Tíminn - 06.11.1974, Qupperneq 15

Tíminn - 06.11.1974, Qupperneq 15
Miftvikudagur 6. nóvember 1974. TÍMINN 15 Mark Twain: Tumi gerist leyni- lögregla gera, var að upphugsa þegar i stað nýja ráðagerð. Og það gerðum við. Við á- kváðum að setja böggulinn aftur i samt lag og læðast hljóð- lega niður i klefann aftur og leggja hann á rúmið, þar sem hann hafði legið áður, og láta eins og við hefð- um ekki hugmynd um neitt eða að hann hefði verið að hlæja að kjánahætti okkar milli hrotanna. Siðan var um að gera að missa aldrei sjónar af honum og vera alltaf a hælunum á honum, og fyrsta kvöldið, sem við vær- um i landi, skyldum við hella hann fullan og leita vandlega á honum og taka gim- steinana. Og klappa honum hæfilega lika, ef það væri ekki of á- hættusamt. Ef við næðum i gimsteinana, yrðum við að lemja hann sundur og saman, annars mundi hann ekki hætta fyrr en hann væri búinn að ganga frá okkur fyrir fullt og allt. En ég gerði mér ekki miklar vonir um, að við mundum finna gim- steinana. Auðvitað gátum við hellt hann fullan — það var svo sem minnstur vand- inn, það vissi ég. En hvaða gagn var að þvi? Við gátum kannski snuðrað i dóti hans i heilt ár án þess að finna nokkuð. Einmitt þegar hér var komið hugleiðing- um minum, datt mér nokkuð i hug svo stór- Stofnaður sjóður til eflingar atvinnulífi á Suðurnesjum Lagt var fram á alþingi frumvarp um framkvæmdasjóö Suðurnesja og eru verkefni hans að veita lán til einstaklinga og félaga á Suðurnesjum til inn- lendrar atvinnuuppbyggingar og þá fyrst og fremst i sjávarútvegi og iðnaði, og að veita lán til fram- íþróttakennsla féll ekki niður HJ—Reykjavik. Frá þvi var greint i Timanum s.l. fimmtudag, að Iþróttakennarar við Vogaskóla hefðu tilkynnt borgaryfirvöldum, að þeir legðu niður vinnu hinn 1. nóv., ef loftræstikerfi iþrótta- salarins yrði ekki lagfært fyrir þann tima. Að sögn Helga Þorlákssonar skólastjóra I Vogaskóla kom þó ekki til þess, að kennarar legðu niöur vinnu, þvi að siðasta dag októbermánaðar komu viðgerð- armenn á vettvang og hófust handa um lagfæringar. Kvað Helgi vinnu við loftræsti- kerfið standa yfir enn, og væri ástand i salnum þegar orðið mun betra, þó að enn vantaði nokkuð á. Bændur Rjúpna- skyttur Hafið ávallt Com- mander PR 24 labb- rabb stöðvarnar við höndina. Það eykur afköstin og margfaldar öryggið. Einnig sterk f jaðraloftnet ávallt fyrirliggj- andi. Biðjið um myndalista. BENCO H.F. Laugavegi 178, Sími 2-19-45. Reykjavik. Selfoss Aðalfundur Framsóknarfélags Selfoss verður haldinn að Eyrar- vegi 15, fimmtudaginn 7. nóv. kl. 21. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3. Kosning fulltrúa á flokksþing. Stjórnin. J liiiiifiiii Hl / kvæmda sveitarfélaga á Suður- nesjum. Flutningsmaður tillög- unnar er Gunnar Sveinsson. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekjur sjóðsins verði: 2% af veltu Aðalverktaka og annarra verktakafyrirtækja á Keflavikur- flugvelli af starfrækslu þeirra á Suðurnesjum. 1/3 af aðstöðu- gjöldum, sem nú eru greidd af starfsemi á Keflavikurflugvelli til viðkomandi sveitarfélaga. 4% af veltu Frihafnarinnar á Kefla- vikurflugvelli, 2% af veltu Flug- hafnarinnar. 1 greinargerð flutningsmanns segir m.a.: Það sem felst i þvi frumvarpi, sem hér er lagt fram, er i stuttu máli, að stofnaður verði sjóður til stuðnings innlendri atvinnustarf- semi á Suðurnesjum. Lagt er til, að tekjur sjóðsins séu skattur af verktakastarfsemi á Keflavikur- flugvelli, hluti af aðstöðugjöldum sveitarfélaga á sama stað og gjald af rikisfyrirtækjum á Kefla- vikurflugvelli, sem nú eru skatt- frjáls. A Suðurnesjum eru 7 sveitar- félög, en Suðurnes tel ég byggðina sunnan Hafnarfjarðar. Með þess- um sveitarfélögum hefur á sið- ustu árum tekist gott samstarf um þjónustustarfsemi og fram- kvæmdir, er varða öll sveitar- félögin á svæðinu. Verður þvi að telja eðlilegt, að sveitarfélögin ráði þessum sjóði og lánveiting- um úr honum, samkvæmt mark- miðum hans. Margir munu ef til vili segja, að ekki sé ástæða fyrir Suðurnesja- menn að fara fram á slika stofnun sem hér er stungið upp á, þeir hafi flugvöllinn og varnarstöðina, og þaðan streymi fé og skatttekj- ur. Ástæðan fyrir þessum hugsanagangi, sem við Suður- nesjamenn verðum svo oft varir við, er sú, að fjölmargir állta, að allt það fólk, sem vinnur á Kefla- vikurflugvelli, séu Suðurnesja- menn. Svo er þó ekki. Stór hluti þess eru Reykvikingar og aðrir aðkomumenn. Það er að visu satt og rétt, að Suðurnesjamenn hafa á margan hátt atvinnulega séð notið góðs af staðsetningu