Tíminn - 24.12.1974, Side 43

Tíminn - 24.12.1974, Side 43
JOLABLAÐ 1974 TÍMINN 43 Zentralkellerei I Breisach. Þar taka sumir geymarnir eina milijón lltra. Þar fengum viö aö smakka nokkrar tegundir af þeim rúmiega 200 tegundum, sem þeir framleiöa. Vfnbændur I Breisgou-héraði eru aöaleigendur. AUGLÝSINGADEILD TIMANS veriö vel heppnaöir. Einnig var þar minnzt á islenzku konurnar, sem voru þarna klæddar upphlutum. Þetta kvöld veröur okkur eftirminnilegt. Snemma morguns næsta dag var búizt til brottfarar til Austurrlkis. En ekki er hægt aö kveöja svo þetta umhverfi, að ekki sé minnzt á útsýnið frá Hótel Valaisia, morguninn sem viö fórum. Kyrrð og heiöríkja um- vafði okkur, þegar viö stóöum fyrir framan hótelið, og sáust nú vel hinir himinháu tindar Alpanna, sem blöstu við okkur hvitir og hreinir baðaðir morgunsól. Þarna gnæfði Weishorn 4510 m hátt, og heil röö af öðrum tindum, sem allir voru yfir 4000 m háir. En nær manni klæddi iögrænn skógurinn, akrar og engi hliðarnar, en á milli trjánna glitraði vatnið spegilslétt og blátt. Það var unun að virða þetta fyrir sér um stund,en brottfarar- timinn var kominn. Við stigum þögul upp i bilinn, og ókum i siðasta sinn bugðóttan veginn niður þorpið. Brátt tóku við brekkur og beygjur, hærra og hærra, þar til numið var staðar uppi I Simplonskarði i 2005 m hæð yfir sjávarmál , þvi þar fórum við yfir Alpana. Við horfðum nú suður á viö til ítaliu. Ekið var um stund eftir skarðinu með fjallatinda og háfjallagróöur til beggja handa, þar til stanzað var við snoturt veitingahús. Að var þar um stund og þorstanum svalað, þvi heitt var þarna uppi. Þarna uppi á næstu hæð gnæfði risastór stytta, sem erfitt var að sjá, hvað táknaði, og hinummegin við vegin voru tvær kýr á beit með bjöllur hangandi um hálsinn. Maður gat alveg eins vel verið staddur í einum af dölum Noregs, þar sem þessi bjölluhljómur er algengur. Svo var ferðinni haldið áfram, þar til stoppað var niðri á láglendi Italiumegin i litlu þorpi. En litið gat maður séð af umhverfinu vegna reykjar frá frá verksmiðju þar i grenndinni, en þoka huldi fjallasýn. En eitt var þó vist, að nú hófum við ferð I landi hinna fornu Rómverja og mektugu keisara, sem við öll höfðum lesið um i skóla. En nú var enginn timi til hugleiöinga um fortiðina, og halda feröinni áfram austur á bóginn áleiðis til Austurrikis. En vegna bilsins okkar og fjallveganna, urðum við að taka þessa 100 km lykkju á leiö okkar. Höfðum við brátt góöa fjallasýn og sáum landið i allt öðru ljósi, en þegar við komum úr skarðinu. En áður en kvöldaði, brugðum við okkur inn I Sviss aftur, og höfnuðum i rökkrinu i furstadæminu Lichtenstein Það er þar, sem borgararnir eru skattfrjálsir, það var þvi ekki að undra þó mannskapnum litist vel á sig þar, og smakkaðist maturinn vel! En ekki mátti dveljast of i þessu sérstæða riki, þvi að langt var enn til hinnar gömlu borgar, Innsbruck i Austurriki. Þar höfnuðum við svo loks kl. að ganga tvö um nóttina, og sofnuðu vist allir vært undir þeim svellþykku yfirsængum, sem þar voru I rúmum, eftir lengsta áfanga ferðarinnar. Það var ævintýri út af fyrir sig að vera nú staddur I höfuöborg Týrólar, þvi oft hafði maður heyrt getið um týrólska söngva, dansa ogbúninga o.fl. Um kvöldið gafst okkur kostur á að fara á týrólska kvöldskemmtun. Þar var margt um manninn, og glæsilegur hópur spilara, dansara og söngvara i þjóðbúningum, sem komu fram með 23 skemmtiatriði. Þar hlustuðum við á bæöi hörpusóló, xýlófónsóló og marinettsóló, svo eitthvað sé nefnt. Þetta var eftirminnileg skemmtun fyrir okkur, sem aldrei fyrr höfðum notiö slikrar skemmtunar. Næsta morgun var enn sama biðskaparveðrið, en ekki vannst timi til að skoða eða renna augum yfir borgina nánar, þvi mikill ferðahugur var I mönnum. Um áttaleytið var brunað úr hlaði og stefnan tekin til hinnar fornfrægu borgar, Salzburg. Þann dag áttum við ekki fyrir höndum eins langan akstur og oft áður i þess- ari ferð, og vorum þvi komin á áfangastað upp úr hádeginu. Þegar við höfðum komið okkur sæmilega fyrir, gengum við kembd GLEÐILEG Borgarstjórinn I Salzburg, Heinrich Salfenauer, og Hans Ploter, stjórnandi lúörasveitarinnar. Hann er einnig formaður tsienzk-austurriska vinafélagsins á tsiandi. Skiptast þeir hér á gjöfum. Á myndinni er islenzki konsúllinn Eibl og frú.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.