Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 36
Magnús Theodór Magnússon sem flestir þekkja sem Tedda er sjö- tugur í dag. Tímamótin hringdu í Tedda og spurðu hvort þetta væri virkilega satt. „Já, ég get ekki þrætt fyrir þetta. En ég er við góða heilsu. Í góðu líkamlegu formi, æfi tvisvar í viku. Þetta er bara svona þegar maður er laus við óregluna. Ég hef verið reglumaður í 17 ár. Þá er manni ekkert að vanbúnaði. Grundvallaratriðið er að vera ekki hræddur. Mér finnst allt of mikið um það að fólk sé hrætt við einhverja pótintáta. Það þýðir ekkert.“ Hvernig gengur í listinni Teddi? „Það hefur gengið vel, ja þangað til á síðasta ári. Þetta var ósköp rólegt hjá mér á sýning- unni í Perlunni. En svo seldi ég dálítið núna í desember. Það bjargaði jólunum. Og svo get ég líka farið til Kanarí. Ég nefnilega get ekki farið á skíði í vetur.“ Af hverju ekki? „Ég var svo óheppinn að detta og brjóta nokkur rif. Ég var að þvo bílinn og hrasaði. Svo ég kemst ekki á skíði þetta árið. Þetta hefur komið fyrir mig einu sinni áður og þetta tekur dálítinn tíma. Fjandi sárt áður en það grær.“ En hvernig fagnar þú afmæl- inu? „Þetta verður heilmikið húll- umhæ. Ég býð fólki að koma til mín á Sjanghæ, Laugavegi 28 milli klukkan 3 og 6. ■ 28 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR WILKIE COLLINS (1824-1889) vinur Dickens og faðir spennusögunnar, var fæddur þennan dag Heilmikið húllumhæ AFMÆLI: MYNDLISTARMAÐURINN TEDDI ER SJÖTUGUR Í DAG „Þetta er sagan af því hverju þolinmæði konu og staðfesta karlmanns fá áorkað“. - The Woman in White er merkileg saga um hlutskipti kvenna á Viktoríutímanum. Höfundurinn átti í stöðugum útistöðum við gagnrýnendur – en lesendur kunnu að meta hann. timamot@frettabladid.is MAGNÚS THEODÓR MAGNÚSSON Teddi kemst ekki á skíði þetta árið vegna rifbrots sem hann hlaut þegar hann hrasaði við bílþvott. Þennan dag 1941 stöðvaði bandaríski blaðakóngurinn Willi- am Randolph Hearst birtingu á auglýsingum um mynd Orson Welles, „Citizen Kane“ eða Kane borgari, í öllum blöðum sínum. Myndin var almennt talin hafa blaðakónginn að fyrirmynd aðal- persónunnar Charles Foster Kane. Hún kom reyndar ekki til sýninga fyrr en seinna á árinu. Orson Welles er einhver þjóð- sagnakenndasta persóna í sögu bandarískra kvikmynda. Hann var snemma handgenginn Thalíu en þóttist ekki fá þann frama sem hann ætti skilinn í heimalandinu. Hann reyndi m.a. fyrir sér sem nautabani á Spáni áður en hann kom heim og lék í Rómeó og Júlíu á Broad- way. 1937 stofnaði hann eigið fyrirtæki til framleiðslu á útvarpsleikritum. Svið- setning hans á innrásinni frá Mars var svo raunveruleg að flutningurinn or- sakaði fjöldaskelfingu og margir Bandaríkjamenn héldu að Marsbúar hefðu ráðist inn í New Jersey. Orson Welles var aðeins 25 ára, þegar hann framleiddi, leikstýrði og lék í „Kane borgara“. Þótt myndin fengi ekkert sér- stakar viðtökur á sínum tíma er hún á seinni tímum talin eitt af merkustu verkunum í amerískri kvikmyndagerð og hefur haft áhrif á kvikmyndagerðar- menn alla tíð síðan. Orson Welles lést 1985. 8. JANÚAR 1941 Blaðakóng- ur bannaði auglýsingar Orson Welles þennan dag. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 794 Víkingar ráðast á hina helgu eyju Lindisfarne. 1686 Gífurlegt fannkyngi á Suð- Vesturlandi. Kjósarannáll segir snjóinn hafa náð meðalmanni í mitti. 1895 Fyrsta kvennablað á Ís- landi, „Framsókn“ stofnað á Seyðisfirði. 1926 Abdul-Aziz ibn Saud verður konungur í Hejaz. Hann breytir nafni ríkisins í Sádi- Arabíu. 1965 Sigríður Sigurðardóttir kjör- in íþróttamaður ársins, fyrst kvenna. 1989 Sýningum hætt á söng- leiknum „42nd street“ eftir 3.486 sýningar. 