Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,36 62,66
116,51 1117,07
81,33 81,79
10,93 10,99
9,96 10,02
8,99 9,04
0,61 0,61
94,78 95,34
GENGI GJALDMIÐLA 18.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,87 -0,44%
4 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum:
Meirihluti telur
innrásina misráðna
BANDARÍKIN Það voru mistök að
gera innrás í Írak. Þetta er af-
staða rúmlega helmings banda-
rísku þjóðarinnar samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir
CNN og USA Today.
52 prósent sögðu það hafa ver-
ið mistök að ráðast inn í Írak en 47
prósent sögðu það rétta ákvörðun.
Fyrir mánuði töldu 47 prósent að
innrásin hefði verið mistök en 52
prósent töldu rétta ákvörðun að
ráðast inn í Írak.
Nú vilja 24 prósent fjölga í her-
liðinu í Írak samkvæmt könnun-
inni. 24 prósent vilja halda
óbreyttum liðsstyrk en hátt í
helmingur vill kalla allan eða
hluta hersins heim frá Írak. 21
prósent vill fækka í herliðinu en
fjórði hver kjósandi vill kalla all-
an herinn heim.
Stuðningur við innrásina í Írak
var mestur meðal Bandaríkja-
manna í mars 2003, fáeinum dög-
um eftir að hún hófst. Þá töldu 75
prósent rétt að ráðast inn í Írak en
23 prósent sögðu það mistök. ■
Erfðarannsókn á
alkóhólisma og fíkn
Íslensk erfðagreining og SÁÁ taka nú til óspilltra mála við rannsókn á erfðum
áfengissýki og fíknar. Til þessa verkefnis hefur Evrópusambandið veitt 330 milljón-
ir, sem er stærsti styrkur sem það hefur veitt til íslensks rannsóknarverkefnis.
HEILBRIGÐISMÁL Íslensk erfðagrein-
ing og SÁÁ hafa fengið 330 miljóna
króna styrk frá Evrópusamband-
inu til rannsókna á erfðafræði
áfengissýki og fíknar.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, og Þórar-
inn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ,
undirrituðu samning um samstarf í
höfuðstöðvum ÍE í gær.
„Markmiðið er að reyna að
finna hvernig erfðir leggja af
mörkum til áhættunnar á því að
verða alkóhólisti eða fíkill,“ sagði
Kári Stefánsson. „Og reyna að ein-
angra erfðavísi sem leggur af
mörkum til alkóhólisma eða ann-
arrar fíknar. Síðan er vonin sú, að
sú þekking sem komi út úr því
megi nýta til að setja saman nýjar
aðferðir til að lækna og fyrir-
byggja. Fólk hefur látið sig dreyma
um að hægt sé að setja saman lyf
sem hjálpi fólki til að takast á við
alkóhólisma og aðra fíkn. Stað-
reyndin er hins vegar sú, að þó svo
að það sé erfðaþáttur í áhættunni,
þá erfa menn aldrei annað en til-
hneiginguna til að fá sjúkdóminn.
Sú staðreynd að menn erfa til-
hneigingu tekur ekki af þeim
ábyrgðina á því sem þeir gera. Hún
er eftir sem áður á herðum hvers
einstaklings fyrir sig.“
Samningurinn er liður í viða-
miklu evrópsku samstarfsverkefni
átta rannsóknastofa um rannsóknir
á líffræðilegum orsökum fíknar.
Verkefnið hefur hlotið 8,1 miljón
evra styrk frá ESB. Helmingur
styrksins, eða um 330 miljónir
króna, er ætlaður til rannsókna á
sviði mannerfðafræði sem ÍE mun
annast. SÁÁ mun sjá um klínískan
hluta rannsóknanna. Þetta er
stærsti styrkur sem ESB hefur
veitt til íslensks rannsóknarverk-
efnis.
Þórarinn Tyrfingsson kvaðst
gera ráð fyrir að 200-300 áfengis-
sjúklingar tækju þátt í rannsókn-
inni, svo og aðstandendur þeirra.
Hitt lægi fyrir að enginn tæki þátt
í slíkri rannsókn nema skriflegt
samþykki viðkomandi lægi fyrir
áður.
Næsta skref verður að rann-
sóknaraðilar munu senda inn um-
sókn til vísindasiðanefndar og Per-
sónuverndar. Þá verður hafin út-
sending bréfa til fólks vegna þátt-
töku á næstu vikum.
jss@frettabladid.is
Umframeyðsla hersins:
Yfirmaður
bauð afsögn
NOREGUR, AP Norski herinn fór tæpa
tíu milljarða íslenskra króna fram
úr fjárveitingum í fyrra og varð
það til þess að yfirmaður hersins
bauðst til að segja af sér. Framúr-
keyrslan nemur þremur prósentum
af heildarfjárveitingum norska
hersins.
