Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 8
8 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Verksmiðja Mjallar-Friggjar í Kópavogi:
Afgreiðslu starfs-
leyfis frestað
IÐNAÐUR Ákveðið var að fresta af-
greiðslu starfsleyfis verksmiðju
Mjallar-Friggjar fram til 13.
janúar á fundi bæjarráðs Kópa-
vogs 30. desember síðastliðinn.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
mætir þá á fund bæjarráðs og
farið verður yfir stöðu mála.
Fyrirtækið hefur flutt starfsemi
sína frá Reykjavík til Kópavogs,
en hefur ekki heimild til að vinna
úr klórgasi á nýja staðnum.
Guðmundur H. Einarsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Hafnarfjarðar- og Kópa-
vogssvæðis, segir ekki vitað til
þess að hjá Mjöll-Frigg í Kópa-
vogi sé unnið með, eða geymt
klórgas og því ekki ástæða fyrir
heilbrigðiseftirlitið að grípa til að-
gerða vegna skorts fyrirtækisins
á starfsleyfi. „Málið snýst um
framleiðslu úr klórgasi sem er
óheimil án leyfis, en í sama húsi
er líka venjuleg heildverslun,“
segir hann og bætir við að ekkert
verði aðhafst nema fregnir berist
af því að nýjar birgðir af klórgasi
hafi borist á svæðið eða aðrar vís-
bendingar um óheimila vinnslu.
„Það var bara óheppilegt að menn
fóru af stað án þess að vera með
sína hluti á hreinu, en það skrifast
bara á fortíðina.“ - óká
Kvenfangar í verri
stöðu en karlar
Konur í fangelsum á Íslandi eru verr staddar en karlar samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna. Margrét Sæmundsdóttir hjá Fangelsismálastofnun segir að kynjamisrétti sé á vist-
unarmöguleikum sem verði að bæta úr til dæmis með samnýtingu fangelsa fyrir bæði kyn.
Sundabraut:
Hefja vinnu hið fyrsta
FANGELSISMÁL „Konur í fangelsum
á Íslandi eru verr settar en
karlfangar,“ segir Margrét Sæ-
mundsdóttur deildarsérfræðing-
ur hjá Fangelsismálastofnun rík-
isins. Í grein sem hún ritar í
Verndarblaðið, sem fjallar um af-
brot, fanga og fangelsismál, fjall-
ar Margrét um félagslega stöðu
kvenfanga á Íslandi .
Á hverju ári sitja um tíu
til fimmtán konur í fangelsi á
Íslandi, sem er um fimm til sex
prósent af heildarfjölda fanga.
Flestar sitja þær inni fyrir þjófn-
að og skjalafals en undanfarin ár
hafa fíkniefnabrot færst í aukana.
í greininni leggur Margrét út af
árskýrslum Fangelsismálastofn-
unar og segir niðurstöður þeirra
benda til að konur í íslenskum
fangelsum séu bæði félagslega og
heilsufarslega verr staddar en
karlfangar. Konur í fangelsum
eigi yfirleitt við meiri vímuefna-
vanda að stríða en karlar og með-
ferðarsaga þeirra er lengri, marg-
ar þjást af andlegum sjúkdómum
eða hafa misst forræði yfir börn-
um sínum, en um 70 prósent kven-
fanga eru mæður. Þá þjáist helm-
ingur kvenna í fangelsi af þung-
lyndi sem er tvöfalt hærra hlut-
fall en hjá körlum.
Á Íslandi eru fimm afplánunar-
fangelsi en konur geta aðeins
tekið út refsingu í Kópavogsfang-
elsi. Þar eru minni möguleikar til
náms, starfs og tómstundariðk-
unar en til dæmis á Kvíabryggju
og Litla-Hrauni sem Margrét
segir að sé hreint kynjamisrétti.
Hún leggur til að fangelsin verði
samnýtt fyrir bæði kynin þannig
að deildir verði aðskildar en nám
og starf sameiginlegt og segir að
reynslan af því að vista bæði kyn
á sama stað sé góð.
Að sögn Margrétar er erfitt að
skýra hvers vegna konur í fang-
elsum séu mun færri en karlar.
