Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 43
LAUGARDAGUR 8. janúar 2005 35
ATKINS-KÚRINN Kolvetnasnauður matur er uppistaðan í Atkins-kúrnum.
Er Atkins-kúrinn hollur?
Í fyrsta lagi er rétt að benda á það
að alls ekki er svo komið að menn
telji Atkins-kúrinn vera hollt
mataræði. Sumir telja hins vegar
að hann og aðrir kolvetnasnauðir
megrunarkúrar geti gagnast þeim
sem vilja léttast og virðast ýmsar
nýlegar rannsóknir benda til þess
að þyngdartap sé töluvert hjá
þeim sem eru á þessum kúrum.
Þyngdartapið er vegna minni
orkuneyslu
Þyngdartapið er þó ekki vegna
kolvetnaskerðingarinnar eins og
áður var talið, heldur einfaldlega
vegna minni orkuneyslu, það er
færri hitaeiningar eru innbyrtar.
Ástæða minni orkuneyslu er
meðal annars talin vera sú hve
einhæft fæðið verður með því að
takmarka neyslu margra fæðu-
tegunda og jafnvel fæðuflokka.
Ennfremur er orkuneyslan talin
minni vegna aukinnar prótínn-
eyslu samfara minni kolvetna-
neyslu, en óhjákvæmilegt er að
bæði magn og hlutfall prótína af
orkunni aukist þegar kolvetni eru
skert. Sýnt hefur verið fram á að
prótín eru mest mettandi allra
orkuefnanna í fæðunni (prótín >
kolvetni > fita) og samkvæmt því
mettast menn fyrr af prótínríku
fæði.
Blóðfita og þyngdartap
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt
meira þyngdartap eftir 6 mánuði
hjá þeim sem eru á kolvetna-
snauðum megrunarkúrum en
þeim sem eru á fitusnauðum kúr-
um, en eftir 12 mánuði var enginn
munur á þyngdartapi. Nokkuð
hefur komið á óvart að blóðfita
virðist ekki hækka hjá þeim sem
eru á kolvetnasnauðum kúrum,
þrátt fyrir að þeir megi borða
ótakmarkað af fitu, en þetta er
fyrst og fremst talið vera vegna
þyngdartapsins en alls ekki kúrs-
ins sjálfs. Ekki eru til rannsóknir
á magni fitu í blóði þegar hægir á
þyngdartapi hjá einstaklingum á
kolvetnasnauðu mataræði. Rann-
sóknir á flogaveikum börnum
hafa sýnt neikvæð áhrif kolvetna-
snauðs mataræðis á blóðfitu sem
gefur vísbendingu um að kol-
vetnasnautt fæði sem slíkt hafi
alls ekki hagstæð áhrif á blóðfitu
og henti þar af leiðandi ekki fólki
í eða við kjörþyngd sem mun létt-
ast lítið.
Langtímaáhrif Atkins-kúrsins eru
óþekkt
Langtímaáhrif kolvetnasnauðra
kúra á borð við Atkins eru ekki
þekkt. Meðal augljósra ókosta
slíkra kúra er að þeir eru trefja-
snauðir og hætta er á skorti á
ýmsum næringarefnum þegar
fæðuval er svo takmarkað sem
raun ber vitni í þessum kúrum.
Ýmis mikilvæg næringarefni,
ásamt trefjum, er að finna í kol-
vetnaríkum afurðum eins og
grófu kornmeti, grænmeti og
ávöxtum (sem algengar eru í
makróbíótísku fæði), auk þess
sem þessar afurðir eru ríkar af
ýmsum öðrum efnum sem geta
haft heilnæm áhrif, svo sem
karótíníðum og flavoníðum.
Hægðatregða og höfuverkur
Meðal helstu fylgikvilla kol-
vetnasnauðs fæðis á borð við
Atkins-kúrinn eru hægðatregða
og höfuðverkur. Einnig hafa
vöðvakrampar, niðurgangur, al-
mennur slappleiki, andremma og
útbrot oftar verið nefnd sem
fylgikvillar hjá þeim sem eru á
kolvetnasnauðu fæði en þeim
sem eru á fitusnauðu fæði. Vegna
orkuleysis sem oft er samfara
kolvetnasnauðum kúrum henta
þeir verr með hreyfingu og
líkamsrækt, sem að sjálfsögðu er
mikilvægt þegar verið er að losa
sig við umframmagn af fitu og
byggja sig upp.
Fitusnautt mataræði hollara
Til lengri tíma litið má því segja
að hentugra og skynsamlegra sé
að velja fitusnautt fæði en kol-
vetnasnautt þar sem árangurinn
verður að líkindum svipaður
hvað varðar þyngdartap en að
öðru leyti er fitusnauða matar-
æðið mun hollara og hentar betur
með heilsusamlegum lífsstíl, og
minni líkur eru á fylgikvillum á
borð við þá sem nefndir eru hér
að ofan. Þó er sjálfsagt að gæta
þess á fitusnauðu fæði að borða
fitu í einhverjum mæli, og þá
frekar mjúka en harða, meðal
annars til að fá lífsnauðsynlegar
fitusýrur og fituleysanleg víta-
mín.
Björn Sigurður Gunnarsson,
matvæla- og næringarfræðingur
á Rannsóknastofu í
næringarfræðum.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Meðal
spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis: Hvað eru margar raf-
eindir á hverju hvolfi, hvaðan koma nöfnin á mánuðunum, hvað eru efnatengi og hvað
veldur gróðurhúsaáhrifum? Hægt er að lesa svörin við þessum spurningum og fjölmörg-
um öðrum með því að setja efnisorð í leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavefur.hi.is
HVERNIG GETUR MATARÆÐI EINS OG ATKINS-KÚRINN VERIÐ
HOLLT?