Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.01.2005, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 08.01.2005, Qupperneq 18
Á síðari hluta 20. aldar óx þeirri kenningu fiskur um hrygg, að hagur hlutabréfaeigenda í stórfyrirtækj- um yrði best og varanlegast tryggð- ur með því að tengja laun stjórnend- anna við fjárhagslegan árangur fyrirtækisins með því að gefa þeim kost á kaupauka í formi hlutabréfa í fyrirtækinu. Þeir mundu þá ein- beita sér að því að haga stjórn fyrir- tækisins með þeim hætti að verð- mæti hlutabréfanna ykist jafnt og þétt og allir græddu: hlutabréfaeig- endur, þjóðarbúið, og ekki síst starfsmenn, sem gætu gert kröfu til hlutdeildar í ofurgróða hinna vel reknu fyrirtækja En eitthvað fór úrskeiðis. Á sama tíma og kaupmáttur launa iðn- aðarverkafólks stóð í stað í Banda- ríkjunum, nítugfölduðust laun stjórnenda fyrirtækjanna. Og á slaka tímabilinu árin 2000-2003 kom í ljós, að meðan hlutabréf fyrirtækj- anna 500 í S&P vísitölunni lækkuðu að verðgildi milli 9% og 22% höfðu laun og fríðindi stjórnenda stór- fyrirtækja raunverulega hækkað að mun. Engin fylgni reyndist milli umbunar og árangurs stjórnenda fyrirtækjanna! Grundvallarskyssan að baki þessari þróun reyndist vera sú að gefa stjórnendum kost á svo og svo mikilli umbun í formi hlutabréfa ef tilteknu marki væri náð um bættan hag fyrirtækisins. Hlutabréf hækka í verði af mörgum ástæðum, sem lítið eða ekki tengjast rekstrar- árangri stjórnenda fyrirtækjanna, sérstaklega þegar hlutabréfabrösk- urum tekst að skrúfa upp vænting- ar á mörkuðunum langt umfram það sem raunverulegt verðgildi fyrirtækjanna stendur undir. Hættan er líka sú að stjórnendur fyrirtækjanna taki að einblína á aukið verðgildi hlutabréfanna sem æðsta takmark fyrirtækisins. Og í ljós hefur komið að hugmyndaríkir forstjórar eiga auðvelt með að finna bókhaldslegar útkomuleiðir, sem dylja raunverulegan hag fyrirtæk- isins en auka áhuga braskaranna í kauphöllinni, sem þá taka óaf- vitandi þátt í að skrúfa áfram upp verðið og svo koll af kolli. Einnig kom í ljós að forstjórar áttu auðvelt með að tímasetja tilkynningar um hag fyrirtækisins með þeim hætti að auka líkur á hækkandi skamm- tímagengi bréfa, sem þeir síðan seldu og hirtu gróðann áður en bréfin féllu aftur í verði. Iðulega var verðgildi forkaups- réttar forstjóranna á hlutabréfum svo óljóst, að flestir hluthafanna gengu þess duldir hvað raunveru- lega fólst í launasamningum við þá, en vöknuðu við vondan draum, þegar fjölmiðlar upplýstu málin og í ljós kom í mörgum tilfellum að svo slapplega hafði verið staðið að mál- um, að það sem átti að verða „umbun í samræmi við árangur“ varð að „umbun án árangurs“. Þetta þætti klénn árangur hjá vinnu- veitendum í samningum við laun- þegafélög! Önnur vinsæl kenning meðal rétttrúaðra markaðshyggjumanna er sú, að því frjálsari sem vinnu- markaðurinn er því auðveldara sé að halda uppi fullri atvinnu, fram- leiðni og hagvexti. Fyrirtækin þurfi að geta dregist sundur og saman eins og harmon- ikkur eftir aðstæðum markaðarins. Því auðveldara sem sé að ráða fólk og reka, haga launum eftir fram- boði og eftirspurn vinnuafls og draga úr fríðindum (svo sem upp- sagnarfresti og orlofsrétti ýmiss konar) sem samtök launafólks hafa náð að tryggja því í tímans rás, því skilvirkara verði hagkerfið og nær því að starfa með fullum afköstum. Er þá gjarnan bent á hagkerfi Bandaríkjanna og Evrópu sem and- stæður. Í Ameríku gangi allt á fullum dampi, en á hinum niður- njörvaða vinnumarkaði Evrópu sé viðvarandi atvinnuleysi iðulega mælt í tveggja stafa tölum og þá einkum meðal