Tíminn - 23.11.1974, Side 8

Tíminn - 23.11.1974, Side 8
8 TÍMINN Laugardagur 23. nóvember 1974. Náið samráð verði haft við heimamenn um rannsóknir raforkumála Austurlands — sagði Tómas Árnason, við fyrstu umræðu um Bessastaðaárvirkjun Á miðvikudaginn var til fyrstu umræðu i neðri deild Alþingis frumvarp rikisstjórnarinnar um virkjun Bessastaðaár. Gunnar Thoroddsen iðnaðarmálaráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði. Á eftir honum tal- aði Tómas Árnason og lagði hann sérstaka áherzlu á, að náið sam- ráð yrði haft við heima- menn um rannsóknir raforkumála Austur- lands. 1 ræðu sinni sagði Tómas m.a.: „Ég sé ástæðu til þess að fagna sérstaklega framlagningu þessa máls, frumvarp til laga um virkj- un Bessastaðaár i Fljótsdal. Með tilliti til þess, að ekki er ýkja langt siðan þessir virkjunar- möguleikar komu á dagskrá, vil ég lýsa yfir sérstakri ánægju með, hve rikisstjórnin og hæst- virtur iðnaðarráðherra hafa brugðizt fljótt við i þessu máli og hafið af fullum krafti undirbúning þess. Það er ástæða til að geta þess, að það er fullt samkomulag, að þvi er ég bezt veit, um þetta mál allra þeirra aðila, sem að þvi koma og engar deilur hafa sprott- ið um það. Með tilliti til þess, að vatnsafls- framleiðsla á Austurlandi öllu er nú samtals um 12.5 megawött og jafnframt með tilliti til þess, að Bessastaðaárvirkjun mun að öll- um likindum framleiða allt að 32 megawöttum, þá liggur ljóst fyr- ir, aö hér er um að ræða mikla framkvæmd á þessu sviði á Austurlandi, þar sem aukning á raforkuframleiðslu vatnsafls- stöðva mun aukast úr 12.5 mega- wöttum upp i allt að 44.5 mega- wött. Það er sýnilegt og hefur veriö athugað gaumgæfilega, að hér er um að ræða langsamlega fljótvirkustu lausnina, sem er fullnægjandi um næstu framtið fyrir Austurland. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem haldinn var i september i haust, og hæstvirtur iðnaðarráðherra sótti, samþykkti sérstaka samþykkt i þessu máli, þar sem skorað var á iðnaðarráð- herra og Alþingi að sett yrði lög um virkjun Bessastaðaár i Fljóts- dal á komandi þingi og að undir- búningi og framkvæmd við virkjunina verði miðuð við, að hún taki til starfa 1978. Hæstvirt- Tómas Arnason liggur fyrir, að hægt er að fram- leiöa sama rafmagn fyrir 29 milljónir króna með vatnsafli, og íyrir 217 millj. króna með diesel- afli. A Austurlandi hefur þurft að nýta dieselorku í vaxandi mæli. Þegar af þeim ástæðum er ákaf- lega þýðingarmikið, að allt sé gert, sem unnt er til þess að hraða byggingu þessa orkuvers, til þess að koma i veg fyrir siaukinn stór- kostlegan kostnað vegna fram- leiðslu á hráefni með dieselvél- um. Markmið stefnunnar i þess- um efnum er að framleiða raf- orku til heimilisnotkunar, til at- vinnurekstrar og til húsahitunar. Nú er það alveg ljóst, að stór hluti markaðar á Austurlandi fyr- ir raforku er einmitt húsahitun i framtiðinni. Og framtiðin hlýtur að vera sú, að allt húsnæöi, ekki lll ■I —I ur iðnaðarráðherra gerði að um- talsefni möguleikana á þvi, hve- nær hugsanlegt væri, að þessi virkjun gæti tekið til starfa. Þótt um það séu kannski eitthvað skiptar skoðanir, hvort það kynni að verða i árslok 1978, eða á árinu 1979 þá er samt sýnilegt, að hér er um að ræða þá fljótustu lausn, sem um er að tefla i þessum efn- um á Austurlandi. Skammt er að minnast mjög alvarlegs orkuskorts i Aust- firðingafjórðungi. í harðinda- kaflanum i fyrravetur i kringum Umsóknarfrestur um ársdvöl erlendis á vegum nemendaskipta þjóðkirkjunnar 1975-1976 rennur út 30. desember nk. Mörg lönd koma til greina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Biskupsstofu, Klapparstig 27, Reykjavik. Simi 1-22-36. Æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. áramótin skapaðist, eins og menn muna, mjög alvarlegt ástand á sumum svæðum eystra, eins og t.d. á Höfn i Hornafirði og Skafta- fellssýslu og viðar, i sambandi við rafmagnsmálin. Virkjun Lagar- fossvirkjunar er nú komin á loka- stig, eins og hér hefur verið upp- lýst, en það er ástæða til þess með tilliti til þeirrar seinkunar um að hún geti tekið til starfa, að léggja áherzlu á, að aldrei verður nóg- samlega vandað til samninga i sambandi við kaup á vélum og rækilegra rannsókna á þeim við- skiptamöguleikum, sem fyrir hendi eru i þvi efni. Það verður að segjast, að þær upplýsingar, sem hæstvirtur iðnaðarráðherra gaf hér áðan um kostnað og fram- leiðslu, annars vegar á fram- leiðslu frá vatnsaflsstöðvum og hins vegar frá dieselstöðvum, eru allt að þvi