Fréttablaðið - 08.01.2005, Side 38
S igmúnd teiknari í Eyjum ereinsdæmi í heiminum umskopmyndateiknara með
slík afköst og úthald sem raun ber
vitni, því það eru engin önnur
dæmi um það að teiknari hafi skil-
að skopmynd nær daglega í sama
blaðið í liðlega 40 ár eða um 10
þúsund myndir eins og Sigmúnd
hefur teiknað í Morgunblaðið frá
því að hann teiknaði sína fyrstu
mynd í Moggann í febrúar 1964.
Hann hefur sett mjög sterkan
svip á Morgunblaðið, enda eru
myndir hans með því vinsælasta
sem blaðið birtir. Myndefnið í
fyrstu myndina sótti Sigmúnd í
Surtsey sem var þá að rísa úr hafi
í mögnuðu eldgosi og þar fékkst
hann við kappið um landtöku
ýmissa aðila á gjósandi eynna;
frönsku blaðamannanna, Vest-
mannaeyinga, íslensku jarðfræð-
inganna, ljósmyndara og fleiri, en
ýmsar uppákomur voru í þessum
ferðum og ekki hættulausar. Þar
týndi dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur til að mynda húf-
unni sinni eins og frægt varð og
þarna lagði Sigmúnd fyrstu línuna
með króklagi penna síns og síðan
hefur verið fiskur á Sigmúnd-
sönglinum hvern dag og slagar í
hálfa öld. Hvergi á byggðu bóli
jarðar er neitt til í líkingu við safn
Sigmúnds sem hefur þannig verið
fastur liður í þjóðarsál Íslendinga
í liðlega 40 ár. Fyrsta myndin í
Mogganum hefur lent einhvers
staðar annars staðar en í geymslu
Sigmúnds, en skyssuna að frum-
myndinni fann hann nýlega og
birtist hún hér í fyrsta skipti opin-
berlega. Vonandi kemur frum-
myndin, fullgerð pennateikning,
fram í dagsljósið, því hún á auð-
vitað heima í Sigmúndssafninu,
sem nú er orðið þjóðareign og
verður vonandi sett upp fyrr en
varir á glæsilegan hátt í Vest-
mannaeyjum eins og forsætisráð-
herra hefur haft orð um en
Byggðasafn Vestmannaeyja og
skjalasafn sér um að koma safn-
inu í tölvutækt form.
Með þrjár í takinu á hverjum degi
Sigmúnd vinnur mjög skipulega
við teikningar, alla daga, og hann
er nær alltaf með þrjár myndir í
takinu í einu hvern dag. Eina
mynd sem hann er að fullgera,
eina sem hann er að byggja upp
og eina sem hann byrjar á.
Fyrri hluta starfsævinnar vann
Sigmúnd við verkstjórn í fisk-
vinnsluhúsum bæði norðanlands
og sunnanlands auk þess að vinna
sífellt að uppfinningum véla og
búnaðar sem var til mikilla bóta í
fiskvinnslu og sjávarútvegi og
ekki síst í öryggi sjómanna. Að
þessu leytinu til hefur Sigmúnd
stundum verið eins og heil stofn-
un fyrir utan allt annað því fjöl-
hæfni hans er ekki einleikin:
teiknari, uppfinningamaður, mód-
elsmiður, tónlistarmaður og list-
málari svo eitthvað sé nefnt.
Um 1960 trollaði Helga Ólafs-
dóttir, ung og glæsileg Eyjastúlka,
Sigmúnd til Eyja og síðan hefur
hann gert út þaðan með
teiknipenna sínum hvort sem er í
skopmyndagerð, sem hefur æði
oft alvarlegan undirtón eins og
undiralda hafsins þótt létt leiki
báran við berg og sker, eða í teikn-
ingum véla og tækja og öryggis-
búnaði fyrir sjómenn sem hefur
skipt sköpum í björgun tuga
mannslífa sjómanna. Fyrir það
framlag var Sigmúnd veitt gull-
merki Sjómannadagsins í Vest-
mannaeyjum og fálkaorða ís-
lenska lýðveldisins
Að tefla á tæpasta vað í
teikningunni
Það þarf mikið þrek, seiglu og
lífsgleði að hafa staðið í brúnni á
Sigmúnd VE í yfir fjörtíu ár og
vera alltaf á útkikkinu. Sigmúnd
er eins og aflaklærnar sem sem
finna alltaf lóðningar og lenda
alltaf í fiski, hafa rífandi fiskinef.
En torfur Sigmúnds eru ekki
þorskur og síld eða annað úr
þeirri rómuðu fánu hafsins.
Torfur hans eru íslenska þjóðlífið
frá degi til dags, menn og málefni,
séð með augum skopteiknarans og
úr þessum mannlífstorfum skap-
ar hann með penna sínum túlkun
sem hefur fært Íslendingum
skemmtun og ómælda gleði um
áratuga skeið og um leið jákvæða
gagnrýni á eitt og annað í samfé-
laginu, gjörðum og stíl. Að öllu
jöfnu sækir Sigmúnd myndefni
sitt í fyrirsagnir blaða og hann
hefur aldrei búið til fyrirsögn á
myndir sínar, en oft dugir fyrir-
sögnin og meðfylgjandi frétt eða
frásögn ekki í mynd Sigmúnds og
þá fangar hann í myndina um-
ræðuna og stemninguna í þjóðfé-
laginu, bæði frá mannamótum og
úr fjölmiðlum ljósvakanna. Eitt af
sérkennum Sigmúnds fyrir utan
sígilt skop er tæknihlið mynda
hans og stundum á hann það til að
tefla á tæpasta vað, til að mynda á
vettvangi kynlífsins. Það er til
marks um ferskleika Sigmúnds að
þetta síðastnefnda hefur síður en
svo rjátlast af honum með aldrin-
um.