ungs fólks, sem eigi yfirleitt í mesta basli með að komast inn á vinnumarkaðinn. Evr- ópskir fyrirtækjastjórnendur hljóti að verða svifaseinir gagnvart dyntum markaðarins, há launa- tengd gjöld fylgi hverjum nýjum starfsmanni, langir uppsagnar- frestir geri erfitt að draga saman í skyndi þegar við á, atvinnuöryggið dragi úr afköstum o.s.frv. Því skýtur dálítið skökku við að á hinum enda launaskalans verður allt annað uppi á teningnum. For- stjórar gera sífellt meiri og harðari kröfur um atvinnuöryggi, biðlaun, eftirlaun og fríðindi sem í raun eru óháð árangri, þótt öðruvísi sé látið líta út á pappírnum. Hvað eftir ann- að verðum við vitni að því að fyrir- tæki, jafnt einkafyrirtæki sem op- inber, eigi í mesta basli að losna við forstjóra, þótt reynst hafi óhæfur, jafnvel brotlegur, í starfi vegna alls kyns „fallhlífarákvæða“ í ráðning- arsamningi, ríflegra biðlauna, bóta sem nema mörgum árslaunum vegna óþæginda, sem hann verður fyrir við uppsögn, eftirlaun með alls konar fríðindum, sem reynast mörgu fyrirtækinu þungur baggi eftir því sem menn gerast langlíf- ari. Sumir þeir forstjórar sem mest hafa verið útbásúnaðir fyrir tæra stjórnunarsnilld hafa nýtt sér þann orðstír til að leggjast á líkama fyrir- tækja sinna eins og sníkjudýr og sjúga úr þeim lífsþróttinn meðan þeir geta dregið andann. Þetta er hollt að hafa í huga næst þegar við heyrum kenningar um kosti hins frjálsa vinnumarkaðar. Af hverju skyldi kenningin aðeins gilda um annan enda launaskalans? ■ Ekki er óeðlilegt að forystumenn íslenskrar verkalýðshreyfing- ar fylgist grannt með kjörum og aðbúnaði erlendra verka- manna við Kárahnjúkavirkjun. Í samningi íslenskra stjórn- valda við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo er kveðið á um að það skuli miða kaup og kjör allra starfsmanna sinna við virkjunina við gildandi kjarasamninga á íslenskum vinnumark- aði. Þó að opinberar stofnanir hljóti að fylgjast með því að við þetta ákvæði sé staðið er réttmætt að verkalýðshreyfingin kanni það einnig með sjálfstæðum hætti enda getur misbrestur á þessu sviði haft áhrif á það hvernig aðrir innlendir og erlend- ir vinnuveitendur ganga fram. En telji launþegaforingjar að virkjunarsamningurinn sé ekki haldinn hvað þetta varðar verða þeir að leggja trúverðug gögn fram máli sínu til stuðnings. Á það hefur skort og á meðan hlýtur ítalski verktakinn að njóta vafans. Í aðdraganda framkvæmdanna við Kárahnjúka áttu margir von á því að þær mundu fara langleiðina með að útrýma at- vinnuleysi hér á landi. Því fer fjarri að það hafi gerst. Atvinnu- leysingjar, jafnt á Austfjörðum sem annars staðar á landinu, hafa ekki hópast að Kárahnjúkavirkjun og hefur Impregilo því þurft að flytja inn mun fleiri erlenda verkamenn en ráðgert var í upphafi. Ástæðurnar fyrir því að Kárahnjúkar hafa ekki að- dráttarafl fyrir íslenskt verkafólk virðast vera margþættar, en einkum er nefnt til sögu skipulag vinnutímans, sem er annað en hér hefur tíðkast, og laun sem fela ekki í sér yfirgreiðslur með sama hætti og tíðkaðist við virkjanaframkvæmdir á hálendinu fyrr á árum og gerðu þá störfin mjög eftirsóknarverð. Þá spilar einnig inn í að nú er krafist sérhæfðari reynslu og verk- menntunar sem ekki virðist nægilegt framboð á meðal Íslend- inga sem eru á atvinnuleysisskrá. Frá efnahagssjónarmiði er það jákvætt að ekki hefur skapast óeðlileg keppni um vinnuafl við Kárahnjúka. Sú skoðun á ekki lengur hljómgrunn í þjóðfélaginu að stundarávinningur einstrakra launþegahópa geti komið í staðinn fyrir stöðugleika sem í reynd er besta tryggingin fyrir vaxandi kaupmætti. Ef