Tíminn - 23.11.1974, Qupperneq 16

Tíminn - 23.11.1974, Qupperneq 16
16 TÍMINN Laugardagur 23. nóvember 1974. Nú/ þegar aðeins vika er til KSi -þingsins er Ijóst, að þingið á eftir að vera sögulegt. Mörg stórmál verða tekin fyrir á þinginu, sem eiga örugglega eftir að vekja upp miklar deilur. Stærsta mál þingsins, verður eflaust tillaga stjórnar KSI — um að fjölgað verði í 1. deildar- keppninni, úr 8-liðum i 10. Það er eðlilega farið að ræða þessa tillögu meðal knattspyrnuáhugamanna og forráðamanna félaganna. íþróttasíðan hefur frétt, að nær öll 1. deildarliðin og eitthvað af 2. og 3. deildarliðunum séu á móti þessari tillögu stjórnar KSi. Félögin eru ekki ánægö með að- dragandann að þessari fjölgunar- tillögu, sem kom fram I dags- ljósið f lok sl. keppnistfmabils Ekki þó frá félögunum sjálfum, innan KSl heidur nokkrum einstaklingum innan stjórnar KSt. Mönnum er ennþá ofarlega i minni lætin, sem urðu út af auka- ieik Vikings og Akureyrar um faliið I sumar, þegar liöin neituðu að mæta til leiks, þar sem þau töldu ekki verið búið að úrskurða Elmar Geirsson ólögiegan með Fram — félögin töldu, að það væri verið að brjóta Iög á þeim, til að hlifa Fram I Eimarsmálinu og ákváðu þvf að mæta ekki tii leiks. Stjórn KSt hótaöi að reka félögin úr 1. deild, ef þau mættu ekki til leiks. Þegar allt virtist vera að fara I strand og Vikingur og Akureyri hótuðu að kæra til UEFA — Knattspyrnusainbands Evrópu — var stjórn KSt umhugað að þetta mál leystist friðsamlega. Stjórnin ákvað aö bjarga sér með þvl, að beita sér fyrir fjölgun i 1. deild næsta keppnistimabil. Vikingi og Akur- eyri var tilkynnt þetta og einn stjórnarmaður KSt fór til Akur- eyrar, til að fá Akureyringa til að mæta I aukaieikinn. Akur- eyringar hafa gert það opinbert, að þeim hafi verið lofað, að Akureyrarliðiö skildi leika i 1. deild næsta keppnistlmabil, ef þeir mættu i aukaleikinn — þeir þyrftu ekki að leika um það 1. deildarsæti, þvi að Akureyrar- liðið skildi vera 9. liöið i 1. deild, en keppt yrði um 10. sætið. A þessu sést, að stjórn KSt ber skylda til að ieggja fram fjölgunartillöguna á KSl-þinginu. En hvort hún nær fram aö ganga, er annað mál. Það er félaganna innan KSt, að ákveöa, hvort það er timabært að fjölga I 1. deiid strax næsta keppnistimabil. Það er vitaö mál, að mörg félög eru á móti fjölgun strax, þvi að undir- búningurinn fyrir fjölgun var enginn. Mörg 2. deildarliö hafa tilkynnt, að þau séu á móti til- lögunni, á þeim forsendum, að ef þau hafi vitaö það fyrir si. keppnistimabil, aö það ætti að fjölga liðum um 2 I 1. deild — hefðu þau hagaö sér eftir þvi I 2. deildarkeppninni sl. sumar. Sem sagt, félögin vilja keppa um 1. deildarsætin, en ekki láta skipa I þau. Það er öruggt, aö mörg félög eiga erfitt með að sætta sig við fjölgunina og sérstaklega hvernig fcr unnið að henni. Þá telja margir, að það sé ekki timabært aö fjölga i 1. deild strax næsta keppnistimabil — en telja, að eðlilegast væri að blða með fjölgun I eitt ár. Þannig að það verði keppt um 1. deildarsætin næsta keppnistimabil. En nóg um fjölgunartillögu stjórnar KSÍ, það verður ekki eina máliö, sem verður tekið fyrir á KSÍ-þinginu. trþóttaslöan hefur frétt, aö Milliþinganefnd KSÍ muni leggja fram