Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 2
2 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Alþýðusamband Íslands:
Kostnaður hækkaði
meira en bætur og laun
KJARAMÁL Kostnaðarliðir heimil-
anna hækkuðu meira um áramót
en laun og ýmsar bætur að mati
Alþýðusambands Íslands. Að
mati sambandsins má ekki mikið
út af bera til að forsendur kjara-
samninga bresti og kjarasamn-
ingum verði sagt upp í haust.
Í yfirliti ASÍ yfir helstu breyt-
ingar á launum, verðlagi og
sköttum í upphafi árs kemur
fram að verðbólga hafi hækkað
um fjögur prósent síðustu tólf
mánuði og hún hafi ekki mælst
meiri síðan um mitt ár 2002.
Ástæður þess eru taldar meðal
annars hækkun á heimsmarkaðs-
verði á olíu og hækkun á húsnæð-
isverði. Þá hafi gjaldskrár opin-
berrar þjónustu hækkað að með-
altali um 4,4 prósent. Það hafi átt
stóran þátt í að vega upp á móti
ávinningi almennings af verð-
lækkunum vegna útsalna á fatn-
aði, lækkunar á bensíni undan-
farið og styrkingu krónunnar.
Meðal hækkana um áramótin eru
tæp sautján prósenta hækkun á
almennum komugjöldum í heil-
brigðiskerfinu.
Meðal hækkana hjá sveitarfé-
lögunum eru nefnd hækkun út-
svars í Reykjavík og Kópavogi og
umtalsverðar hækkanir á gjald-
skrám leikskóla.
– ghg
Fundir félagsmálanefndar vegna málefna Impregilo:
Fjölmörg ágreiningsatriði
KÁRAHNJÚKAR Ljóst er að fjölmörg
ágreiningsatriði eru uppi milli
Impregilo annars vegar og hags-
munasamtaka vinnumarkaðarins
hins svegar, að sögn Sivjar Frið-
leifsdóttur formanns félagsmála-
nefndar. Nefndin hefur kallað
fulltrúa viðkomandi fyrirtækja,
stofnana og samtaka á sinn fund
til að afla upplýsinga.
Á fund félagsmálanefndar í
gær mættu fulltrúar Samtaka at-
vinnulífsins, Alþýðusambands Ís-
lands og Vinnumálastofnun. Áður
hafði nefndin fundað með fulltrú-
um Impregilo, Vinnumálastofnun-
ar, félagsmálaráðuneytis og
Landsvirkjunar.
„Það kom fram að menn grein-
ir á um hvort hægt sé að fá fleiri
Íslendinga og Evrópubúa til að
vinna uppi á Kárahnjúkasvæðinu
eða ekki,“ sagði Siv. „Impregilo
telur sig hafa reynt að gera það í
kjölfar þess að Landsvirkjun bað
þá að hraða verkinu yfir vetrar-
tímann, gagnstætt því sem áður
var fyrirhugað. ASÍ hefur dregið í
efa að reynt hafi verið til þrautar.
Það er ágreiningur um mjög mörg
atriði en þetta stendur svolítið
upp úr að mínu mati,“ sagði Siv
enn fremur.
Hún kvaðst gera ráð fyrir að
málið yrði rætt á Alþingi þegar
það kæmi saman. - jss
DANMÖRK Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Dana, tilkynnti á
þingfundi í gær að þingkosningar
verða haldnar 8. febrúar, eftir 20
daga. Kjörtímabilinu lýkur ekki
fyrr en í nóvember, en Anders
Fogh sagði á þinginu í gær að
nauðsynlegt væri að flýta þing-
kosningum svo þær rekist ekki á
sveitarstjórnarkosningarnar sem
verða haldnar 15. nóvember.
Stjórnmálaskýrendur í Dan-
mörku, meðal annars í ítarlegri út-
tekt í Berlingske Tidende, benda á
að stjórnarflokkarnir njóti nú vin-
sælda í skoðanakönnunum og
treysti á að þær muni haldast áður
en til umbóta kemur í vor, sem
mun fækka sveitarfélögum úr 274
í 100. Með þessum breytingum
mun opinberum störfum einnig
fækka.
