Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 56

Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Aðal-vinningur erMEDION XXL tölva með 17”flatskjá! 99 kr/skeytið IK E 26 74 7 1 2. 20 04 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 4 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is Takk fyrir það gamla í fullum gangi! Útsalan Útsala 27. desember til 16. janúar. Fundið fé Í vikunni var ég að taka til í göml-um skápum vegna þess að ég er að flytja og koma mér fyrir í nýju húsnæði. Á þessum tímamótum í lífi mínu gerðist það að ég, þrjátíuog- tveggjaára að aldri – sem ég var loksins að koma reglu á mína hluti eftir margra ára rót – rak augun í nokkur umslög undir bunka af bók- um. Þetta reyndust vera af- mæliskort til mín, innan um nokkrar gjafir, frá því að ég hélt upp á þrí- tugsafmælið mitt á öldurhúsi hér um árið. TÝPÍSKUR ég auðvitað. Að halda áfram að fagna afmælinu þarna á öldurhúsinu og setja svo bara af- mælisgjafirnar í hrúgu, rusla þeim heim með kortunum og gleyma þeim síðan. En þetta kæruleysi mitt hafði vissa ánægjulega atburði í för með sér, nú tveimur árum síðar. Í einu kortinu fann ég nefnilega, mér til mikillar gleði, fimm þúsund krónur frá ömmu minni. OG ÞETTA er svo sem bara skemmtilegt og allt það. En ástæðan fyrir því að þetta er ótrúlega, af- skaplega skemmtilegt er þessi: Fyrir fjórum árum, árið 2001, var ég líka að flytja. Þá var ég að flytja frá London heim til Íslands eftir jú ákveðna brotlendingu í einkalífinu, sem er eins og það er, og ég brot- lenti í fyrri heimkynnum, heima hjá pabba og mömmu, í mínu gamla her- bergi. Þar var allt eins og ég hafði skilið við það mörgum árum áður. Meira að segja draslið var eins. Blöð í hrúgum. Bækur í bunkum. Og ég fór náttúrlega að taka til, eins og ég geri stundum. Koma mér fyrir. Og hvað haldiði að hafi gerst þá? Jú. Ég rak augun í nokkur umslög sem voru greinilega afmæliskort til mín. Þessi reyndust vera frá því að ég hafði haldið upp á tvítugsafmælið mitt. ÞAÐ er ekki að sökum að spyrja. Ég hafði ruslað öllum kortunum í hrúgu og síðan ekki hugsað um þau meira. Óforbetranlegt kæruleysi. En nú gerðist það semsagt, að í einu þess- ara korta leyndist tvöþúsundkall frá ömmu minni. Tveir stífpressaðir þúsund krónu seðlar. Mér nánast vöknaði um augu enda blankur á þessum tíma. Þetta var eins og að upplifa guðlega forsjón. Ég var hálf lítill í mér og eyðilagður og þarna beið hann mín peningurinn frá ömmu eins og í fyrirframskrifuðu handriti. Líkt og bjargræði frá himn- um. MAÐUR á sem sagt alltaf að skoða afmæliskortin sín. Fimmþúsundkall nú. Tvöþúsundkall þá. Tvöþúsund- kallinn kom þegar ég sjálfur þurfti talsvert á honum að halda. Fimm- þúsundkallinn kemur hins vegar þegar aðrir þurfa meira á honum að halda en ég, þótt ég sé auðvitað tóm- ur óreglumaður á fé og stöðugt á kúpunni og allt það. En fólkið við Indlandshaf fær sem sagt seðilinn og er hann þegar runninn til Rauða krossins, spegilsléttur og pressaður eftir að hafa legið undir bókum og beðið síns tíma. Ég vona að hann gagnist. ■ BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.