margar mjög athyglisverðar tillögur, sem koma til með að vekja athygli á KSÍ-þinginu. Viðskulum nú lita á nokkrar af tillögum milliþinga- nefndarinnar: Tekjuskipting A siðasta KSÍ-þingi var eftir- farandi tillögu frá Steindóri Gunnarssyni, visað til milliþinga- nefndar: þau eiga fyrir höndum, og hugsa sig tvisvar um, áður en þau ákveða að mæta ekki til leiks. Að nota ólöglegan leikmann Milliþinganefnd mun leggja til aö eftirfarandi breyting verði gerö á 6. gr. Starfsreglna Aganefndar KSl, varðandi brot félagsliða: 6. gr. töluliður 8 verði: —' Ef félag notar leikmann sem er i leikbanni, skal félagið dæmt I leikbann eða brottrekstur úr keppni. Jafnframt skal félagið sæta sekt að upphæð kr. 25 þús. Aðrar breytingar á 6. gr.— Töluliður, sem var nr. 8 verði 9 og töluliður, sem var nr. 9 verði 10. Það er kominn timi til að þessu verði bætt inn i starfsreglur Aganefndar KSÍ. Það hefur eng- um dottið I hug . að nota leik- mann sem hefur verið settur I bann — fyrr en eitt Reykjavlkur- félag leyfði sér að nota leikmann sem var I leikbanni, i sumar. Það félag fékk mildan dóm og skapaði þar með fordæmi, en komið verður fyrir slikt I framtiðinni með þessari starfsreglu aga- nefndarinnar. 7 daga kærufrestur Milliþinganefnd mun leggja til á KSl-þinginu að eftirfarandi breyting verði gerð á 11. grein Reglugerðar KSI um knatt- spyrnumót — önnur málsgrein: i STAÐINN FYRIR: — Allar kærur skulu hafa borizt framkvæmdaaðila áður en 7 dágar eru liðnir frá leikdegi. KOMI: — Allar kærur varðandi þessi ástands- brot, svo og allar aðrar kærur, skulu hafa borizt framkv-'aðila áður en 7 dagar eru liðnir frá leikdegi. Fjörugt KSÍ-þing framundan... Er tímabært að fjölga í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu — úr 8 liðum í 10? AAjög athyglisverðar tillögur verða lagðar fram d þinginu „Tillaga til breytingar á 26. gr. reglugerðar KSI um knattspyrnumót: — Hvert lið skal halda tekjum óskiptum af leik sínum, en bera allan kostnað af leikn- um. Þó skulu tekjur af sjónvarpi og útvarpi skiptast til helminga milli aðila.” STJÓRN KSt.....verður I sviðsljósinu á KSt-þinginu. Axel Kristjánsson, Jón Magnússon, varaformaður, Friðjón B. Friöjónsson, gjaldkeri, Ellert B. Schram, formaður knattspyrnusambandsins, Bjarni Felixson, ritari, Páll Bjarnason og Jens Sumarliðason. (Timamynd Gunnar) Milliþinganefnd telur, að miðað við óbreyttar aðstæður, þá sé sú tekjuskipting, sem nú er heppi- legri og mun miiliþinganefndin leggja til, að tillaga Steindórs verði felld. Milliþinganefndin telur tekju- skiptinguna eins og hún er — félögin skipta tekjum af leikjum, jafntá milli sin — heppilega. Það er skiljanlegt, þviaðaöstaöa liða er ekki sú sama. Tökum Vest- mannaeyjar t.d. sem dæmi. Tekjur Vestmannaeyinga yrðu minnstar i 1. deild, ef þeir ættu eingöngu að fá þá peninga, sem koma inn á heimaleikjum þeirra. Eyjamenn hafa miklu færri áhorfendur bak við sig, en t.d. Reykjavikurfélögin. Annað dæmi: KR-ingar léku fyrsta lcik 1. deildarkeppninnar I Vest- mannaeyjum — slæmt veður væri og fáir áhorfendur kæmu til' að sjá leikinn. Eyjamenn myndu ekki fá miklar tekjur I sinn vasa. Slðan myndu Eyjamenn koma i lok keppnistlm abilsins til Reykjavikur og leika gegn KR. Segjum að