flug- vallarins og varnarstöövarinnar. Þó er það i mun minna mæli en margur heldur. Innlent atvinnulif og þá sér- staklega frumatvinnuvegur okk- ar Suðurnesjamanna, útgerð og fiskvinnsla, hefur átt og á I harðri samkeppni við flugvöllinn og varnarstöðina um vinnuaflið á Suðurnesjum. Þessi samkeppni hefur að mörgu leyti skapað óeðlilegt ástand varðandi rekstur þessara atvinnuvega. Nærtæk- asta dæmið i þessu sambandi, sem benda má á, kemur fram I úttekt þeirri, sem nú er gerð á vegum rikisstjórnarinnar og leitt hefur I ljós, að útgerð og fisk- vinnsla er einna verst sett á Suðurnesjum á öllu landinu. Staðreyndin er, að bæjar- og sveitarfélögin á Suðurnesjum fá óverulegar skatttekjur af þeim rekstri og umsvifum, er fram fer á Keflavikurflugvelli. A s.l. ári munu tekjur þessar hafa numið milli 10 og 12 milljóna króna i að- stööugjöldum til allra sveitar- félaganna, en mjög misjafnlega mikið til hvers þeirra eftir þvi, hvar fyrirtækin voru staðsett á flugvellinum. Sveitarfélögin eru þvi ekki undir það búin að hafa forustu um eðlilega innlenda at- vinnuuppbyggingu á Suðurnesj- um við núverandi aðstæður. Verður þvi að telja fullkomlega eölilegt, að sú stóriðja, ef segja má svo um þá starfrækslu, er fram fer á Keflavíkurflugvelli, leggi meira af mörkum til Suður- nesja-samfélagsins i heild en nú er, bæði að þvi er varðar þjónustu og uppbyggingu atvinnuvega. Hörpukonur Hafnarfirði, Garða- og Bessastaðahreppi Fundur verður haldinn að Strandgötu 33, Hafnarfirði fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 20:30. Fundarefni: Kosning fulltrúa á flokksþing. Onnur mál: Bingó, kaffi. Stjórnin. r Keflavík Aðalfundur Framsóknarfélags Keflavikur verður haldinn I Framsóknarhúsinu, fimmtudaginn 7. nóv. kl. 20.30. Ðagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á 16. flokksþing Framsóknarmanna. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. önnur mál. Félagsmenn mætið stundvislega. Stjór Kópavogur Aðalfundur Framsóknarfélags Kópavogs verður haldinn fimmtudaginn 7. nóvember n.k. I Félagsheimilinu (neðri sal) og hefst kl. 20.30 stundvislega. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða kosnir fulltrúar á flokksþing og kjördæmisþing. Þráinn Valdimarsson framkvæmdastjóri mætir og svarar fyrirspurn- um. Stjórnin. FUF Keflavík Almennur félagsfundur verður haldinn i Framsóknarhúsinu föstudaginn 8. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á flokksþing og kjördæmisþing. 2. önnur mál. Stjórn FUF. f Vestur-Húnavatnssýsla Aðalfundur Framsóknarfélags Vestur-Húnavatnssýslu verður haldinni Félagsheimili Hvammstanga föstudaginn 8. nóv. kl. 21. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosnir fulltrúar á flokksþing. Stjórn- in. 1 Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík Handavinnukvöld hjá bazarnefnd n.k. fimmtudag kl. 20:30 að ^ Rauðarárstig 18. Fjölmennið. Nefndin. Vestfirðir — Kaldrananeshreppur Aðalfundur Framsóknarfélags Kaldrananesshrepps verður haldinn að Drangsnesi föstudaginn 8. nóv. kl. 21. Alþingismennirnir Steingrimur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson mæta á fundinum. v^ r Kirkjubólshreppur Aðalfundur Framsóknarfélags Kirkjubólshrepps verður haldinn I Sævangi laugardaginn 9. nóv. kl. 16. Alþingis- mennirnir Steingrímur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson mæta á fundinum. f r. r v_ r Hólmavík Aðalfundur Framsóknarfélags Hólmavikur verður haldinn á Hólmavik laugardaginn 9. nóv. kl. 21. Alþingis- mennirnir Steingrimur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson mæta á fundinum. Fells- og Óspakseyrarhreppir Aðalfundur Framsóknarfélags Fells- og Öspakseyrar- hreppa verður haldinn sunnudaginn 10. nóv. kl. 16. Alþingismennirnir Steingrimur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson mæta. Orðsending til forvígismanna flokksfélaga 16. flokksþing framsóknarmanna hefst sunnudaginn 17. nóv. kl. lOfyrir hádegi i Glæsibæ, Alfheimum 74. A mánudag og þriðjudag verða fundir þingsins i Súlnasal Hótel Sögu. Forvlgismenn framsóknarfélaga eru beönir að senda flokksskrifstofunni I Reykjavik, strax upplýsing- ar um það hverjir mæti á flokksþinginu frá félögum þeirra. Skrifstofan er að Rauðarárstig 18, simi 24480. Framsóknarkonur Keflavík Björk, félag framsóknarkvenna i Keflavik heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 7. nóv. kl. 20:30 i Framsóknarhúsinu Austurgötu 26. Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á flokksþing. Fjöl- mennið. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.