1998 Ramzi Ahmed Yousef dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir sprengjutilræði í World Trade Center í New York (tvíburaturnarnir). Hver var fyrirmynd Kane borgara? Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. AFMÆLI Hávarður Olgeirsson skipstjóri, Skóla- stíg 9, Bolungarvík, er áttræður í dag. Finnbogi Guðmundsson, fyrrverandi landsbókavörður, er 81 árs í dag. Sverrir Norland verkfræðingur er 78 ára. Elías Snæland Jónsson rithöfundur er 62 ára í dag. Gísli Már Gíslason, verkfræðingur og bókaútgefandi, er 58 ára. Þuríður Backman al- þingismaður er 57 ára. Gerard Lemarquis kennari er 57 ára í dag. André Bachmann tónlistarmaður er 56 ára. Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur er 55 ára. Ari Skúlason hagfræð- ingur er 49 ára í dag. Þorgrímur Þráinsson rithöfundur er 46 ára. Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson tónlistarmaður er 45 ára í dag. ANDLÁT Hinrik Guðmundsson verkfræðingur lést sunnudaginn 26. desember. Útförin fór fram í kyrrþey 5. janúar. Edward Páll Einarsson, 3630 Center- view Avenue, Wantagh, New York, lést sunnudaginn 26. desember Friðrik Fr. Hansen, Hvammstanga, lést fimmtudaginn 30. desember. Eiríkur Einarsson bóndi, Hallskoti, Fljótshlíð, lést mánudaginn 3. janúar. Jóhannes Ólafsson, Ásum 4, Hvera- gerði, áður Ásum í Stafholtstungum, lést miðvikudaginn 5. janúar. JARÐARFARIR 11.00 Friðrik Baldvin Jónsson, Hraun- koti, Lóni, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju í Hornafirði. 13.00 Halldóra G. Magnúsdóttir, Há- varðarkoti, Þykkvabæ, verður jarð- sungin frá Þykkvabæjarkirkju. 13.30 Paul Erik Símonarson, Grýtu, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsung- inn frá Grundarkirkju í Eyjafirði. 13.30 Sigmundur Þór Sigmundsson, frá Framnesi, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju. 14.00 Magnús Kristjánsson, (Gutti), Skipagötu 10, Ísafirði, verður jarð- sunginn frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Ragnhildur Guðjónsdóttir, Skipa- stíg 11, Grindavík, verður jarð- sungin frá Grindavíkurklirkju. María Magnúsdóttir Keflavík, Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, lést þann 20. desember síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. Hjartans þakkir til starfsfólks fyrir góða umönnun og elskulegt viðmót. Útförin fór fram 30. desember frá Keflavíkur- kirkju. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. F.h. aðstandenda, Kristín Tryggvadóttir, Sigurbjörn Skírnisson, Ari Tryggvason, Kristín H. Runólfsdóttir, Haukur Tryggvason, Anna Kristjánsdóttir, Edda Tryggvadóttir, Ólafur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Frændi okkar, andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga að morgni 5. janúar sl. Aðstandendur. Gunnar Páll Björnsson frá Grjótnesi, Hafsteinn Einarsson Bergi, Seltjarnarnesi, Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, lést 20. desember. Útförin hefur farið fram. Auður Sigurðardóttir, Guðmundur Hafsteinsson, Hanna Guðrún Guð- mundsdóttir, Sunneva Hafsteinsdóttir, Gunnar Þórðarson, Einar Haf- steinsson, Sigurborg Inga Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ■ LEIÐRÉTTING Tímamótum hefur borist leið- rétting á frétt um Minningar- sjóð Guðlaugs Bergmann. Á útfarardegi hans hafði ekki verið gengið frá skráningu á sjóðnum og hann því ekki fengið sérstaka kennitölu. Nú hefur það gerst. Minningarsjóður um Guð- laug Bergmann mun styrkja verkefni í umhverfis- og sam- félagsmálum. Reikningsnúm- erið er: 1143-18-640230 og kennitalan er 430105-2130. Fjölskylda Guðlaugs þakkar öllum sem þegar hafa lagt fram fé í sjóðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.