Mikið hafði verið um það rætt í
Danmörku að undanförnu að kosn-
inga væri að vænta og kynntu jafn-
aðarmenn áhersluatriði sín á
sunnudag undir kjörorðinu Made
in Denmark. Meðal kosningalof-
orða er að skapa 50.000 ný störf á
kjörtímabilinu auk 110 milljarða
króna skattalækkana. Í viðtali við
danska útvarpið lýstu bæði Mog-
ens Lykketoft, formaður Jafnaðar-
flokksins, og Pia Kjærsgaard, for-
maður Danska þjóðarflokksins,
yfir ánægju með að kosningar
verði haldnar nú.
Rasmussen, sem
er formaður Frjáls-
lynda flokksins, stýr-
ir nú minnihluta-
stjórn með Íhalds-
flokknum, með
stuðning Danska
þjóðarflokksins, og
hafa þeir alls 94 þing-
menn af 175. Sam-
kvæmt Gallup-könn-
un sem birtist á
sunnudag myndi nú-
verandi stjórn halda
velli. Einnig hafa
Kristilegir demókratar lofað nú-
verandi stjórn stuðningi sínum.
Þeir hafa nú fjóra þingmenn, en
fengju engan samkvæmt Gallup-
könnuninni.
Bendt Bendtsen, formaður
Íhaldsflokksins og varaforsætis-
ráðherra, segir stjórnarflokkana
tvo ganga hönd í hönd til þessara
kosninga. Þetta undirstrikuðu leið-
togar flokkana með því að halda
stuttan sameiginlegan blaða-
mannafund í gær. Anders Fogh
Rasmussen lagði þó áherslu á að
þetta væru tveir ólíkir flokkar.
Kosingaloforð flokkanna er að efla
rannsóknir og menntun, meðal
annars með því að leggja aukið fé í
rannsóknir og fjölga samræmdum
prófum í grunnskólum. Þá á að
skapa 60.000 ný störf á kjörtíma-
bilinu, efla sjúkrahús og bæta
stöðu barnafjölskyldna. Anders
Fogh segir að ekki verði vikið frá
núverandi skattastefnu. ■
Kærur til landlæknis:
Vita ekki
fjölda kæra
HEILBRIGÐISMÁL Ekkert skipulagt
skráningarkerfi heldur utan um
kærur sem berast Landlæknis-
embættinu.
Matthías Halldórsson aðstoð-
arlandlæknir segir að skipt hafi
verið um tölvukerfi embættisins
fyrir stuttu. Nýja kerfið bjóði
ekki upp á að fylgst sé með fjölda
kæra með einföldum hætti.
Á heimasíðu landlæknis segir
að um 250 kærur berist árlega.
Þeim hafi farið fjölgandi eftir að
skráningar hófust fyrir tíu árum.
Til stendur að bæta tölvu-
kerfið.
- gag
Kosningar í Danmörku:
Konungleg
áhrif
DANMÖRK Ákvörðun Anders Fogh
Rasmussen um að boðað sé til
þingkosninga 8. febrúar hefur
margvísleg áhrif á dönsku kon-
ungsfjölskylduna. Danskir fjöl-
miðlar skýrðu frá því í gær að
krónprinsessan Mary Donaldson
hefði hlotið ríkisborgararétt þeg-
ar hún kvæntist Friðrik í maí og
hafi því nú kosningarétt í kom-
andi kosningum. En líkt og aðrir
meðlimir konungsfjölskyldunnar
muni hún ekki nýta þennan kosn-
ingarétt. Þá er einnig skýrt frá því
að Margrét Þórhildur Danadrottn-
ing hefur frestað opinberri för
sinni til Mexíkó sem átti að eiga
sér stað dagana 5. til 12. febrúar,
vegna þingkosninganna. ■
FRÁ SLYSSTAÐ
Litlu mátti muna að bíllinn félli niður á
Sæbraut.
Bílslys:
Fór á milli
brúa
BÍLSLYS Maður um tvítugt var flutt-
ur með minniháttar meiðsli á
slysadeild eftir að hafa keyrt á
milli tveggja brúa við Miklubraut.
