Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 48

Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 48
8. janúar 2005 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Carnal Knowledge er samsýning átta listamanna frá Norðurlönd- unum og Perú sem opnar í Ný- listasafninu í dag klukkan 16.00. Þetta er önnur sýningin í sýninga- röð sem hófst í Trollhattan í Sví- þjóð, 6. nóvember 2004, en mark- miðið er að sækja heim öll Norð- urlöndin. Því er um að ræða sýn- ingu í mótun sem jafnframt leit- ast við að kanna skilyrði listar og listamanna á Norðurlöndunum. Að gefnu tilefni er fólk beðið að hafa augun opin á laugardaginn í Reykjavík. Það er aldrei að vita nema fiðrildin birtist fyrirvara- laust. Díana Storåsen sýningarstjóri lýsir þessum hópi sem samansafni listamanna sem tjá sig ljóðrænt af ævintýralegum feminísma sem á margan hátt túlkar styrkinn í kon- unni. Listamennirnir í sýningunni eru Anneli Philgren (S), Diana Storåsen (N/S), Fröydi Laszlo (N), Nina Lassila (FIN), Trinidad Carillo (PER), Helena Blomqvist (S), Kristín Elva Rögnvaldsdóttir (ÍS) og Sidel Stubbe Shou (Dan). ■ Hlakkar til að flytja uppáhaldsverkin Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari þurfti að fresta för sinni til Bandaríkjanna til að geta leikið á aukatón- leikum í Salnum í Kópavogi á mánudagskvöldið. Upp- selt var á fyrri tónleikana, sem verða annað kvöld. Víkingur Heiðar Ólafsson píanó- leikari segir það mikla hvatningu og ákveðinn heiður að uppselt skuli vera á tónleika hans í Salnum í Kópavogi annað kvöld. „Það er allt öðruvísi að spila fyrir fullu húsi heldur en fyrir hálf- um sal. Það myndast alveg sértök stemning og ég hlakka mikið til.“ Ákveðið hefur verið að hafa aukatónleika á mánudagskvöldið, og þurfti Víkingur af þeim sökum að fresta flugi sínu til Bandaríkj- anna. Þeir sem geta ekki beðið eiga þess þó kost að heyra í Víkingi spila eitt verk á opnun ljósmyndasýn- ingar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 17. Í Salnum ætlar hann að flytja fjögur verk, eitt frá hverju megin- tímabili tónlistarsögunnar. Eftir Johann Sebastian Bach flytur hann Krómatíska fantasíu og fúgu í d-moll, þá tekur við Kreisleriana eftir Robert Schumann, Fimmtán ungverskir bændadansar eftir Béla Bartók og loks Fantasían Wanderer eftir Franz Schubert. „Þarna eru fjórar mismunandi stílgerðir, en um leið er ég með ákveðið tema á þessum tónleikum, sem er fantasían eða frjálsa formið. Öll þessi verk eru einhvers konar fantasíur í mjög frjálsu formi. Þetta er mjög skemmtileg tónlist.“ Hann segir öll þessi verk hafa lengi verið í miklu uppáhaldi hjá sér. Þau hafi verið sér sálufélagar frá því að hann heyrði þau fyrst og opnað sér margan ævintýraheim. „Ég hef lengi pælt í þessum verkum, unnið með þau og kynnst mörgum flötum á þeim. Mig langar mikið til þess að flytja þau hér á Íslandi.“ Víkingur er aðeins tvítugur að aldri en hefur stundað nám við hinn virta Juilliard-háskóla í Bandaríkj- unum frá því haustið 2002. Árið 2000 hlaut Víkingur fyrstu verð- laun í fyrstu Píanókeppni EPTA á Íslandi. Hann er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 og nú í vikunni hlaut hann hinn árlega styrk úr Minningar- sjóði Karls J. Sighvatssonar. Víkingur hefur þrátt fyrir ungan aldur komið fram á fjölmörgum tónleikum, þ.