Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 24
„Svona gera menn ekki – lengur. Það sjá allir sem vilja.
Árið 2005 tala ekki einu sinni gamlir vinir og velunnarar
um Moggann sem „blað allra landsmanna“. „
Pétur Gunnarsson, framkvæmdastjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins, á vefsíðunni Tímanum 4. janúar 2005.
„Hitastigið hefur ef eitthvað er farið hækkandi. Það eru
svo sárafáir dagar og tímabil þar sem um löng kuldaköst
er að ræða“.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, í DV 4.
janúar um hvort ekki eigi að lækka hitareikninga vegna kulda.
Fimmtug með formannssvip
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður
Samfylkingarinnar hélt upp á fimmtugsaf-
mælið sitt með stæl á gamlársdag. Hundruð
boðsgesta fjölmenntu í Listasafn Reykjavíkur.
Einnar ræðu var beðið með nokkurri eftir-
væntingu og var það ræða svila Ingibjargar
Sólrúnar, Össurar Skarphéðinssonar en
hann varð seinn fyrir vegna þátt-
töku í Kryddsíld Stöðvar 2.
Ekki minntist Össur á vænt-
anlegan for-
mannsslag
við svil-
konu sína
en hún
hyggst sem
kunnugt er
brjóta sér
leið að
Kryddsíld-
arborðinu í stað Össurar að ári. Meiri athygli
en ræða Össurar vakti hins vegar myndband
sem Björn Brynjúlfur Björnsson kvikmynda-
gerðarmaður hafði hannað og þótti ýmsum
sem þar væri minnt rækilega á að afmælis-
barnið hefði formannssvip og jafnvel forsætis-
ráðherra þar sem hún var sýnd vinna glæsta
sigra og taka á móti erlendu stórmenni.
Ímyndarhönnuðir munu svo vafalaust hafa
jesúsað sig þegar DV birti ummæli for-
mannskandídatsins um áramótaskaupið þar
sem hún sagðist ekki hafa horft á það og
ætlaði ekki að gera það. Hún hefur að
minnsta kosti ekki fornu spekina sem hefur
komið mörgum pólitíkus að notum, í huga:
„In Rome do as the Romans do“.
Einkum, ao: sér í lagi, aðallega,
fyrst og fremst
Pétur Gunnarsson framkvæmdastjóri þing-
flokks framsóknarmanna vegur mann og
annan í vefritinu Tímanum sem hann ritstýrir
fyrir hönd flokksins. Fyrr í vikunni tók hann
sína gömlu vinnuveitendur á Morgunblaðinu
í karphúsið og sneri sér því næst að Samfylk-
ingunni. Pétur tekur Össur Skarphéðinsson
engum vettlingatökum og segir túlkun hans á
skipunarbréfi stjórnarskrárnefndar fráleita.
Össur hafði látið hafa eftir sér hér í Frétta-
blaðinu að hann undraðist að ekki ætti að
fjalla um nema fyrsta, annan og
fimmta kafla stjórnarskrárinn-
ar. Bendir Pétur á að í skip-
unarbréfnu segi að „einkum“
eigi að athuga þessa kafla:
„Orðið einkum er atviksorð og
merkir, samkvæmt Orðabók
Menningarsjóðs: sér í lagi, aðal-
lega, fyrst og fremst. Við vitum
að þú ert ekki doktor í ís-
lensku, Össur, en hvar lærð-
irðu eiginlega að lesa?“
24 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
84% eru á móti því að nafn
Íslands sé á Írakslistanum í
könnun Gallup en 62% voru
á móti fjölmiðlafrumvarpinu.
Meiri samstaða virðist um
þessa andstöðu en flest annað
í íslenskum þjóðmálum.
Örfá dæmi eru um meiri stuðning
við málefni í þjóðarpúlsi Gallup á
síðasta ári en afstöðuna til veru Ís-
lands á lista yfir hinar staðföstu
þjóðir í Íraksstríðinu. 84% voru á
móti því að Ísland væri á listanum
samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup sem
birtur var í vikunni. Þetta er miklu
meiri andstaða en til dæmis við fjöl-
miðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
62% sögðust andsnúin fjölmiðla-
frumvarpinu í þjóðarpúlsi Gallup í
júlí og 61% sammála ákvörðun for-
setans um að neita að undirrita
lögin. Þá ákvörðun rökstuddi Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
með því að „ekki væri farsælt að
varanlega verði djúp gjá milli þing-
vilja og þjóðarvilja“.
Athyglisvert er að skoða um
hvaða málefni hefur verið álíka
samstaða og um andstöðuna við
stuðning Íslands við Íraksstríðið.