Eyjamenn hefðu sýnt mjög góða knattspyrnu allt sumarið og þeir myndu tryggja sér Islandsmeistaratitilinn, ef þeirynnu KR. Ahorfendur myndu fjölmenna til að sjá Eyjaliðiö leika gegn KR á Laugardals- vellinum. Þá fengu KR-ingar allar tekjurnar i sinn vasa, en Eyjamenn, sem drógu áhorfend- urna að, færu til Eyja með tóman vasa. Ef einhverjar breytingar verða á 1. og 2. deildarkeppninni — t.d. fjölgað um 21ið i 1. deild, þá telur milliþinganefnd, að endur- skoða þurfi reglurnar um tekju- skiptingu. Ef fjölgað veröur I 1. deild, þá verða að sjálfsögðu fleiri leikir leiknir. Þau lið, sem koma upp I 1. deild, verða tvimælalaust að eiga boðiega leikvelli, með góðri aðstöðu fyrir áhorfendur. Segjum svo, að fjölgað verði i 1. deild og Hafnar- fjarðarliöin FH og Haukar léku bæði i deildinni. Þá liggur i aug- um uppi, að 18 leikir færu fram á Kaplakrikavellinum, en hann er varla boðlegur til keppni i 1. deild. Bæði er engin aðstaða fyrir áhorfendur þar, og þar að auki er mjög slæmt að hafa cftirlit með þvi að áhorfendur, sem þangað koma til að sjá leiki, borgi inn eða ekki. Agóði á leikj- um þar yrði að öllum likindum ekki mikill og mundu þá tekjur 1. deildarliðanna rýrna. Hin 1. deildarliöin myndu aldrei sætta sig við það, þvl aö með þvl að leika á Kaplakrikavellinum, eins og hann er nú, þá væri verið að taka tekjur úr kössum félaganna, sem eiga velli, sem bjóða upp á viöunandi aðstæöur. Ekki meira um það — FH-ingar leika á Kaplakrikavellinum I sumar i 1. deildarkeppninni og þá kemur reynsla á völlinn. Aö mæta ekki til leiks Milliþinganefnd mun leggja til að eftirfarandi breyting verði gerð á 18. gr. Reglugerðar KSI um knattspyrnumót: í STAÐINN FYRIR: — Mótstjórn getur hagað niðurröðun I næsta móti, svo að lið sem ekki hefur mætt til leiks án gildra ástæðna, fái ekki leik á heimavelli næsta keppnis- timabil. KOMI: — Mótastjórn SKAL haga niðurröðun i næsta móti svo, að lið, sem ekki hefur mætt til leiks, án gildra ástæðna, fái ekki LEIKI á heimavelli næsta keppnistimabil. Á þessu sést, aö nú þýðir ekkert fyrir lið — eins og hefur svo oft átt sér stað i 2. og 3. deild — að mæta ekki til leiks. Þau vita þá hvað Nokkurs ágreinings hefur gætt um það, hvaða kærufrestur væri langur i knattspyrnu. Hafa sumir haldið þvl fram að hann væri 7 dagar, en aðrir að hann væri allt að 6 mán. (nú 1 mánuður). Nauðsynlegt er að taka af öll tvímæli um þetta atriöi. Verði þessi breytingatillaga samþykkt, liggur það ljóst fyrir, að kæru- frestur er AÐEINS 7 DAGAR í ÖLLUM KÆRUM. Ferðakostnaður Milliþinganefnd mun leggja fyrir, að sú breyting verði gerð á 26. grein reglugerðar KSl um knattspyrnumót, að ferða- kostnaður greiðist að jöfnu af báðum leikaðilum (þar sem það á við) fyrir 18 manns I stað 15. Eins og kunnugt er, er ferða- kostnaður nú greiddur af sam- eiginlegu fyrir 11 manns i Bikar- keppni og aukaleikjum lands- móts. Þessi tala er of lág, þegar þaðerhaftihuga.að 16 leikmenn eru I hverju liði og þvó óeölilegt að félag, seni til leiks þarf að ferðast, skuli ekki fá greitt fyrir að minnsta kosti 18 manns. Þetta eru þau mál, sem verða mest I sviösljósinu á KSt-þinginu, og menn biða nú spenntir eftir. -SOS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.