Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 14

Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 14
14 Vegna náttúruhamfara í Indlandshafi hefur verið þörf á gífurlegu hjálpar- starfi. Íslendingar hafa ekki dregist undan að leggja sitt af mörkum og hafa nú safnast um 100 milljónir, fyrir utan þær 150 milljónir sem ríkisstjórn- in hefur ákveðið að veita í aðstoð. Ís- lendingar hafa verið einna duglegastir að styrkja söfnun Rauða krossins Hvað er Rauði krossinn búinn að safna miklu? Við erum búin að safna 95 milljónum króna. Hvað er stefnt á að safna miklu? Við stefnum ekki að neinu. Þetta er meira en við gátum gert okkur í hugar- lund að gæti safnast hér á Íslandi fyrir alþjóðlegt hjálparstarf og fyrir það erum við mjög þakklát. Hvað verður gert við peningana? Á fyrstu dögum hjálparstarfsins studd- um við björgunarstarfið. Nú á síðari dögum hafa fjármunirnir farið í að styðja fólk sem tapaði öllu sínu, til að það geti komið undir sig fótunum á ný. Sérstök áhersla hefur verið lögð á fjölskyldur sem voru fátækar fyrir. Okkar hlutverk er fyrst og fremst að styðja heimamenn til að koma undir sig fótunum. Ef litið er til landa á þessu svæði höfum við einbeitt okkur meira að Indónesíu og Srí Lanka og þar eru sendifulltrúar okkar, fjórir á Indónesíu og einn á Srí Lanka. Sjálf komum við að því að dreifa stuðningnum, en við vinnum í gegnum Alþjóða-Rauða krossinn. ÞÓRIR GUÐMUNDSSON Áhersla á fátæk- ar fjölskyldur HJÁLPARSTARF RAUÐA KROSSINS SPURT & SVARAÐ Óánægja verkalýðshreyfingarinnar með tregðu Impregilo til að fara eftir leikregl- um samfélagsins og greiða erlendum starfsmönnum í samræmi við íslenskan markað og kjarasamninga hefur blossað upp. Að þessu sinni er það vegna um- sóknar Impregilo um atvinnuleyfi fyrir allt að 300 Kínverja og upplýsinga sem benda til að fyrirtækið hafi notfært sér skattasmugur á Íslandi og í Portúgal til að hlunnfara starfsmenn sína. Verka- lýðshreyfingin gagnrýnir Impregilo harkalega. Hvað hefur gerst? Hinn harði alþjóðlegi samkeppnisheim- ur er kominn til Íslands. Svo virðist að svo mikið hafi legið á að hefja fram- kvæmdir við Kárahnjúka að orkan fór öll í umhverfismálin. Allt annað gleymd- ist. Stjórnvöld eru í klemmu, þau vita ekki hvernig þau eiga að bregðast við. Ósamstaðan kemur verktakafyrirtækjun- um í koll. Hvað er í gangi? Tveir heimar rekast á. Alþjóðlega stór- fyrirtækið Impregilo vinnur á öðrum grundvelli en verktakafyrirtækin í land- inu. Íslendingunum finnst Ítalirnir svífast einskis og nýta sér allar smugur sem þeir finna. Íslendingar eru vanir allt öðr- um og mýkri heimi. Verktakafyrirtækin standa ekki saman en flestöll hafa þau þó tíðkað yfirborganir á meðan Ítalirnir greiða aðeins eftir töxtum. Margir telja að Kínverjarnir séu ráðnir vegna þess að þeir séu meðfærilegri en Íslendingar. Hvað gera stjórnvöld? Ef þau láta ekki eftir Ítölunum þarf íslenska ríkið að greiða sektir vegna álversins í Reyðarfirði. Stjórnvöld og stjórnendur Landsvirkjunar eru mátt- vana. Þau vilja halda friði á vinnumark- aði og í þjóðfélaginu öllu en vita ekki hvernig þau eiga að bregðast við. Hvaða áhrif mun þetta hafa? Átökin harðna og verktakamarkaðurinn breytist. Til að vera samkeppnisfær vilja innlendu fyrirtækin borga taxtalaun og flytja inn erlent vinnuafl. Það kemur frá