Rúmlega 87% þjóðarinnar vildu
leyfa samkynhneigðum að gifta sig
í Þjóðarpúlsinum í júlí. Þá sögðust
85% hafa jákvæða afstöðu til
lækna í Þjóðarpúlsinum í ágúst og
jafn hátt hlutfall treysti Háskóla
Íslands í apríl. Andstaðan við
kvótakerfið mældist hins vegar
„aðeins“ 64% í október. Vitaskuld
má svo finna meiri samstöðu í
öðrum könnunum og nægir að
nefna andstöðu 99% aðspurðra við
samráð olíufélaganna í Frétta-
blaðskönnun í vetrarbyrjun.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
við Félagsvísindadeild Háskóla
Íslands, segir hins vegar að mikil
andstaða við Íraksstríðið þurfi ekki
að koma á óvart: „Kannanir hafa
sýnt það að Íslendingar eru gjarnir
á að láta í ljós andúð á hernaði og
styðja ýmiss konar friðarstarf-
semi. Dæmi um þetta er að árið
1987 var mikill meirihluti fylgjandi
tillögunni um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd, jafnvel þótt það myndi
veikja NATO. Á sama tíma var
mikill meirihluti fylgjandi aðild
Íslands að NATO og veru hersins í
Keflavík.“
Ólafur segir að sama gildi um
þá djúpu gjá sem væri á milli and-
stöðu fylgismanna stjórnarflokk-
anna við listann og afstöðu forystu-
manna flokkanna. Þannig hafi fylg-
ismenn Sjálfstæðisflokksins verið
fylgjandi gjaldtöku af varnarliðinu
í fyrrnefndri könnun 1987 þótt for-
ystumennirnir væru eindregið
andsnúnir henni. Þá sagði hann
erfitt að meta útfrá spurningu
Gallup hversu bjargföst þessi and-
staða væri. „Það er hins vegar ljóst
að Halldóri Ásgrímssyni hefur
mistekist að sannfæra sitt eigið
fólk um málstaðinn.“
a.snaevarr@frettabladid.is
stjornmal@frettabladid.is
Úr bakherberginu...
Meiri gjá í Íraksmáli en
flestum öðrum málum
nánar á visir.is
Það var ekki létt yfir Halldóri Ás-
grímssyni þennan dag, rétt fyrir jól
þegar hann var svo vinsamlegur að
veita mér viðtal í forsætisráðu-
neytinu. Nei, það var ekki létt yfir
Halldóri en satt að segja er hann
nú ekki kunnur af ofsakæti að
minnsta kosti á opinberum vett-
vangi. Og erindið mitt var opinbert
og háalvarlegt: að mæla stöðuna
eftir fyrstu hundrað daga hans í
embætti.
Ekki grunaði mig hins vegar að
enn ætti eftir að syrta í álinn. Í
miðju viðtali vitnaði ég til orða
Halldórs örskömmu fyrir innrásina í
Írak og sagði að engu væri líkara en
þarna hefði hann tekið hreina U-
beygju. Og það væri hreint ekki
hans stíll í stjórnmálum.
Það þyngdist brúnin á Halldóri
þegar ég las spurninguna og hann
greip frammi í fyrir mér: „Átti þetta
ekki að vera jólaviðtal?“ – svo vill til
að hundrað daga afmælið var um
jólin. „Voðalega hefur þú mikinn
áhuga á Írak!“, bætti hann svo við í
þvílíkum tón að ekki leyndi sér
að hann teldi slíkan áhuga al-
gjörlega óeðlilegan hjá íslenskum
stjórnmálablaðamanni. Eftir þetta
svaraði Halldór spurningum
mínum stuttur í spuna.
Halldóri er gjarnan strítt á því að
hann sé forsætisráðherra í ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar. Og víst á
hann enn langt í land eftir sína rétt
rúmu hundrað daga í embætti að
fara í fötin hans Davíðs. Þótt margt
megi segja um skap Davíðs Odds-
sonar og viðskipti hans við blaða-
menn verður það ekki af honum
skafið að ef hann á annað borð
gefur sig í viðtal, hefur hann aldrei
vikið sér undan spurningum eða
reynt að drepa máli á dreif eins og
Halldór hefur stundað á sínum
pólitíska ferli.
Halldóri er bersýnilega ekki um
það gefið að tala um Íraksmálið en
margt bendir til þess að það muni
ekki hverfa svo auðveldlega úr
sinni landsmanna eins og skoð-
anakönnun Gallup sýndi á dögun-
um.
Þar eykst andstaðan og það þrátt
fyrir að Halldór reyni að halda því
fram að það jafngildi því að hætta
við stuðning við enduruppbygg-
ingu Íraks að hverfa af lista hinna
staðföstu þjóða. Aðeins 16% fram-
sóknarmanna styðja Halldór í mál-
inu, 80% eru á öðru máli. Jafnvel
forystumenn framsóknarmanna
viðurkenna í einkasamtölum að
þeim sé meinilla við stuðning
Íslands við innrásina. Vikið hafi
verið frá stuðningi flokksins við
Sameinuðu þjóðirnar og fjölþjóða-
stofnanir sem greint hafi flokkinn
frá sjálfstæðismönnum í utanríkis-
stefnu. Heimildir herma að Halldór
hafi fallist með miklum semingi á
stuðning Íslands við Írak.
Ljóst má vera að málflutningur
Halldórs í Íraksmálinu fellur í grýttan
jarðveg hjá 80% stuðningsmanna
Framsóknar. 84% þjóðarinnar og
80% framsóknarmanna taka ber-
sýnilega ekki mark á þeim ummæl-
um Halldórs að ekki beri að ræða
málið því það heyri fortíðinni til.
Eins og einn háttsettur framsóknar-
maður orðaði það við þetta blað
(nafnlaust, sjálfsagt af ótta við ólund
Halldórs): „Halldór tapar á Íraksmál-
inu, ekki Davíð.“ Háttalag strútsins,
að grafa höfuðið í sandinn og segja
að listi staðfastra þjóða skipti ekki
lengur máli, er allavega ekki að skila
Halldóri árangri.
a.snaevarr@frettabladid.is
VIKA Í PÓLITÍK
ÁRNI SNÆVARR SKRIFAR
Halldór og háttalag strútsins
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FJÖLMIÐLAMÁLIÐ Forsetinn talaði um djúpa gjá þegar 62% voru á móti fjölmiðlafrumvarpinu.
ÍRAKSMÁLIÐ Enn dýpri gjá þegar 84% eru á móti.