan september s.l. selt mjöi á 3,80 dollara próteineininguna i tonni cif. Sildarverksmiðjur rik- isins fengu staðfest hjá einum kaupanda mjölsins i Þýzkalandi, að þetta væri rétt með farið. Þegar rætt er um, hvort sala á fiskmjöli eða öðrum varningi, eignuin cða hlutum, sé góð eða léleg, verður aö miða við þann tima, þegar salan fer fram, en ekki allt aðra tima, er aðstæður kunna að vera gjörbreyttar, en slikur ruglingur kemur fram hjá Herði. Samkvæmt áskorun fiskmjöls- framleiðenda og ákvörðun þáver- andi sjávarútvegsráðherra, Lúð- viks Jósefssonar, voru þeir Þór- hallur Asgeirsson, ráðuneytis- stjóri i viðskiptaráðuneytinu, og Gunnar Petersen hjá firmanu Bernhard Petersen, sendir til Póllands á páskum 1974. Skyldu þeir gera úrslitatilraun um sölu á loðnumjöli til Póllands, en óseldar birgðir af þvi voru þá um 40 þúsund tonn. Þegar til Póllands kom, skýrðu Pólverjar frá þvi, að þeir hefðu þá alveg nýlega keypt frá tveim löndum samtals 17.500 tonn af fiskmjöli á 6,38-6.46 doll- ara próteineininguna i tonni, og vildu þeir þvi ekki greiða meir en 6,50 dollara fyrir eininguna til islenzkra framleiðenda, cost and freight pólska höfn. Buðust þeir til að kaupa allar óseldar loönum jölsbirgðir landsins á þessu verði. Þvi miður voru Pólverjum ekki seld nema 17.100 tonn af loðnumjöli upp i þetta tilboð, og leiddi það til þess, að selja varð loðnumjölið á miklu lægra verði siðar. Allt fimbulfamb Harðar um þessa sölu er ein botnleysa frá upphafi til enda. Sendimennirnir fengu almennar þakkir frá þeim mjölframleiðendum, sem seldu, fyrir að hafa bjargað þessum liluta loðnuin jölsins frá enn meira verðhruni. Hinir sem ekki seldu, sátu eftir nieð sárt enni. Loðnumjölsmark- aðir kolféllu Hörður „skildi ekki fyrr en skolliðhafði i tönnunum" og fiski- mjölsmarkaðurinn var kolfallinn, að „raunsæi”, það, sem hann gumaði af, hafði brugðizt. Þá varð honum fyrst fyrir að kenna Perúmönnum um ófarirnar: 1 dreifibréfi sinu 29. april 1974 kveður hann svo að orði: „Með tilvisan til fyrri bréfa, fær nú sá orðrómur vaxandi fylgi, að Perú ætli ennþá einu sinni að verða uppvisir að blekkingum, visvitandi eða af nauðþurft. Það er nú fullyrt, að þeir ætli að setja veiðikvóta ársins i 4 milljónir tonna i stað 3 millj., sem þýðir 2 milljónir fyrri hluta árs. (Þ.e ca. 400 þúsund tonn af mjöli i stað áður áætlaðra ca. 300 þúsund). Oðrómi þessum heyrðist fleygt þegar i siðari hluta marz mánaðar”. „Um nýafstaðna sölu á íslenzku loðnumjöli til Póllands er það eitt gott að segja, að gott er að vita, að óseldar birgðir hafa minnkað að sama skapi — Varla verður séð mikið annað áunnið við að selja islenzkt mjöl niður fyrir Perú- mjöl”. Hér lýkur Harðarþætti Framhald á 15. siðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.