Það fer ekkert á milli mála að
Sigmúnd Jóhannsson teiknari
hefur ákveðnar skoðanir þótt
hann sé sjaldnast að túlka þær í
myndum sínum, en það segir mik-
ið sem Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra sagði þegar hann
skrifaði undir samning fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar um kaup á
myndasafni Sigmúnds skömmu
fyrir jól að það væri aðalsmerki
Sigmúnds að hann væri alltaf
skemmtilegur og meiddi aldrei
þótt auðvitað hvessti í verkum
skopmyndateiknarans.
Fylgifiskarnir eru nauðsynlegir í
svona myndgerð.
„Ég hef alltaf haft þessa þrá að
teikna,“ sagði Sigmúnd aðspurður,
„og myndir mínar byggjast á því
að lýsa með mínum augum því
sem aðrir eru að gera.“
Stundum þegar maður spyr
Sigmúnd um ákveðnar teikningar
eða atriði í þeim kraumar í hon-
um, tístir nánast eins og vorfugl-
arnir, en hann notar ekki mörg orð
30 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Dansnámskeið hefst
mánudaginn 10. jan. n.k
Kenndir verða gömludansarnir,
sérdansar ofl.
kl. 20 - 21 byrjendur
kl. 21 - 22 framhald
kr. 6.000.-
Barna- og unglinganámskeið
hefst þriðjudaginn 11. jan.
Kenndir verða gömludansarnir ásamt
íslenskum og erlendum þjóðdönsum ofl.
kl. 17.30 - 18 3 - 5 ára kr. 3.000.-
kl. 18 - 18.45 6 - 8 ára kr. 4.500.-
kl. 18.45 - 19.30 9 - 12 ára kr. 4.500.-
kl. 19.30 - 20.15 unglingar kr. 4.500.-
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14 A
LÆRIÐ
AÐ DANSA!
TAKIÐ ÞÁTT Í DANSINUM!
Þjóðdansar verða á
fimmtudögum kl. 20
Dansaðir verða þjóðdansar frá
ýmsum löndum.
Aðgangur ókeypis.
Opið hús verður á
miðvikudögum kl. 20.30
Við dönsum gömludansana annan
hvern miðvikudag.
Aðgangur kr. 600.- kvöldið.
Upplýsingar og skráning í síma 587 1616 og 567 5777
Kennt er í sal félagsins Álfabakka 14
Einstakur maður og
brautryðjandi
„Sigmúnd hefur lýst skoðunum sínum á mönnum og málefnum líðandi stundar
á síðum Morgunblaðsins í fjóra áratugi með sínum hætti,“ segir Styrmir. „Sýn
hans á íslenskt þjóðfélag er óvenjuleg og sérstök. Ég velti því oft fyrir mér,
hvernig einstaklingur, sem býr í fámennu eyjasamfélagi og fylgist með þjóðlífinu
úr fjarlægð getur haft svo sterka tilfinningu og skilning á því, sem er að gerast í
kringum okkur og fram kemur í myndum hans og hefur skapað nýja hefð.“ Ef til
vill er það hins vegar styrkleiki Sigmúnds að
vera ekki staðsettur í hringiðu höfuðborg-
arinnar þar sem það fer þverrandi að
maður sé manns gaman. Það er líf fyrir
utan Elliðaárnar, blússandi líf og menn-
ing, persónulegt samfélag í byggðum
landsins, hlýtt og hvetjandi þótt halli
undan fæti að sumu leyti. Það er líka
vítt til veggja í Eyjunum, hafið til allra
átta, endalaust haf og víðátta. Aðstæður
landsbyggðarinnar skapa annarskonar yfir-
sýn en höfuðborgin, þótt góð sé, kannski
meiri víðsýni og tillitssemi.
Á útkikki eftir því skoplega í 40 ár
STYRMIR GUNNARSSON, ritstjóri Morgunblaðsins.
SURTSEY NUMIN Blýantsskissa af fyrstu mynd Sigmúnds sem Morgunblaðið birti í febrúar 1964, en ekki er vitað hvar blekteikningin er nið-
ur komin. Skissan er af ævintýralegum landgöngum í Surtsey skömmu eftir að eyjan reis úr hafi. Skissan hefur aldrei birst áður opinberlega.
Ríkissjóður keypti myndir Sigmúnds Jóhannssonar, skopmyndateiknara í
Vestmannaeyjum, undir lok síðasta árs en sýn Sigmúnds á samtímann hefur
birst í Morgunblaðinu í fjóra áratugi. Fréttablaðið fékk Árna Johnsen til að
ræða við Sigmúnd um lífið og tilveruna auk þess sem hann leitaði álits fjöl-
margra á verkum listamannsins.