Tíminn - 24.12.1974, Síða 6

Tíminn - 24.12.1974, Síða 6
6 TÍMINN JÓLABLAÐ 1974 \g£t ■ - , ] I 1 I illl! I 1 II 1 /a 1II1 L i N0 .. p M WSmBm. j jN^IIÉÍ ! I bókhlöðunni sést mebal annars fagurt málverk af Thorvaldsen, nákvœm eftirllking eftir eba hlibstæba vib hina fragu mynd eftlr Horace Vernet, frummynd sem nú er I Thorvaldsenssafni. Þessa mynd gaf Grettir Eggertsson I Winnipeg forsetrasetrinu og hafbi keypt hana af fornsala i London. A mibju gölfi eikarborb fornlegt, keypt í London á sinni tíb. Bókhlaban á Bessastöbum, sem byggb var ab frumkvæbi Asgelrs Asgeirssonar nokkrum árum ábur en hann hvarf frá embætti og fullgerb var ab innréttingum 1966. Sveinn Kjarval teiknabi innréttingar I þessa stofu. Bókasafn mikib fylgir stabnum á Bessastöbum, og er meginstofn þess bækur, sem ýmis fyrirtæki bundust samtökum um ab gefa þangab árib 1969. sem vegagerb, ræktun og húsa- byggingar i sveitum er nú komib á. Sjálfsagt munu kuml finnast framvegis, kannski mjög merki- leg, en ég á von á ab það muni fara hægt, miklu hægar en var á áratugnum 1950-60. Skrifborb dr. Kristjáns Eldjárns I skrifstofu hans. t þessari stofu er mikill og merkilegur bókaskápur, sem Pétur Benediktsson keypti til Bessastaba, þegar hann var sendiherra i London, og á hib sama vib um marga abra hluti á Bessastöbum. Smá og stór verkefni. — Stærsta stundin — Hverjar eru veigamestu rannsóknir, sem þér hafið unnið að? Meöan ég var á Þjóðminjasafn- inu gerði ég og samstarfsmenn minir venjulega eitthvað talsvert af uppgröftum á hverju sumri, fyrir utan það að við auövitað vitjuðum fjölmargra staöa og lit- um eftir þeim án þess að nein veruleg rannsókn færi fram. Margt af þessum uppgröftum var smátt og tók skamman tima, en uppgreftir voru það samt, og auk þess gerðum við nokkrar stærri rannsóknir. Til dæmis á Þórarinsstöðum á Hrunamanna- afrétti, á Bergþórshvoli, i Gjáskógum og Sandártungu i Þjórsárdal og svo i Skálholti. Starfsmenn safnsins gerðu einnig mjög merkilegar rannsóknir án þess að ég væri þar meö, og má þar einkum nefna uppgröft Gisla Gestssonar i Gröf i öræfum og uppgröft Þórs Magnússonar i Hvitárholti I Hrunamannahreppi, hvort tveggja stórkostlegir upp- greftir. Þorkell Grimsson var lika lengi viö rannsóknir á miðaldabæ á Reyðarfelli hjá Húsafelli. Sá uppgröftur er merkilegur en hef- ur enn ekki verið gefinn út, og sama máli gegnir um Skálholt, en vonandi rætist úr þvi. Helzt má ekki gera fornleifarannsókn nema gefa út skýrslu um hana. Ég nefni svo að lokum, að ég hef verið talsvert úti i Papey við rannsóknir, en hef ekki lokið þeim enn og þaðan af siður birt neitt um þær. Ekkert hef ég enn fundið frá pöpum en sitthvað annaö merkilegt. — Hvaða uppgreftir eru yður minnisstæðastir? Þeir eru allir minnisstæðir. Stærsta stundin var þegar kista Páls biskups fannst, en það var utan við allt sem venjulegt er. Fornleifafræðingur á margar erfiðar stundir við dauflegt þolin- mæöisverk i kalsaveðri, en hann á lika fjölmargar unaðsstundir þegar árangur kemur i ljós af öllu erfiðinu og menningarmynd, smátt eða stórt, blasir við. Ég held ég geti ekki verið að gera upp á milli, það er margs að minnast. Landið hefur verið « kannað rækilega siðustu hundrað árin — Hvaö teljiö þér brýnast að gera á þessu sviði I næstu framtiö? Nú vil ég ekki láta neinn halda að ég ætli mér að segja fyrir verkum um hvaö brýnast sé eða leggja áætlanir um rannsóknir, sem aðrir menn munu fást við og gera eftir sinu höfði. Þjóðminja- verði og samstarfsmönnum hans er fyllilega treystandi til aö ráða þar skynsamlega ferðinni. Það er bezt að leita hjá þeim frétta um framtiðarhugmyndir. En ég skal