Tíminn - 24.12.1974, Blaðsíða 18

Tíminn - 24.12.1974, Blaðsíða 18
18 TÍMINN JÓLABLAÐ 1974 Gengið lir Hallgrimskirkju i Saurbæ, er minnzt var 300. ártlðar Hallgrims Péturssonar I haust. Sóknarpresturinn, séra Jón Einarsson, í hvlt- um messuskrúða, og á eftir honum Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra og kona hans. Margrét Glsladóttir. A eftir ráðherranum kemur Guðmundur Brynjólfsson, bóndi á Hrafnabjörgum. — Tlmamynd: Gunnar. Ræðu þá, sem hér birtist, flutti Halldór E. Sigurðsson landbúnaðar ráðberra í Hallgrí mskirkj u í Saurbæ á Hvalfjarðar strönd á 300. ártíð Hallgríms Péturssonar nú í haust. ,J PASSÍUSÁLMANA LAGÐI HANN LÍFSORKU SÍNA, TRt OG EINLÆGNI” Kirkjumálaráðherr- ann, Olafur Jóhannesson, ætlaði sér að vera hér í dag og taka þátt i þessum hátíðahöldum, svo sem óskað hafði verið eftir. En sem viðskiptaráð- herra varð hann að mæta hjá einni af stærstu við- skiptaþjóðum okkar, og var þar engu hægt um að þoka, þó hann hefði meiri löngun til þátttöku í há- tíðahöldum þessum en til utanfarar,— Ég mæti því hér i hans stað í dag og færi yður kveðju hans. Þegar ég var ungling- ur, þá hlustaði ég eitt sinn á kappræður í rikisút- varpinu, þar sem um- ræðuef ni ð var rímuð eða órímuð Ijóðagerð. Ég hef nú fyrir löngu gleymt nöfnum þátttakendanna að einum undanskildum, en það var skáldið Steinn Steinar. Ég hef einnig gleymt umræðunum að öðru leyti en nokkrum setningum úr ræðu Steins, en þær voru á þessa leið: Ljóð lifir ekki vegna formsins, heldur vegna efnisvals og með- ferðar þess. List er list, hvertsem formið er. Eins og leirburðurer og verður leirburður, þó Ijóðið sé rímað, og ber dauðann í sér þvi lífsandann skort- ir. Hátiðasamkoma okkar hér í dag er sönnun þess, að listaverkin lifa, þó að aldir líði, vegna þess að þau báru lifsandann í sér. Fyrir meira en 300 árum sat séra Hallgrimur Pétursson prestsetrið Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd. Þar samdi hann hið stórbrotna verk sitt Passíusálmana og sálm- inn ,, A111 eins og blómstrið eina”. Þessir sálmar eru samdir af slikri snilld, að þeir lyftu honum á heiðursbekk ís- lenzkra skálda og þar hefur hann skipað veg- legt sæti í huga og hjarta íslenzku þjóðarinnar í 3 aldir. Það er dómur þeirra skalda og fræðimanna, sem um séra Hallgrím hafa skrit'að, að dvöl hans hér að Saurbæ hafi skipt sköpum í lífi hans, meðal annars hvað af- komu varðar, og sam- band við landið og fólkið hér á Hvalf jarðarströnd var honum að skapi og hann átti við það ánægju- legt samstarf. Áður en séra Hallgrímur fluttist að Saurbæ, hafði hann kynnzt erfiðleikum mannlegs lífs, ekki síður en almennt gerist. Meðal annars er hann hvarf frá námi, f járhagslegum erfiðleikum og ástvina- missi. Er þar sérstaklega getið, hve þungbært hon- um varð er hann missti dóttur sína, Steinunni, kornunga, en hún var samkvæmt frásögn talin vera mikið efnisbarn. Enda þótt kunnugt væri, að séra Hallgrímur væri skáld, meðal annars orki hann eftirmæli eftir þessa dóttur sína, sem þóttu meðafbrigðum góð, þá bera Passíusálmarnir og sálmurinn „Allt eins og blómstrið eina" svo af skáldskap hans, að menn eins og dr. Sigurður Nor- dal og Halldór Laxness o.fl. hafa ritað merkar ritgerðir um, hvað valdið hafi því, að séra Hallgrimur tók sér fyrir hendur að yrkja Ijóða- flokk um píslarsögu frelsarans með þeim árangri sem raun ber vitni um. Meira að segja slikir snillingar sem þess- ir menn telja sig ekki geta leitt óyggjandi rök að því, hvað valdið hafi, þó sterkar líkur séu þar fram dregnar af þeirra hálf u. Ég ætla mér ekki þann hlut að skýra það, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.