hrollvekjandi. Það aðeins á Austurlandi, heldur einnig annars staðar á landinu, þar sem ekki eru möguleikar til þess að nota jarðvarma til upp- hitunar, verði hitað upp með raf- orku frá vatnsaflsstöðvum. Nú er það og ljóst, að á örfáum stöðum, aðallega á einum stað á Austurlandi, eru möguleikar á að hita upp þéttbýlisstaði með jarð- varma. Með tiíliti til þess er þörfin fyrir aukna raforkuframleiðslu geysi- lega brýn á Austurlandi til að íbúarnir fái notið raforkunnar til húsahitunar sem allra fyrst. Húsahitunarmálin eru i raun og veru eitt af stórmálum þjóðarinn- ar. Þegar það liggur fyrir, að kostnaður við upphitun húsa ann- ars vegar með oliu og hinsvegar með jarðvarma er a.m.k. þre- faldur, þegar menn þurfa að hita Framsóknar- VIST verður að Hótel Sögu (Súlnasal) Fimmtudaginn 28. nóvember kl. 8,30 Baldur Hólmgeirsson stjórnar FRAMSOKNARFELAG REYKJAVÍKUR ATHUGIÐ 011 starfsemi Rafvélaverk smiðju Jötuns er flutt frá Hringbraut 1 1 9 að HOFÐABAKKA 9 SÍMI 8-55-85 • • joTunn hp Höfðabakka 9 — Sími 8-55-85 samlokurnar dofna ekki með aldrinum Notið það besta ----HLOSSI Skipholti 35 • Simar: 8-13-50 verzlun ■ 8-13-51 • verkstæði • 8-13-52 skrifstofa upp með oliunni, er það auðvitað ljóst, ef ekkert verður að gert i framtiðinni, þá getur þessi stað- reynd valdið verulegri röskun á byggð landsins, vegna þess að menn sækjast sjálfsagt eftir þvi að búa þar sem svo miklu ódýr- ara er að hita upp hibýli heldur en á hinum landssvæðunum. Þetta mál er í raun og veru orðið stór- mál og verður að taka til mjög rækilegrar athugunar á næstu ár- um og jafna verður eins og mögu- legt er muninn á milli þessa tvenns. Engin leið sýnist vænlegri I þessum efnum en sú að tryggja næga raforku til þess að hita upp híbýlin. Einnig þarf eflaust að koma til jöfnunarverðlag á þess- um vettvangi. Þannig er nú ástatt á Austur- landi, að það er takmörkunum háð að fá leyfi til þess að hita upp ný hús með rafmagni. Ég veit ekki betur en á sumum stöðum sé ekki mögulegt að fá slik leyfi. Hæstvirtur iðnaðarráðherra minntist nokkuð á Austurlands- virkjun i sinni framsöguræðu, þ.e.a.s., virkjun, sem gæti orðið allt aö 1600 megawött eða þrisvar til fjórum sinnum stærri en Sig- öldu- og Búrfellsvirkjun til sam- ans og ræddi nokkuð um það mál almennt. Þetta er geysilega stórt mál, eins og gefur að skilja og mjög margs að gæta i sambandi við allar hliðar þess. Ég vil sérstaklega fagna yfir- lýsingu hæstvirts iðnaðarráð- herra um, að allar rannsóknir, sem varða þetta mál, verði i is- lenzkum höndum. Það er ákaf- lega þýðingarmikið, þar sem málið hefur ýmsar viðkvæmar hliðar, sem krefjast gaumgæfi- legrar athugunar og ég tók einnig eftir þvi i hans ræðu, að hann lagði áherzlu á það i sambandi við Bessastaðaárvirkjun, að höfð yrðu náin samráð við heimamenn um alla framkvæmd þess máls. Ég vildi einnig leggja áherzlu á það, að allar rannsóknir, sem varöa Austurlandsvirkjun, verði geröar i nánu samráði við heima- menn á Austurlandi.” & Bensínstöð. allir gætu sætzt á. Ég vona bara, að úr þessum misskilningi greiö- ist sem fyrst,” sagði Bergþóra. Amundi sagði, að ibúar við Æsufell og norðurhluta Þórufells, teldu að Framfarafélagið hefði alls ekki staðið rétt að þessum málum og i stað þess að stuðla að einingu innan hverfisins hefði það ýtt undir sundrungina með tillög um sinum. Þvi hefðu þeir ekki mætt til almenna borgarafundar- ins og væri ekkert mark takandi á þeim fundi, þar sem einungis hefðu komið fram skoðanir þeirra er fylgjandi eru byggingu bensin- stöðvarinnar. „Mismunurinn á afstöðu Fram- farafélagsins og okkar,” sagði Amundi „byggist á þvi, að það eru einungis ibúarnir við Æsufell og norðurhluta Þórufells sem þurfum að þola óhagræðið af þvi að fá bensinstöð beint fyrir fram- an gluggana. Margir þeirra, sem hér eiga heima, keyptu ibúðirnar einungis vegna útsýnisins, sem skemmist stórum við þetta. Auk þess eykst umferð og ónæði og þó að rætt sé um götur, sem leggja á i framtiðinni, vitum við ekkert, hvernig framkvæmd þess máls verður háttað. Við erum tilbúin með tillögur á móti, en borgarverkfræðingur virðistengan áhuga hafa á aö for- vitnast um þær, þó að honum beri vissulega að hafæ- samráð við okkur i þessu máli. Raunar telj- um við enga þörf á að reisa þrjár bensinstöðvar i Breiðholtinu, mun meiri ástæða væri til að reisa eina og myndarlega stöð i viddinni meðfram Breiðholts- brautinni, eins og upphaflegar til- lögur gerðu ráð fyrir,” sagði Amundi að lokum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.