Stjórnvöld höfðu áður fyrirskip-
að endurskipulagningu og sparnað í
rekstri hersins og því þykir eyðsla
umfram heimildir afar óheppileg.
Kristin Krohn Devold varnarmála-
ráðherra sagði málið mjög alvar-
legt en þáði ekki afsagnarbeiðni yf-
irmanns hersins því hann lætur
hvort sem er af störfum 1. apríl. ■
Kárahnjúkar:
Ölvaður á
veghefli
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Egils-
stöðum var á Fljótsdalsheiði við
framkvæmdasvæði Kárahnjúka í
gærmorgun þegar hún stöðvaði
veghefilsstjóra sem var þar við
vinnu grunaðan um ölvun í starfi.
Maðurinn, sem er starfsmaður
Impregilo, mun að sögn lögreglu á
Egilsstöðum hafa verið að
skemmta sér kvöldið áður en ekki
gætt þess að sofa áfengisáhrifin
úr sér. Hann verður sviptur öku-
réttindum en Vinnumálastofnun
mun taka ákvörðun um hvort
maðurinn haldi vinnuvélaréttind-
um sínum áfram. - bs
Robert Kennedy yngri:
Íhugar
framboð
BANDARÍKIN, AP Robert Kennedy
yngri, sonur Roberts Kennedy sem
var myrtur 1968 og bróðursonur
Johns F. Kennedy sem var myrtur
fimm árum fyrr, íhugar nú að gefa
kost á sér í kosningum í New York
ríki. Kennedy er sagður hafa rætt
við valdamikla demókrata um
möguleika á framboði til ríkissak-
sóknara New York. Meðal þeirra
sem Kennedy er sagður hafa leitað
til eru Hillary Clinton öldungadeild-
arþingmaður og Eliot Spitzer sem
gegnir embætti ríkissaksóknara.
Kennedy hefur barist fyrir um-
hverfisvernd og gegn rekstri kjarn-
orkuvera um tuttugu ára skeið. ■
■ ASÍA
TÓLF FÁ AÐ FLJÚGA Kínversk
stjórnvöld hafa valið sex flug-
félög sem fá að fljúga beint milli
Kína og Taívan þegar flugið verð-
ur leyft í fyrsta sinn í 55 ár. Taí-
vanar velja jafnmörg flugfélög.
Ekki verður þó flogin stysta leið
heldur yfir Hong Kong og þaðan
á áfangastað.
Keflavík:
Par með
fíkniefni
LÖGREGLUMÁL Par var handtekið
grunað um að fíkniefnamisferli.
Það var lögreglan í Keflavík sem
handtók parið. Fólkið hafði ekið í
bíl eftir Reykjanesbrautinni,
misst stjórn á honum og ekið út af.
Hvorugt þeirra slasaðist við
útafaksturinn en þegar lögreglan
kom fólkinu til aðstoðar fundust
ummerki og leifar af bæði kanni-
bisefnis. Maðurinn er á fimmtugs-
aldri en konan er fædd árið 1971.
Þau voru bæði handtekin og færð
á lögreglustöð til yfirheyrslu og
er málið í rannsókn. ■
UNDIRRITUN
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, undirrituðu samstarfssamninginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
GERT AÐ SÁRUM ÍRAKA
Bandarískur hermaður liðsinnir íröskum
manni sem meiddist í bílsprengjuárás í
Bagdad. Þrír létust í árásinni.
Hafnarfjarðarbær:
Lækkar fast-
eignaskatta
BÆJARMÁL Bæjarráð Hafnarfjarð-
ar samþykkti í gær að leggja til
við bæjarstjórn að lækka álagn-
ingarprósentu fasteignaskatts á
íbúðarhúsnæði um sjö prósent.
Álagningin lækkar því úr 0,36
prósentum niður í 0,335 prósent.
Þá var ákveðið að leggja til að
álagningarprósenta á atvinnuhús-
næði verði lækkuð úr 1,65 pró-
sentum niður í 1,628 prósent.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir að með þessu vilji
Hafnarfjarðarbær reyna að milda
afleiðingar hækkunar á fasteigna-
mati sem gekk í gildi um áramót. -bs
LÚÐVÍK GEIRSSON
Segir að með þessu vilji Hafnarfjarðarbær
reyna að milda afleiðingar hækkunar á
fasteignamati.