á m. á Listahátíð í Reykjavík 2000, á einleikstónleik- um í Salnum í Kópavogi 2001 og tví- vegis hefur hann leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, 2001 og 2003. ■ Ímynd borgar í Nýló Hlynur Helgason opnar sýning- una Gengið niður Klapparstíg á morgun, laugardaginn 8. janúar kl. 16.00 í Nýlistasafninu. Gengið niður Klapparstíg er nýr hluti yfirgripsmikillar myndverkaraðar sem heitir Ímynd borgar. Í heildarverkinu er reynt að sýna fjölbreytta mynd borgarinnar sem rýmis með aðferðum kvikmyndunar og ljósmyndunar. Verkið er unnið að mestu í Reykjavík, en einnig hafa verkhlutar verið gerðir í Prag. Verkið er í tveimur hlut- um, ljósmyndaröð á ljósakössum og kvikmynd sem varpað er á vegg í rýminu. Báðir hlutar verksins eru skrásetning á gönguferð niður Klapparstíg, niður rótgróna götu í miðborg Reykjavíkur, um sumarnótt. Hlynur Helgason útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk mastersgráðu úr Goldsmith College í London árið 1994. Hann hefur verið atkvæða- mikill á sviði nýmiðla síðustu árin og hefur sýnt ljósmynda- og kvikmyndainnsetningar hér heima og erlendis. ■ L E I K A R A R Guðrún Ásmundsdóttir • Ilmur Kristjánsdóttir • Þór Tulinius • Þráinn Karlsson „Til hamingju Ilmur“ AB Fréttabl. „Hið gullna jafnvægi harms og skops“ SAB Mbl Sýnt í Borgarleikhúsinu Aðeins þessar sýningar: Laugardagur 8. janúar Sunnudagur 9. janúar Fimmtudagur 13. janúar Laugardagur 15. janúar Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga Miðasölusími 568 8000 midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI - Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA STÓRA SVIÐ HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara- sögu Böðvars Guðmundssonar Í kvöld kl 20 - gul kort - UPPSELT Su 9/1 kl 20 - aukasýning - UPPSELT Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - UPPSELT Su 16/1 kl 20 - græn kort Fö 21/1 kl 20 - blá kort Lau 22/1 kl 20 - UPPSELT Lau 29/1 kl 20 - UPPSELT, Su 30/1 kl 20 Lau 5/2 kl. 20, Sun 6/2 kl 20 Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20 LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 9/1 kl 14, Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14 Su 30/1 kl 14 ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Fjölskyldusýning THE MATCH, ÆFING Í PARADÍS, BOLTI Lau, 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14 kNÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fö 14/1 kl 20 Su 16/1 kl 20 Fi 20/1 kl 10 Su 23/1 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco Í samstarfi við LA Í kvöld kl 20, Su 9/1 kl 20, Fi 13/1 kl 20, Lau 15/1 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Fö 14/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20 SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson Í samstarfi við TÓBÍAS Frumsýning Su 16/1 kl 20 - UPPSELT Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 Tosca eftir Puccini Frumsýning 11. febrúar Frumsýning fös. 11. feb. kl. 20.00 - UPPSELT - 2 sýning. sun. 13. feb. kl. 19.00 3. sýning fös. 18. feb. kl. 20.00 - 4. sýning sun. 20. feb. kl. 19.00 - FÁAR SÝNINGAR www.opera.is midasala@opera.is Sími miðasölu: 511 4200 Miðasala á Netinu: www.opera.is KRINGLUKRÁIN UM HELGINA • Fjölbreyttur sérréttamatseðill öll kvöld vikunnar • Tilboðsmatseðill fyrir Leikhúsgesti • Hópamatseðill • Sérsalur fyrir hópa Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is Unglingahljómsveitin POPS alla helgina Femínismi og fiðrildi VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON Öll verkin sem Víkingur flytur á tónleikunum í Salnum hafa lengi verið í sérstöku uppá- haldi hjá honum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.