Tíminn - 31.12.1974, Qupperneq 3

Tíminn - 31.12.1974, Qupperneq 3
Þriðjudagur 31. desetnber 1974. TÍMINN 3 Útför þeirra, sem létu lífið í Neskaupstað: Horfum tárvotum augum inn í lönd framtíðarinnar — sagði séra Páll Þórðarson m.a. í útfararræðunni HJ—Reykjavik. „Við horfum inn I lönd framtiðarinnar tár- votum augum, en við munum ekki gefast upp. Minning þeirra, sem hér hvlla, er dýrmætari en svo,” sagði séra Páll Þórðarson sóknarprestur f Neskaupstað i útfararræðu I gær, en þá var gerð útför þeirra tiu Norðfirð- inga, sem létust af völdum snjó- flóðanna. Viðstaddir athöfnina sem fram fór i félagsheimilinu Egilsbúð, voru 700-800 manns. Að sögn séra Páls Þórðarsonar voru margir aðstandenda hinna látnu, viða að af landinu, við- staddir útförina, m.a. komu flugvélar frá Reykjavik, og varðskip fluttifólk frá Eskifirði, og Reyðarfirði. Athöfnin hófst kl. 14:00, og séra Páli Þórðarsyni til aðstoð- ar var séra Sigurður H. Guð- mundsson, sóknarprestur á Eskifirði. Krikjukór Norð- fjarðarkirkju söng og Inga Rós Ingólfsdóttir lék verk eftir Hándel á selló. Orgelleik önnuð- ust þeir Agúst Armann Þórðar- son og Jón Mýrdal. Við athöfn- ina var einnig minnst þeirra tveggja Norðfirðinga, sem enn er saknað. Viö útförina voru lesin upp nöfn hinna látnu og þeirra minnzt, en I dag munu borin i hús á Neskaupstað æviágrip hinna látnu i prentuðu máli. Þórstina Bjartmarsdóttir til heimilis að Urðarstig 52, 26 ára, lætur eftir sig eiginmann. Ágúst Sveinbjörnsson, átta ára gamall sonur Þórstlnu. Björn Hrannar Sigurðsson, Kari Lárus Waldorff bilstjóri, þriggja ára gamall sonur Þór- Þiljuvöllum 22, 47 ára, lætur eft- stinu. ir sig eiginkonu og sex börn, þriggja til sextán ára. Aöalsteinn Jónsson, vélstjóri, Ásgarði 12, 60ára, lætur eftir sig eiginkonu og fimm uppkomin börn. Ólafur Eiriksson, vélstjóri Mýrargötu 9, lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Guðmundur Helgason, vélstjóri, Miðstræti 23, 61 árs, lætur eftir sig eiginkonu og uppkomið barn. Stefán Sæmundsson, trésmiða- meistari, Þiljuvöllum 10, 52 ára, lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn, tvö þeirra uppkomin. Elsa Gisladóttir til heimilis að Strandgötu 58, 38 ára lætur eftir sig eiginmann og tvö ung börn. Högni Jónsson skipstjóri, Viöi- mýri 5, 41 árs, lætur eftir sig eiginkonu og átta börn, eins til tuttugu og eins árs. Neskaupstaður: Frystihúsið í gagn um næstu mónaðamót? BG-Neskaupstað — Nú er lokið við að hreinsa snjó og brak úr vélasal frystihússins. Tvær af þremur frystivélasamstæöum i salnum hafa skemmzt, þótt enn sé óvitað hversu umfangsmikiar skemmdirnar eru, en sú þriðja virðist óskemmd. Hekla fer frá Reykjavik hinn 3. janúar beint til Neskaupstaðar hlaðin ýmis kon- ar varningi, sem okkur vanhagar um og þar á meðal veröur ný frystivélasamstæða. Auk þess er von á 10—15 iðnaöarmönnum aö sunnan hingað austur. Við erum þess vegna vongóðir um að okkur takizt að koma frystihúsinu i gagnið þegar um næstu mánaöa- mót. Nú er unnið að þvi aö bjarga fiskmjölinu úr snjónum. — 7—800 tonn fóru á kaf, en talsvert hefur þegar náðst