Mongólíu, Pakistan, Portúgal og fleiri löndum. Íslendingar, verktakar, stjórn- völd og verkalýðshreyfingar þurfa að læra sína lexíu. Hinn harði heimur kominn til Íslands FBL GREINING: ÓÁNÆGJAN MEÐ IMPREGILO 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR Allar líkur eru á að Mahmoud Abbas verði eftirmaður Yassers Arafat en forsetakosn- ingar fara fram í Palest- ínu á morgun. Nái hann kjöri bíður hans erfitt verk sem forvera hans mistókst. Palestínumenn ganga til kosn- inga á morgun og kjósa sér for- seta. Nær öruggt er talið að Mahmoud Abbas muni bera ör- uggan sigur úr býtum. Mikið verk bíður hans þó við að sam- eina Palestínumenn og byggja upp traust hjá Ísraelum og Bandaríkjamönnum í garð þeirra. Kynlegar kosningar Þegar Yasser Arafat andaðist á sóttarsæng í nóvember síðastliðn- um skapaðist ákveðið tómarúm á meðal palestínskra ráðamanna því Arafat hafði engan eftirmann útnefnt og ekki lá fyrir hvernig skipta bæri völdum að honum gengnum. Nú tæpum tveimur mánuðum síðar kjósa Palestínu- menn nýjan forseta heimastjórn- ar sinnar en ekki hefur verið kos- ið um embættið síðan 1996. Íbúar Vesturbakkans, Gaza- strandarinnar og Austur-Jerúsa- lem hafa einir kosningarétt en hvorki Palestínumenn með ísra- elskan ríkisborgararétt né flótta- menn geta greitt atkvæði. 1,1 milljón kjósenda hefur skráð sig til þátttöku, um sextíu prósent at- kvæðisbærra manna. Eitt þúsund kjörstaðir hafa verið settir upp og hundruð erlendra kosninga- eftirlitsmanna fylgjast með framkvæmd kjörfundar. Talsverðar deilur hafa verið um umgjörð kosninganna. Fast- lega er búist við að þorri íbúa Austur-Jerúsalem muni snið- ganga þær þar sem ísraelsk yfir- völd hafa bannað þeim að kjósa í sjálfri borginni. Í staðinn verða þeir að ferðast talsverðan spöl og greiða atkvæði utan kjörstaðar. Samtök á borð við Hamas hafa einnig ákveðið að hunsa kjör- fundinn. Frambjóðendur hafa undan- farna daga kynnt sig og stefnu- mál sín en baráttan hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig. Í gær handtók ísraelska lögreglan Mustafa Barghouti þegar hann var á leið til bænahalds í al Aqsa moskunni í Jerúsalem. Honum var sleppt stuttu síðar. Abbas hætti við svipaða för þar sem ísraelsk yfirvöld neituðu að hleypa honum á svæðið nema í fylgd ísraelskra hermanna, honum til verndar að sögn Ísra- elsmanna. Erfitt verk framundan Mahmoud Abbas er frambjóðandi Fatah, stærstu fylkingarinnar innan Frelsissamtaka Palestínu- manna PLO. Hann var fyrsti for- sætisráðherra palestínsku heima- stjórnarinnar en lét af embætti árið 2003 vegna samstarfsörðug- leika við Arafat. Hann þykir hóf- samur og hefur hvatt til þess að Palestínumenn leggi niður vopn. Því er ekki að undra að Abbas njóti velvildar ísraelskra og bandarískra ráðamanna enda binda menn vonir við að nýtt skeið sé að hefjast í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Það er óhugnanleg staðreynd að könnun sem The Economist segir frá sýnir að tveir af hverjum þremur Palestínumönnum telja að hryðjuverk og vopnuð barátta hafi skilað þeim meiri árangri en samn- ingaleiðin. Því kemur það ef til vill á óvart að kosningaspár sýna að yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hyggst greiða þessum hófsama manni atkvæði sitt á morgun. Skýringin liggur að hluta til í kosn- ingabaráttunni en þar