Fréttablaðið - 29.12.2004, Síða 19
Nám erlendis Nú er tíminn til að huga að umsóknum í skóla erlendis ef til stendur að sækja
þangað nám næsta vetur. Misjafnt er hvenær skólar taka við umsóknum og því best að kanna það
sem fyrst hvenær umsóknarfrestur rennur út. Undirbúningur getur tekið smá tíma, því oft þarf að
safna gögnum auk þess sem í sumum tilfellum þarf að þreyta sérstakt tungumálapróf. [
Vinnst betur ef
herbergið er þrifalegt
Gísli Baldvinsson námsráðgjafi
hefur góð ráð á takteinum fyrir
þá sem vilja taka sig á í náminu
á nýrri önn.
Eflaust snúast áramótaheitin hjá
mörgum um að bæta árangur sinn í
skólanum á nýju ári, skipuleggja sig
enn betur en áður og koma sér upp
hentugum vinnuaðferðum. Gísli
Baldvinsson er námsráðgjafi við
Síðuskóla á Akureyri og hann lumar
á hollráðum um þessi efni. „Jákvæð
hugsun og vilji til að bæta sig eru
auðvitað lykilatriði,“ segir hann og
heldur áfram. „Námstækni felur í
sér að vinna skipulega, rifja reglu-
lega upp, glósa aðalatriði og nota
minnistækni en lífsstíll og aðstæður
eru gríðarlega mikilvægir þættir.
Heilsusamlegt líf svo sem nægur
svefn, hollt mataræði og hreyfing
hefur mikla þýðingu og svo vinnst
betur ef herbergið er hlýtt og þrifa-
legt. Allt hefur þetta áhrif á minni,
einbeitingu og árangur.“ Gísli hefur
sett leiðbeiningar um góðar náms-
venjur inn á netið á slóðinni
http://www.sida.akureyri.is en segir
þær ekki sína uppfinningu heldur
hafi hann lært þær í Kennara-
háskólanum og nefnir Önnu Sigurð-
ardóttur sem sinn meistara.
Við grípum niður í leiðbeiningarn-
ar:
Upprifjun er besta vörnin gegn
gleymsku:
1. Áætlaðu daglega tíma til upp-
rifjunar.
2. Líttu yfir efni dagsins og rifj-
aðu upp aðalatriðin. Dragðu
saman aðalatriðin í hverjum
kafla.
3. Farðu vandlega yfir glósur,
vinnubækur, teikningar, upp-
drætti, kort, spurningar og
svör.
4. Farðu reglulega yfir námsefnið
síðustu vikna/mánaða. Þú
kemst fljótlega að því að reglu-
leg upprifjun skilar árangri.
5. Sérhver nemandi getur bætt
námsárangur sinn með betri
vinnutækni.
6. Leitaðu aðstoðar kennara, for-
eldra eða námsráðgjafa ef þú
vilt bæta eða breyta námsvenj-
um þínum.
„Kennarinn getur leitt nemandann
að dyrum þekkingarinnar en nem-
andinn verður sjálfur að ganga í
gegnum þær.“ ■
]
Gísli leggur mikið upp úr reglulegri upprifjun á því efni sem búið er að fara yfir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
Tilboð á tölvuviðgerðarnámi
Eykur sjálfs-
traust
Næsta Dale Carnegie-námskeið
hefst miðvikudaginn 12. janúar.
Markmið Dale Carnegie-námskeiðs-
ins er að auka sjálfstraust, bæta
tjáningu, bæta mannleg samskipti,
efla leiðtogahæfileika, vinna bug á
streitu og læra að setja markmið og
ná þeim. Námskeiðið stendur í tólf
vikur og er nú í fyrsta skipti boðið
upp á námskeið sem hefjast klukk-
an 16 á daginn en einnig verða í
boði námskeið sem hefjast klukkan
18.
Nú verður einnig boðið upp á nám-
skeið fyrir unglinga á aldrinum 14
til 17 ára og 18 til 22 ára sem nefn-
ist Næsta kynslóð. Nánari upplýs-
ingar um þetta er að finna á vefsíð-
unni naestakynslod.is.
Hægt er að skrá sig á námskeiðin í
gegnum tölvupóstinn upplysing-
ar@dalecarnegie.is. Einnig eru fleiri
námskeið í boði sem hægt er að
sjá á vefsíðunni dalecarnegie.is.
Nú býðst áhugasömum námið á góðum
afslætti.
Nú fer að líða að því að Tölvutækniskóli Íslands
hafi starfað í fimm ár. Af því tilefni býður skól-
inn upp á Tölvuviðgerðarnámið og A+ nám á
tilboðsverði, eða aðeins 149.000 krónur. Tölvu-
viðgerðarnámið er sex spólur ásamt lokahelgi
og A+ námið er fjórar spólur ásamt lokahelgi.
Rétt verð á þessum pakka er 227.000 krónur
og því um talsverðan sparnað að ræða. Ein-
ungis eru tólf tilboðspakkar í boði og tilboðið
gildir til 31. desember eða þar til hámarks-
fjölda nemenda er náð.
Skráningar í námið fara fram á vefsíðu skólans,
tolvuvidgerdir.is. ■
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Leið til að bæta líðan
Á heimasíðu Mímis símenntunar er að
finna námskeiðið Kvíði í lífi og starfi.
Mímir símenntun hefur
sett námsefni inn á netið
sem hjálpar fólki að ná
tökum á kvíða.
Þeir sem þurfa að kljást við
kvíða í daglegu lífi geta far-
ið inn á heimasíðu Mímis sí-
menntunar mimir.is og farið
þar í gegnum námskeiðið
Kvíði í lífi og starfi. Tölvan
leiðir fólk í gegnum náms-
efnið sem á að hjálpa því að
skilja eigin tilfinningar og
erfiða líðan og í framhaldi
af því að finna úrræði til að
ná stjórn á kvíða og depurð.
Þarna er lýst aðstæðum
sem margir þekkja. Ein sag-
an er um Gunnar sem finnst
hann ekki ráða lengur við
það sem honum er falið að
gera í vinnunni eftir að
fyrirkomulagi þar var
breytt. Hann fær ekki leng-
ur þá gleði út úr vinnunni
sem hann fann áður, finnst
enginn virða það sem hann
gerir. Hann hefur engan
tíma til að stunda sund leng-
ur og andlega heilsan er á
niðurleið. Hvað er til ráða?
Tölvan bendir á leiðir og þar
er beitt hugrænni atferlis-
meðferð.
Námsefnið var sett upp
fyrir fáum vikum og að sögn
Aðalheiðar Sigurjónsdóttur
hjá Mími hafa viðbrögð við
því verið jákvæð. ■