óskemmt. Talið er að unnt verði að bjarga um einum þriðja hluta þess, sem legið hefur undir snjó. Víkingur... Með sveita- keppni í bridge KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VÍK- INGUR tók upp þá nýbreytni á siðast liönu hausti að efna til tvi- menningskeppni i bridge, og lauk þeirri keppni nokkru fyrir jól. Mæltist þessi nýbreytni félagsins mjög vel fyrir, og hefur nú verið ákveðið að efna til sveitakeppni I bridge. Eins og i tvimenningskeppninni verður spilað á mánudagskvöld- um kl. 7.30, og verður fyrsta um- ferð i sveitakeppninni þann 6. janúar. Sex umferðir verða spilaðar I sveitakeppninni. Þeir sem hug hafa á þátttöku I bridgekeppninni eru vinsamlega beðnir að skrá sig sem allra fyrst, en tekið er á móti þátttökutil- kynningum I verzluninni Sportval við Hlemmtorg, og enn fremur i félagsheimili Vikings viö Hæðar- garð. Viða hefur verið grafið I hlaupiö og nokkru tekizt að bjarga. T.d. náðist nokkuð af dósum frá niöur- lagningarverksmiðjunni og litils háttar hefur bjargazt af varahlut- um bifreiðaþjónustunnar. Sifellt er leitað I snjónum að mönnunum tveimur sem enn eru ófundnir, en til þessa hefur leitin engan árangur borið. Ólafur Sigurðsson, ýtustjóri, til heimilis að Uröarstig 37. Er saknaö, nitján ára. Á unnustu og barn. Olíumengun minni en — segir Stefón Bjarnason og Viðif jörð, og ég varð ekki var við neina oliumengun annars HJ-Reykjavik. — Við erum hér stafandi að oliuhreinsuninni sex utanbæjarmenn, og fáum auk þess alla þá hjálp, sem við þörfn- umst, frá Norðfiröingum sjálfum, og ég held mér sé óhætt að segja, að mjög góð samvinna hefur tek- izt okkar i milli, sagbi Stefán Bjarnason, mengunarsérfræðing- ur Siglingamálastofnunarinnar, en hann hefur haft umsjón með oliuhreinsunarstarfinu I Nes- kaupstað. — Ég fór I gær, sagði Stefán, I könnunarferð hér um fjörðinn og nærliggjandi firði, þ.e. Hellisfjörð staöar en i Noröfirði. Ég er þvi farinn aö hallast að þeirri skoðun, að mun minna magn oliu, en hingaö til hefur veriö álitið, hafi raunverulega runnið til sjávar. A morgun ætla ég i könnunarferö um Mjóafjörðinn og Dalatanga, og verði ég ekki var olíumengun- ar þar fremur en I hinum ná- grannafjörðunum, hygg ég að sú ályktun min, að meginhluti oliu- magnsins sé enn á landi, muni rétt. Sllkt er þó erfitt aö sanna, fyrr en okkur hefur tekizt að dæla þvi magni, sem hér er, I tankana. Sveinn Daviðsson, bifreiöar- stjóri til heimilis að Miðstræti 20. Er saknaö. Kvæntur og f jög- urra barna faöir. óttast var Þetta er geysilega erfitt verk, þvi að snjórinn og olian hafa hrærzt saman og olian hvorki hnigur né rennur. Þykkt snjófarg er yfir öllu, sums staðar allt upp i 5 metra hæð frá jörðu, og við höfum enn enga hugmynd um, hversu mikiö magn af oliu kann að leyn- ast þar undir. — Eins og ég sagði áðan, sagði Stefán, eru þaö einungis ágizkunartölur, sem komið hafa fram um, hversu mikið magn raunverulega hefur borizt á haf út. Það eina, sem við vitum meö vissu, er að i tankinum voru upp- haflega u.þ.b. 900 tonn af svartoliu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.