Tíminn - 24.12.1974, Síða 24

Tíminn - 24.12.1974, Síða 24
24 TÍMINN JoLABLAÐ 1974 L * :Jfc»Ö8Sp£r' \ mm -' iirifi' imiiii 'wmmmf: ^ iis ' • ! \ 1 ! '% < L-i Ýmsir hafa borih nokkurn ugg I brjósti vegna fjölgunar veiöibjöllu, og eru þaö einkum varpbændur, sem undan henni kvarta.Og satt er það: Mávur og veiðibjalla eru féiags Iyndar verur, sem oft safnast saman i stórar fylkingar. Er þá liðið stundum harla aösópsmikið. minnsta kosti um að ræða ákaf- lega mikla röskun á aðsetursstöð- um og útbreiðslu fugla, og það eitt út af fyrir sig er nógu slæmt, jafn- vel þótt ekki væri um beina fækk- un að ræða af völdum minks, — sem vel getur þó verið að sé. Þaö hefur bara ekki verið rannsakað. Til eru þau dýr, sem hafa lært það á mörgum og löngum öldum að notfæra sér mannabyggð og ganga á lagið og fylgja i kjölfarið, hvar sem menn taka sér bólfestu. Hér á landi hafa fuglar eins og stokkönd og skógarþröstur fært sér manninn óspart i nyt, og þann frið sem myndast i þéttbýli og i kringum það. Endur koma inn á friðaðar garðtjarnir hvar sem er i heiminum. Dæmi um tegundir, sem eru enn bundnari manninum, er star- inn, sem fyrst nam land i Horna- firði skömmu fyrir siöasta strið. En honum fer ekki að fjölga að ráði fyrr en upp úr 1960. Ég held, að það hafi verið 1963, sem stararnir héldu innreið sina i Reykjavik, og upp úr þvi fár þeim fyrst að fjölga svo um munaði. Starinn er upphaflega skógarfugl, en á siöari árum hefur hann flutzt inn i borgir Evrópu og breiðzt þaöan út um allan heim. Eigum við að flytja inn sauðnaut? — Það hefur stundum verið minnzt á innflutning sauðnauta til RADI é NETTE Stórglæsileg stereosamstæða SM 40 cassettu með 2 TK 18 S hátölurum Útvarpstæki með langbylgju, miðbylgju og FH bylgju.Hi-Fi stereo magnari 2 x 20 Wött Sinus (2 x 35 wött mússik) Cassettutæki fyrir bæði venjulegar cassettur og Chrom-cassettur. Al-sjálfvirk upptaka. Innstunga fyrir Monoeða Stereo hljóðnema, 4 hátalaraogplötuspilara með inagnetiskri hljóðdós. Verð á, tækinu kr. 85.365.00 með sölusk. Vcrð á hátölurum kr. 12.395. pr. st. Greiðsluskilmálar HljójTideild Akureyri EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI 10A nytja hér á landi. Telur þú þau lifsskilyrði, sem hér eru fyrir hendi, vera við þeirra hæfi? — Til þess að geta svarað þess- ari spurningu er bezt að byrja á þvi að huga að loftslaginu hér. Sauðnaut eru meginlandsdýr, sem þrifast bezt i mjög þurrum heimskautalöndum, þar sem úr- koma er mjög litil og snjór, ef ein- hver er, er duftkenndur og frýs ekki saman. Afrerar og blotar eru stórhættulegir sauðnautum og hafa oft valdið dauða þeirra i stórum stil i jöðrum útbreiðslu- svæðis þeirra. Ég býst ekki viö, að sauðnaut eigi neina framtið hér á landi sem villt dýr. Hitt er annað mál, hvort menn vilja reyna að rækta þau eins og önnur húsdýr, heyja handa þeim á sumrin og fóðra þau að vetrinum eins og hvern annan búpening. A hinn bóginn er það um inn- flutning dýra og plantna að segja, almennt, að á úthafseyjum eins og íslendi verða menn að hafa fyllsta vara á sér og hrapa ekki að neinu. Slikur innflutningur getur haft miklar afleiðingar, bæði beinar og óbeinar, sem oft er ógerningur að sjá fyrir. Og það er sannast að segja, að enn er þekk- ing okkar ekki komin s'vo langt, að hægt sé að skera úr um það i hverju einstöku tilfelli, hvort æskilegt sé að flytja inn þessa eða hina tegundina. Sjúkdómar leynast iðulega i kynstofninum. Jafnel þótt viö þættumst standa með alheilbrigð sauðnaut á milli handanna, þá getur alveg eins verið að i blóði þeirra leynist sýkill, sem þau sjálf eru ónæm fyrir — en það er ekki vist, að islenzkar kindur og kýr séu það — og það gæti haft alvarlegar afleiðingar. Um þetta höfum við ákaflega nærtækt og átakanlegt dæmi, þar sem sauð- fjársjúkdómarnir eru Verum á veröi/ heröum eftirlitið — Þú vilt kannski nefna eitt- hvert dæmi um sérlega hættuleg- an innflutning? — Já, ég skal fúslega verða við þvi. tsland er liklega eina stóra landsvæðið i heiminum, þar sem ekki eru moskitóflugur. Meira að segja á Grænlandi og i Lapplandi eru þær einhver versta plágan á sumrin. Nú eru flugsamgöngur orðnar ákaflega örar, þar á meðal við Grænland, og það er alvegeins liklegt, að moskitóflug- ur eigi eftir að berast hingað. En þá er ég hræddur um að mörgum þætti orðið vandlifað til sveita á tslandi, ef sá ófögnuður ætti eftir að setjast þar að. — Hvað er hægt að gera til þess að verja sig fyrir þess háttar óhappi? — Fyrst og frémst að stórauka eftirlit með öllu, sem til landsins kemur. Ég tel þetta eftirlit vera alltof slakt, eins og það er nú. Við megum bókstaflega ekki hleypa neinu vafasömu inn i landið, hvorki blómum, dýrum, jarðvegi né nokkru öðru, sem hugsanlega gæti stafað hætta af. Það er miklu ódýrara að fleygja slíkum hlutum strax, heldur en að biða og sjá til. -VS. Þrösturinn fylgir mannabyggð jafnan eftir: og er þess skemmst aö minnast, að eitt fremsta skáldverk tslendinga á siðari árum, segir frá þrastarhjónum, sem byggðu sér hreiður á svölum Ibúöarhúss.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.