Fréttablaðið - 08.01.2005, Qupperneq 4
HEILBRIGÐISMÁL Guðni Ágústsson,
ríflega sjötugur maður, sem er í
endurhæfingu á endurhæfinga-
deild Landspítala háskólasjúkra-
húss á Grensási var einn þeirra
sem var neitað um ferðaþjónustu
fyrir fatlaða, þegar sótt var um
fyrir hann.
„Ég skil nú ekki alveg hvað
þetta fólk er að hugsa sem setti
þessar reglur,“ sagði hann um þá
ákvörðun. „En það er harkalegt
fyrir aldrað fólk sem þarf nauð-
synlega á þessari þjónustu að
halda til að komast í endurhæfing-
una, að fá höfnun.“
Breyting á reglum um ferða-
þjónustu fatlaðra á vegum
Reykjavíkurborgar sem gerð var
um áramótin kveður á um að ein-
staklingar sem verða hreyfihaml-
aðir eftir 67 ára aldur geti ekki
fengið slíka þjónustu.
Guðni sagðist alls ekki hafa
verið fær um að aka þegar sótt
var um fyrir hann. Ekki væri
nema rúmur mánuður frá því að
hann hafi verið ósjálfbjarga í
hjólastól og ekki getað snúið sér
hjálparlaust við í rúminu. Hann
hefði hlotið bata í endurhæfing-
unni en þyrfti nauðsynlega að
mæta á göngudeild til að ná sér
betur. Hann kvaðst vera heppnari
er margir aðrir, því dóttir sín sæi
um að aka sér á Grensás eftir að
reglurnar tóku gildi. Hann þyrfti
þó að bíða þar í um tvær klukku-
stundir þar til hún gæti sótt hann
aftur. - jss
4 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Ferðaþjónusta fyrir fatlaða:
Harkalegt að fá höfnun
Allir komnir heim
Allir sem þurftu að rýma hús sín í Bolungarvík hafa fengið að snúa heim.
Hættuástandi var aflétt á hádegi í gær. Íbúi við Dísarland var alsæll með að
komast heim en er ósáttur við að hafa ekki fengið ásættanlegt verðtilboð í húsið.
SNJÓFLÓÐAHÆTTA 26 íbúar við Trað-
arland, Dísarland, Geirsstaði og
Tröð fengu að fara heim til sín
eftir að hættuástandi var aflétt
í Bolungarvík í
hádeginu í gær.
Einar Pétursson
bæjarstjóri segir
að enn sé viðbún-
aðarstig í gangi
og að grannt
verði fylgst með
veðurspám. 66
íbúar fengu að
fara til síns
heima í fyrradag.
Einar segir
norðaustanátt í
fyrrinótt hafa
blásið mestu af
snjónum úr fjallinu. Hann segir
mikinn létti vera bæði hjá íbúum
og bæjaryfirvöldum. Í deiglunni
sé að gera snjóflóðavarnargarð í
fjallinu en ekki sé ákveðið
hvenær framkvæmdin hefjist.
Margrét Gunnarsdóttir, íbúi
við Dísarland, var alsæl yfir því
að komast loksins heim. Hún var
ein þeirra sem ekki vildu yfir-
gefa heimili sín í fyrstu þegar
þurfti að rýma hús við Dísarland
á mánudag. „Mér fannst engin
ástæða til að fara þar sem skóf
úr fjallinu. Eins voru þetta mót-
mæli vegna seinagangs í okkar
málum. Ekki er enn búið að
kaupa af okkur húsin eins og til
stóð,“ segir Margrét. Hún segir
bæjarsjóð hafa stefnt íbúum
Dísarlands þar sem þeir vildu
ekki selja sjóðnum húsin á því
verði sem þeim var boðið. En
húsin eru á því svæði sem varn-
argarðurinn á að standa.
Margrét er skrifstofumaður á
bæjarskrifstofunni og segir það
ekki fara mjög vel með mála-
ferlunum. Hún hefur áhuga á að
búa áfram í Bolungarvík þar sem
hún hefur búið mestalla tíð. Þar
hafa hún og maðurinn hennar
vinnu og engin ástæða sé til að
flytja annað. „Verðið verður að
vera boðlegt svo ég og fjölskylda
mín getum eignast annað heim-
ili,“ segir Margrét. Hún segist
geta þurft að rýma húsið aftur í
vetur svo lengi sem enn sé snjór.
hrs@frettabladid.is
Hjálparstarf SÞ í Asíu:
Norðmaður
stýrir
OSLÓ, AP Norðmaðurinn Jan Egil
Mosand mun stjórna björgunarað-
gerðum í Indónesíu og Taílandi
fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna.
Mosand 64 ára gamall er reyndur
hjálparstarfsmaður og var, þar til
fyrir skömmu, við störf í Zambíu
fyrir Hjálparstofnun norsku kirkj-
unnar.
