Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 21
21LAUGARDAGUR 8. janúar 2005
Útlendingarnir hugsa lengur
Forstjóri Össurar, Jón Sigurðsson, var gestur Grein-
ingar Íslandsbanka á afkomuspárfundi bankans. Jón
kynnti lauslega það helsta sem fyrirtækið fæst við
og reynslu þess af erlendum fjárfestum. Hann sagði
erlenda fjárfesta ekki þolinmóðari en innlenda í
sjálfu sér og Íslendingar væru ekki síður faglegir í
fjárfestingum sínum. Helst mætti segja að munur-
inn lægi í því hversu langan tíma erlendu
fjárfestarnir tækju sér í að taka ákvörðun.
Ákvörðun sem Íslendingar tækju á nokkrum
dögum eða viku tæki nokkra mánuði hjá
erlendum fjárfestum. Jón sagði það hins
vegar tvímælalaust hafa mikla kosti í
för með sér að hafa erlenda fag-
fjárfesta í hluthafahópnum, en
stjórnendur yrðu að vanda sig
til að tryggja að allir hluthaf-
ar fengju upplýsingar á
sama tíma.
Jón sagði að samkvæmt
sinni reynslu hefði hlutabréfamarkaði á Íslandi
fleygt fram og siðferði á markaðnum væri ekki síðra
hér en á hlutabréfamarkaði á Norðurlöndunum.
Stoðtæki stjórnmálamanna
Jón kynnti tæknina í framleiðslu Össurar á tölvu-
stýrðu hné sem fyrirtækið hefur nýlega kynnt. Hnéð
forritar sig sjálft og lærir á notanda sinn og sér fyrir
næstu hreyfingar hans. Það hefur því „vit“ á því sem
notandinn gerir næst. Á grundvelli þessarar tækni
hyggst félagið framleiða fleiri vörur. Framtíðar-
músíkin er stoðtæki sem hægt verði að tengja við
taugakerfi notandans. Slíkt er þó ekki í sjónmáli.
Jón var spurður um regluumhverfi fyrirtækja, en
stjórnmálamenn hafa viljað gera bragarbót á
því. Jón sagði umhverfið gott og mátti skilja
að hann teldi ekki þörf á breytingum. Ein-
hverjir höfðu á orði hvort fyrirtækið þyrfti
ekki að fara að hanna gervihöfuð fyrir
stjórnmálamenn sem forritaði sig sjálft og
hefði vit fyrir þeim í hverju skrefi.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.433*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 274
Velta: 2.390 milljónir
+1,61%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Og Vodafone tilkynnti í gær
um skipulagsbreytingar hjá félag-
inu. Viðar Þorkelsson verður að-
stoðarforstjóri félagsins. Tveir
stjórnendur hverfa á braut.
Kauphöllin tilkynnti í gær að
nú þurfa félög sem skráð eru í
Úrvalsvísitöluna að gefa út til-
kynningar sínar á ensku jafnhliða
íslensku.
Lyfjafyrirtækið Actavis hefur
undirritað samning við Háskóla
Íslands sem felur í sér að stofn-
aður er sjóður til styrktar nem-
endum við skólann.
Hluthafafundir útgerðarfélag-
anna HB Granda og Tanga sam-
þykktu í gær samruna félaganna.
Hlutafé HB Granda hækkar um
227,7 milljónir að nafnvirði.
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 38,20 -0,78% ... Atorka 5,75 –
... Bakkavör 25,20 +5,00% ... Burðarás 11,90 – ... Flugleiðir 10,00
+1,01% ... Íslandsbanki 11,00 – ... KB banki 474,00 +3,72% ... Kögun
47,00 +1,51% ... Landsbankinn 11,95 -0,42% ... Marel 48,70 -0,20% ...
Medcare 6,02 -0,50% ... Og fjarskipti 3,30 +2,17% ... Samherji 10,90 –
... Straumur 9,35 -0,53% ... Össur 75,50
Bakkavör 5,00%
KB banki 3,72%
Og fjarskipti 2,17%
Actavis -0,78%
Straumur -0,53%
Jarðboranir -0,50%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Greiningardeildir gera ráð
fyrir mun minni hagnaði af
hlutabréfaeign á þessu ári
en í fyrra. Almennt eru
horfur í rekstri fyrirtækja
nokkuð góðar fyrir árið og
lækkun á verði hlutabréfa
talin ólíkleg.
KB banki mun skila mestum
hagnaði skráðra fyrirtækja árin
2004 og 2005 samkvæmt spá
greiningardeilda Íslandsbanka og
Landsbankans. Hagnaður KB
banka í ár verður samkvæmt
spánum á bilinu 15,2 til 18,5 millj-
arðar fyrir árið 2005. Greining
Íslandsbanka býst við tapi á
fjórða ársfjórðungi ársins 2004
hjá Landsbankanum vegna lakara
gengis á hlutabréfamarkaði.
Landsbankinn gerir ráð fyrir nei-
kvæðum áhrifum hlutabréfaverðs
á afkomu KB banka á síðasta
fjórðungi, en minni á Íslands-
banka sem hefur dregið verulega
úr hlutabréfaeign sinni innan-
lands. Fjármálafyrirtæki munu að
öllum líkindum njóta mun minni
gengishagnaðar á þessu ári, en á
því síðasta.
Greiningardeildirnar eru til-
tölulega bjartsýnar fyrir hönd
hlutabréfamarkaðarins fyrir
komandi ár. Ekki er talin von til
þess að árið í ár verði í nokkurri
líkingu við árið í fyrra sem var
metár í hækkun hlutabréfa.
Greining Íslandsbanka gerir
ráð fyrir að hækkun hlutabréfa
verði fimmtán prósent á árinu og
telur miklar hækkanir síðasta árs
í samræmi við væntingar um
hagnað þeirra á árinu. Þannig hafi
kennitölur svo sem hlutfall hagn-
aðar og virðis og arðsemi eigin-
fjár ekki breyst að verulegu
marki þrátt fyrir miklar hækkan-
ir á árinu.
Atli Guðmundsson sérfræðing-
ur Greining Íslandsbanka segir
útrás fyrirtækja ráða miklu um
framhaldið á hlutabréfamarkaði.
Hún verði stóra málið, líkt og á
síðasta ári. Hann segir skamma
reynslu komna á útrásina og því
fylgi varnaðarorð um að hugsan-
lega vanmeti menn áhættuna af
útrásarverkefnum. Útrás bank-
anna, skráning Actavis í London
og yfirtaka Bakkavarar á Geest er
meðal þess sem líklegt er til þess
að hafa áhrif á þróun hlutabréfa-
verðs á árinu. haflidi@frettabladid.is
SPÁÐ Í FRAMTÍÐINA Fjárfestar spáðu í
spilin á morgunverðarfundi Íslandsbanka í
gær. Þeir horfa tiltölulega bjartsýnir til þró-
unar hlutabréfaverðs á árinu 2005. Ekki er
þó talið líklegt að hækkun á markaði verði
í líkingu við reynsluna síðustu tvö ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
*Tölurnar eru frá kl. 15.00 í gær.
Minni hækkun hlutabréfa í ár