hefur Abbas boðað herskárri stefnu en hann er vanur. Þannig hefur hann sett rétt flóttamanna til að snúa aftur á odd- inn, svo og tafarlausa lausn palest- ínskra fanga úr ísraelskum fang- elsum. Síðan má líka gera ráð fyrir að flestir Palestínumenn séu einfaldlega orðnir langþreyttir á ófriðnum við Ísraela og óeining- unni innan þeirra eigin raða. Þeir telja að Abbas sé maðurinn sem geti sameinað þá og náð fram friði. Eigi Abbas að takast þetta er lykilatriði að hann beri öruggan sigur úr býtum svo hann fái af- gerandi umboð til að leiða þjóð sína til friðar. Klofningurinn á meðal Palestínumanna er veru- legt vandamál og verði sigur Abbas tæpur verður staða hans veik gagnvart órólegri fylking- unum innan PLO og þar með gagnvart viðsemjendum sínum. Stóra spurningin er hvenær og undir hvaða kringumstæðum friðarumleitanir geta hafist á ný. Vítahringurinn er gamalkunnur, Ísraelar neita að lyfta litlafingri fyrr en hryðjuverk hafi verið stöðvuð, en Palestínumenn segj- ast þá og því aðeins leggja niður vopn þegar Ísraelar sýna meiri samstarfsvilja. Stjórnmálaskýrendur telja að Abbas fái sína eitt hundrað hveitibrauðsdaga. Vonandi tekst honum að nýta þá vel. ■ Íbúðirnar eru leiguíbúðir fyrir 60 ára og eldri og íbúarnir njóta öryggis og þjónustu frá Hrafnistu í Hafnarfirði GLÆSILEGAR ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR Þjónustuíbúðir fyrir 60 ára og eldri við Hrafnistu Hafnarfirði Við Hrafnistu Hafnarfirði að Hraunvangi 1-3 eru glæsilegar íbúðir fyrir 60 ára og eldri. Um er að ræða 64 leiguíbúðir auk bílgeymslu í tveim fjölbýlishúsum sem eru sérhannaðar með þarfir eldri borgara í huga, þannig að þeir geti verið sem lengst á eigin vegum og losni við viðhald húsnæðisins. Húsin standa á fallegum stað hjá Hrafnistu og njóta íbúarnir öryggis frá heimilinu, auk þess sem hægt er að fá keypta þaðan ýmis konar þjónustu s.s. aðgang að neyðarhnöppum, mat, aðgang að félagsstarfi, sund ,leikfimi, aðgang að púttvelli, hár og fótsnyrtingu o.fl..Íbúðirnar eru boðnar til leigu, auk leigu er greitt fyrir 30% afnotarétt og er sú greiðsla verðtryggð og fæst endurgreidd við flutning skv. nánari reglum. Leigjendur geta fengið húsaleigubætur skv. gildandi reglum. Vorum að fá í endurleigu tveggja herbergja íbúð á annarri hæð, þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð og 65 fm. íbúð( án sameignar, minnsta íbúðartegundin) á þriðju hæð. Allar þessar íbúðir eru með glæsilegu útsýni. Þeir sem vilja láta skrá sig á biðlista eftir íbúð eða vilja fá frekari upplýsingar vegna íbúðanna hafi samband við skrifstofu Sjómannadagsráðs alla virka daga frá kl. 8-16 í síma 585-9301/585-9500, fax 585- 9308 , skoði vef Hrafnistu, www.hrafnista.is eða sendi E-mail á netfangið asgeir@hrafnista.is VIÐ KÁRAHNJÚKA Það lá svo á að hefja framkvæmdir við Kárahnjúka að orkan fór öll í umhverfismálin. Allt annað gleymdist. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H RÖ N N MAHMOUD ABBAS Í NABLUS Abbas hefur tekist að sigla á milli skers og báru í baráttunni þannig að hófsamir og her- skáir Palestínumenn hafa sameinast um hann. FRÉTTAB LAÐ IÐ /AP SVEINN GUÐMARSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝING KOSNINGAR Í PALESTÍNU Barátta Mahmoud Abbas er rétt að byrja

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.