Tíminn - 31.12.1974, Blaðsíða 21
TÍMINN
21
b
BOB LATCHFORD
Leeds á þrem minútum var nóg
til að brjóta niður Leicesterliðið,
sem hefur aðeins fengið tvö stig.
út úr siðustu 10 leikjum liðsins.
Leicester hefur fallið úr 14. sæti
niður i 21. sæti á þessum tima.
Nokkuð, sem menn áttu ekki von
á hjá Leicesterliðinu. Það voru
þeir Frank Gray (bróðir Eddy)
og Duncan McKenzie, sem
skoruðu mörk Leeds.
COLIN STEIN skoraði mark
Coventry eftir aðeins 8. min.ogá
24. min fékk Brian Alderson goti
tækifæri til að skora (2:0), en þá
bjargaði Plattskoti frá honum á
linu. Allt leit út fyrir sigur
COLIN STEIN
Coventry á White Hart Lane i
Lundúnum, en þegar 16. min voru
til leiksloka jafnaði Tottenham
1:1 á sjálfsmarki frá Wilf Smith,
sem sendi knöttinn i eigið mark,
eftir skot frá Joe Kinnear. Við
lékum vel i fyrri hálfleik, en sá
siðari var ekki nógu góður hjá
okkur”, sagði Gordon Milen,
framkvæmdastjóri Coventry eftir
leikinn.
Heppnin var með Burnley á
Torf Moor, en tvö mörk i siðari
hálfleik færði Burnley sigur —
skoruð af Leighton James og
Doug Collins, yfir Carlisle. Það
voru leikmenn Charlisle sem áttu
fyrri hálfleikinn og hefði Joe
Laidlaw þá átt að skora
,,hat-trick” fyrir Carlisle, en
hann misnotaði hvert marktæki-
færið á fætur öðru á klaufalegan
hátt. Dennis Martin skoraði
mark Carlisle á 16. min, með þvi
að vippa knettinum yfir Alan
Stevenson, markvörð Burnley.
-SOS
Futcher-tvíburarnir eru
...dýrlingar í
Hattaborginni
Þeir hafa gefið Luton-liðinu nýtt líf og
nýjar vonir
★ Ódýrari tvíburinn skoraði „hat-trick"
gegn Úlfunum
HINIR 18ján ára gömlu tviburar
Paul og Ron Futcher, eru nii
orðnir dýrlingar I hattaborginni
frægu — Luton. Þessir snjöllu
knattspyrnu-tviburar hafa nú
gefið Luton-Iiðinu nýjar vonir i
fallbaráttunni. Þeir hafa verið
mennirnir á bak við jóla-sigur-
göngu Luton-Iiðsins, sem hefur nú
unnið þrjá leiki i röð — gegn
Derby, Ipswich og Úlfunum. Ron
var kóngurinn á Keniiworth Road
á laugardaginn, þegar ,,The Hatt-
ers” sigruðu Clfana 3:2 — hann
skoraði öll mörk „Hattanna” —
„hat-trick”, þegar hann og bróðir
hans, Paul, sýndu stórkostlegan
leik.
En það munað ekki miklu, að
Ron gæti ekki leikið á laugardag-
inn, vegna slæmra uppkasta, sem
þjáðu hann. Akvörðunin um að
hann léki gegn Úlfunum, var tek-
in aðeins klukkutima fyrir leik-
inn. Sú ákvörðun gaf Luton sigur.
Á sunnudaginn sögðum við frá
hinum tviburabróðurnum, Paul,
sem leikur stöðu miðvarðar I
Luton-liðinu. Hann hefur nú leikið
þrjá stórleiki Iröð og er maðurinn
á bak við sigra Luton-liðsins
þessa dagana. Bræðurnir voru
keyptir frá Chester á 125 þús.
pund samanlagt fyrir jólin. Luton
bauð Chester 100 þús. pund i Paul
Meiðsli hjá
West Ham
Fjórir fastamenn liðsins léku ekki með
gegn Stoke, sem vann heppnissigur
GEOFF HURST’S skoraði sigur-
mark Stoke gegn sinum gömlu
félögum úr West Ham á Victoric
GEOFF HURTS
„Ég er tilbúinn
í baráttuna"
— segir Keith Weller, sem vill hjálpa Leicester í hinn
örvæntingarfullu baráttu um fallið
FYRRUM fyrirliði Leicester
City, Keith Weller, sem var
rekinn frá félaginu og settur á
sölulista fyrir jól, eftir að hafa
neitað aö leika siðari hálfleik-
inn gegn Ipswich — eins og við
sögðum frá hér á siðunpi á
sunnudaginn — tilkynnti á
iaugardaginn, að hánn langi
til að hjálpa Leicester-liðinu
úr hinni örvæntingarfullu
baráttu um fallið. Eftir að
hann hafði heyrt úrslit leiks
Leicester gegn Leeds (0:2)
lofaði hann þvi, að leggja sitt
af mörkum i fallbaráttunni.