segja mina skoöun á þvi hvernig islenzk fornleifafræði sé á vegi stödd. Ég tel að á stöastliðnum hundrað árum sé búið að kanna landið rækilega með tilliti til forn- minja og skal nefna nokkur nöfn I þvi sambandi: Kálund, Sigurður Vigfússon, Daniel Bruun, Brynjólfur Jónsson frá Minna- núpi, Matthlas Þórðarson og svo þeir, sem verið hafa starfsmenn Þjóöminjasafnsins á sibustu ártug- um. En marga aðra mætti nefna, sem hafa lagt hönd á þennan plóg. I Árbók fornleifafélagsins og reyndar mörgum öörum bókum og ritum, geymist feiknalegur fróðleikur um þessi efni. Þetta er frumkönnun, en rannsóknir hafa ekki verið gerðar nema höggvið i hér og hvar. En að öllu saman- lögðu liggur fyrir talsvert alhliöa þekking á Islenzkum fornminjum yfirleitt, á almennu eðli þeirra, i stórum dráttum hvers vænta má. Mér finnst að heildarmunstur is- lenzkra fornminja liggi talsvert ljóst fyrir, vegna starfs allra þessara manna. Ég á ekki von á neinum umbyltandi fundum á þessu sviði. En ég tel vist og sjálfsagt, að áfram verði haldið að gera fornleifarannsóknir til þess að fylla og bæta þá mynd, sem nú er fyrir hendi og trúlega rétta hana á ýmsan hátt. Verk- efnin eru mörg og merkileg, en misjafnlega brýn, að þvf mér finnst. Ef til vill er brýnast nú sem stendur að fullgera heildar- yfirlit um allt sem til er og frá er sagt viöa i ritum, gera skýra heildarskrá. Til eru drög að þessu, eins og sjálfsagt er, en það þarf að fullkomna og hafa heildarsýn yfir það. Mér er vel kunnugt um aö þjóöminjavörður hefur fullan hug á þessu. Hvað um Hraunþúfu- klaustur? — Þér hafið lengi verið ritstjóri Arbókar fornleifafélagsins. Já, ég hef séð um það rit siðan 1948 og geri það enn, svona til að leggja góöu málefni lið og kannski sjálfum mér til skemmtunar einnig. Ég á orðið þarna mörg handtök og hef skrif- að mikið i ritið fyrir utan að sjá um útgáfu þess. Það sem ég hef skrifað er fyrst og fremst í Arbók en ekki i þessum bókum sem við vorum að tala um, hinsvegar lesa fáir menn Árbók, hún hefur aldrei tranað sér neitt fram, þótt hún eigi aldarafmæli eftir nokkur ár. Þá viljum við að hún haldi enn höfði og meira en það. En öll svona rit eru miklir fátæklingar, berjast i bökkum. — Nú hafið þér nýlega birt I Arbók grein um Hraunþúfu- klaustur. Var kannski aldrei neitt klaustur á þessum fræga stað? Já, ég freistaðist til að skrifa of mikið sjálfur i siðasta hefti, það verða ritstjórar sundum að gera, þegar efni berst af skornum skammti. Ég skrifaöi þessa grein um Hraunþúfuklaustur til að reyna að sýna fram á þaö að það er fyrst og fremst þjóðsagnastað- ur, og ég hef enga trú á að þar hafi verið klaustur nokkurn tima, eins og oft hefur verið borið I mál. Ef það sannast svo með upp- greftri eða á annan hátt, að þar hafi samt sem áður verið klaust- ur, skal enginn verða glaðari en ég, en um leiö verð ég mjög undr- andi. Þýðingar og önnur tóm- stundavinna — Hvers vegna lögðuð þér vinnu I aö þýða hið langa verk, Norðurlandstrómet eftir Petter Dass? — Ég geri ráð fyrir að spurt sé af þvl að ég las dálitið upp úr þessari þýðingu i útvarp árið 1966, þvi að annars hef ég ekki komið verkinu á framfæri. Þetta er eiginlega þjóðarkvæði Norð- manna og i því er margt skemmtilegt, bæði góður skáld- skapur og svo er þetta menningarsöguleg heimild, kannski var það mest þess vegna að ég þýddi það, og auðvitað mér til gamans. Það getur veriö nógu gaman að bauka við að þýða kvæði ekki siður en að ráða kross- gátu svo að eitthvað sé nefnt sem maður dundar sér við. Einu sinni var ég jafnvel að hugsa um að gefa þetta út og vinir mlnir sum-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.