verkalýðsforingjar sakna þeirra tíma þegar barist var um vinnuafl með tilheyrandi yfirboðum og launaskriði eru þeir á villigötum. Átti ekki þjóðarsáttin fyrir hálfum öðrum áratug að innsigla að slíkt óraunsæi væri liðin tíð? Yfirlýsing Impregilo um að ekki sé unnt að ábyrgjast verk- lok framkvæmda á tilsettum tíma fái fyrirtækið ekki að ráða erlenda starfsmenn eins og það hefur óskað eftir kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Auðvitað felst í henni ákveðinn þrýstingur á opinbera aðila um útgáfu atvinnuleyfa en horfast verður í augu við að miklir hagsmunir eru í húfi, jafnt fyrir verktakann sem íslenska ríkið. Þau viðbrögð formanns Rafiðnaðarsambandsins hér í blaðinu í gær að þetta væru „hótanir í garð Íslendinga“ bera svip gamaldags viðleitni til að blanda þjóðernisrembingi inn á svið þar sem hann á ekkert erindi. Í rauninni er þetta mál einfalt. Ef Impregilo stendur við virkjanasamninginn á verka- lýðshreyfingin að láta fyrirtækið í friði. Sé samningurinn ekki virtur er það skylda íslenska stjórnvalda að grípa inn í jafnvel þótt það skapi tímabundna óvissu um framgang verksins. ■ 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Verkalýðshreyfingin hefur rétt til að fylgjast með erlendum verktökum en málflutningurinn þarf að vera traustur. Deilurnar um Impregilo FRÁ DEGI TIL DAGS Umbun án árangurs ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS Í DAG SVEIGJANLEGUR VINNUMARKAÐUR ÓLAFUR HANNIBALSSON Forstjórar gera sífellt meiri og harðari kröfur um atvinnu- öryggi, biðlaun, eftirlaun og fríðindi - óháð árangri. ,, Ekki í ESB Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við HÍ, viðrar athyglisverð sjónarmið um ís- lensk utanríkissamskipti í viðtali við Viðskiptablaðið í gær. Hann telur að Ís- lendingar standi innan tíðar frammi fyrir tveimur kostum: að ganga í Evr- ópusambandið (ESB) eða standa utan við Evrópska efnahagssvæðið (EES). Ástæðan sé sú að EES eigi sér litla framtíð; yfirgnæfandi líkur séu á því að Norðmenn gangi í ESB innan tíu til fimmtán ára. Ragnari lýst ekki á aðild að ESB. „Það er tollmúrasamtök“, segir hann. Vegna ríkisafskiptastefnu og skipulags sambandsins sé hagvöxtur innan þess mjög lítill. Og Ragnar spyr: „Af hverju skyldi Ísland, sem hefur meiri hagvöxt en ESB, hærri meðal- tekjur og nýtur ákveðins sjálfræðis og frjálsræðis, vilja ganga inn í þennan fé- lagsskap?“ EES veigalítið Rök Ragnars gegn aðild að ESB eru ekki ný af nálinni. Aftur á móti eru ummæli hans um EES nýstárleg því þau ganga gegn „rétttrúnaði“ í öllum stjórnmála- flokkum landsins. Ragnar segir að í raun hafi EES-samningurinn ekki mikið gildi hvað tolla og markaðsaðgengi snertir. Tollar fari almennt lækkandi og séu nú mun lægri en þegar Ísland gekk í EES. Samningar Alþjóðaviðskiptastofnunar- innar (WTO) tryggi að Evrópuríkin hækki ekki tolla. Telur Ragnar að við mundum njóta sömu tollfríðinda utan EES og samningurinn færir okkur nú. Þá bendir Ragnar á að land eins og Sviss, sem standi utan ESB og EES, hafi ekki beðið neitt tjón af því. Loks sé víða meiri hag- vöxtur utan EES en innan þess. „Varð- andi fisk má ekki gleyma því að ESB er mjög áfjáð í að flytja hann inn. Það eru ekki hagsmunir ESB að takmarka inn- flutning á fiski, nema hugsanlega á ein- stökum tegundum,“ segir Ragnar. Ekki góðir skólar Ragnar viðurkennir að Íslendingar muni glata einhverjum réttindum með úrsögn úr EES, svo sem varðandi námsvist og skólagjöld í evrópskum skólum. En skólar í Evr- ópusambandslöndum séu almennt ekki góðir og því ekki mikils að sakna. gm@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.