Wellersagði þá: — Ég mun
gera allt sem ég get, til að
hjálpa Leicester. Ég er ekki
langrækinn og það siðasta sem
ég vildi, er að sjá Leicester
falla. Ef forráðamenn
Leicester hafa not fyrir mig,
þá er ég tilbúinn til að taka
þátt i báráttunni með félögum
mínum.
— Ég hef æft mjög vel yfir
hátiðarnar og farið eftir mjög
ströngu æfingaprógrammi,
sem ég útbjó. Mig dauðlangar
að leika aftur — ég þarf
nauðsynlega að fá að leika
einn leik með Leicester. Ef
forráðamenn Leicester vilja
nota mig á laugardaginn i
varaliðinu, þá er ég tilbúinn.
Wellerá að mæta á Filbert
Street i dag, þar sem hann á
að gefa skýrslu, um
framkomu sina. Hann játaði á
sunnudaginn, að hann hafi
fengið mikinn fjölda af bréfum
frá áhangendum Leicester —
mjög harðorð bréf.-----Ég
mun skrifa til allra þeirra,
sem hafa skrifað undir bréfin
og útskýra fyrir þeim málið
frá minni hlið, sagði Weller.—
SOS.
Ground. Hann skoraði eitt af
sinum gömlu og góðu
skallamörkum, eftir að mark-
vörður „Hammers” Mervyn Day
liafði bjargað skoti frá John Ma-
honey, en þessi welski landsliðs-
maður átti stórglæsilegt skot,
sem Day náði að slá I þverslá —
knötturinn hrökk til Hurst, sem
skallaði i markiö (1:2).
West Ham-liðið var vængbrotið
á laugardaginn, fjórir fastamenn
liðsins gátu ekki leikið með vegna
meiðsla — Billy Bond, Trevor
Brooking, Bill Jennings og Keith
Robson, og ekki bætti það úr
skák, að Alan Taylor, sem West
Ham keypti frá Rochdale á 40
þús. pund, meiddist i leiknum (17
min.) Þrátt fyrir þetta komst
West Ham i 1:0 gegn áhugalausu
Stoke-liði, sem hafði fyrir leikinn
gegn West Ham, tapað fjórum
leikjum I röð. Holland skoraði
markið á 52. min. með skalla.
En West Ham varð fyrir áfalli á
69. min. þegar dómari leiksins
dæmdi vitaspyrnu á liðið, þegar
Bobby Gould og Dinnis Smith
lentu I árekstri — fljótfærnis-
dómur, sem leikmenn Lundúna-
liðsins mótmæltu harðlega. En
dómnum varð ekki haggað — Ge-
off Salmons skoraði örugglega úr
vitaspyrnunni. Við þetta brotnaði
West Ham-liðið niður og Stoke
vann heppnissigur á marki Hurst,
sem hann skoraði aðeins 6. min.
eftir vitaspyrnuna.
STOKE: — Shilton, Marsh, Pej-
ie, Mahoney, Smith, Dodd, Con-
roy, Greenhoff, Hurst, Hudson,
Salmons.
WEST HAM: — Day, Coleman,
Lambard, Holland, T. Taylor,
Lock, A. Taylor (Ayris), Paddon,
Gould, McDowell og Best. — SOS.
RON FUTCHER.
og þegar félagið gekk frá
samningnum, var ein nauðung i
honum. Chester sagðist ekki selja
Paul, nema að Luton keypti Ron
einnig. Forráðamenn Luton féll-
ust á þetta og keyptu Ron 25 þús.
pund, eða báða tviburana á 125
þús. pund samanlagt.
Þessum kaupum sjá • for-
ráðamenn Luton nú ekki eftir,
bræðurnir hafa gefið Luton-liðinu
nýtt lif og með þeim hafa komið
nýjar vonir. Leikurinn gegn Úlf-
unum, var annar leikurinn, sem
Ron var valinn i Luton-liðið og
það á siðustu stundu.