Mosand er núna í Banda Achech
í Indónesíu sem varð einna verst úti
í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni á
annan í jólum. Talið er að um
hundrað þúsund Indónesar látið
lífið hamförunum en alls hafa rúm-
lega 140 þúsund dáið. Mosand fer til
Taílands innan nokkurra daga. ■
Neyðarvakt
utanríkisráðuneytis:
Leituðu 227
Íslendinga
FLÓÐBYLGJAN Neyðarvakt utanríkis-
ráðuneytisins vegna flóðanna við
Indlandshaf lokaði mánudaginn 3.
janúar. Vaktin var opin allan sólar-
hringinn frá 26. desember og störf-
uðu að jafnaði fimm starfsmenn
ráðuneytisins að verkefninu þessa
daga.
Alls var tilkynnt um 227 Íslend-
inga sem gætu hafa verið á svæðinu
þegar hamfarirnar áttu sér stað.
Listinn styttist hratt og eftir tvo
daga var hann kominn niður í tíu
manns en vísbendingar voru um að
þeir væru ekki á hættusvæði. Hinn
fimmta janúar bárust fregnir af
þeim síðasta á listanum þegar hann
hafði samband við ættingja sína
heill á húfi. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
,,Verðið
verður að
vera boð-
legt svo ég
og fjöl-
skylda mín
getum
eignast
annað
heimili
KRISTNITAKAN Í TÖLVU
15 íslensk fyrirtæki sendu verk inn í nor-
rænu Möbius keppnina. 27 verk bárust frá
Finnlandi og 13 frá löndum Skandinavíu.
Gagarín:
Tilnefnt til
verðlauna
MARGMIÐLUN Verkið „Hvernig verð-
ur þjóð til?“ sem Gagarín vann
fyrir Þjóðminjasafn Íslands er til-
nefnt til norrænu Möbius marg-
miðlunarverðlauna.
Pia Reunala, framleiðandi Prix
Möbius Nordica, segir verkið eitt
af tíu sem valin hafi verið úr hópi
þeirra 55 sem bárust í keppnina,
þar af hafi fimmtán verið frá
Íslandi.
Margmiðlunarverk Gagarín er
tilnefnt í flokknum menningararf-
leifð og listir og kynna þeir útvöldu
verk sín í Helsinki 29. janúar. Vinn-
ingshafinn verður þá valinn. - gag
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
113,8162
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 07.01.2005
GENGIÐ
Bandaríkjadalur 62,89 63,19
Sterlingspund 118,41 118,99
Evra 83,23 83,69
Dönsk króna 11,184 11,25
Norsk króna 10,1 10,16
Sænsk króna 9,205 9,259
Japanskt jen 0,6022 0,6058
SDR 96 96,58
LÍKAMSÁRÁS Í EYJUM Eitt högg
sem skyldi eftir skurð á hægri
augabrún urðu endalok ósættis
tveggja manna á leið á skemmti-
stað í Vestmannaeyjum í fyrri-
nótt. Mennirnir þekkjast vel.
Lögreglan talaði við mennina og
kærði sá sem fékk höggið. Málið
er í rannsókn.
EKIÐ Á UMFERÐARLJÓS Jeppi ók
niður umferðarljós á gatnamót-
um Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar um eitt leytið í
gær. Umferðarljósavitinn bogn-
aði yfir götuna og teppti umferð.
Lögreglan kallaði til viðgerðar-
menn.
TRAÐARLAND OG DÍSARLAND
Ekki liggur fyrir hvenær hafist verður handa við viðgerð snjóflóðavarnargarðs fyrir ofan Bolungarvík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
AL
D
U
R
SM
ÁR
I
Júlíus Hafstein:
Sendiherra í
viðskiptum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Júlíus Hafstein,
fyrrverandi borgarfulltrúi hóf störf
í utanríkisráðu-
neytinu um ára-
mótin. Júlíus
mun hafa sendi-
herratign en
starfa sem yfir-
maður við-
skiptaþjónustu
utanríkisráðu-
neytisins. Verð-
ur hún aðskilin
frá viðskipta-
skrifstofu ráðu-
neytisins og einbeitir sér að útrás
íslensks atvinnulífs.
Júlíus hefur undanfarið starfað
að verkefnum á borð við Heima-
stjórnarafmælið og Kristnihátíð
fyrir stjórnvöld. Júlíus var um ára-
bil borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann hefur verslunarskóla- og
íþróttakennarapróf. - ás
JÚLÍUS HAFSTEIN
Byrjaður í utanríkis-
ráðuneytinu.
HAFNAÐ
Guðni Ágústsson var einn þeirra sem sótt
var um ferðaþjónustu fyrir, enda hefur
hann ekki getað ekið bíl. Honum var hafn-
að. Með honum á myndinni er Ellen Þór-
arinsdóttir hjúkrunarfræðingur á Grensási.