Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 6
6 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Jóhannes í Bónus:
Stjórnarfundur ákveður
um opinbera rannsókn
VIÐSKIPTI Ákveðið verður á stjórn-
arfundi hjá Baugi Group á næst-
unni hvort óskað verður eftir
opinberri rannsókn á leka um
framvindu rannsóknar og endurá-
lagningu skatta á Baug. Jóhannes
Jónsson, stjórnarformaður
Gaums, telur undarlegt að mál-
efni Baugs séu gerð opinber en
ekki málefni annarra fyrirtækja.
Baugur hefur fengið endurá-
lagningu upp á 464 milljónir
króna vegna tekjuáranna 1998-
2002 en ætlar
ekki að una niður-
stöðunni. Félagið
hefur frest fram í
janúarlok.
„Þú færð ekk-
ert meiri upplýs-
ingar en aðrir
fjölmiðlar. Þetta
er bara bréf sem
við fengum og
við göngum frá
því á okkar hátt.
Við þurfum ekki að tilkynna
neitt. Þetta er einkahlutafélag
sem fær bréf frá opinberri
stofnun og við þurfum ekki einu
sinni að segja frá því. Við vinn-
um úr því eins og okkur hentar,“
segir Jóhannes.
Ágreiningur er milli ríkis-
skattstjóra og KPMG, endur-
skoðenda Baugs, um það hvernig
standa skuli að endurskoðun fyr-
irtækisins. Þess vegna er endur-
álagningin til komin. - ghs
JAKARTA, AP Opinberar tilkynningar
um fjölda látinna í Indónesíu eru
ekki líklegar til að vera nákvæmar
og stjórnvöld hafa þurft að meta
mannfallið gróflega. í sumum til-
fellum beita þau aðferðum á borð
við það að margfalda fjölda líka í
einni fjöldagröf með heildarfjölda
grafa. Í sumum þorpum er íbúa-
fjöldinn áætlaður, eftirlifendur
taldir og gert ráð fyrir að aðrir
hafi farist.
Víða eru fæðingarvottorð eða
manntöl af skornum skammti sem
gerir það enn erfiðara en ella að
meta hversu margir hafa látist, en
hjálparstarfsmenn segja að það sé
brýnt að tapa sér ekki í talnareikn-
ingum heldur beina athyglinni að
þeim sem finnast á lífi.
Sífellt er tilkynnt um fleira fólk
sem er saknað og því lengri tími
sem líður því minni líkur eru á að
það finnist á lífi. Í Indlandi er
flestra saknað á eyjunum Anda-
man og Nicobar en aðstæður þar
eru svo erfiðar að það tekur leitar-
menn heilan dag að leita á svæði
með tveggja kílómetra radíus. ■
Síbrotamaður:
Í íbúð við
leikskóla
LÖGREGLUMÁL Síbrotamaður var
handtekinn í Keflavík í gær.
Lögreglan hafði leitað mannsins í
hálfan mánuð.
Maðurinn hafði ekki sinnt boðun-
um lögreglu um að mæta í skýrslu-
töku. Samkvæmt vef lögreglunnar
hafði hún orðið vör við manninn í
félagslegri íbúð í Keflavík þar sem
fíkniefnaneytendur hafa vanið
komur sínar. Maðurinn reyndi að
komast undan lögreglu með því að
stökkva fram af svölum íbúðarinn-
ar. Lögreglumenn fundu hann í
felum í leiktækjum nærliggjandi
leikskóla. Maðurinn var færður í
fangaklefa. - gag
Big Food Group:
Samdráttur
í desember
VIÐSKIPTI Sala Big Food Group
sem Baugur er að kaupa dróst
saman um 3.5 prósent í desem-
ber. Breskir fjölmiðlar segja
samdráttinn setja þrýsting á
hluthafa um að samþykkja yfir-
tökutilboð Baugs. Tölurnar koma
forsvarsmönnum Baugs ekki á
óvart, enda nýjar upplýsingar
lagðar fram í samningaferlinu í
desember.
Tesco sem er stærsti við-
skiptavinur Bakkavarar hefur
hins vegar verið að auka sína
markaðshlutdeild. Tesco hefur
verið að auka hlutdeild sína í
hverju uppgjörinu á fætur öðru.
