Tíminn - 06.12.1974, Page 5

Tíminn - 06.12.1974, Page 5
Föstudagur 6. desember 1974. TÍMINN 5 ír bjargvættir Loftur Guðmundsson: ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNASTUND. örn og örlygur, Reykjavik. Þrautgóðir á raunastund er nafn á bókaflokki þeim, sem örn og örlygur hefur verið að gefa Ut siðustu árin og er yfir- leitt um sjóslysa og björgunar- sögu við Island frá þvi að Slysa- varnafélag Island~var stofnað. Nú kemur enn út i þeim flokki sjötta bindið, sem ér raunar eins konar inngangur að hinum. Loftur Guðmundsson hefur skrifað þessa bók en hér segir frá þremur brautryðjendum um varnir við sjóslysum við Island. Það eru þeir Oddur V. Gislason, Sigurður Sigurðsson skáld og Jón E. Bergsveinsson. Og vissu- lega er það vel til fundið að minnast þessara manna á þessum stað á þennan hátt. Séra Oddur er tvimælalaust frumherji og brautryðjandi i slysavarnamálum á landi hér. Auk þess er hann svo merki- legur og skemmtilega sérstakur maöur að gaman er að vita nokkur skil á honum. Það er að visu nokkur þjóð- sagnablær á sögunni af séra Oddi t..d. brúðarráninu — sem auðvitað er ekkert rán, þar sem brúöurin fór af frjálsum vilja — og siðustu drykkjunni. Menn minnast þess, að áþekk saga er sögð um Ásgeir á Kollafjarðar- nesi og Guðlaugu konu hans. Sumir halda, þegar þeir heyra tvær svipaðar sögur, að önnur hljóti að vera bergmál af hinni. Þó er enginn hlutur eðlilegri en að skörulegu kona helli niður brennivini bónda sins, þegar henni þykir meðferð þess ganga úr öllu hófi og það jafnvel hvað helzt ef hún vissi einhver fordæmi þess. Loftur velur þann kostinn að segja söguna af koniakstunnunni eins og hann veit hann fullkomnasta, vitandi það, að þjóðsagan speglar sannindi, sem fylla upp atburði og staðreyndir, sem sannaðar verða með heimildum. Saga sr. Odds verður fyllri og réttari vegna þess að hann kemur þar lika fram sem þjóðsagnapersóna. Sigurður frá Arnarholti var mikill áhugamaður um björg- unarmál I Vestmannaeyjum og var ágætlega virkur i fram- kvæmdum þeirra, en þar byrjuðu raunhæfar slysavarnir með útgerð fyrsta björg- unarskips við Island. byrjuðu raunhæfar slysavarnir með útgerð fyrsta björgunar- skips við ísland . Jón E. Bergsveinsson var erindreki Slysavarnafélags Islands og lagði mikla vinnu I þaö að skipuleggja þau félags- samtök og gera þau landssam- tök. Þessi bók tekur þvi fyrir merka þætti eða þátt úr þjóðar- sögunni. Loftur Guðmundsson er þaul- vanur og þjóðkunnur rit- höfundur og enginn við- vaningur i bókagerð. Það þarf þvi ekki að geta þess hér að hann er vaxinn þeim vanda að segja þessa sögu. Þó skal nú reynt að benda á það, sem hér virðist að betur hefði mátt fara, þó að smátt sé. A bls. 18 er rætt um þau lög að stiptsyfirvöldin skikkuðu menn til prestsþjónustu. Má vera að beinast liggi við að álykta að það hafi átt að gilda almennt um alla presta og öll prestaköll. Þetta gilti þó ekki nema um þau prestaköll,sem enginn sóttium. Valdiö til að skikka menn þangað náði ekki til vigðra og þjónandi presta, heldur aðeins embættislausra guðfræðinga. Skikkuninni þurfti enginn að taka fremur en hann sjálfur vildi, en væri það ekki gert átti hlutaðeigandi að endurgreiða þeginn námsstyrk eða ölmusu. Má vel vera að Oddur Gislas., hafi þurft læknisbottorð til að verja sig þeirri kvöð. Hins vegar var ekki prestslaust i Grimsey þegar þetta var. Prestur þar var séra Sigurður Tómasson en hafði verið rekinn til að biðjast lausnar, en sök hans var i rauninni sú, að hann hafði ráðið þvl, að tveir bræður út Grimsey voru teknir til kennslu i landi, þar sem þeim varð ekkert úr námi heima i eyjunni. Syslumaður taldi slikt alltof dýrt og amtmaður studdi hann. Vera má að beim Oddi og Jóni Hjaltalin landlækni hafi þótt litií ástæða til að koma til liös við Pétur amtmann við að hrekja séra Sigurð úr embætti, enda gengdi hann þvi til dauða- dags. A bls 21. stanzaði ég við þar sem segir, að ákefð séra Odds hafi stundum verið slik, ,,að honum sást ekki fyrir”. Ég hef vanizt þvi að segja: Hann sást ekki fyrir, og er þá átt við það, að maðurinn gefi sér ekki tóm til að athuga hvað framundan sé. Þeir þrir menn, sem þættir eru af i þessari bók, voru um flest ólikir og þvi urðu þeir þjóð sinni bjargvættir. H.Kr. nordITIende sjónvarpstækin eru með SMÁRUM HEKLAH. LAUGAVEGI 1 70—172 — SÍMI 21240 NÝKOMNAR AMERÍSKAR NOMA JÓLATRÉS- PERUR (Bubble light) Sölustaðir: Hekla hf„ Laugaveg 172, R. Lampinn raftækjaverzlun, Laugaveg 87, R. Raflux sf„ Austurstræti 8, R. Rafmagn, Vesturgötu 1 0, R. Heimilistæki sf„ Hafnarstræti 3, R. Lýsing sf., Hverfisgötu 64, R. Raftækjaverzlun Köpavogs, Hjallabrekku 2, Kóp. Vikurbær, Hafnargötu 28, Keflavik. Verzlunin Kjarni, Vestmannaeyjum. i Það er þess vegna sem þau endast BETUR en þau tæki sem eru með lömpum Normende sjónvarpstæki eru fyrirliggjandi í stærðunum 12" 14" 17" 20" og 24" — Einnig lit-sjónvarpstæki 26" — Hagstætt verð og greiðsluskilmólar nordíDende full af tækninýjungum Barna Jxekur Isafoldar Sagan af GUTTA Gleðileg JOL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.