Litlu munaði að bíllinn félli niður
á Sæbraut fyrir neðan brýrnar.
Bæði lögregla og slökkvilið
voru kvött á staðinn en lögreglan
segir að betur hafi farið en á horfð-
ist því ökumaðurinn var í bílbelti.
Bíllinn var þó talsvert skemmdur
og þurfti að hífa hann burt með
krana. Lögreglan segir að ekki
liggi fyrir hvers vegna ökumaður
bílsins hafi lent á milli brúnna en
málið er í rannsókn. -bs
SPURNING DAGSINS
Reynir, hvað ætlarðu að gera
við Abbas?
„Ég ætla að reyna að láta hann stilla
til friðar.“
Reynir Traustason er ritstjóri Mannlífs en fyrirsögn
leiðara Fréttablaðsins í gær var „Reynir á Abbas“.
SKIPTING ÞINGMANNA Í DANSKA ÞINGINU
Gallup-
Kosningar könnun 16.1.
Jafnaðarmenn 52 55
Radikal Venstre 9 12
Íhaldsflokkurinn 16 14
Miðdemókratar 0 0
Sósíalíski þjóðarflokkurinn 12 12
Kristilegir demókratar 4 0
Minnihlutaflokkurinn 0 0
Danski þjóðarflokkurinn 22 21
Frjálslyndi flokkurinn 56 57
Einingarflokkurinn 4 4
Aðrir 0 0
Alls 175 175
BENDT BENDTSEN OG ANDERS FOGH RASMUSSEN
Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn segjast ganga til þessara kosninga hönd í hönd,
en þessir flokkar sitja nú í minnihlutastjórn.
Kosningum flýtt
um tíu mánuði
Forsætisráðherra Dana kallaði til þingkosninga eftir þrjár vikur á þingfundi í
gær. Stærstu flokkarnir lofa að skapa tugþúsundir nýrra starfa á kjörtímabil-
inu. Núverandi stjórn segir að Íraksmálið verði ekki eitt af kosningamálunum.
LEIKSKÓLAGJÖLD HÆKKA
Alþýðusambandið kvartar undan hækk-
andi gjöldum, þar á meðal hækkun á
gjaldskrám leikskóla.
FÉLAGSMÁLANEFND
Málefni Impregilo voru til umræðu á fundi félagsmálanefndar Alþingis í gær. F.v. Ögmund-
ur Jónasson, Siv Friðleifsdóttir formaður nefndarinnar, Gissur Pétursson forstjóri Vinnu-
málastofnunar, Helgi Hjörvar og Halldór Grönvold frá ASÍ.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI
ALLT Á KAFI Á HÚSAVÍK
Helga Dögg Aðalsteinsdóttir mokaði snjó
um síðustu helgi af þaki á húsi ömmu
hennar, Líneyjar Gunnarsdóttur.
Húsavík:
Moka snjó af
þökum
SNJÓÞYNGSLI Mikil snjóþyngsli
eru á Húsavík eftir ofankomu
undanfarinna vikna. Þegar
blotna tók í snjónum bar á því að
þök tækju að leka og fékk björg-
unarsveitin á Húsavík nokkrar
beiðnir um aðstoð vegna þessa
um síðustu helgi.
Að sögn Aðalsteins Á. Bald-
urssonar, formanns Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur, hefur ekki komið
jafn mikill snjór á Húsavík í
a.m.k. áratug. „Hér hefur verið
mjög mikill vetur, miklu meiri en
t.d. á Akureyri þótt ekki sé langt
á milli. Bærinn hefur verið fullur
af snjó og mikil ófærð allt frá jól-
um,“ sagði Aðalsteinn. -kk
BROWN Í STAÐ BLAIRS Dave
Prentis, formaður stærsta
verkalýðsfélags Bretlandseyja
– Unison, lýsti þeirri skoðun í
viðtali við Scottish Daily
Record að Gordon Brown fjár-
málaráðherra ætti að taka við
leiðtogaembætti Verkamanna-
flokksins af Tony Blair forsæt-
isráðherra.
■ EVRÓPA