- hh
■ LÖGRELGUFRÉTTIR
Dómnefndarverðlaunin í Cannes
Valin besta erlenda myndin í Bretlandi
Myndin sem Quentin Tarantino elskar!
HHHHH The Guardian
HHHHH Daily Telegraph
HHHH The Times
KONUR RÁÐAST Á KONU Fjórar
konur ruddust inn á heimili í
Grindavík og börðu húsmóðurina
og veittu henni áverka á höfuð.
Hún var ein heima með börnum
sínum þegar konurnar réðust á
hana. Konurnar þekkjast og sam-
kvæmt vef lögreglunnar virðist
sem tilefni árásarinnar hafi verið
deila um afnot á barnarúmi.
ÁFENGISDAUÐUR VIÐ BANKA
Maður svaf áfengissvefni fyrir
utan Sparisjóðinn í Keflavík að-
faranótt föstudags. Lögreglan
fékk tilkynningu um manninn,
sótti hann og kom honum heim.
Verður Chelsea enskur
meistari í fótbolta?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viðhefur Impregilo slæma
starfshætti á Íslandi?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
38%
62%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt niður-
stöðum rannsókna eru um 20 pró-
sent íslenskra barna, níu til fimmt-
án ára, yfir kjörþyngd. Þetta segir
Jórlaug Heimisdóttir verkefnis-
stjóri á Lýðheilsustöð.
Lýðheilsustöð er að ýta úr vör
þróunarverkefni í samvinnu við
sveitarfélög í landinu til að bregð-
ast við þeirri þróun að börn og ung-
menni á Íslandi eru að þyngjast.
Ofþyngd barna og unglinga er vax-
andi vandamál í vestrænum lönd-
um og sýna tölur að þar er Ísland
síður en svo undanskilið.
Jórunn sagði markmið verkefn-
isins vera að sporna við þróuninni
með því að leggja áherslu á aukna
hreyfingu og bæta næringu barna
og unglinga.
„Við byrjum á
að beita okkur í
skólamötuneytun-
um og fá þau til að
vinna samkvæmt
l e i ð b e i n i n g u m
manneldisráðs,“
sagði Jórlaug.
„Síðan munum við
líta til hreyfingar
tengdri skólunum.
Við hyggjumst
reyna að koma
þessari stefnu inn í
skólakerfið. Þá munum við huga að
útivistarsvæðum, íþróttasvæðum
svo og göngu- og hjólastígum í ná-
grenni skóla og heimilia. Við viljum
fá sveitarfélögin til samstarfs, því
ábyrgðin er ekki síst þeirra.“ - jss
Offituverkefni Lýðheilsustöðvar:
Fimmtungur
barna of feitur
JÓRLAUG
HEIMISDÓTTIR
verkefnisstjóri á
Lýðheilsustöð.
JÓHANNES
JÓNSSON
Vill ekki gefa upp-
lýsingar um end-
urálagningu á
Baug Group.
ÓGIRT
Ágreiningur hefur verið um legu miltis-
brandsgirðingar á Sjónarhóli.
Sjónarhóll:
Greinir á um
staðsetningu
MILTISBRANDUR Vegna fréttar í
blaðinu í gær um ágreining vegna
girðingar á miltisbrandssýkta
svæðinu á jörðinni Sjónarhóli á
Vatnsleysuströnd skal áréttað að
jarðeigendur hafa ekki hafnað
girðingunni sem slíkri. Viðræður
þeirra og dýralæknisyfirvalda
hafa snúist um hvar girðingin
skuli sett niður á jörðinni og af
þeim sökum hafa girðingafram-
kvæmdir tafist. - jss
LEITAÐ Í RÚSTUNUM
Hjálparsveitir bera lík úr húsarústum í Banda Aceh á indónesísku eyjunni Súmötru í gær.
Þó að opinberar tölur segi að rúmlega 140 þúsund hafi látið lífið í hörmungunum er það
byggt á gróflegu mati stjórnvalda.
Flóðasvæðin í Asíu:
Illgerlegt að
meta mannfallið