„Það eru margar tilgátur uppi og
sjálfsagt er orsakasamhengi á
milli þeirra. Ein hugmyndin er til
dæmis sú að konur séu aldar upp
við meiri ábyrgð og brjóti því
síður af sér. Samkvæmt annarri
kenningu hefur dómsvaldið til-
hneigingu til að sjá málin þannig
að konur sem fremja afbrot eigi
við vandamál að stríða og það beri
fyrst og fremst að aðstoða þær, en
karlmenn sem fremja afbrot séu
til vandræða og þeim þurfi að
refsa.“ bergsteinn@frettabladid.is
UMFERÐ Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins leggja til að ákveðið
verði að fara innri leið við val á legu
Sundabrautar, með þeim breyting-
um sem Skipulagsstofnun leggur til.
Þá var því beint til skipulagsnefnd-
ar Reykjavíkur að hefja nú þegar
vinnu við breytingu á aðalskipulagi
í samræmi vð þessa tillögu.
Innri leið Sundabrautar gerir ráð
fyrir lágbrú og með breytingum
Skipulagsstofnunar er gert ráð
fyrir að hún muni kosta 8,2 millj-
arða. Aðalskipulag gerir ráð fyrir
ytri leið, eða hábrú sem rís hæst
5,5 metra og á að kosta um 11,7
milljarða.
Skipulagsstofnun telur lágbrúna
betri kost en hábrú, með tilliti til
áhrifa á samgöngur og á nýtingu
hafnarsvæða Sundahafnar. Þá er
talið að hábrú yrði lokuð nokkra
daga á ári vegna veðurs.
Samþykkt var að vísa tillögu
sjálfstæðismanna til borgarráðs að
tillögu Steinunnar Valdísar Óskars-
dóttur borgarstjóra. Þá sagði hún að
þrjár kærur hefðu borist vegna úr-
skurðar Skipulagsstofnunar um mat
á umhverfisáhrifum og að ákvörðun
um legu Sundabrautar yrði ekki
tekin, fyrr en frestur umhverfisráð-
herra til fella úrskurð vegna þeirra
rennur út í lok febrúar.
- ss
Aðalskipaskrá:
Færri skip
og stærri
SJÁVARÚTVEGUR Skipum á aðalskipa-
skrá hefur fækkað um 21 frá því í
upphafi nýliðins árs, að því er
fram kemur á vef Siglingastofn-
unar.
1. janúar voru samtals á skrá
2.344 skip. „Heildarbrúttótonna-
tala skipastólsins hækkaði hins
vegar um tæplega 5.000 brúttó-
tonn frá árinu áður,“ segir þar,
en á skrá eru nú samtals 1.135
þilfarsskip með brúttótonnatölu
upp á 230.881. „Opnir bátar voru
samtals 1.209 og brúttótonnatala
þeirra var 7.199. Á þurrleiguskrá
er eitt skip, Keilir, samtals
4.341,99 brúttótonn.“ - óká
1Fyrir hvaða stórmót er hand-boltalandsliðið nú að æfa?
2Hvaða starfsstétt samþykkti nýgerðankjarasamning á fimmtudaginn?
3Hvaða bílategund var mest seld á síð-asta ári?
SVÖRIN ERU Á BLS. 46
VEISTU SVARIÐ?
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
stór
humar
ath opið laugardaga
10-14.30
MJÖLL-FRIGG VIÐ VESTURVÖR
Starfsemi Mjallar-Friggjar flutti frá Fosshálsi
í Reykjavík á Kársnes í Kópavogi í kjölfar
eigendaskipta í sumar. Starfsleyfisumsókn
fyrirtækisins var vísað frá á fundi heilbrigð-
isnefndar Kópavogs í nóvemberlok vegna
skorts á gögnum frá fyrirtækinu.
INNRI LEIÐ SUNDABRAUTAR
Skipulagsstofnun leggur til að farin verði innri leið við lagningu Sundabrautar með
nokkrum breytingum.
MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR
Um 70 prósent kvenfanga eru mæður og helmingur kvenna í fangelsi þjáist af þunglyndi
sem er tvöfalt hærra hlutfall en hjá körlum.