Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 41
og eignuðust einkadóttur sína,
Lisu Marie árið 1968. Hjónaband
þeirra varð þó ekki langlíft og þau
skildu árið 1973.
Í júní 1968 kom Elvis fram í
sjónvarpi í þættinum The ‘68
Comeback og var þátturinn til-
einkaður honum. Þarna var hann
löngu orðinn
þreyttur á
kvikmyndun-
um og hafði
lítið sést
utan þeirra.
Hann kom
því ferskur
inn í senuna
og 33 ára að
aldri var
hann betri en
nokkru sinni
fyrr. Nátt-
ú r u l e g i r
h æ f i l e i k a r
hans, útgeisl-
un og sjarmi
hafði ekki farið neitt og áhorf-
endur trylltust. Í lok þáttarins
kom Elvis fram í hvítum jakka-
fötum og söng nýtt lag; hið gífur-
lega fallega If I Can dream.
Kröftugur söngurinn og sterk
nærvera hans í laginu var einn af
hápunktum söngferils Elvis.
Mörgum árum seinna minntist
rithöfundurinn Greil Marcus
þáttarins á eftirfarandi hátt:
„Þetta var flottasti tónlistarat-
burður í lífi Elvis Presley. Ef ein-
hvern tíma var flutt tónlist sem
blæðir úr þá var það þarna.“
Síðustu tónleikar kóngsins
Á næstu árum kláraði hann kvik-
myndasamning sinn og gat snúið
sér að tónlistinni af öllu hjarta.
Elvis fór í heljarinnar tónleika-
ferðalag til Las Vegas árið 1969
og sló í gegn enn einu sinni. Þarna
klæddist Elvis fyrst galla sem
minnti helst á karatebúning og
var hannaður af Bill Belew. Sú
var byrjunin á hinum fræga
Elvis-galla sem eftir að leið á
varð sífellt skrautlegri. Árið 1970
gaf hann út mörg sinna bestu laga
og má þar helst
nefna In The
Ghetto, Suspi-
cious Minds,
Don’t Cry
Daddy og Kent-
ucky Rain. Á ár-
unum 1970-1973
fór Elvis sigur-
för um heiminn
og söng á ótal
t ó n l e i k u m .
Hann toppaði
a ð s ó k n a r m e t
hvað eftir ann-
að og var aftur
orðin skærasta
stjarnan.
Á seinni hluta ársins 1973 var
Elvis sendur á spítala vegna
lungnabólgu, ristilvandamáls og
lifrarbólgu. Hann hafði barist við
heilsuvandamál í nokkurn tíma
einnig vegna þeirrar staðreyndar
að hann virtist vera háður lyfseð-
ilsskyldum lyfjum. Einnig átti
söngvarinn í vandræðum með
þyngdina. Á síðustu árum ævinn-
ar var Elvis duglegur að syngja á
tónleikum en heilsu hans fór
hratt versnandi. Þann 26. júní
1977 kom hann fram á sínum síð-
ustu tónleikum. Á vídeóupptöku
frá tónleikunum sést hversu illa
hann var haldinn en hve gífur-
lega sterk og falleg rödd hans var
enn. Þann 16. ágúst 1977 lést
Elvis úr hjartagalla. Sorgarfrétt-
in barst um heiminn á nokkrum
klukkutímum. ■
LAUGARDAGUR 8. janúar 2005
ÚTSALAN
ER HAFIN Í HOLE IN ONE
15% - 70%
AFSLÁTTUR
Fatnaður 30% - 50% - 70% afsláttur
Skór allt að 60% afsláttur
Hálft golfsett með standpoka á 9.900,-
Golfkerrur frá 1.990,-
Þríhjólakerrur frá 3.900,-
Golfsett allt að 50% afsláttur
Barnakylfur frá 990,-
og fleira og fleira
Löng opnunarhelgi: laugardag 10-18, sunnudag 12-16
Bandaríska flaggið
–Björgvin Halldórsson, söngvari og Elvis-aðdáandi
„Elvis er bandaríska flaggið! Þegar hann sló í gegn árið
1956 þá var ég fimm ára og hann hefur haft mikil áhrif
á mig eins og alla. Elvis gat sungið allt og það sem kitl-
aði eyrun á fólki var sú staðreynd að Elvis söng frá hjart-
anu. Ég gæti ekki valið eitt einasta lag sem er í uppá-
haldi hjá mér. Hann tók upp svo gríðarlegt magn af lög-
um og auðvitað eru mörg sem falla í skuggann. En ef
ég ætti að velja eitt lag þá væru svona um þrjátíu lög
sem væru hæst á stallinum.“
Björgvin Halldórsson er annálaður Elvis-aðdáandi og
hefur safnað að sér nánast öllu sem kóngurinn hefur
gefið út. „Ég á mikið af skemmtilegum útgáfum sem eru gefnar út í fáum ein-
tökum. Ég á þó enn eftir að fara til Graceland. Sú pílagrímsferð er eftir og hún
verður sennilega farin á þessu ári eða því næsta.“
Aðspurður hvaða Elvis-tímabil hann kunni best að meta segir hann: „Ég er ofsa-
lega hrifinn af rokktímabilinu áður en hann fór í herinn. Lennon sagði að rokkið
hefði dáið þegar Elvis fór í herinn og ég upplifði það svolítið þannig. Ég var ekki
mikið hrifinn af bíómyndatímabilinu þó svo að fyrstu myndirnar hafi verið
góðar, eins og Love Me Tender, King Creole og Jailhouse Rock. Þetta varð svo
að allt of mikilli fjöldaframleiðslu þar sem þeir fóru yfir eina helgi og gerðu eitt
stykki bíómynd. Svo var ég reyndar gríðarlega hrifinn af Las Vegas-tímabilinu.
Meira að segja hafði ég mjög gaman að honum þegar hann var orðinn gamall
og veikur því röddin var sjaldan fallegri en einmitt þá.“
Björgvin segir Elvis hafa lengi vel látið sig dreyma um að fara í tónleikaferðalag
um Evrópu. „Hann fór aldrei út fyrir Ameríku í tónleikaferðalag, hann fór aðeins í
tónleikaferðalag til Hawai og þá er það komið. Það eru margar sögur uppi um
ástæður þess að úr Evrópuferð varð aldrei. Ein sagan segir að Colonel Parker,
umboðsmaðurinn, hafi verið ólöglegur innflytjandi. Hann var víst ekki hrifinn af
því að Elvis færi til Evrópu og dró úr honum vindinn. Ástæðan var auðvitað sú að
Parker hefði aldrei komist aftur inn í landið! „
Björgvin minnist á þá staðreynd við blaðamann að kóngurinn hafi átt tvíbura
sem lést í fæðingu. „Ímyndaðu þér! Ímyndaðu þér að hafa tvo Elvisa! Hann var
snillingur og ekkert annað. Æðislegur söngvari, ofsalega músíkalskur, fjallmynd-
arlegur, hann hafði það allt! Hann var engum líkur. Þeir brutu mótið eftir að þeir
gerðu Elvis. Hann er náttúrlega bara kóngurinn!“
Las Vegas Á næstu árum hélt Elvis marga
tónleika í Las Vegas á svokölluðu „Vegas-
tímabili“ kappans. Hann sló út öll aðsókn-
armet og margsinnis sín eigin.
ELVIS SNÝR AFTUR! Eftir margra ára kvikmyndaleik sneri Elvis aftur ferskari en nokkru
sinni í sjónvarpsþættinum „The ‘68 Comeback“.