Fréttablaðið - 08.01.2005, Side 44
36 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Með allt á hreinu...
„Það munaði mikið um að Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson náðu sér ekki á strik en hvorugur þeirra
skoraði í leiknum í kvöld.“
Þetta sagði Viggó Sigurðsson eftir síðari leik Íslands og Svíþjóðar. Hann þarf væntanlega að fá sér sterakri gleraugu fyrir HM í Túnis því Ólafur skoraði ekki eitt, heldur tvö
mörk í leiknum.sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Laugardagur
JANÚAR
Stjarnan tók á móti svissneska lið-
inu Spono Nottwill í áskorenda-
keppni Evrópu í handknattleik
kvenna sem fram fór í Garðabæ.
Þetta var fyrsti leikur Stjörnunn-
ar á mótinu og þétt setinn áhorf-
endabekkurinn í Garðabænum.
Stjarnan byrjaði leikinn betur
og náði tveggja marka forystu í
byrjun. Stelpurnar voru fastar
fyrir í vörninni og tóku duglega á
svissnesku stelpunum. Stjarnan
leiddi með einu til tveimur mörk-
um framan af fyrri hálfleik en
náði aldrei að hrista gestina al-
mennilega af sér. Spono Nottwill
komst yfir um miðjan hálfleikinn
og var jafnt á flestum tölum eftir
það. Á þessum kafla lék Gabriel
Kattmann feikivel og skoraði 7 af
9 mörkum sínum í fyrri hálfleik.
Samherjar hennar áttu þó í vand-
ræðum með Kristínu Guðmunds-
dóttur sem var liði sínu drjúg.
Staðan í hálfleik var 13-13.
Stjörnustelpurnar mættu á-
kveðnar til leiks í byrjun seinni
hálfleiks og komust í 17-14 eftir
sex mínútur. Hekla Daðadóttir fór
hamförum og skoraði sex mörk í
seinni hálfleik. Þá átti Jelena
Jovanovic stórleik og varði 12 af
15 skotum sínum í hálfleiknum.
Spono Nottwill var ekki af baki
dottið og þegar tvær mínútur voru
til leiksloka var jafnt, 24-24.
Stjörnustelpur fengu fáein tæki-
færi til að tryggja sér sigur og
sömuleiðis gestirnir en allt kom
fyrir ekki og jafntefli staðreynd.
„Ég tel að þetta hafi verið reynslu-
leysi í okkar liði að við unnum ekki
þennan leik,“ sagði Anna Bryndís
Blöndal sem stjórnaði vörninni eins
og herforingi, römm af afli. „Í stað
þess að komast í tveggja marka
mun ná þær að jafna og við erum
heppnar að ná að halda stiginu.“
smari@frettabladid.is
HEKLA DAÐADÓTTIR, LEIKMAÐUR STJÖRNUNNAR, ÁTTI STÓRLEIK Í SEINNI
HÁLFLEIK OG SKORAÐI ÞÁ 6 AF 7 MÖRKUM SÍNUM.
Reynsluleysi Stjörnunnar
Stjarnan lék sinn fyrsta leik í áskorendakeppni Evrópu í handknattleik kvenna
í gær er liðið atti kappi við svissneska liðið Spono Nottwill. Stjarnan slapp með
skrekkinn eftir æsispennandi lokamínútur og liðin skildu jöfn, 24-24. ■ ■ LEIKIR
14.00 Laugdælir og Tindastóll
mætast á Laugarvatni í
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í
körfubolta kvenna.
14.00 Grótta/KR og FH mætast á
Seltjarnarnesi í DHL-deild kvenna
í handbolta.
14.00 ÍBV og Valur mætast í
Vestmannaeyjum í DHL-deild
kvenna í handbolta.
15.00 Höttur og Breiðablik
mætast á Egilsstöðum í
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í
körfubolta karla.
16.15 Stjarnan og Eskisehir
Osmangazi mætast í Ásgarði í
Áskorendakeppni Evrópu í
handbolta kvenna.
■ ■ SJÓNVARP
12.15 Enski bikarinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Sheffield
United og Aston Villa í ensku
bikarkeppninni í fótbolta.
14.10 Áskorendakeppni Evrópu á
RÚV. Bein útsending frá leik APS
Makedonias og Spono Nottwill í
Áskorendakeppni Evrópu í
handbolta kvenna.
14.30 Enski bikarinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Oldham og
Manchester City í ensku
bikarkeppninni í fótbolta.
16.20 Áskorendakeppni Evrópu á
RÚV. Bein útsending frá leik
Stjörnunnar og Eskisehir
Osmangaz í Áskorendakeppni
Evrópu í handbolta kvenna.
17.20 Enski bikarinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Plymouth og
Everton í ensku bikarkeppninni.
20.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Atletico
Madrid og Real Madrid í
spænsku úrvalsdeildinni í
fótbolta.
Enska bikarkeppnin
BURNLEY–LIVERPOOL x–x
xxxxx
Stórleikur aldarinnar:
Fortíð gegn
framtíð á
Akureyri
HANDBOLTI Mikil stemming er á
Akureyri vegna leiks bikarmeist-
ara KA í handknattleik frá árinu
1995, gegn núverandi bikarmeist-
urum félagsins en leikurinn fer
fram í KA-heimilinu í dag og hefst
klukkan 15. Nær allir gull-
drengirnir frá ‘95 verða með og
líklega fer hver að verða síðastur
til að sjá menn eins og Alfreð
Gíslason, Valdimar Grímsson,
Erling Kristjánsson og Sigmar
Þröst Óskarsson leika alvöru
handknattleik. Þá mun landsliðs-
maðurinn Guðjón Valur Sigurðs-
son leika með liðinuπ frá ‘95 í dag.
Gömlu kempurnar hafa flestar
hverjar æft stíft að undanförnu
og þó að innkoma af leiknum
renni til góðgerðamála er ljóst að
hart verður tekist á í KA-heimil-
inu í dag. Búist er við miklu fjöl-
menni og var forsala á leikinn í
gær.
KA var stofnað 8. janúar 1928
og er félagið því 77 ára í dag. Af
því tilefni verður tilkynnt fyrir
leikinn hver hlýtur titilinn
Íþróttamaður KA fyrir árið 2004.
kk@frettabladid.is
ALFREÐ GÍSLASON Mætir á fornar slóðir
og ætlar að sýna gamalkunna takta.
Mörk Stjörnunnar: Hekla Daðadóttir
7, Kristín Guðmundsdóttir 6/2, Ásdís
Sigurðardóttir 4, Elísabet Gunnars-
dóttir 3, Elzbieta Koval 2, Kristín
Clausen 1, Anna Blöndal 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 15.
Mörk Spono Nottwill: Gabriela Katt-
mann 7/2, Daniela Hess 5, Helen
Estermann 4, Nicle Fahndrich 4, Silvia
Hafliger 2, Nicole Dinkel 1.
Varin skot: Fabienne Huber 6.