Útlitið var ekki gott hjá „Hött-
unum” á laugardaginn. Frank
Munro tók forustuna fyrir Úlf-
anna á 23 min. — 0:1. Ron Futch-
er jafnaði (1:1) á 38 min. og
aðeins fjórum min. siðar var
hann búinn að skora sitt annað
mark og koma Luton yfir 2:1, en
þannig var staðan i hálfleik. Ron
skallaði þá knöttinn i netið, eftir
fyrirgjöf frá John Aston, fyrrum
leikmanni Manchester United.
. Barry Powell jafnaði fyrir Úlfana
á 68 min. en sigurmark Luton
kom aðeins þremur min. fyrir
leikslok. Þá skallaði Ronknöttinn
I mark Úlfanna — stórkostlegt
mark og fögnuður hinna 19.642
áhorfenda var geysilegur. Sá
fögnuður stóð yfir fram á sunnu-
dag, en þá yfirgáfu rauðeygðir
áhangendur Luton bjórbúllurnar i
Hattaborginni. — SOS.
ekki
Tapaði sínum
fyrsta heimaleik
FRANCIS LEE sá um þaö, að
gömlu félagarnir hans hjá
Manchester City töpuðu sinum
fyrsta leik á heimavelli á
keppnistimabilinu. Hann átti
mikinn heiður af þvi, að Derby
tók forustuna I fyrri hálfleik
(1:0), þegar Henry Newton
(áður Everton) skoraði sitt
fyrsta mark fyrir sitt nýja
félag. Á 65. min. skoraöi svo
Lee sjálfur — hann fékk
sendingu frá David Nish og
þr-umaði knettinum að inarki.
Joe Corrigan réði ekkert við
skotið, sem söng I netinu fyrir
aftan hann.
Það voru margir áhorfendur
á Maine Road af hinum
rúmlega 40 þús. sem sáu leik
inn, sem hefðu viljað sjá þessi
tilþrif Lee i City-búningnum.
Colin Bell minnkaði muninn i
2:1 rétt fyrir leikslok. — SOS.
2. DEILD
Ipswich 25 14 2 9 34-19 30
Middlesbro 25 11 8 6 37-28 30
Liverpool 23 12 5 6 34-20 29
Everton 24 8 13 3 33-25 29
Stoke City 25 11 7 7 39-33 29
West Ham 25 10 8 7 42-33 28
Burnley 25 11 6 8 45-40 28
Manch. City 25 11 5 9 31-33 28
Derby 24 10 7 7 38-33 27
Newcastle 23 10 6 7 33-31 26
Leeds .25 10 5 10 35-30 25
Wolves 24 8 9 7 32-30 25
QPR 25 10 5 10 32-33 25
Sheff. Utd. 24 9 6 9 31-36 24
Coventry 25 7 9 9 33-41 23
Birminghai 25 9 4 12 35-39 22
Tottenham 25 7 7 11 30-35 21
Chelsea 24 6 9 9 26-41 21
Arsenal 24 7 6 11 28-30 20
Cárlisle 25 7 3 15 25-33 17
Leicester 24 5 6 13 22-37 16
Luton 24 4 7 13 22-37 15
1. DEILD
Manch. Utd. 25 16 5 4 41-19 37
Sunderland 24 13 7 4 43-17 33
Norwich 24 11 9 4 33-20 31
WBA 25 11 7 7 30-18 29
Bristol City 24 10 7 7 24-16 27
Oxford 25 11 5 9 26-34 27
Aston Willa 24 10 6 8 34-21 26
Blackpool 25 9 8 8 24-20 26
Notts Co. 25 8 10 7 32-35 26
Hull City 25 8 9 8 28-42 25
Fulham 25 7 10 8 24-19 24
Bolton 24 9 6 9 26-24 24
Nottm. For. 25 9 6 10 27-32 24
Bristol Rov. 25 8 6 11 25-34 22
Orient 24 4 14 6 16-24 22
Southamptor 23 7 7 9 29-32 21
York City 25 8 5 12 29-35 21
Cardiff 24 6 8 10 24-32 20
Oldham 23 6 7 10 23-28 19
Portsmouth 25 5 9 11 19-32 19
Sheff. Wed. 25 5 8 12 27-38 18
Millvall 24 5 7 12 23-35 -17